Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1983, Qupperneq 2
18 i| Sjónvarp \ Sjónvarp Pálína, ásamt hundínum, f yrir f raman bæinn sinn að Skarðsá í Sæmundarhlíð. DV-mynd Bjarnleifur. Sjónvarp nýársdag kl. 20.50—Lágu dyr og löngu göng: PÁLÍNA HEIMSÓTT í GAMLA TORFBÆINN „Eg er bóndi héma og þaö veröur aö hafa það,” sagöi Pálína Konráös- dóttir aö Skarðsá í Skagafiröi í viö- tali viöDV íhaust. I sjónvarpinu á nýársdag klukkan 20.50 verður sýnd mynd um þessa óvenjulegu konu sem mun vera eini Islendingurinn sem heimili á í torf- bæ. Pálína er orðin 84 ára gömul og hefur mest alla ævi sina búiö í sömu húsakynnunum, gamla bænum að Skarösá. Síðustu þrjátíu ár hefur hún veriöeinbúi. Pálinaunirhagsínumvel. Húner meö hross og kindur en einnig hund og þrjá ketti. Enda þótt torfbærinn sé meira en aldar gamall er þar aö finna mörg nútímatæki, þar á meðal frystikistu, útvarp, rafmagnseldavél og sjálfvirkan síma. Omar Ragnarsson sá um gerð myndarinnar. Meö honum noröur í Skagafjörö fóru Helgi Sveinbjörns- son sem kvikmyndaöi og Oddur Gústafsson sem nam hljóö. Myndin, sem er fjörutíu mínútna löng, hefur hlotið heitiö Lágu dyr og löngu göng. -KMU. Laugardagur 7. janúar 16.15 Fólk á förnum vegi. 8. Tölvan. Enskunámskeiö í 26 þáttum. 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Ingólfur Hannesson. 18.30 Engin hetja. Annar þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokkur í sex þáttum fyrir börn og unglinga. Þýöandi Guörún Jörundsdóttir. 18.55 Enska knattspyrnan. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 í lífsins ólgusjó. (It Takes a Worried Man). Nýr flokkur — 1. þáttur. Breskur gamanmynda- flokkur í sex þáttum um hrellingar sölumanns sem nálgast miöjan aldur og hefur þungar áhyggjur af útliti sínu og velferð. Aöalhlutverk Peter Tilbury. Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir. 21.00 Glæður. Um dægurtónlist síöustu áratuga. 5. þáttur: Gömlu dansarnir. Hrafn Pálsson ræöir við Arna Isleifsson, Asgeir Sverrisson og Jónatan Olafsson og hljómsveitir undir þeirra stjórn leika gömlu dansana og dixíland. Stjórn upptöku: Andrés Indriða- son. 21.45 Fjarri heimsins glaumi. (Far From the Madding Crowd). Bresk bíómynd frá 1967. Leikstjóri John Schlesinger. Aöalhlutverk: Juiie Christie, Peter Finch, Alan Bates, Terence Stamp og Prunella Ransome. Ung og fögur kona fær stórbýli í arf. Hún ræöur vonbiðil sinn til starfa en einnig keppa um ástir hennar ríkur óöalsbóndi og riddaraliösforingi meö vafasama fortíö. Má ekki á milli sjá hver verður hlutskarpastur. Þýöandi Kristrún Þóröardóttir. 00.05 Dagskrárlok. Eldfjörugir trúðar verða meöal þeirra er skemmta okkur i þýska fjöl- leikahúsinu á gamlárskvöld. Sjónvarp kl. 21.35 á gamlárskvöld: ÞÝSKUR SIRKUS AÐ ÞESSU SINNI Undanfarin ár hefur sirkus Billy Smart glatt unga sem aldna á gamlárskvöld. Hefur þátturinn náð miklum vinsældum hér á landi og gert langt um betur en aö létta biðina eftir áramótaskaupinu. Því hver man ekki eftir atriöum þar sem kattliöugt sirkusfólk hefur hangið á ystu nöf, svo sjónvarps- áhorfendur hafa gripiö andann á lofti af spenningi. En um þessi áramót veröur nokk- urbreytinghérá. Víst veröur sirkus á skjánum, en ekki flokkurinn hans Billy Smart. I staö hans kemur þýsk- ur sjónvarpsþáttur, þar sem fjöl- listamenn, trúðar og dýr leika listir sínar í hringsviöi fjölleikahúss. Von- andi veröur enginn svikinn af aö horfa á þá tilburði, þótt þess sé sárt saknað aö Smart gamli birtist ekki á skerminnum. Kvikmyndir Kvikmyndir ■JilllBlIl JUJL BÆJARINS BESTU HASKOLABIO: SKILABOÐ TIL SÖNDRU Skilaboö til Söndru er kvikmynd um miðaldra rithöfund sem ekki hefur allt gengiö í haginn, hvorki í einkalífinu né á sviöi bók-' mennta. Uppgjör hans við sjálfan sig og tengsl hans viö unga og dularfulla stúlku sem veröur áhrifavaldur hans. Myndin er byggð á skáldsögu Jökuls Jakobssonar og henni fylgt eftir í öllum meginatriöum, sérstaklega í fyrri hluta myndarinnar. Þrátt fyrir aö Skilaboð til Söndru sé hin ágætasta skemmtun er hún langt frá því aö vera gallalaus. Liggur megingalli myndarinnar í handrit- inu. Barátta rithöfundarins viö sjálfan sig veröur aldrei sannfær- andi og kynni hans viö Söndru ná aldrei því plani sem lýst er í bók- inni og á þar ekki minnstan þátt, ung og óreynd leikkona, Asdís Thoroddsen. Hana vantar því miður þá reynslu er þetta hlutverk 1 býður upp á. En þaö sama verður ekki sagt um Bessa Bjarnason í hlutverki Jónasar. Bessi sem er þekktari sem gamanleikari nær vel aö sýna þennan lífsþreytta rithöfund sem fátt gengur í haginn og endar sem veitingahússeigandi í Grikklandi. HK. LAUGARASBIO: PSYCHO II Aö gera framhaldsmynd eftir frægustu kvikmynd meistara sakamálamyndanna Alfred Hitchcocs, Psycho, er verkefni sem fáir heföu lagt út í fyrirfram. En leikstjórinn Richard Franklin og handritshöfundurinn Tom Holland settu þaö ekki fyrir sig og árangurinn Psycho II er einkar vel gerö kvikmynd og er hún verðug þess að vera framhald meistaraverksins. Þaö eru kunnug- leg andlit sem koma okkur fyrir sjónir í Psycho II. Ber þar fyrstan aö telja Norman Bates (Anthony Perkins) sem hefur veriö sleppt af geðveikrahæli eftir tuttugu ára veru þar og þrátt fyrir aö vera stimplaöur heilbrigöur fer hann fljótt í sama far og áður, sér löngu dauða móöur sína og heyrir rödd hennar skipa sér fyrir meö hinum hörmulegustu afleiðingum. Einnig kemur aftur viö sögu Lila (Vera Miles) sem ekki trúir því aö Norman sé orðinn heilbrigöur. I stuttu máli sagt er þarna um aö ræöa stórgóöa hrollvekju sem hvaö eftir annað fær áhorfandann til aö súpa hveljur af spenningi og á ekki sístan hlut í því Anthony Perkins í hlutverki Norman Bates. Sá ágæti leikari hefur greinilega engu gleymt. Norman er jafn- óhugnanlegur persónuleiki og fyrir 20 árum. HK. STJÖRNUBÍÓ: BLÁA ÞRUMAN Einn á móti öllum. Uppistaöa Bláu þrumunnar er gamalt þema • sem viö höfum séð í ótal bíómyndum. En þaö er ekki verra fyrir' þaö. Að minnsta kosti ekki hér, í meðförum John Badham og félaga. Blá þruman greinir frá Frank Murphy, þyrluflugmanni í lögreglusveit Los Angeles. Murphy er fenginn til aö reynslufljúga nýrri þyrlu, Bláu þrumunni, sem herinn hefur látiö framleiöa. Þrátt fyrir fagrar yfirlýsingar kemur í ljós aö yfirvöld ætla aö nota tækiö til óhæfuverka. Murphy kemst aö því og þá byrjar ballið. Bláa þruman endasendist um loftin blá meö aðrar þyrlur í eftir- dragi uns kemur aö lokauppgjörinu milli hinna góöu og hinna vondu. Árangurinn er fantalega skemmtileg ög spennandi kvik- mynd þar sem öll vinna er í hæsta gæðaflokki. Sérstaklega er kvik- myndatakan þó eftirminnileg og þær raunir sem tökumaöurinn1 hefur þurft aö leggja á sig. Fyrsta flokks skemmtun. -GB . TÓNABÍO: OCTOPUSSY James Bond er kominn enn einu sinni til að skemmta landanum svona rétt fyrir jólin. Aö þessu sinni eru þeir tveir, en hér veröur fjallaö um þann eina sanna fyrir langflesta, nefnilega Roger Moore. Kappinn er í betra formi en oftast áður. Hann endasendist heimsálfa á milli í baráttu sinni viö illu öflin og eins og alltaf tekst honum aö sigra á síöustu stundu. Hér á hann í höggi viö brjálaðan sovéskan hershöföingja og óvandaða fylgismenn hans sem m.a. stunda skartgripasmygl. Til sögunnar er að vanda kallaðar marg- ar fagrar stúlkur, og hafa þær sjaldan veriö jafnmargar. Bond vefur þeim sumum hverjum um fingur sér, svona eins og gengur og gerist og eru þaö rólegustu augnablik myndarinnar. Annars er hraöinn mikill og spenna nokkur. Ekki má gleyma húmornum. Hann er meö albesta móti og því ætti engum aö leiðast. -GB.i l_________ TCvikmyndir Kvikmyndir Illlllll III,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.