Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Side 35
DV. MIÐVKUDAGUR11. MAI1983. 35 Þjóðhátíðarsjóður úthlutar styrkjum Lokiö er úthlutun styrkja úr Þjóð- hátíðarsjóði fyrir árið 1983 og þar meö sjöttu úthlutun úr sjóðnum. TU úthlut- unar í ár komu 4,2 milljónir króna. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skal fjórðungur fjárhæðarinnar, 1.050 þúsund krónur, renna til Friðlýsingar- sjóðs til náttúruverndar á vegum Nátt- úruverndarráðs, annar fjórðungur skal renna til varðveislu fomminja, gamalla bygginga og annarra menn- ingarverðmæta á vegum Þjóðminja- safnsins. Helmingi úthlutunarfjár, 2,1 milljón króna, er varið til styrkja samkvæmt umsóknum. Bárust alls 86 umsóknir um styrki að f járhæð um 9,6 milljónirkróna. Náttúruvemdarráð hefur ákveöið að verja sínum fjórðungi í þjónustumið- stöð í Ásbyrgi, endurbætur á móttöku ferðafólks í Skaftafelli og í frágang á kjallara prestseturshúss á Skútustöð- um. Þjóðminjasafnið hyggst ráðstafa sínum fjórðungi í framhald fornleifa- rannsókna að Stómborg undir Eyja- fjöllum, í kopieringu og skráningu gamalla ljósmyndaplatna safnsins, í viðgerð vörugeymsluhúss frá Vopna- firði í Árbæjarsafni, í viðgerð Grund- arkirkju í Eyjafirði, í heimildasöfnun um þjóöhætti, í skráningu fomleifa í nærsveitum Reyk ja víkur og í forvörslu safngripa. Frá afhendingu gjafarinnar. Talið frá vinstri: Þorvaldur Guðmundsson, Þor- varður Guðjónsson, Bjarni Gíslason, Andrés Sigurðsson, Ólafur Karisson, Heigi Guðmundsson, Haukur Hannesson, Þorsteinn Koibeins, ingi Adolphsson, Reynir Einarsson, Eyjóifur Guðmundsson, Bjarni Guðmunds- son, forseti Eldeyjar, Eyjólfur Kolbeins, Þorgeir Runólfsson, framkvæmda- stjóri Sunnuhlíðar, Björn Jóhannesson, Ingvar Magnússon, Vernharður Aðalsteinsson, Þórhallur Sigurjónsson og Eyþór Guðmundsson. Kiwanisklúbburinn Eldey í Kópavogi: Færði hjúkrunarheim- ilinu 60 þúsund kr. Kiwanisklúbburinn Eldey í Kópa- vogi hefur starfað i 11 ár. Á þessum ár- um hefur klúbburinn lagt lið margvís- legum líknar- og menningarmálum í byggöarlaginu. Nú undanfarin ár hefur stuðningur- inn aðallega beinst aö hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð. Á vígsludegi sl. ár færðu Eldeyjarfélagar hjúkrunar- heimilinu hnífapör fyrir 100 manns ásamt stórri hrærivél í eldhús. Enn vantar nokkuð á til þess aö hægt sé aö taka kjallara hússins í notkun og einn- ig nokkur hjálpartæki. Fyrir nokkm síðan heimsóttu Eld- eyjarfélagar Sunnuhlíð. Skoðuðu húsiö og búnað þess og þáðu veitingar. I leið- inni færðu þeir heimilinu kr. 60 þús. sem verja skal til stofnframkvæmda eða tækjakaupa og er myndin tekin við þaðtækifæri. Laugameskirkja: Nýtt safnaðarheimili tekið í notkun Nýtt safnaðarheimili Laugames- kirkju veröur notað í fyrsta sinn á upp- stigningardag, 12. maí. Guðsþjónurta verður í kirkjunni kl. 14 þar sem Sigurbjöm Einarsson bisk- up mun predika og Halldór Vilhelms- son syngja hluta úr kantötu eftir Gunn- ar Reyni Sveinsson. Konur úr kvenfé- laginu lesa ritningarorö. Meðan gengið verður úr kirkju í nýja safnaðarheimil- ið mun Lúðrasveit Laugarnesskóla leika nokkur lög undir stjóm Stefáns Stephensen. I safnaðarheimilinu nýja verður síð- an hin árlega kaffisala Kvenfélags Laugarnessóknar. Þorsteinn Olafsson, formaöur sóknamefndar, mun flytja ávarp, Halldór Vilhelmsson flytur söngdagskrá viö undirleik Gústafs Jó- hannessonar og Aage Lorange mun leika létta tónlist á píanóið meðan fólk nýturveitinga. Allur ágóði rennur til nýja safnaðar- heimilisins. Hið nýja safnaðarheimili Laugarnes- kirkju sést hér í forgrunni. Það hefur verið í byggingu síðastliðin fjögur ár og verður notað í fyrsta sinn á morgun. Heimilið er þó ekki alveg fullfrágengið og veröur því vígsluhátíð látin bíöa enn um sinn. Auk framangreindra verkefna hefur stjóm Þjóöhátíöarsjóös ákveðið aö styrkja Þjóðminjasafnið sérstaklega með 150 þúsund króna framlagi vegna kaupa safnsins á myndum úr Islands- leiðöngmm Stanleys og Banks á síðari hluta átjándu aldar. Myndir þessar em taldar ómetanlegar heimildir fræðimönnum um náttúm landsins og mannlíf á þessum tíma. Þá var úthlutað styrkjum til 33 aöila af 86 sem sóttu um. Meðal verkefna sem styrkt voru má nefna framhald viðgerða á Kútter Sigurfara, afritun Þjóðfræöaefnis á geymslubönd á veg- um Stofnunar Áma Magnússonar, tölvuskráningu uppflettioröa í seöla- sa&ii Orðabókar Háskólans, fornleifa- uppgröft á lóðinni Suðurgata 7 í Reykjavík, útgáfu Fagurskinnu og Eyrbyggju, útgáfu myndskreyttrar skrár um verk í eigu Listasafns Is- lands, skjólbelti á og við nýtt tjaldstæði í þjóðgaröinum í Jölulsárgljúfrum og göngubrú yfir Námakvísl í Land- mannalaugum. I stjóm Þjóðhátíðarsjóðs eiga sæti Björn Bjarnason blaðamaöur, formaður, skipaður af forsætisráð- herra, Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri, varaformaður, tilnefndur af Seðlabankanum, Eysteinn Jónsson, fyrmm ráöherra, Gils Guðmundsson, fyrrum forseti Sameinaðs Alþingis, og Gísli Jónsson menntaskólakennari. Þrír síðastnefndu vom kjörnir af Alþingi. Ritari sjóðsstjómar er Svein- björn Hafliðason lögfræðingur. -KMU Á LAUGAVEG 71 Verðkr. 490,- Mjúkur PU-sóli. Verðkr. 380,- Mjúkur UP-sóli. Verðkr. 310,- Póstsendum SrœSur Laugavegi 71, simi 13604 - 15955. Prentari óskast Öskum aö ráða prentara í smáverkefnaprentun. Uppl. gefur Olafur Brynjólfsson. HILMIRH/F SÍÐUMÚLA12. ----VIDEO OPID ÖLL KVÖLD TIL KL. 23 kvikmynoamarKaoumnm 8k6lavfir0ustis 19 Itvfk. S. 15489. Kirfcjuwgí IIVMtm. IV—tmwyjmwr oplð kl. 14 VIDEOKLÚBBURaMN S.3MD. m um htlflT kl. 14— 1S. VIDEO____________ Kaffisala Kvenfélag Laugarnessóknar gengst fyrir kaffisölu í hinu nýja safnaðarheimili Laugarnessóknar fimmtudaginn 12. maí (uppstigningardag) kl. 15.00 að aflokinni messu. Komið og styrkið gott málefni. Kvenfélag Laugarnessóknar. xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx X X X X X X X X X X X X X X X X X X X Fyrirtæki, einstaklingar Erum að senda sölumenn okkar í hringferð um landiö í júní- mánuöi. Getum tekið aö okkur vörur frá fleiri fyrirtækjum og einstaklingum. Upplýsingar í síma 43969. x X X X X X X X X X X X X X X X X X X xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx arnarfwghe Aðalfuiidur Arnarflug hf., heldur aðalfund sinn að Hótel Sögu, hliðarsal 2. hæð, miðvikudaginn 25. maí 1983 kl. 14.00. Dagskrá: Aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. STJÓRNIN. TILSOUJ NOT/IÐIR BILAR Vantar þig notaðan bíl góðum kjörum? Dodge Aspen árg. 1976 VERÐ KR: 90.000 Plymouth Duster árg. 1975 65.000 Simca 1100 árg. '77 45.000 Wagoneer árg. 1974 110.000 Fíat 125P árg. 1979 65.000 Fíat 125P árg. 1978 45.000 Chevrolet Nova árg. 1977 80.000 Chevrolet Nova árg. 1974 60.000 Simca 1508 árg. 1976 45.000 Escort árg. 1974 40.000 Bílarnir eru til sýnis og sölu á staðnum. notoöír bííitr EGILL ágó&umhl&rum VILHJÁLMSSON HF Smiðjuvegi 4, Kópavogi, s. 77200 og 77202

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.