Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1983, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR 20. AGUST1983.
19
Ástralski leikstjórinn
Peter Weir er löngu
orðinn heimsfrægur fyrir
kvikmyndir sínar en
meðal þeirra má nefna
Picnic at Hanging Rock,
The Cars that Ate Paris
og Gallipoli. Nýjustu
myndar hans, The Year of
Living Dangerously, var
beðið með mikilli eftir-
væntingu en því miður
urðu allmargir gagnrýn-
endur, jafnt sem aðrir
áhorfendur, fyrir all-
miklum vonbrigðum með
myndina. Söguþráðurinn
er ekki slæmur, að
minnsta kosti ekki
hugmyndin á bak við
hann, þó úrvinnslan sé
ekki sem best. The Year
of Living Dangerously
gerist í Indónesíu á miðj-
um sjöunda áratugnum
eða á þeim tíma sem
stjórn Sukarnós riðaði til
falls. Borgarastríð er á
næstu grösum og
kommúnistar hyggja á
valdatöku.
Ljósmyndari í
aðalhlutverki
Aöalpersónur myndarinnar koma
úr ýmsum áttiun. Guy Hamilton
(Mel Gibson) er ungur útvarps-
fréttamaöur frá Ástralíu sem ætlar
aö nota sér ástandið í Indónesíu til að
auðvelda sér frægö og frama. Jill
Bryant (Signourney Weaver) vinnur
í sendiráði Breta í Jakarta og verður
Bryant bæði ástkona og hentugt
verkfæri til upplýsingaöflunar.
Stjarna myndarinnar er svo leikkon-
an Linda Hunt, en hún leikur karl-
kyns ljósmyndara, Billy Kwan.
The Year of Living Dangerously
fjallar framar ööru um árekstra sem
hljóta að verða milli austurs og
vesturs og að auki er ábyrgð frétta-
manna og barátta þeirra við að
halda fullu hlutleysi í fréttaflutningi
tekin til meðferðár. Ljósmyndarinn
Billy Kwan er sá sem allt veltur á í
samskiptum Hamiltons við innfædda
og Kwan hefur líka mikil áhrif á
fréttaflutning Ástralíumannsins.
Frá nógu að segja
Billy Kwan er kínverskur að hálfu
og Ástrali að hálfu (hann er reyndar
leikinn af bandarískri kynblendings-
stúlku) og þess vegna á hann hvorki
heima í hinni vestrænu veröld né
hinni austurlensku. Og til að bæta
gráu ofan á svart er Billy Kwan
dvergur. Litarhátturinn gerir honum
auðvelt aö komast nokkuð nærri
íbúum Indónesíu og að auki hefur
hann mikla samúð meö þeim
uppreisnargjörnu. Kwan notar sér
framagirni Hamilton og fær hann til
að senda ýmsar fréttir sem hinir
fréttamennimir skildu ef til vill ekki
eða höfðu ekki aðgang að.
Það var frá nógu að segja í
Jakarta á því herrans árið 1965. Um
þaö leyti reyndu vinstrimenn að gera
byltingu en voru barðir niður af her
og hægrimönnum. Herinn sá þá fljót-
lega að hann haföi enga þörf fyrir
Sukarno sem var heldur hófsamur
miðjumaöur.
Dvergurinn lendir
i klemmu
Kwan tekst að nota Hamilton sem
málpipu fyrir skæruliða kommúnista
sem eru að undirbúa valdaránið. En
það tekst ekki lengi því Hamilton
sjóast og sér að kommúnistar iðka
ekki bara ræðuhöld heldur standa í
ströngu við vopnainnflutning. Hann
sendir frá sér frétt um þetta brölt og
kemst aö því loknu á lista kommún-
ista yfir þá sem þeir vildu helst sjá
falla í valinn. I þessum átökum
skæruliða og fréttamanns er það
ffl
líliB I „
lÁKiM'1
auövitað Billy Kwan sem lendir í
verstu klemmunni og hann fremur
(því sem næst) sjálfsmorð. En það
skiptir minnstu máli því honum hefði
veriö sálgaö hvort eð var.
Tvöfalt hlutverk
ástkonunnar
Inn í frásögn af valdaráni og
fréttamennsku er svo fléttaö ástar-
ævintýri Hamiltons og Jill Bryants.
Bryant hefur tvöfalt hlutverk í
myndinni, hún miðlar Hamilton
upplýsingum og lífgar upp á
söguþráðinn, rómantískum
áhorfendum til óblandinnar ánægju.
En bölvun blaðamennskimnar hvílir
yfir sambandi elskendanna og
Hamilton mun aö líkindum arka einn
sinn æviveg með framavonir að
leiðarljósi.
„Vesturlandabúar vita ekki réttu
svörin,” segir Indónesi í The Year of
Living Dangerously.
Þetta er að öllum líkindum
boðskapur myndarinnar og fyr-
ir bragöið veitir hún lítil svör við
spurningum um ástandið í Austur-
löndum fjær. Myndin fjallar um
áhugavert tímabil en henni hefur
helst verið fundið það til foráttu að
hún er ruglingsleg á köflum og fram-
vinda atburða ekki nógu markviss.
Vonandi nær Peter Weir sér aftur á
strik. -SKJ
sitt sýtdst
huerjw”*.
uMidg**'
nyjus,M
P®í*r The
Weirs, 111
Veor of
I.irit*íl
pangrr-
ously
Mel Gibbson i hlutverkl Mad Max.
IVý stjarna
Mel Gibbson og Sigourney Weaver i
Year of Living Dangerously.
Það tók ekki langan tíma fýrir Mel
Gibson, aðalleikarann í The Year of
Livlng Dangerously, að komast upp
á stjömuhimininn. Hann vann fyrst
til verðlauna eftir að hann lék van-
gefinn pilt í kvikmyndinni Tim og
frami hans jókst þegar hann birtist á
hvíta tjaldinu í mynd Peter Weir,
Gallipoli. A eftir fylgdu myndirnar
um Mad Max en í þeim lék Gibson
aðalhlutverkið. Síðasta mynd
Gibson, aöalleikarinn i The Year of
Living Dangerously, en aö auki hefur
hann þegar undirritað samninga um
leik í tveim kvikmyndum til við-
bótar.
Mel Gibson hefur til þessa hlotið
frama sinn í áströlskum kvikmynd-
um en hann er raunar Bandaríkja-
maður að uppruna því að foreldrar
hans fluttust til Ástralíu þegar hann
var tólf ára. Hann hlaut klassíska
leikaramenntun í Astralíu og lék á
leiksviöi áður en hann sneri sér að
kvikmyndunum.
Gallipoli er áreiöanlega fyrsta
meiriháttar myndin sem Gibson lék í
(myndin er væntanleg í Háskólabíó
áður en langt um líður,) og sagt er aö
hún sé hatrammasti áróður gegn
stríðsrekstri sem sést hefur á hvíta
tjaldinu. I henni er teflt saman
áhyggjuleysi æskunnar og ógeðslegu
ofbeldi styrjaldarinnar.
I næstu myndum sínum tveim,
Mad Max og Mad Max II, þurfti
Gibson ekki að læra langa ruUu en
likamlegt atgervi hans hafði því
meira að segja. Myndirnar eru
ákaflega hrottafengnar ofbeldis-
myndir sem segja sögu lögreglu-
manns sem á harma aö hefna á
mótorhjólatöffurum.
Nú er allt útlit fyrir að Mel Gibson
snúi aftur til Bandaríkjanna. Hann
hefur undirritað samning við MGM
um að leika i kvikmyndinni Running
Man, fyrir eina milljón dollara. Því
næst fer hann með hlutverk í nýrri
endurgerð af Uppreisninni á Bounty.
Launaseðill Mel Gibsons segir ef til
vill lítið um hæfileika hans sem leik-
ara en ein miUjón doUara sýnir og
sannar aö hann er kominn í hóp með
stórstjörnunum.
-SKJ