Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Page 32
32
DV. MIÐVIKUDAGUR11. MAl 1983.
Guðný Þórarinsdóttir lést 5. maí 1983.
Hún var fædd á Nesi við Norðfjörð
24. janúar 1905. Foreldrar hennar voru
hjónin Kristín Stefánsdóttir og Þór-
arinn Hávarðsson. Guðný var gift
Eiríki Ármannssyni, en hann lést áriö
1967. Þau eignuðust eina dóttur. Utför
Guðnýjar verður gerð frá Kópavogs-
kirkjuídagkl. 13.30.
Sveinsína Jakobsdóttir, Hlíöarvegi 20
Isafirði, verður jarðsungin frá ísa-
fjarðarkirkju föstudaginn 13. maí kl.
14.00.
95 ára er í dag, 11. maí frú Helga
Grímsdóttir frá Dal við Múlaveg hér í
Rvík. Hún er nú til heimilis í
Efstasundi 80 Reykjavík.
90 ára er í dag, 11. maí, Guðmundur
Þórarinsson frá Saxahóli á
Snæfellsnesi, nú vistmaöur á Hrafnistu
hér í Reykjavík. — Hann veröur aö
heimanídag.
Messur
Uppstigningardagur
Dagur aldraðra í kirkju Islands, 12.
maí 1983.
ÁRBÆJARPKESTAKALL: Guðsþjónusta í
Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 2. Eldra
fólki í söfnuðinum sérstaklega boðið til guðs-
þjónustunnar. Kirkjukaffi Kvenfélags Ár-
bæjarsóknar eftir messu. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta á Hrafnistu
kl. 13.30. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Hátíðarsam-
koma í kirkjubyggingunni kl. 14. Helgistund
sr. Lárus Halldórsson. Formaður byggingar-
nefndar, Sigurður E. Guömundsson, flytur
, ræðu. Kirkjukór Breiðholtskirkju syngur.
Lúðrasveit Árbæjar- og Breiðholtsskóla
leikur frá kl. 13.45. Kaffiveitingar. Samskot til
kirkjubyggingarinnar. Sóknarnefndin.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 2. Ein-
söng syngur Ingibjörg Marteinsdóttir, organ-
leikari Guðni Þ. Guðmundsson. Aö messu lok-
inni verður opnuð sýning á munum unnum í
vetur í félagsstarfi aldraðra í kirkjunni. Há-
tíðarkaffi í tilefni dagsins og mun kór Árnes-
ingafélagsins í Reykjavik koma og syngja
undir stjórn Guömundar Omars Oskarssonar.
Sr. Olafur Skúlason dómprófastur. Fundur
verður í Bræðrafélagí Bústaðasóknar mánu-
dagskvöld.
DIGRANESPRESTAKALL: Guðsþjónusta i
Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur
Kristjánsson predikar, sr. Árni Pálsson þjón-
ar fyrir altari. Kirkjukaffi á degi aldraðra
verður í Safnaðarheimili Kársnessóknar að
lokinni guðsþjónustu. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
DÖMKIRKJAN: Messa kl. 2 á degi aldraðra.
Sr. Jakob Jónsson, dr. theol. predikar. Sr.
Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir altari. Eftir
messu er eldri borgurum, 60 ára og eldri,
boðið til kaffidrykkju í Oddfellowhúsinu. Þar
syngur Sigríður Gröndal einsöng við undirleik
Marteins H. Friðríkssonar dómorganista.
LANDAKOTSSPITALI: Messa kl. 10. Organ-
leikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Hjalti
Guðmundsson.ELLIHEIMILIÐ GRUND:
Messa kl. 10. Sr. Lárus Halldórsson.
GRENSÁSPRESTAKALL: Messa á uppstign-
ingardag á Grensásdeild Borgarspítalans kl.
20.00. Sr. Halldór S. Gröndal.
FRÍKIRKJAN I REYKJAVÍK: Barnamessa
kl. 11. Guðspjallið í myndum. Barnasálmar
og smábarnavers. Framhaldssaga. Kveðju-
samkoma fyrir Willý Hansen kl. 20.30 á veg-
um Krossons í Kópavogi. Willý Hansen
prédikar og syngur við undirleik hljómsveit-
ar. Sr. Gunnar Björnsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Á uppstigningardag
er einnig ferð á vegum opins húss til Þorláks-
hafnar og Strandakirkju. í.agt verður af stað
frá kirkjunni kl. 13. Þátttaka tilkynnist safn-
aðarsystur í síma kirkjunnar 10745 eða
heimasíma 39965.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur
Kristjánsson predikar, sr. Árni Pálsson, þjón-
ar fyrir altari. Kirkjukaffi á degi aldraðra
verður í safnaðarheimili Kársnessóknar að
lokinni guðsþjónustu. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guösþjónusta kl. 14.
Eiríkur Stefánsson predikar. Samkoma kl. 15.
Söngur — upplestur — kirkjukaffi. Þeir sem
óska aðstoðar við að komast til guðsþjónust-
unnar hringi í síma 35750 milli kl. 10 og 12 á
uppstigningardag. Sýning á handavinnu
þeirra sem tekið hafa þátt í starfi aidraðra í
vetur. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 14. Sigur-
björn Einarsson biskup predikar. Halldór Vil-
helmsson syngur einsöng. Kaffisala Kvenfé-
lagsins í nýja safnaðarheimilinu eftir messu.
Fjöibreytt dagskrá. Sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14. Hrefna
Tynes predikar. Kór aldraðra syngur. Sr.
Guðmundur Oskar Olafsson.
FRÍKIRKJAN í HAFNARFIRÐI: Messa kl.
14. á öldrunardegi kirkjunnar. Safnaðar-
stjórn.
Ferðalög
Útivist
Uppstigningardagur 12. maíkl. 13.
Seltangar. Með mestu minjum um útræði
fyrri tíma. Fiskabyrgi, refagildrur og kletta-
borgir. Verð250kr., frítt f. börn með fullorðn-
um. Brottför frá BSI (bensínsölu).
HVÍTASUNNA 20.—23. MAÍ.
1. Snæfellsnes — Snæfellsjökull. Gönguferðir
við allra hæfi. Margt að skoða, t.d. Dritvík,
Arnarstapi, Lóndrangar. Kvöldvökur. Góð
gisting á Lýsuhóli. Sundlaug. Hitapottur.
2. Þórsmörk. Engum leiðist með Utivist í
Þórsmörk. Góð gisting í nýja skálanum í Bás-
um. Kvöldvökur.
3. Mýrdalur. Skoðunar- og gönguferðir við
allra hæfi. Góð gisting.
4. Fimmvörðuháls. Jökla- og skíðaferð. Gist í
fjallaskála. Ágætir fararstjórar í öllum ferð-
um. Uppiýsingar á skrifstofu Otivistar, Lækj-
argötu 6a, sími 14606 (simsvarí). Sjáumst.
Ferðafélag
íslands
Dagsferðir 12. maí (uppstigningardagur).
1. kl. 10.30. Keilir (378 m) — Selsvallafjall (333
m) — Höskuldarvellir. Verð kr. 200.
2. kl. 13. Höskuldarvellir — Grænavatnsengj-
ar. Verðkr. 200.
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna.
Tilkynningar
Kvenfélag Kópavogs
Fundur verður í félagsheimilinu fimmtudag-
inn 12. maí (uppstigningardag) kl. 15eftirhá-
degi. Gestír verða konur úr kvenfélagi
Akraness. Stjórnin.
8ASKðA%
Basar hjá ferða-
félaginu Öskju
Fimmtudaginn 12. maí kl. 14—16 stendur
Askja, ferðafélag þroskaheftra, fyrir köku-
basar að Hallveigarstöðum, Túnsötu 14.
Agóðinn af basamum rennur til fyrirhugaðrar
ferðar félagsmanna til Englands í sumar.,
Vonum við að sem flestir mæti og hjálpi við að
gera ferðina mögulega.
í gærkvöldi í gærkvöldi
Betri er blár ffll á skjá
en bleikur í skógi
Þegar ég sá táknmál fyrst notaö
datt mér strax í hug aö hér væri kom-
iö hiö langþráöa alþjóðamál sem all-
ir gætu komið sér saman um og ein-
falt væri fyrir ólíka tungumálahópa
aö mætast í. Eftir aö ég var búinn aö
blaðra um þessa uppgötvun mína í
hæfilegan tíma var mér bent á aö
táknmál væri margskonar og ís-
lenskur heyrnleysingi skildi tii dæm-
is ekki finnskan heymleysingja
nema meö herkjum. Viö þessa upp-
götvun sofnaöi áhugi minn og ég
skildi ekki handtak í fréttum á tákn-
máli í gærkvöldi. Innst inni blundar
þó enn draumurinn um aö þessi hug-
mynd veröi aö veruleika — aö allur
heimurinn nái saman á táknmáli.
Blámann er skemmtileg mynd fyr-
ir böm sem ég einhverra hluta vegna
missi sjaldan af. I Blámanni er á
nærfæmislegan hátt fjallaö um þaö
að vera öðruvísi. Og hvaö er ööravísi
ef ekki blár fílsungi meö skólatösku?
Islenskun nafnanna í Blámanni er
líka stórgóð. Þar má nefna vininn
Hrapp Vestmann, filamóöurina
Magnhildi og í gær kom myndlista-
maöurinn Beinir Bogason viö sögu.
Nú er bara aö drífa í aö fá Kristin
Hallsson að syngja kynningarlag
þáttarins á íslensku og þá geta hinir
vandlátustu ekki lengur kvartaö.
Derrick var heldur lympulegur í
gær. Það er aö minnsta kosti ástæðu-
laust aö segja aö handritshöfundur
hafi dregið amsúg í f luginu.
Talandi um aö draga arnsúg í flug-
inu þá gat ég ekki vakað nógu lengi
til aö ná þættinum Skímu í útvarpinu
sem fjallar um móöurmálskennslu.
Eg var eiginlega með böggum hildar
yfir því aö missa af honum.
Siguröur G. Valgeirsson
Frá Sjálfsbjörg í
Reykjavík og nágrenni
Ráðgeröar hafa veriö leikhúsferöir í Þjóöleik-
húsiö og Iönó aö sjá Jómfrú Ragnheiði og
Skilnaö. Nánari upplýsingar veröa veittar á
skrifstofu félagsins í síma 17868.
Skagfirðingafélögin
í Reykjavík
eru með sitt árlega gestaboð fyrir aldraða
Skagfiröinga í Drangey, Síðumúla 35, á upp-
stigningardag, 12. maí kl. 14.00. Þeir sem þess
óska geta fengið bíl. Bílasimi 85540.
Uppstigningardagur
í Bústaðakirkju
Alkunnugt er hversu áhersluþungi sá, sem
eitt sinn hvildi á sérstökum dögum og há-
tíðum, getur vikið fyrir tómlæti. Þannig var
því farið með uppstigningardag. Hann hvarf í
annríki vordaga. Leyfi það frá störfum, sem
honum fylgdi, var notað til fiests annars en
tigna Drottinn og lofa hann í kirkju. En nú á
síðustu árum hefur yfirbragð uppstigningar-
dags orðið annað og meir í líkingu við upp-
runalegan tilgang með lofgjörð og þakkarbæn
og himinsýn. Þessi breyting kom til við það að
söfnuðir yfirfærðu lok starfsins fyrir aldraöa
og með öldruðum yfir á uppstigningardag. Og
í fyrra var svo ákveðið að tillögu öldrunar-
nefndar kirkjunnar að dagurinn skyldi til-
nefndur sérstakur dagur aldraðra í kirkju Is-
lands.
1 Bústaðakirkju verður dagsins minnst að
hefðbundnum hætti með hhðsjón af liðnum ár-
um. Guðsþjónusta verður kl. 2 s d. þar sem
prestur safnaðarins predikar, kirkjukórinn
leiðir söng og einsöngvarinn, frú Ingibjörg
Marteinsdóttir, eykur kirkjugestum gleði og
hugljómun með list sinni. Eftir messuna
verður gengið í safnaðarsaU kirkjunnar þar
sem forstöðukona öldrunarstarfsins, frú Ás-
laug Gísladóttir, býður gesti velkomna og
opnar sýningu á þeim munum sem unnir hafa
verið i félagsstarfi aldraöra á liönum vetri.
Mun þar kenna margra grasa og allra harla
listilegra þar sem ekki er aðeins saumað út og
unnið í léreft og garn, heldur líka unnið með
litum og penslum og máluð málverk. Hlaðið
kaffiborð verður einnig tii að auka gestum
yndi og ekki spillir það gleðinni að Árnesinga-
kórinn í Reykjavík mun syngja undir stjórn
Guðmundar Ömars Oskarssonar. Er það von
þeirra sem að dagskrá standa að hún laði sem
flesta aö og fólk gefi sér góðan tíma að skoða
muni og njóta hressingar þeirrar sem fram
verður borin.
Múlhreppingar
Gamlir íbúar úr Múlahreppi, A-
Baröastrandarsýslu, ætla að hittast í
Þinghóli, Hamraborg íKópavogi, laug-
ardaginn 14. maí. Samkoman hefst kl.
20.30.
Minningarkort
Minningarsjóðs Barböru og Magnúsar Á.
Árnasonar fást á eftirtöldum stöðum:
Kjarvalsstöðum, Bókasafni Kópavogs,
Bókabúöinni Veda, Hamraborg, Kópavogi.
Tónleikar
Hallgrímskirkja
Náttsöngur verðu í kvöld, miðvikudag, kl.
22.00.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Þrátt fyrir hið mikla og fjölbreytilega tón-
leikahald sem íbúar höfuðborgarsvæðisins
hafa átt kost á að sækja á undanförnum árum
og áratugum hefur ein gerð tónhstar löngum
verið útundan en það er flutningur meiri hátt-
ar kammertónverka. Til þess liggja eðlilegar
ástæður þar sem hér er um að ræða mjög
krefjandi og kostnaðarsama vinnu sem ofviða
er þeim áhugamannahópum sem með lofs-
verðum dugnaði og ódrepandi elju hafa haldið
uppi flutningi kammerverka af viðráðanlegri
stærð í gegnum árin og eiga vonandi eftir að
gera um ókomin ár.
Sinfóníuhljómsveit islands hefur í hyggju
að fara inn á þetta svið tónbókmenntanna og
efnir til fyrstu kammertónleika sinna í kvöld,
miðvikudaginn 11. maí, í Gamla bíói. Þar
mun strengjasveit hljómsveitarinnar leika
undir stjórn Mark Reedmans, Divertimento
eftir Mozart, Serenöðu fyrir strengjasveit
-ftir Dvorak, Konsert í D-dúr eftir Stravinsky
og Introduction og Allegro eftir Elgar. I
starfsáætlun hljómsveitarinnar fyrir næsta
starfsár eru fyrirhugaðir femir tónleikar þar
sem flutt verða viðamikil kammertónverk og
verða þeir kynntir nánar um leið og verkefna-
skrá hljómsveitarinnar kemur út.
Thérése Juel
Sænska vísnasöngkonan Thérése Juel heldur
tónleika.
Sænska vínasöngkonan Thérése Juel er nú í
heimsókn á Islandi í boði Vísnavina. Hún er
vel þekkt í heimalandi sínu en lítið hér á landi.
Mun hún halda konserta og koma fram á
vísnakvöldum.
Fyrsti konsertinn verður í menningarmið-
stööinni við Gerðuberg fimmtudaginn 12. maí
og hefst hann kl. 21. Þar koma einnig fram
nokkrir félagar úr Vísnavinum. Mánudaginn
T6. maí verður vísnakvöld í Þjóðleikhúskjall-
aranum og mun Théré/e koma þar fram. Ráð-
gert er að halda konsert með henni á Akranesi
þriðjudaginn 17. maí en fimmtudaginn 19.
maí halda Vísnavinir stórkonsert á Borginni,
þar sem þeir bjóða upp á þaö besta, sem til er
hér á landi, varðandi þessa tónlistarstefnu.
Koma þar fjölmargir listamenn fram og
verður Thérése Juel meöal þeirra. Síðasti
konsert Thérése verður í Norræna húsinu
þriðjudaginn 24. maí.
Kór Langholtskirkju
með tónleika í
Selfosskirkju
Dagana 20.—23. apríi sl. var í Skálholti tekin
upp hljómplata með kór Langholtskirkju. Ut-
gefandi er sænska útgáfufyrirtækið BIS en
það er stærsti útgefandi sígildrar tónllstar á
Norðurlöndum. A uppstigningardag, 12. maí
ki. 21.00, heldurkór Langholtskirkju tónleika í
Selfosskirkju og verður efnisskráin sú sama
og á plötunni og e.t.v. flýtur fleira með. Laug-
ardaginn 14. maí verða síðan tónleikarnir
endurteknir í Langholtskirkju kl. 16.00.
Golf
Fjórmenningur
Grafarholtsvöllurinn verður tekinn í notkun á
morgun og bregða kylfingar GR sér þá á leik
og leika f jórmenning. Keppnin hefst kl. 9.
Fagna komu kríunnar
Kylfingar úr Nesklúbbnum fagna komu krí-
unnar á morgun með því að halda hið árlega
mét — Kriumótið. Það hefst kl. 13.30.
Víkurbæjarkeppnin
Um næstu helgi fer fram opið golfmót hjá
Golfklúbbi Suðurnesja. Það er Vikurbæjar-
mótið og verður keppt í 2. og 3. flokki á
laugardaginn og 1. og meistaraflokki á sunnu-
daginn.
Fundir
Kommúnistasamtökin með
opinn umræðufund
Að afloknum kosningum er rétt að huga að
stöðu vinstri hreyfingar í landinu. 1 því skyni
boða Kommúnistasamtökin til opins umræðu-
fundar.
Fundarefni eru tvö:
— Henta svokölluð „regnhlífarsamtök”
að hætti franskra sósíalista íslenskum
jafnaðarmönnum og sósíalistum?
— Þarf að breyta skipulagi íslenskrar
verkalýðshreyfingar?
Fundurinn verður í kjallarasai Hótel Heklu
v/Rauðarárstíg fimmtudaginn 12. maí (upp-
stigningardag) kl. 20.30. Hann hefst á stuttum
framsögum, síðan veröa fyrirspurnir og um-
ræður og loks lokaorð frummælenda.
Væntanlegir frummælendur eru:
Frá Alþýðuflokki: Þráinn Hallgrímsson
blaðamaður.
Frá Alþýðubandalagi: Einar Karl Haralds-
son, form. skipulagsnefndar.
Frá Fylkingunni: Pétur Tyrfingsson
verkamaður.
Frá Bandalagi jafnaðarmanna: Vilmundur
Gylfason eða einhver annar.
Frá Kommúnistasamtökunum: Ari Trausti
Guðmundsson kennari.
Kaffiveitingar.
Bella
Finnst þér í rauu og veru aö enginn
taki þig alvarlega? Þaö hlýtur að vera
út af því hvað þú ert gamansamur.