Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1983, Qupperneq 40
79090 SENDIBÍLASTÖÐ KÓPAVOGS SKEMMUVEGI 50 Símsvari á kvöldin og um helgar OTnOO auglýsingar ZmtXJjLjL SÍÐUMÚLA 33 SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 Q//1 1 RITSTJÓRN OOO I I SÍÐUMÚLA 12—14 Kópavogur: Bæjarstjóra heimilað að undir- rita samninginn Bæjarráö Kópavogs samþykkti á fundi sínum í gær að heimila bæjar- stjóra að skrifa undir skólasamning- inn sem mennta- og fjármálaráð- herrarnir skrifuöu undir síöastliöinn * föstudag. Mun bæjarstjóri að líkind- um undirrita samninginn í dag en meö fyrirvara um samþykki bæjar- stjórnar Kópavogs. Hún fjaliar um máliöá föstudag. Á bæjarráðsfundinum ályktaöi ráöiö um nemendurna sem þurfa aö fiytjast úr Víghólaskóla þegar hann leggst niður sem grunnskóli. Lögö var áhersla á að reynt yrði að koma breytingunni fyrir meö hagsmuni nemenda í fyrirrúmi. Guömundur Oddsson bæjarfulltrúi bókaöí sér- staklega að reynt yröi að leysa máliö þannig aö bekkjunum þyrfti ekki að splundra. A almennum fundi meö foreldrum í Digranesskóla í gær- kvöldi, þar sem fyrirhugaðar breyt- ingar voru kynntar, kom fram sú til- laga aö veröi samningurinn sam- þykktur skuli athuga möguleika á að koma þessum bekkjum fyrir í hin- um nýja Hjallaskóla sem á að byrja í haust. 1 stað þess að flytja börn úr yngstu bekkjum Digranesskóla í hann, yrði byrjað ofan frá meö 8. og 9. bekk.Slíktgætimildaðþáröskuná högum nemenda sem fyrirsjáanleg er vegna skólasamningsins. Cavallena Rusticana: NýrTuriddo kemuríkvöld Bandariski tenórsöngvarinn Maurice Stem kemur til landsins í kvöld til þess að taka viö hlutverki Turiddo í Cavalleria Rusticana. Övænt brottför rúmenska tenórs- ins Constantin Zaharia, sem ráðinn haföi verið í hlutverkið, olli eins og vænta mátti miklum erfiöleikum. Zaharia hélt af landi brott í gærmorgun; taldi rödd sinni ofboöiö með of þéttum sýningum og hafði yfirleitt allt á hornum sér sama hvað gert var til þess aö búa í haginn fyrir hann. Aöstandendur Cavalleria Rusti- cana sátu viö síma sína mánu- daginn og bróðurpart dagsins í gær; liringt var út um allan heim til þess að finna einhvern sem gæti tekiö að sér mjög erfitt hlutverk Turiddo. Erfiöið bar árangur: Maurice Stem fékkst „aö láni” frá ópemnni í Diisseldorf. -FG. LOKI Þeir segja aö Geir stigi! upp í sjöunda himin á morgun. j RÁÐA ÚTREIKNING- AR JÓNS ÚRSUTUM? —Alþýðubandalagið reiðubúið til viðræðna við Sjálfstæðisf lokkinn Reiknaö er meö aö úrslit stjórnar- myndunarviöræöna sjálfstæðis- manna og framsóknarmanna ráöist á þingflokksfundum beggja, sem hefjast klukkan 14 í dag. Þá munu viöræðunefndir leggja fram útreikn- inga þá á kostum í efnahagsmálum sem Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, gerði í gær og lagði framsíödegis. Á fundum þingflokkanna í gær var staöan aö mestu óbreytt frá undan- fömum dögum. Samkvæmt heim- ildum DV er taliö aö útreikningar Jóns varpi nýju ljósi á áhrif þeirra úrræöa sem flokkarnir bítast um. Og aö þeir kunni jafnvel aö ráöa úrslitum um hvort þessir tveir flokkar ná saman um efnahags- úrræöi eöa ekki, á þessu stigi málsins. Þingmenn sem DV ræddi við í morgun voru mjög á báöum áttum um horfurnar og biöu eftir aö sjá þessa síðustu útreikninga. Skoöanir þeirra voru þó enn sem fyrr mjög skiptar um samstarf flokkanna yfir- leitt. Aö öllu samanlögöu virðast viöhorf aöila þurfa aö breytast vemlega til þess að saman gangi. Bilið á milli þeirra efnahagsúrræöa sem hvor flokkur um sig hefur lagt áherslu á hefur þótt þaö breitt. En heimildar- menn DV gáfu í skyn að útreikning- arnir f rá í gær hefðu minnkaö bilið. Ef ekki horfir mun vænlegar en síðustu daga um samstarf flokkanna tveggja mun viðræöum þeirra ljúka í dag og Geir Haligrímsson skila um- boðinu, en Steingrímur Hermanns- son væntanlega fá þaö í hendur. Þaö kom þingmönnum sjálfstæöis- manna, sem DV hafði tal af í morgun, á óvart aö Svavar Gestsson, formaöur Alþýðubandalagsins, hefði þá tjáö sig reiðubúinn til viöræðna við sjálfstæöismenn um stjórnar- myndun. I viötali viö DV sagðist Svavar hafa átt ítrekaö viöræöur við Geir Haligrímsson, síðast í gær, eftir að alþýöuflokksmenn gengu úr skaftinu. Geir hefði því verið fullkunnugt um þessa afstööu alþýðubandalagsmanna. ÓEF/HERB Vorið er vonandi komið, a.m.k. er ekki annað að sjá á þessum ungu mæðrum. Annars er gæðunum misskipt. Veðrið er þokkalegt sunnanlands en kuldi og snjór norðanlands og vestan. DV-mynd GVA. — enkemursumartö klukkan f jögur á laugardaginn Norðankuldi ríkir nú á Noröur- landi og Vestf jöröum og snjóaöi tals- vert í nótt á austanverðu Noröur- landi. Lítið snjóaði hins vegar í inn- sveitum Húnavatnssýslu og Skaga- firði. „Alhvítt að líta hér í kring,” sagöi lögreglumaður á Akureyri í morgun. „Stórhríö í nótt og kominn jafn- fallinn 15 til 20 sentimetra snjór,” sagöi viömælandi okkar á Húsavik í morgun. Á lsafiröi fengust þær upplýsingar að bölvaður hraglandi væri af og til en snjór hefði ekki náö að festast. Og á Sauðárkróki var noröanstormur og kuldi en lítið snjóaðíbyggð. Vegurinn til Siglufjarðar var ófær vegna snjóa og stórhríðar í morgun. Og ekki var hægt aö opna Möörudais- öræfi, því ekki var vinnuveður vegna snjókomu. En þrátt fyrir þetta kemur sumarið vonandi klukkan fjögur á laugardag, eöa svo segja Vopn- firöingaraðminnstakosti. -JGH. Arnarvatnsheiði: Ljót för vegpa jeppaleidangurs Jeppaleiðangur af höfuöborgar- svæöinu upp á Amarvatnsheiði um síðustu helgi hefur valdið reiði meöal fólks í Hvítársíðu og Hálsasveit. „Þetla verður ábyggilega kært,” sagði Þórður Stefánsson, oddviti Háisa- hrepps. „Ég er alveg hissa á fullorðnum mönnum aö reyna þetta. Þaö er allt- af verið aö tala um aö umferö utan vega fari illa með land,” sagöi odd- vitinn. Þrír jeppar, með RogG númerum af geröinni Toyota, Wagoneer og Lapplander, komu aö Kalmans- tungu síðastliöinn laugardag. Bónd- inn þar, Kalman Stefánsson, benti jeppamönnum á að ekkert vit væri í að leggja á Amarvatnsheiðina á þessum tíma árs. Leiðin væri ófær vegnableytuogsnjóa. Jeppamenn sneru þá frá Kaimans- tungu en í staö þess aö hætta viö fyr- irhugaöan leiðangur óku þeir aö næsta bæ, Fljótstungu, og reyndu þar. Uröu þeir aö snúa við en fundu aöra leið skammt frá og héldu þar upp á heiðina, samkvæmt upplýsing- um heimamanna. Ekki gekk feröalagið áfallalaust því Lapplanderjeppinn fór á bólakaf í Norðlingafljót og sat þar fastur. Fór Wagoneer-jeppinn niöur á sunnudag til að ná í aðstoð. Á mánu- dag komu svo tveir jeppar úr Reykjavík til aö bjarga Lapplandern- um úr fljótinu. Þaö tókst. , ,Eg skil ekki af hverju þeir reyndu ekki að fá frekar aöstoö úr sveit- inni,” sagði Jón Kristleifsson frá Húsafeili en hann flaug yfir jeppa- menn. Geirshlíðarbræöur flugu einn- ig yfir. „Þaö eru ljót ummerki eftir þá. Það er spark eftir allri leiöinni eftir þá, ljót för í landinu. Þetta var bölv- aö flan á þeim og fíflagangur,” sagði JónKristleifsson. 1 iandi Fljótstungu keyrðu jeppa- menn niður hliö á girðingu. Þeim tókst ekki að opna hliðið vegna klaka og key rðu það bara niöur. „Þeir fóru yfir mitt land í óleyfi og þar sem ekki er vegur. Svo tókum við bara á móti þeim. Þeir játuðu brot sitt og buöust til aö greiða skaðabæt- ur,” sagði Ámi Þorsteinsson, bóndi í Fljótstungu. „Menn hafa ekkert að gera þama um þetta leyti árs. Þaö er ekkert að sækja í þarna núna nema kannski bara að reyna aö komast um og gá hvaö hægt er aö komast,” sagði Þórður Stefánsson oddviti. Jón Kristleifsson sagöist halda að mennirnir væru slökkviliðsmenn. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.