Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Page 19
DV. MIÐVIKUDAGUR11. MAl 1983.
19
Menning
Menning
Menning
SCHOLA
CANTORUM
Tónleikar Schola Cantorum í Háteigskirkju 26.
aprfl.
Stjórnandi: Knut Nystedt.
Organleikari: Vidar Fredheim.
Einsöngvarar: Tone Hulbækmoe, Brita Rusten,
Kjell Viig og Hans Fredrik Jakobsen. Nils Pett-
erTveten.
Framsögn: Hans Fredrik Jakobsen.
Á efnisskrá: G.A. Homilius: Deo dicamus
gratias; A Antonio Lotti: Crusifixus; Oistein
Sommerfeldt: Sjung Amen; Bjame Slogodal:
Tilbrigði um þjóðlagið „Hvor salig det skal
blive"; Kjell Mork Karlsen: Missa Brevis; Odd-
var S. Kvam: Conversio; Egil Hovland: Saul;
Knut Nystedt: Resurrexit, op. 68 og If you
receive my words; Benjamin Brítten: Rejoice
in the Lamb; Daniel Moe: Hosanna to the Son
of David.
Schola Cantorum er kór, islensk-
um söngunnendum aö góðu kunnur.
Alþjóðleg kóramót efla kynnin og
skemmst er að minnast aö fyrir
tveimur árum hittust þeir, Hamra-
hlíðarkórinn og Schola Cantorum, á
söngferð um Rínarlönd. Hingaö kom
kórinn með trúarlega dagskrá sem
hann söng í Háteigskirkju á þriðju-
dagskvöld. Það sakar svo sem ekki
að geta þess einu sinni enn hversu
hjartanlega ósammála ég er banni
því við lófataki sem ráðendur Há-
teigskirkju leggja á tónleikagesti.
Mér finnst það jafnast á við að þjóð-
garðsvöröur bannaði mönnum að
hrópa húrra á Þingvöllum.
Þjóðlegt skjól
Fyrstu tvö verkin, eftir Homilius
og Lotti, hljómuðu ljómandi veL Af
munni kórsins hljómuðu næstu verk
á eftir ágætlega. En ósköp er lítið
spennandi að hlýða á verk núlifandi
tónskálda, meira að segja af yngri
kynslóðinni, svo rækilega vafin í
viðjar ímyndaðs þjóðlegs hugsunar-
háttar, sem maður hyggur helst að
sé til að dylja skort á frjórri hugsun
hjá þessum mönnum.
Tónlist
EyjótfurMelsted
Lófataká pappír
Það skipti hins vegar alveg um á
seinni hlutanum. Kvam, Hovland,
Moe og Nystedt þurfa ekki að skýla
sér á bak viö þjóðlegheit. Það verkið
sem mest púður var í var Rejoice in
the Lamb eftir Benjamin Britten og
textinn mun vera eftir náunga að
nafni Lamb. Frammistaða einsöngv-
aranna var svo sem vart til að hrópa
húrra fyrir, nema þá helst hjá bassa-
söngvaranum Nils Petter Tveten, og
organleikur Vidar Fredheim var
mjög þokkalegur, sem og í einleiks-
verkunum fyrir orgel.
Schola Cantorum, undir stjórn
Knuts Nystedt, fær með góðri sam-
vinnu og kunnáttu mikið út úr rödd-
um sem almennt virðast ekkert sér-
stakar hver fyrir sig. Sem sé dæmi
um undirstöðu góðs árangurs í kór-
söng. Gjarnan hefði ég líka viljað fá
aö heyra smáskammt af veraldlegri
músik og hér fylgir að lokum dynj-
andi lófatak, klappaö á pappír meö
þökkfyrirágætansöng. EM
Að kunna með aflið að fara
Tónleikar í Norræna húsinu á finnskrí viku, 24.
aprfl.
Flytjendur: Matti Tuloisela, barítónsöngvarí
og Gustav Djupsjöbacka, píanóleikari.
Efnisskrá: Jean Sibelius: Sjö söngvar op. 13
við Ijóð J.L. Runobergs; Yrjö Kilpinen: Söngvar
um dauðann op. 62 við Ijóð Chr. Morgenstem;
Selim Palmgren: Vid min lutas silvertoner, Var
ör vfigens mAI?, PA stranden, Noctume, Sjöfar-
aren vid milan, En latmannsmelodi; Toivo
Kuula: Yö nummella, Yö Vanha syyslaulu, Tule
armaani, Epilogi.
Það fer víst fram hjá fæstum að
haldin er finnsk vika í höfuðborginni.
Eins og við er að búast er aöaláhersl-
an lögð á vörukynningu ýmiss konar,
en þó fær finnsk menning að fljóta
meö. Til að kynna finnska tónlist
völdust barítonsöngvarinn Matti
Tuloisela og píanóleikarinn Gustav
Djupsjöbacka. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um feril Matti Tuloi-
sela. I þrjá áratugi hefur hann verið í
fremstu röð finnskra söngvara.
Hann hefur einnig verið ólatur viö að
syngja á hljómplötur. Svo vel sem
söngvarinn ætti að vera kynntur með
söngunnendum sætti það furðu
hversu illa tónleikarnir voru sóttir.
Rétt er hins vegar að skrifa það á
reikning pólitíkusanna, eða réttara
sagt kosninganæturinnar.
Þungurog
þrunginn dramatík
Fyrri hluti söngskrárinnar var
þungur og þrunginn dramatík. Matti
Tuloisela lætur vel að túlka mikla
dramatík. Hans mikla rödd, sem
hann kann aö spila á til hins ýtrasta,
fimakraftur og góð tækni létta hon-
um túlkun slíkra söngva. Og Matti
Tuloisela kann sannarlega að fara
meö ljóðsöngva af þeim toga.
Ekki er þó snilld hans bundin við
túlkun þungra dramatískra ljóð-
söngva eingöngu. Hann kann vel að
túlka blíðu og trega eins og glögglega
kom fram í söngvum á seinni hluta
söngskrárinnar, sérstaklega í söngv-
umToivoKuula.
Eins og konsert
með hljómsveit
Og ekki verður svo við skilið, að
ekki sé minnst á meðleikarann. Þar
var á ferð röksleikapiltur. Ég á ekki
von á að Gustav Djupsjöbacka njóti
sín í hlutverki undirleikara hjá miðl-
ungsgutlara. En leikandi undir hjá
svo miklum raddmanni, sem ekki
deplar auga þótt undirleikarinn þenji
slaghörpu sína eins og hann væri að
leika konsert með hljómsveit, heldur
hefur í fullu tré viö hann, nýtur þessi
röski undirleikari sín sérdeilis vel.
Og það eru góðir listamenn sem
kunna með slíkt feiknaafl að fara.
EM
Sumarplatan
er Country 2
með lífsgleðina
Ef þú átt Country 1, þá
kaupir þú Country 2. En
ef þú kaupir Country 2,
þá kaupir þú líka
Country 1, því þetta
verða safnplötur.
Gleymdu svo ekki kass-
ettunni i bílinn þvi að
þar færð þú rómantík-
ina.
Útgefandi.
SNYRTISTOFAN Jona
er ný snyrtistofa sem býöur viðskipta-
vinum eftirfarandi þjónustu:
1. fótaaðgerð
2. handsnyrtingu
3. andlitsbað
4. húðhreinsun
5. litun
6. plokkun
7. vaxmeðferð (til þess að fjarlægja
óæskilegan hárvöxt)
8. förðun
Ef einhver vill hressa uppá útlitið ætti
hann að panta tíma sem fyrst.
Með „fallegri" kveðju ^
SNYRTISTOFAN JÖna
Skeggjagata 2-105 Reykjavík Sími 14647
(í sama húsi og hárgreiðsustofan Guðrún Hrönn)
BÖRNIN FÁ 50% AFSLÁTT
DRAUMAFERÐ
FJÖLSKYLDUNNAR
TIL MALLORKA
27. maí
SANTA PONSA: Ein allra vinsælasta bað-
strönd á Mallorka. Jardin del sol — Nýtt og glæsi-
legt íbúðahótel alveg við sjóinn.
PUERTO DE ANDRAITX: Mini folies lúxusvillur í
fjölskylduparadís.
Á skrifstofu okkar erum við með
myndband frá gististöðum okkar.
FERÐASKRIFSTOFAN
Vcriö vclkomin og fáiö nánari
upplýsingar um hagstætt vcrð og kjör.
LAUGAVEGI 66 SÍMI 28633
N