Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Side 2
20 l DV. FÖSTUDAGUR18. NOVEMBER1983. Kvikmyndir Kvikmyndir Sjónvarp Sjónvarpið föstudags- og laugardagskvöld: Stórmyndin SYBIL — EIN—enþó búa íhenni 16 mismun- andi manneskjur Stórvirki er ó dagskrá sjónvarpsins um þessa helgi. Þaö er bandariska sjónvarpsmyndin Sybil sem gerð var áriö 1976. Hún tekur vel rúma þrjá tíma í sýningu og verður af þeim sökum skipt niöur á dagskrá föstu- dags- og laugardagskvölds. Sybil fékk slíkt einróma lof gagnrýn- enda þegar hún var frumsýnd fyrir sjö árum aö tíðindum þótti sæta. Myndin f jallar lika um óvenjulegt en jafnframt áhugavert viöfangsefni. Hún styöst viö sanna lífsreynslusögu ungrar stúlku sem hefur gengiö í gegnum ömurlegt uppeldi móður sinnar og er svo að segja eyöilögö manneskja þegar hún stendur frammi fyrir því aö þurfa aö standa á eigin fótum. Henni er komið undir hendur geðlæknis sem leiðir þaö í ljós aö í Sybil búa sextán mismunandi manneskjur. Myndin gengur síðan út á meöhöndlun læknisinsá Sybil. Eins og fyrr segir áttu margir gagn- rýnenda ekki orö yfir hrifningu sína á þessu verki. Þaö þótti sanna getu sjónvarpsins sem listræns miöils. Sybil sópaöi lika aö sér hverskyns verðlaun- um fyrir leik, leikstjórn, handrit og kvikmyndun. Meðal verðlauna fékk myndin hin eftirsóttu Emmy-verölaun sem veitt eru árlega í Bandaríkjunum fyrir besta sjónvarpsefniö. Hæfileikamiklir leikarar eru í öllum helstu hlutverkum. Þar má fyrstar nefna Sally Field, sem leikur sjálfa Sybil, og Joanne Woodward sem leikur geðlækni hennar. Brad Davis þekkja unnendur kvikmynda úr aöalhlutverki stórmyndarinnar Midnight Express, sem Alan Parker geröi svo ógleyman- lega, en sú mynd var sýnd hér nýlega viö mikla aösókn. Meöal annarra leik- ara í Sybil má svo nefna Martine Bart- lett, Jane Hoffman, Charles Lane, Jessamine Milner og William Prince, allt þekkta sjónvarpsleikara. Johanne Woodward — eiginkona Paul Newmmn — leikur geðlækninn i myndinni Sybilsem sjánvarpið sýnir ikvöld og annað kvöld. Leikstjóri myndarinnar er Daniel Petrie, einhver virtasti sjónvarpsleik- stjóri vestanhafs, og mun þetta vera fyrsta verk hans sem sýnt er hérlendis. Hann fæddist áriö 1920 og var meðal fyrstu Bandaríkjamanna sem lögöu út í ítarlegt nám í sjónvarpsleikstjórn. Petrie þykir afar vandaður leikstjóri og þekktur fyrir aö fást við allt annaö en auðvelda hluti. Eftir hann liggja líka fáar en góöar myndir og mun Sybil vera áttunda sjónvarpsverk hans til þessa. Sybil þykir magnþrungin og drama- tísk saga sem á auðvelt meö að hrífa áhorfendur með sér. Efni hennar kemur öllum viö og þvi er ekki annað aö segja en hvetja sjónvarpsnotendur til aö gefa henni gaum. Sýningartími Sybil eru réttar hundr- aö mínútur hvort kvöldiö sem hún verður sýnd. -SER. Geer og Rupert Crosse. Myndin * gerist skömmu eftir aldamótin. McCaslin-fjöIskyldan kaupir fyrstu bifreiðina sem kemur til smábæjar í Mississippi. Ungur galgopi veröur ökumaöur fjöl- skyldunnar. Hann tekur bílinn traustataki og býöur tólf ára lauki ættarinnar meö sér til að kynnast lystisemdum stórborgarinnar og veröa aö manni. Þýöandi Guörún Jörundsdóttir. 00.00 Dagskrárlok. Sunnudagur 27. nóvember 16.00 Sunnudagshugvekja. Baldur Kristjánsson flytur. 16.10 Húsiö á sléttunni. 3. Anna- bella. Bandarískur framhalds- myndaflokkur. Þýöandi Öskar Ingimarsson. 17.05 Frumb.vggjar Norður- Ameríku. 5. Fyrstu auömenn Ameríku. 6. Þjóðirnar sex. Breskur myndaflokkur um indíána í Bandaríkjunum. Þýöandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 18.00 Stundin okkar. Umsjónar- menn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjóm upptöku: Elín Þóra Friöfinns- dóttir. 18.50 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Sjónvarp næstu viku. Umsjónarmaöur: Guðmundur Ingi Kristjánsson. 21.00 Glugginn. Þáttur um listir, menningarmál og fleira. Umsjón- armaöur Áslaug Ragnars. Stjórn upptöku: Viöar Víkingsson. 21.50 Wagner. Lokaþáttur. Wagner æfir af kappi „Rínargull” sem sýna á í Miinchen. Stríð skellur á milli Frakka og Þjóðverja. Niet- zsche, vinur Wagners, gerist sjálf- boöaliöi og kemur aftur reynslunni ríkari. Cosima og Wagner ganga í hjónaband. Missætti kemur upp milli Lúöviks konungs og Wagners og hann fer aö svipast um eftir staö til aö láta reisa leikhús. Þýöandi Oskar Ingimarsson. 22.50 Dagskrárlok. Þátturinn i breska unglingem yndafiokknum „Innsiglað með ástarkossi" er i sjónvarpinu 6 laugardögum ki. 18.30. Myndin sem sýnd verður i sjónvarpinu é Imugmrdeginn / nmstu viku heltir „Reyfaramir" eðm „The relvers". Þettm er umdelld mynd. Hún fmr t.d. hæstu einkunn ffjórer stjömur) i bókinni Movies on TV en þriðju hæstu einkunn i bókinni Guide to Movies on TV fri Sunday Times. Steve McQueen leikur aðaihiutverkið i myndinni og nægir það sjáifsagt mörg- um. ■■■■■■■■■■■■ BÆJARINS BESTU Regnboginn, VERÓNIKA VOSS: Rainer Werner Fassbinder verður aö teljast í hópi áhuga- veröustu leikstjóra síöustu ára. Ekki er þaö aðeins fyrir heillandi og áræðin viöfangsefni heldur ekki síöur fyrir listrænt og afar frumlegt handbragð. Af þessum sökum kom fráfall hans á síöasta ári mjög viö kvikmyndaunnendur. En tölum ekki um þaö. Einhver allrasíöasta mynd hans er nú til sýninga í Regnboganum, Löngun Veróníku Voss. Þetta verk lýsir á nærfærinn og hnitmiðaðan hátt þvf hverníg kvikmyndastjarna fellur í djúp gleymsku og eitur- lyfja. Sálarstríö hennar er hatrammt við hvorutveggju sem þó aö lokum yfirbugar hana. Þetta efni hefur veriö tekið fyrir af öörum leikstjórum en aldrei áöur með slíkum töfrum og Fassbinder tókst að glæða þaö. Þaö er ekki aðeins stórkostleg leikstjórn hans og kvikmyndataka sem lyftir þessu verki hátt upp heldur líka leikur fólks í helstu hlutverkum. Hann er framúrskarandi og oft á tíðum magnaöur. Kóróna þessa alls er leikur ljóss og skugga í þessu i svart/hvíta verki. Hún krýnir Fassbinder fyrir frábæra frammistööu. -SER. AUSTURBÆJARBIÓ: BLADE RUNNER Blade Runner er framtíðarleynilögreglumynd. Ridley Scott er geröi Alien er viö stjórnvölinn ásamt skærustu stjörnu ævintýra- kvikmyndanna í dag, Harrison Ford, og útkoman er virkilega skemmtileg ævintýramynd sem látin er gerast í Los Angeles framtíöarinnar þegar mengunin er orðin svo mikil aö fólk sem vill ■lifa við bærileg kjör býr ekki neðar en á 60. hæö í skýjakljúfum. Til að gera sviöið enn áhrifameira er látin vera rigning í borginni alla i myndina og á götum er sóðaskapurinn og hirðuleysið algert. Harri- son Ford leikur lögreglumann sem hefur atvinnu af því að elta uppi replikur, er hafa strokiö, en replikur kallast fólk sem framleitt er ; til aö vinna ýmisleg störf í þágu mannsins. Ævitími þeirra er stuttur og sem skiljanlegt er vill þaö lifa sínu stutta lífi eftir sínu höföi. Þaö er margt æsispennandi atriöa í myndinni og öll sviðsetn- , ing er stórbrotin og tækniatriöin vel gerö. Sem sagt ævintýrakvik- ; mynd eins og þær gerast bestar. • -HK. HÁSKÓLABÍÓ: FORINGIOG FYRIRMAÐUR Foringi og fyrirmaöur sannar aö enn má framleiöa gamaldags, rómantískar kvikmyndir og fá fólk til aö flykkjast í kvikmynda- húsin, en myndin var ein allra vinsælasta kvikmynd vestan hafs á síðastliðnu ári. Foringi og fyrirmaður er mynd er fjallar öörum þræöi um ungt fólk sem ætlar sér að gerast þotuflugmenn í banda- ríska hernum og þaö stranga þjálfunarprógramm er þaö þarf aö fara í gegnum til aö öðlast þá líkamlegu burði er þotuflugmenn þurfa að hafa til aö hreppa þetta eftirsótta starf. Einnig lýsir hún | * sambandi tveggja flugnema viö ungar stúlkur frá smábæ sem er nálægt herbúðunum, en þær eiga þá ósk heitasta aö losna frá þessum staö og þeirri tilbreytingarlausu atvinnu er þær stunda í i verksmiöju í bænum. Þess vegna hafa þær augastað á tilvonandi flugmönnum sem þær vita að eiga eftir aö ferðast um allan heim. Þaö er margt gott um myndina aö segja. Hún er virkilega vel gerö og aöalleikararnir, Richard Gere, Debra Winger og Louis Gosset jr. eru mjög góöir og tekst þeim oft, þegar söguþráöurinn jaðrar viö væmni, aö lyfta myndinni á þaö plan aö vera góð afþreying. 1 -HK. IMÝJA BÍÓ NÝTT LÍF Það er óhætt aö segja að mikið er hlegiö í Nýja bíói þessa dag- . ana, enda er nýjasta íslenska kvikmyndin Nýtt líf bráðsmellin gamanmynd, þar sem aðalleikararnir, Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Ulfsson, fara á kostum. Sérstaklega er Eggert fyndinn og C virðist engu hafa gleymt frá því hann lék í Meö allt á hreinu. Nýtt lif segir frá tveimur ungum mönnum sem er sagt upp störfum á Hótel Sögu og ákveða að fara til Vestmannaeyja til aö vinna sér inn peninga í höfuðatvinnuvegi Islendinga, sjávarútveginum. Ekki eru þeir nú mikiö fyrir erfiðisvinnuna og eru fljótir aö koma sér vel fyrir án þess aö erfiöa of mikið. Þeir félagar lenda í mörgum ævin- týrum, flestum spaugilegum. Aukaleikarar í Nýtt líf eru allir áhugaleikarar frá Vestmannaeyjum og koma á óvart meö eðli- Uegum leik í sinni fyrstu kvikmynd. Tæknivinna við myndina er ekki eins góö og búast heföi mátt við, miöað viö fyrri reynslu, og heföi mátt vanda meira til hennar. En þrátt fyrir það hefur Þráni Bertelssyni tekist þaö sem hann hefur ætlaö sér, aö gera gaman- mynd sem kæmi fólki í gott skap. HK. lliniim Rvikmyndir Kvikmyndir i&AAJhJ J4UL JU4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.