Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Síða 13
DV. MIÐVIKUDAGURll. MAl 1983. 13 ýmsar leiðir í skipulagsmálum. Þeir hafa starfrækt ,strangan, miðstýrðan kommúnistaflokk, reynt aö breyta litlum samtökum æskufólks í nýjan slíkan, — og haldiö uppi einum (eða fleiri, ef menn vilja skilgreina vinstri flokk vítt) „breiðum” umbótaflokki, sem starfar nákvæmlega eins og hver annar borgaralegur flokkur, t.d. Alþýðubandalagið. Að franskri fyrirmynd eru nú allt í einu starfandi hér þrír flokkar sem koma enn einni flokkstegundinni á framfæri. Hér er um að ræða svokölluð „regnhiífarsamtök” eða samfýlkingu þar sem lágmarkskröfur eru gerðar um málefnasamstöðu, byggt er á einföldu meirihlutavaldi, og mörgum flokksfélögum og ólíkum leyft að starfa saman. Alþýöuflokkur breytti lögum sinum í þessa átt 1981, nýstofnaö Bandalag jafnaðarmanna starfar í þessum anda og fram er komin tillaga um að breyta Alþýðubandalagi í svona samtök. Og þá vakna spurningar: Henta þessi skipulagsform íslenskum kommúnist- um, sósíalistum og jafnaðarmönnum? Er hér komin leið til þess að binda nauðsynlegan endi á (eðlilegt) sundrungartímabil þessara afla? Er hér komin leiö fyrir okkur kommúnista til aö afla hugmyndum okkar betur fylgis en áður og ná því aö stofna almennilegan verkalýðsflokk? Þarf að breyta skipulagi verkalýðshreyfingarinnar? Nátengd baráttu fyrir nýju for- ystuafli launafólks er staöa heildar- samtaka þeirra — verkalýðshreyfing- arinnar: Mikil og sanngjörn gagnrýni á stefnu hennar og starfsaðferðir hefur lítinn hljómgrunn í aðalflokkunum fjór- um og meðal þorra verkalýðsfor- Tillaga um að breyta Alþýðubandalaginu í„regnhlifarsamtök" kom fram á siðasta landsfundi flokksins. I - ystunnar. En það er jafnvíst að verka- lýðshreyfingin er ekki fær um að verja umbjóðendur sína; hvaö þá breyta launakjörum umtalsvert í átt til v- evrópsks launa „standards”. Ein skýringin á bitleysinu er sú stefna að launafólk skuli taka fullt tillit til stööu fyrirtækja, þjóðarbús og ann- ars þess sem felur arðrán og stétta- skiptingu eöa réttlætir hvort tveggja. Hitt er líka að skipulag (og starfshætt- ir) verkalýössamtakanna hefur ekki breyst neitt að ráði í hálfa öld. Og hug- myndir eru margar. Þegar Vilmundur Gylfason dustar rykið af gamalli um- ræðu í ASI og ræöir um vinnustaöa- félög með vald, rísa upp Guðmundur J. og Pétur Tyrfingsson (úr Fylkingunni) og tala um tilræði við hreyfinguna og að verið sé að leggja til að hún sé leyst upp. Þessi tvö mál, regnhlífarsamtök” og breytta verkalýðshreyfingin á að ræða á opnum fundi að Hótel Heklu 12. maí nk. kl. 20.30. Þar verða væntan- lega framsögumenn frá Alþýðuflokki, Alþýöubandalagi, Fylkingunni, Kommúnistasamtökunum og Banda- lagi jafnaðarmanna. Ari Trausti Guðmundsson, kennari. Ferðamál á Vestf jörðum og í Dölum: ÁHUGINN VAKNAÐUR Flókalundur er þar þegar kominn í unaðslegu umhverfi og þar í nágrenn- inu er kjörlendi tjaldfólks sem og hótelfólks, veiöi og gott gönguland. I næsta nágrenni er Brjánslækur, enda- stöð Breiöafjarðarferjunnar, væntan- legur þéttbýliskjami. Heimamenn hafa þegar áttað sig á gildi ferðamála og þá er málum borgið. Látrabjarg er vestasti oddi Evrópu og jafnframt eitt mesta fuglabjarg veraldar sem auk þess er mjög aðgengilegt skoðunar. Það hlýtur að vera hægt að gera miklu meira með þessar staðreyndir. I fyrrasumar fór ég í Látrabjarg og Keflavíkurbjarg í fylgd með Þórði á Látrum og hann opn- aöi augu mín enn betur fyrir þeim undraheimi sem þarna er. Einhvern veginn finnst mér að flug til Patreks- fjarðar sé lykillinn að þessum heimi, en þar eru takmarkaðir gistimöguleik- ar og auk þess er of langt frá flugvelli þangað. Brú yfir fjörðinn myndi gjör- breyta aöstööunni eins og áður er sagt. Leiðin út á Látrabjarg mundi styttast verulega og verða hæfileg dagsferð með viðkomu í hinu frábæra byggða- safni á Hnjóti í Örlygshöfn. Heima- menn á Patreksfiröi eiga sjálfir að vera frumkvöðlar þessara mála. Fuglaskoöun er orðin vinsæl dægra- dvöl víða um heim og það eru ekki að- eins gönguglaöir útivistarmenn sem þar eru heldur miklu fremur allt annað fólk sem lítið eða ekkert getur gengið en vill samt fá að sjá dásemdir lífsins. Þetta fólk getur og vill greiða fyrir góða þjónustu og til þeirra þurfum við að ná. Sjálfur hef ég fariö um Kriiger þjóðgaröinn í Suður-Afríku og séð hvað fólk vill leggja á sig til að sjá úr fjarlægð dýr og fugla. Ég bendi Patreksfirðingum á Árna Waag til ráðuneytis þróun þessara mála, hann er einn reyndasti maður okkar í fugla- skoöun. Þingeyri er næsti staður á Vestfjörð- um sem gæti orðið miðst.öð ferða- manna en þar eru litlir sem engir gisti- möguleikar í dag. Áfangamir á Vest- fjörðum eru það langir að á Þingeyri vantar eðlilega þjónustumiðstöð. Ferðamenn hafa viðdvöl ef eitthvað er viö aö vera, einhvers konar veitingar o.s.frv. Hálendiö milli Arnarfjaröar og Dýrafjarðar er mjög gimilegt fyrir fjallgöngufólk og hefur oft veriö kallað vestfirsku alparnir en fólk þarf aö búa einhvers staðar og borða. Ef þessi frumatriöi em ekki fyrir hendi kemur fólkið ekki. Ef áöumefnd brú kæmi yfir Dýrafjörö styttist leiðin út með firöin- um að noröan og y fir á Ingjaldssand og áfram veröur hægt að fara inn í fjarðarbotn og ganga á Sjónfríö og Glámu. Og svo eru Mýrar og æöar- varpið þar mikilvægt aðdráttarafl sem feröamenn gætu fengið aö kynnast úr „hæfilegri fjarlægð” og í leiðsögn heimamanna. Isafjörður er miðstöð Vestfjarða, þar er komin fullkomnasta aðstaðan til móttöku feröamanna og þar koma all- ar samgönguæðar á sjó, í lofti og á landi saman og þaðan liggja gjarna leiðirnar um alla Vestfirði f jær og nær. Nýbyggt hótel er stórt skref í fram- faraátt ferðamála á Isafirði og sumar- hótelið í Menntaskólanum er þörf við- bót á háannatímanum yfir sumarmán- uðina. Skíðalönd Isfirðinga eru frábær en mættu vera betur auglýst. Menn skyldu athuga þaö aö sól kemur fyrr á Seljalandsdal en niöri í sjálfum bænum og veðurblíöa er einstök á Isafiröi á sumri sem vetri. Isaf jörður ætti því að vera meiri vetraríþróttastaöur en nú er. Þar þarf trúlega aö koma meira til samvinna við ferðaskrifstofur um sölu þessararþjónustu. Hótelá Hornströndum Homstrandir eru eyðibyggðir norð- an Djúps og þangað hefur fólk leitað í vaxandi mæli undanfarin ár, en hverj- ir eru það sem þangað leita? Trúlega mestmegnis göngu- og tjaldfólk sem lítils þarfnast nema flutnings til og frá. Þetta göngu- og tjaldfólk er ekki nema lítið brot af þeim ferðamönnum sem gjarna vildu gista og líta Hornstrandir augum. Dagsferðir Djúpbátsins em ágætar til snöggra kynna en ekki nema snöggra kynna. Ég sagði það á ferða- málaráðstefnunni á tsafirði að hótel á Homströndum væri það sem koma mundi. Og það er mál málanna þar. I náinni framtíð hlýtur að koma hótel á Hornströndum og fleira en eitt. I Aöal- vík er rúm fyrir gistiaðstöðu á hótel- vísu að sumarlagi. Þama er fjöldi sumarbústaða, flugvöllur, vegarspotti yfir í Rekavík bak Látur og upp á fjall- ið þó að eitthvað þurfi hann lagfæring- ar við. Miðstöð Hornstranda verður samt í Hornvík. Þar verður að koma gott hót- el fyrir sumargesti. Auövelt er að virkja einhverja ána til ljósa og upphit- unar. Þama getur orðið algjör paradís fyrir þá sem njóta vilja óspilltrar nátt- úru og finna sjálfa sig í einveru eða góðum félagsskap norður undir heims- skautsbaug. Það getur vel verið að það taki nokkum tíma að auglýsa upp slík- an stað en það er örugglega hægt aö finna fullt af fólki sem vill komast út úr skarkala heimsins og njóta óspiUtr- ar náttúm við heimsskautsbaug í full- komnum þægindum. Gera veröur göngustíga um Homvík, setja göngu- brú yfir Hafnarós og flugvöll á Háu- melum. Göngustígamir verða aö vera út á Horn og út á Langakamb í Hæla- víkurbjargi. Á báöum þessum stöðum er hægt aö skoöa fuglalífið í þessum miklu fuglabjörgum. Víða er einnig hægt að tína krækling og steikja viö fjörubál í miðnætursól. Þama er eng- inn endir á lífsnautninni mitt í dásemd- umnáttúrunnar. Þriðji staðurinn sem gæti orðið ferðamannamiöstöð með gistiaöstöðu, er Reykjafjöröur. Þar er að vísu hafn- leysa en í næsta firði, Þaralátursfirði, er lífhöfn eða svo sagði mér Guðmund- ur Guöjónsson frá Þaralátursfirði. I Reykjafirði er jarðhiti og sundlaug, sem er mjög mikilvægt, og þaðan eru úrvals gönguleiðir um fjörur og fjöll, eitthvað við allra hæfi. Djúpbáturinn hefur aukið skoöunar- ferðir um Isafjarðardjúp og Jökulfirði enda mjög margt þar aö sjá en hugsan- lega gætu þeir bætt viö sig minni bát- um til skoðunarferða með litla hópa sem nú leita á náðir fiskibáta sem ekki eru ætlaöir til fólksflutninga. Einar Þ. Guðjohnsen. „Einhvern veginn finnst mér að flug til Patreksfjarðar sé lykillinn að þessúm heimi, en þar eru takmarkaðir gistimöguleikar og auk þess er of langt frá flugvelli þangað. Brú yfir fjörðinn mundi gjörbreyta aðstöðunni."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.