Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Síða 37
DV. MIÐVKUDAGUR11. MAI1983. 37 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Já, var það ekki? Karlpeningurinn gat ekki setið heima án sinna heitt- eiskuðu og kom því niður i Sjaiia þegar skyggja tók og barði allt að utan. Hér koma þeir fyrstu inn og þeir fengu blóm. „Svona, krúttin, gangið i bæinn," mundu þær norðlensku hafa sagt, aldrei þessu vant. Jónas Jónasson var heiðursgestur kvöldsins. Hann er hér ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Sigurðardóttur, tí! hægri, og Margréti Jónsdóttur. D V-m yndir: Guðmundur Svansson. Norðlensk krútt á kútmagakvöldi Frá Guðmundi Svanssyni, fréttarit- ara DV á Akureyri. Nokkrar konur komu saman hér á Akureyri fyrir stuttu og ákváöu aö halda eitt allsherjar kútmagakvöld í Sjallanum. Þær voru ekki í vandræö- um meö undirbúninginn, og þann 30. apríl rann stóra stundin upp meö allt fullt af kútmögum og kræsingum. Ekki voru neinir erfiðleikar meö að fylla Sjallann og seldust miöamir á aðeins tuttugu mínútum. Segir sag- an aö margar hafi þurft frá aö hverfa, glorhungraðar í miða. Um 40 konur frá Grenivík mættu í veisluna og tóku óspart þátt í glens- inu sem ætlaði alla aö trylla og síöar fylla. Aö sjálfsögöu má ekki gleyma því aö hann Valli, sem er víkingakokkur, sá um aö matreiöa sjávarréttina sem smökkuöust ótrúlega vel. Gleðin var sett í botn og var leik- hópur frá Grenivík með söng og viki- vakadansa. Síðan kom tískusýning þar sem konur úr kútmaganefndinni sýndu föt frá Kaupfélaginu á Hjalt- eyri svo notuö séu orö Sunnu Borg. Viöþolslaus karlpeningurinn beiö fyrir utan húsiö um klukkan ellefu er þeim var skyndilega hleypt inn. Þeim var klappaö lof í lófa og fengu tveir fyrstu afhent blóm. Og það var ekki að spyrja aö því, framvegis ætla konurnar að hafa kútmaga á hverju ári. Gárungarnir hafa reyndar sagt, í gríni, aö nær væri aö kalla þessi kútmagakvöld kvennanna krúttmagakvöld. -JGH. Allt i dúndri i Sjallanum. Kútmagarnir bragðast greinilega vel hjá Valla kokki og ekkert annað en að gefa kvöldinu gott klapp. Hlutí leikhópsins frá Grenivik. Allar léttar i lund og taka lagið. Og / takt við kvöldið voru þetta auðvitað gamanvísur, sem þœr sungu. W. - „BÓKIN” ER LOKUÐBÓK Þaö er ekki á hverjum degi sem menn taka sig til og semja bók sem heitir því merkilega nafni „Bókin”. Ein meö slíku nafni kom þó út fyrir stuttu. Hún er eftirSverriStormsker og hvort sem þiö trúiö því eöa ekki, þá segir höfundur að búið sé aö þýöa bókina á hvorki meira né minna en átta tungumál, ensku, dönsku, þýsku, frönsku, norsku, sænsku, hollensku, og finnsku. Hafa Islend- ingar veriö þar aö verki. Aö sögn Sverris var innihaldiö allt í aUt um eitt og hálft ár í smíöum, „Bókin var tilbúin undir tréverk í mars, aö mig minnir,” svo notuö séu orð höfundar. Bókin er skorin út í tré og gefin út í sjö eintökum. Utgefandi bókarinnar' er „Alfar í Hóladal.” Og hún er ekki gefin þvíhverteintakkostarsjöþús- und krónur. Já, hver blaðsiða á hundraö kaU, takk fyrir. En um hvað f jallar svo „Bókin”? „Því vU ég ekki svara. Eg telað bók- in myndi hreinlega ekki seljast ef ég leyföi mönnum aö blaða í henni áður, eins og tíðkast í verslunum, vegna þess aö eftir einn lestur yröi bókin þeim ennþá lokuö bók.” Þrjú eintök af „Bókinni” eru nú seld og er ein þeirra farin á safn í Bandaríkjunum. Hún er ekki seld í verslunum en Sverrir heimfærir hana sjálfur í eigin persónu. Ekkert annaö að gera en hring ja í síma 24862 ogpanta eintak. Sverrir er nítján ára gamall og er „Bókin” önnur bók hans, en í fyrra kom út á vegum Fjölva ljóðabókin „Kveöiðíkútnum”. -JGH. Svorrír Stormsker með bókina leyndardómsfullu. „Innihaldið var allt i allt um eitt og hálft ár í smiðum, en bókin yar tilbúin undir tréverk i mars að mig minnir." Bókin er alls 70 blaðsiður og kostar sjö þúsund krónur. Blaðsiðan semsé á hundrað kall. Og það sem meira er, fólk fær ekkiað vita hvað er ibókinni, þegar það kaupir hana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.