Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Síða 14
14
.mtIAM.il HUOaÖUMVC
DV. MIÐVKUDAGUR11. MAl 1983.
■
Óréttlæti vegna hækkana á búvörum veröi leiðrétt tafarlaust.
HVERNIG MA
EYÐA VERÐBÓLGU?
Hvaö er þjóöfélag? Þaö er eða ætti
aö vera samfélag manna, stofnsett
til aö auövelda mönnum lífiö á
þessum hnetti, öllum mönnum. Ef
þaö auöveldaöi ekki mönnum lífiö
væri engin ástæða til aö stofnsetja
þaö og hver og einn gæti lifaö útaf
fyrir sig, hvemig sem þaö endaöi.
En hvernig hefur þessi stofnun
staðið sig? Við skulum athuga þaö.
Lýðve/dið ísiand —- ár 1983
I dag hækkuöu landbúnaðarvörur
um 20% til 40% vegna kauphækkana
annarra stétta í landinu og
kostnaðarliöa sem eru afleiðingar af
þeim. Þar sem ljóst er aö þessar
hækkanir á landbúnaðarvörum hafa
stórlega skert kaupmátt launa í
landinu og leiöréttingu á því ekki aö
vænta fyrr en eftir 3 mánuði, legg ég
til aö slíkt óréttlæti veröi leiðrétt
tafarlaust. Þaö er ekki forsvaranlegt
aö láta slíkt viögangast í okkar þjóö-
félagi. Eg legg til aö það veröi tafar-
laust sett á fót nefnd til aö leiðrétta
þetta. Þaö er aö sjálfsögöu ekki hægt
aö hlunnfara bændur heldur. Eg
sting því upp á því aö í nefndinni
veröi aðilar frá launþegum og
bændum. Nefndinni er ætlaö að sjá
um aö ekki hallist á launþega né
bændur í launaútreikningi. Nefnd-
inni er skylt að sjá um aö þaö taki
sem minnstan tíma aö reikna út
laun hvers um sig. Nefndinni er skylt
aö nota tölvur við alla útreikninga
svo þaö taki sem stystan tíma. Ég
get ekki séö aö þaö sé fráleitt aö
slíkir útreikningar gætu átt sér staö
daglega. Ég er sannfærður um aö
með þeirri tækniþróun sem á sér staö
mætti stytta þennan tima verulega,'
allt niður í klukkutíma. Ég get ekki
séö betur en hver launþegi og allir
bændur þyrftu aö hafa sérstakt
móttökutæki, sem væri í beinu
sambandi viö nefndina. Ég sé ekki
betur en aö við gætum komið upp
stórkostlegum rafeindaiönaöi í
sambandi viö þessa sjálfsögöu leiö-
réttingu á kjörum landsmanna. Viö
gætum sjálfir framleitt launahækk-
unarmóttökutækin fyrir launþega og
skaffaö fjölda launþega atvinnu. Ég
veit ekki hvort þaö er ástæöa til aö
sína fram á þær hækkanir sem yröu
ef viö stofnuðum svona nefnd. Viö
þurfum þess ekki, við höfum svona
nefnd, hún vinnur bara ekki eins
hratt og ég sting upp á.
Þetta er virkilega hluti af því þjóö-
félagi sem viö erum þátttakendur í
og þaö er margt jafngeöveikt og
þetta.
Óskapnaður
I hreinskilni sagt hef ég veriö aö
reyna aö skilja hvemig þetta sam-
félag okkar er hugsaö. Við verðum
aö gefa okkur þá forsendu aö það sé
samfélag allra manna og hvert er þá
hlutverk þess? Aö gera einstakling
aö skattnúmeri og setja á hann
óbærilegar kvaöir sem hann rís ekki
undir? Aö hygla aöeins örfáum
einstaklingum eöa gefur þaö öllum
sama rétt?
Staðreyndin er sú aö viö höfum
byggt upp þjóöfélagsóskapnað sem
er illa innrættur og illskeyttur, hann
svífst einskis þegar hans hags hags-
munir eru í veði. Hann hefur komiö á
boöum og bönnum sem stefna að því
aö útrýma sjálfsögöu frelsi einstakl-
ínga til athafna og geröa. Þessi
óskapnaöur er löngu búinn aö
gleyma því aö hann átti aö vera til
þjónustu viö alla menn.
Er hægt aö lækna óskapnaðinn?
Eflaust ekki, þaö hafa margir góðir
menn reynt en ekki haft árangur sem
erfiöi.
Þaö má vera aö enginn hafi áhuga
á að breyta skepnunni. En ég ætla
samt að koma með tillögu til breyt-
ingar á einum þætti í fari óskapn-
aðarins, en þaö hefur að gera meö
hvemig viö hugsum um peninga.
I mínum huga eru peningar vinnu-
stundir einstaklinga, erfiði þeirra og
strit. Peningar eru vissulega ávísun
á vinnustundir og verðmæti.
Verömæti er þaö sem viö teljum vera
verömætt. Annaðhvort vegna vinnu
sem hefur verið lögö í viðkomandi
verömæti eða eitthvaö sem við
höfum óvenjumikinn áhuga á aö
eignast.
Gjaldmiöill í kerfi sem viö búum
viö er mjög merkilegt fyrirbrigði.
Þeim sem hafa skapað lög og reglur
fjármagnsins hefur tekist aö gera
fjármagn að sjálfstæöu afli og þaö
svo mögnuðu aö þaö ræðst ekkert viö
þaö. Þaö er virkilega þaö sem
stjórnar öllum hlutum á þessum
hnetti.
Eins og fjármagn vinnur í dag
orsakar þaö eitthvert magnaðasta
þrælahald sem þekkist. Fjármagn
hefur þá náttúru að þaö dregur til sín
meira fjármagn. En hvaöan? Hvaö
er þaö sem myndar verömæti? Þaö
er vinna, vinnustundir einstaklinga.
Hávaxtaákvöröun þýöir því einfald-
lega ákveöinn vinnustundafjölda frá
þeimsemvinna.
Veröbólgan er móöir vaxtanna, en
sú móðir er ekki góö móöir, hún étur
stööugt börnin sín, þenst út og er
stöðugt ólétt. Foreldrar verðbólg-
unnar eru leti, óhagræði í fram-
leiðslu, ágimd og getulausir stjóm-
málamenn, en eiga þó í engum vand-
ræöum meö aö eignast afkvæmiö.
I grófum dráttum má sjá kerfiö í
þessu ljósi. En nú skulum viö skoöa
hvaö viö gætum gert til aö breyta
þessu.
Ég fullyröi aö viö gætum drepið
alla innlenda veröbólgu mjög auð-
veldlega.
Hvernig?
Miða gjaldmiðil viö þá sem skapa
verðmæti, vinnandi fólk. Þaö er ljóst
aö raunverulegt fjármagn veröur
Kjallarinn
Dagbjartur Stígsson
ekki til nema einhver leggi á sig
vinnu. Maöurinn er eina raunveru-
lega verömætiö, öll verömæti miöast
við hann, þess vegna skal hann verða
sá stofn sem miðað verður viö þegar
gjaldmiöill er ákveðinn. Til þess aö
viö áttum okkur almennt á hvaö
gjaldmiöill er í raun og veru, væri
skynsamlegt aö gera enn eina mynt-
breytingu.
1 staðinn fyrir krónur og aura
ættum við aö nefna myntina það sem
hún er raunverulega, vinnustund,
mínútur og sekúndur. Ef viö gerðum
þaö yrði ríkari skilningur á því meö
hverju viö værum raunverulega aö
borga þegar viö kaupum eitthvaö.
Þaö ætti að skapa eölilegt aöhald.
Viö munum gera okkur grein fyrir
því aö í hvert skipti sem viö kaupum
eitthvað, erum viö aö eyöa hluta af
starfsævi okkar. En hvernig er svona
breyting framkvæmanleg? 1 eðli
sínu er þetta ekki mikil breyting.
Gjaldmiöill okkar er að sjálfsögöu
ávísun á vinnustundir, við hugsum
einfaldlega ekki um hann sem
slíkan. I okkar huga er hann sér
fyrirbrigöi sem erfitt er að vera án.
Skilningurinn nær ekki öllu lengra
almennt.
Breyting þessi gæti farið þannig
fram aö við fengjum 40 fjölskyldur til
að taka þátt í könnun sem næði yfir
allar eölilegar þarfir hvaö fjármagn
snerti. Að lokinni þeirri könnun kæmi
í ljós hversu verömæt vinnustund
þyrfti að vera, svo hægt væri aö reka
heimili sómasamlega, með eöli-
legum vinnudegi fyrir vinnu. Aö
lokinni könnun, sem allir aöilar væru
sáttir við, lægi fyrir krónutala sem
táknaöi verömæti vinnustundar.
Hugsum okkur að þessi tala væri 108
kr., þá táknaöi 1 vinnustund sem
mynt 108 kr., 1 mínúta sem mynt
táknaöi 1,80 kr., 1 sekúnda sem mynt
táknaði 3 aura, 10 sekúndumynt
mundi því tákna 30 aura.
Þessi greiösluvinnustund sem
hefur veriö reiknuð út og allir sam-
þykkt, yröi skoöuð sem grunneining
og skráð því sem jafngildi þeirra
erlendu mynta sem viö höfum miðað
gengi okkar gjaldmiöils viö á því
augnabliki sem myntbreytingin yrði.
Þá yrði grunneiningin tengd inn á
þjóðhagsvísitölu. Upp frá því
ákvarðaöi þjóðhagsvísitala
verömæti vinnustundar. Sem þýðir
einfaldlega ef þjóöfélagshópurinn,
viö öll, stendur sig vel, eykst
verömæti vinnustundar. Stöndum
viö okkur hins vegar illa, rýrnar hún
aö verðgildi.
Hvernig útrýmir svona myntbreyt-
ing innlendri veröbólgu?
öll verömæti veröa reiknuö í
vinnustundum, sem dæmi: Hús
kostaði 2,5 milljónir kr. Eftir mynt-
- til um-
hugsunar
fyrir ný-
kjörna
þingmenn
breytingu 23150 vinnustundir.
Breyting á verði húseigna yröi nú
eingöngu ef efni hækkaði erlendis og
ekki tækist aö mæta innfluttri
verðbólgu með aukinni framleiðni. 1
vinnustund heldur áfram aö vera 1
vinnustund í núsveröi.
Þaö skal tekiö fram aö vinnustund
er miöuð viö verkamannavinnu eöa
sambærileg störf. Þeir aöilar sem
hafa lagt á sig mikla menntun eöa
þjóðfélagiö telur eölilegt aö hafi
meira en eina vinnustund á klukku-
tíma, fá þaö aö sjálfsögöu áfram.
Þaö er hins vegar ljóst aö vinnustund
sem greiöslueining hlýtur aö veröa
aöhald á slíkar kaupgreiðslur.
Það er augljóst aö þaö hlýtur aö
veröa kapþsmál allra aö vemda
verðgildi vinnustundar, þaö yröi
allra hagur. Greiðsluvinnustund yrði
mikiö aöhald á ríkisstjórnir, þaö
kæmist strax upp um ofsköttun.
Vinnustundir einstaklings eru ekki
nema 1.760 á ári, sem yröi aö sjálf-
sögöu aö hafa í huga þegar skattar
eruskoöaðir.
Eg tel að myntbreyting sem þessi
myndi gera þjóðfélagið heiðarlegra.
Innlend veröbólga mundi aö sjálf-
sögöu gufa upp. Viö yrðum hins
vegar aö mæta innfluttri verðbólgu
með aukinni framleiðni og hagræö-
inguáöllumsviöum.
Vinnustundir yröu aö sjálfsögöu
lagöar í banka. Ef einstaklingur
legði inn 1000 vinnustundir fengi
hann aö sjálfsögðu 1000 vinnustundir
út úr bankanum aftur + eölilega
vexti. Vinnustund jafngildir alltaf
vinnustund hvort sem hún fer í
banka eöa ekki. Hins vegar fer þaö
eftir dugnaöi okkar hvemig hún
stendur gagnvart erlendri mynt.
Niðurstaða
Þjóðfélag á að vera fyrir alla
menn, öllum til hagsbóta og tryggja
frelsi þeirra sem einstaklinga. Fjár-
magn á ekki aö vera sjálfstætt afl
sem enginn ræöur viö, heldur mæli-
kvaröi á dugnað og hugkvæmni
einstaklinga. Þjóöfélag sem er fullt
af boðum og bönnum nær aldrei
markmiöi sínu.
Viö getum breytt þessu, ef viö
viljum. þaö er nú þegar til nægileg
tækniþekking sem leysir auðveld-
lega okkar veraldlegu þarfir. Ekki
skortir boöskap um kærleik til hvers
annars.
Eftir hverju er beðið?
Dagbjartur Stígsson
húsgagnahönnuöur.