Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1983, Blaðsíða 3
DV. FÖSTUDAGUR10. JUNl 1983. 3 Starfsmenn kerskálanna voru vigreifir í lok setuverkfallsins í gær. Eins og aörir hópar í álverinu béldu þeir fundi til aö ræða um fjöldauppsagnirnar og leiðir til aö koma í veg fyrir þær. Rétt eftir aö myndin var tekin, hrópaði ein- hver: „Piltar, klukkan er þrjú”. Þá var um leið tekið til við hin daglegu störf eins og ekkert hefði í Skorist. DV-mynd: Loftur. Stöðug ólga í álverinu vegna f jöldauppsagnanna: Starfsmenn í tveggja stunda setuverkfalli Dæmdur í átta mánaða f angelsi: SLAGSMÁL VORU ORSÖK HNÍFS- STUNGU BRETANS Fyrrum starfsmaður breska sendi- ráðsins sem stakk Islending i brjóstiö i kjallaraíbúð við Laufásveg aðfara- nótt 20. apríl síðastliðinn var í fyrra- dag dæmdur í átta mánaða fangelsi í Sakadómi Reykjavíkur. Fimm þessara mánaða eru skilorðs- bundnir og er skilorðstími þrjú ár. Honum var einnig gert að greiða allan sakarkostnað. Þá hefur Bretinn samið við Islendinginn um að greiða honum 1700 pund eða rúmar 71 þúsund íslensk-’ arkrónur. Eins og fram kom í frétt DV um þetta mál miðvikudaginn 20. apríl, hittust Islendingurinn og Bretinn í veitingahúsinu Óðali um kvöldið 19. apríl. Að skemmtun lokinni fóru þeir tveir ásamt fleiri Islendingum í kjallaraibúð hússins við Laufásveg 33, þar sem Bretinn bjó. Þar mun fólkið hafa setið að drykkju, þegar eitthvað var liðið á nóttina fóru allir í burtu nema þeir tveir. Islendingurinn, sem er mállaus, lagðist þá till svefns og sof naði. Bretinn vakti hann, en viö það hljóp mikill skapofsi i Islendinginn og keyrði hann Bretann aftur á bak upp að fata- skáp. I hræðslu sinni greip Bretinn til hnifs og stakk Islendinginn í brjóstið' og gekkhnífurinn ílunga hans. Mikill hæðarmunur mun vera á þeim og er talið að það sé ástæðan fyrir því hve hræddur Bretinn varð. Eftir hnífs- stunguna varð Bretinn örvinglaður yf- ir verknaðinum og kallaði lögreglu og s júkralið til. . Islendingurinn var fluttur á slysa- deild Borgarspítalans og komst fljót- lega úrlífshættu. Það skal ítrekaö að Bretinn er fyrr- um starfsmaður breska sendiráðsins. Hann hafði hætt þar störfum nokkrum vikum áður en umræddur atburður átti sér stað. -JGH — engin vinna milli eitt og þrjú í gær meðan verkamenn héldu mótmælaf undi Engin vinna var í Alverinu i Straumsvík milli klukkan 13 og 15 í gær vegna setuverkfalls starfsmanna. „Við erum mjög óhress meö fram- komu yfirmanna fyrirtækisins gagn- vart starfsfólkinu,” sagði Asbjöm Vig- fússon, trúnaðarmaður í kerskála, þegar blaöamenn DV hittu verkamenn þar að máli. „Okkur sýnist þeir beri minni virðingu fyrir starfsmönnum en nokkru sinni áður.” Asbjöm sagði einnig að starfsfólkiö heföi átt von á betri viðtökum forráðamanna fyrir- tækisins vegna málaleitunar þess um að uppsagnimar á dögunum yrðu dregnar til baka. Ekkert hefði fengist frá þeim nema neik væð svör. Væri ekki annað að sjá heldur en að allt stefndi í að allt samstarf starfsfólks og yfir- manna f yrirtækisins myndi bresta. Fréttabréf ASÍ: UPPLAGIÐ SJÖFALDAÐ „Við höfum ekki haft undan að af- greiða Fréttabréfið. Pantanir félag- anna em komnar í um 13.500 eintök, en venjulega upplagið er 1.800,” segir Asmundur Stefánsson, forseti ASL Fréttabréf ASI, kom út um síðustu helgi til kynningar á afstöðu ASI til stöðu efnahagsmála og aðgerða rikis- stjómarinnar. Eftir að spurðist að ritið hefði náð þessum vinsældum, hlaut það titilinn „vinsælasta megrunarritið” þessa dagana. HERB I fréttabréfi, sem í gær var dreift til starfsmanna ISAL, er greint frá því að fy rsti viðræðuf undur með fulltrúum ál- félagsins vegna fækkunar starfs- manna hafi verið haldinn fyrir viku, stuttu eftir sameiginlegan útifund allra starfsmanna ISAL. Á þeim fundi hafi ISAL mönnum verið kynnt álykt- un og afstaða starfsmanna til fjölda- uppsagnanna og jafnframt ákveðinn fundur sem haldinn var í fy rradag. Fram kemur líka að Ragnar Hall- dórsson forstjóri hefði ekki mætt til fundarins. Fulltrúar IS AL og trúnaðar- ráðs verkalýðsfélaganna skiptust á skoðunum um yfirvinnu og starfsemi verktaka. Ekki heföu fengist upplýsingar sem fulltrúar starfs- manna óskuöu eftir um fyrirliggjandi verkefni í ýmsum deildum og áætlað vinnuskipulag eftir fækkun starfs- manna. Fulltrúar starfsmanna leituðu líka eftir vilja ISAL til að endurskoða og afturkalla uppsagnir, meðal annars með tilliti til verulega betri stöðu á ál- mörkuðum og að í haust verði verit- smiðjan komin með full framleiðsluaf- köst. Svör ISAL manna hafi verið: „Nei, fækkun starfsmanna er miðuð við að verksmiðjan sé rekin með full- um afköstum.” Af þessu er dregin sú ályktun aö ISAL hafni algjörlega að breyta afstöðu sinni til uppsagna starfsmannanna og því er mótmælt. Mikil og almenn þátttaka var í verk- fallinu í gær, en það var ákveðið skömmu fyrir hádegi. Haldinn var f undur í hverri deild þar sem trúnaðar- menn gerðu grein fyrir gangi málsins og starfsmenn lögöu á ráðin um frek- ari aðgerðir. JBH ÆFINGA- OG JOGGING GALLAR Póstsendum samdægurs. Sportval Hlemmtorgi — Símar 14390 og 26690 FÓTBOLTAR HANDBOLTAR • ÍÞRÓTTA SKÓR VINDGALLAR • GÖNGU- FATNAÐUR VIKURA f 2JA VIKNA VERÐI 15. jÚNÍ. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum Greiðslukjör Opið laugardaga kl. 10—4 777 þess að auðvelda fjölskyldum að komast með börnin i sólina hefur okkur tekist að fó þau kostakjör sam- þykkt að fá frítt fyrir börnin i fylgd með fullorðnum í vinsælum fyrsta flokks íbúðum á Mallorka. fílotið tækifærið STRAX þvi pláss það sem býðst á þessum kjörum er takmarkað. Beint dagflug báðar leiðir 15. júní, 6. og 27. júlí, 17. ágúst, 7. og 28. sept. 22 daga FLUCFERD/R SOLARFLUG -AiM.. VESTURG0TU 17 b. ........ „„ . **««« ssrj&SwL. IbJJl Ub ZZIUU meðfarseðlinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.