Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 13
DV. MANUDAGUR 9. JANUAR1984. 13 beinlínis kennt, ekki þessari ríkis- stjórn aö minnsta kosti, þótt flestir, sem hana skipa, beri sína ábyrgö á því, hvernig nú er komið. Stór hluti þess vanda, sem nú blasir viö okkur, er af- leiöing rangrar stefnu undanfarinna ára, hömlulausrar sóknar í dýrmæt- ustu fiskistofna okkar og fyrirhyggju- lausrar fjárfestingar í fiskiskipum, Sjónarmiö rányrkju og stundargróöa hafa reynst okkur dýrkeypt. Minnkandi fiskafli hefur þegar sett mark sitt á líf fjölmargra fjölskyldna. Stööugt berast fregnir af uppsögnum í fiskvinnslu og útgerð. Á Suðurnesjum er atvinnuástand orðiö mjög alvarlegt. Þar skipta atvinnulausir nú hundruö- um, og meirihluti þeirra er konur. Eru konur ekki fyrirvinnur? Þaö furöulega er, aö ótrúlega margir líta atvinnuleysi misjafnlega alvar- legum augum eftir því hvort í hlut eiga karlar eöa konur. Dæmi um slík viöhorf mátti sjá í Alþýðublaðinu 13. des. sl., þar sem rætt var viö Sigur- björn Björnsson hjá Verkalýös- og sjómannafélagi Keflavíkur um at- vinnuástandið á Suöurnesjum. Eftir aö hafa látið í ljósi áhyggjur af ástandi og horfum, segir hann orörétt: „Þaö sem bjargar dálítið stööunni hjá okkur er að stærri hluti atvinnu- lausra eru konur og því ekki fyrirvinn- ur. Við teljum, aö um þriðjungur at- vmnulausra séu karlar, en tveir þriðju konur. Þannig aö í sumum tilvikum hefur þetta ekki afgerandi áhrif á af- komu heimilanna, þar sem konan er ekkifyrirvinnan.” Eg mótmæli harðlega viöhorfum af þessu tagi. Þau eru beinlínis ósæmileg og gjörsamlega úr takt viö raun- veruleika nútímans. Atvinnuleysi kvenna er nákvæmlega jafnalvarlegt og atvinnuleysi karla. Konur hafa í sívaxandi mæli tekið aö sér fyrirvinnu- hlutverkiö, ýmist viö hliö karla eöa einar og óstuddar. Við skulum ekki gleyma því, aö fjóröa hvert barn á landinu er á framfæri einstæðra for- eldra, í langflestum tilvikum ein- stæðra mæðra. „Konur eru ekki lengur neitt varavinnuafl, sem iœtur bjóóa sér hvaO sem er. A „Það furðulega er að ótrúlega margir líta ^ atvinnuleysi misjafnlega alvarlegum augum eftir því hvort í hlut eiga karlar eða konur.” Konur ekki lengur vara- vinnuafl Þaö má búast viö fleiri dæmum af þvi tagi, sem greint var frá hér að of- an. Þaö er staðreynd, aö konur hafa löngum veriö notaöar — og látið nota sig möglunarlítiö — sem eins konar sveiflujafnara í atvinnulífinu. Þær hafa veriö kallaðar út á vinnumark- aöinn á þenslutímum, • en sendar heim á samdráttartímum. Um þaö eru ótal dæmi frá ýmsum tímum alis staðar í heiminum. En þjóðfélagsgerðin er breytt. Konur eru ekki lengur neitt varavinnu- afl, sem lætur bjóöa sér hvaö sem er. Konum hefur aukist sjálfstraust á und- anförnum árum. Þær hafa vaknað til vitundar um, aö þær þurfa ekki að biðjast afsökunar á tilveru sinni. Þær láta ekki lengur ýta sér til hliðar. Um þaö vitna meðal annars margvíslegar aðgerðir kvenna á síöasta ári, árangur þeirra í síöustu alþingiskosningum, þverpólitískt samstarf um launamál, friðarmál og fræöslumál, frumkvæði aö ráöstefnum um ýmis mál, og síðast, en ekki síst, stofnun samtaka kvenna á vinnumarkaði. Allt þetta starf hefur þegar skilaö árangri og á eftir að skila enn meiri árangri til hagsbóta fyrir alla. Þrátt fyrir uggvænlegt útlit í at- vinnu- og efnahagsmálum á þessu ári er því engin ástæöa til örvæntingar. Viö munum vinna okkur út úr vand- anum, og þar mun hlutur kvenna ekki eftirliggja. Kristín Halidórsdóttir þingmaður Samtaka um kvcnnalista. , lista viðkomandi verksamninga Aðal- verktaka og Keflavíkurverktaka við varnarliðiö og geta því engan saman- burð gert á því hvort hinar tollfrjálsu vörur séu í samræmi við innflutnings- skjöl (farmskrár). Sama gildir um varahluti, bifreiðar, dekk og annan tækjabúnað, sem ekki tengist ákveðnum verksamningum fyrir vararliðið. Hættulegur innflutningsmáti Aö vísu stimplar gjaldeyrisdeild Landsbankans á innflutningspappíra og kannar aö gjaldeyrisheimildir séu til staöar. Augljóst er aö samanburður tollgæslunnar á farmskrám viö inn- flutt vörumagn er óraunhæfur ef hann er ekki borinn saman viö efnisliöi verk- samninga verktakafélaganna, sem í reynd er heimildin fyrir hinum toll- frjálsa innflutningi. Eg hef margsinnis bent viðkomandi yfirvöldum á þá hættu sem slíkur innflutningsmáti hefur í för meö sér og jafnframt staöið aö því á sínum tíma aö upplýsa stór- vægileg misferli í þeim efnum og má þar tilnefna mál Olíufélagsins hf. o.fl. Viökomandi embættismenn virðast þó lítiö sem ekkert hafa lært af þeim mis- tökum, en í þeim málum upplýstist á eftirminnilegan hátt hvernig á einfald- an hátt var hægt aö flytja til landsins meö ólögmætum hætti tollfrjálsar vörur fyrir tugmilljónir króna vegna varnarliösframkvæmda. Verulegur hluti dómskjala í olíumálinu hf. vegna hins ólögmæta innflutnings báru árit- anir og stimplanir varnarmáladeildar, tollgæslu og gjaldeyrisdeildar Lands- bankans. Sumir vildu beinlínis halda því fram að „vanræksla og sérlega lipur fyrirgreiðsla” viökomandi emb- ættismanna hafi veriö aöalorsakavald- urþessa máls. Eins og kunnugt er reka Islenskir aöalverktakar innkaupaskrifstofu í Norfolk í Bandaríkjunum sem útvegar efni til verkframkvæmda fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli, en tæknileg hönnun verkefna er aðallega unnin í Bandaríkjunum. Aðalverktakar virðast hafa fengið háar gjaldeyris- yfirfærslur vegna þessarar innflutn- ingsskrifstofu sinnar og væri ekki óeðlilegt, sérstaklega þar sem ríkis- sjóður á hlut að, að upplýst sé hverju þær fjárhæðir nema og hvernig sundurliðun á skilagrcinum til bank- ans er háttað. Þá er jafnsjálfsagt að upplýst sé hver hagnaður rikissjóðs er í rekstri íslenskra aðalverktaka og hvernig þeim hagnaði hefur verið ráðstafað. Rikisbókhaldið ætti að geta upplýst á einfaidan hátt hver hagnaður ríkissjóös hefur verið af einstökum verksamningum íslenskra aðaiverk- taka við varnariiðið. öll leynd í þessum efnum kallar á tortryggni enda ber lögum samkvæmt aö láta slíkar upplýsingar í té sé eftir leitaö af réttum aöilum. Leggja Aðalverktaka niður Þaö hefur veriö skoöun mín um lang- an tíma aö leggja beri niöur alla starf- semi Islenskra aöalverktaka á Kefla- víkurflugvelli. Þjóðhags- og fjárhags- lega er þaö íslensku þjóöinni óhagstætt aö láta erlent fjármagn koma inn í landið án nokkurra skuldbindinga eöa eftirlits um skipuiega fjárfestingu. Einnig er það nokkurt vafamál aö bandarísk stjórnvöld séu hlynnt því aö ákveðnir aöilar auögist meö þeim hætti sem hér hefur gerst enda þótt vin- veittir séu Bandaríkjunum. Miklu fremur má ætla aö bandarísk stjórn- völd vilji aö það fé sem þeir verja hér vegna varnarliðsframkvæmda komi þjóöinni í heild til góöa. Skynsamlegast væri að ríkið til- nefndi íslenska verkfræðinga til að gera alla verksamninga við varnar- liðiö en síðan væru þeir boðnir út á frjáisum markaði. Sá hagnaður sem yrði, þ.e. mismunur á verktilboðum verktaka og vcrkútboða ríkissjóðs við varnarliðið, færi í ríkissjóð. Þá pen- inga mætti m.a. nota til vega- og flug- vallagerðar, almannavarna o.fi. í stað þess að gróði Aðalverktaka hefur aðal- lega farið í skrifstofu- og verslunar- hallir í Reykjavík. Ef þessir f jármunir heföu runniö í ríkissjóö má æt!a aö hringvegurinn væri nú með varanlegu slitlagi og flestir flugvellir landsins í góöu ásigkomulagi. Þaö má undrum sæta hversu stjórnir sveitarfélaga á Suðurnesjum og þingmenn kjördæmis- ins hafa verið sofandi fyrir hags- munum sinna byggöarlaga þegar Islenskir aöalverktakar hafa átt i hlut. Fjármagnsins er aflaö á Suöurnesjum en síðan flutt þaöan þegjandi og hljóða- laust til höfuöborgarsvæðisins. Nú er ég búinn aö vísa yður veginn, hr. fjár- málaráðherra, varla ætti það aö vera yður á móti skapi eöa stríöa gegn lífs- skoöunum yðar og annarra athafna- manna Sjálfstæöisflokksins aö frjáls samkeppni ríki um verkútboð varnar- liösins. Skipulagsbreyting I viöræðum viö skoðanabræöur yöar í Reykjaneskjördæmi hefur oftsinnis komiö fram vilji þeirra til aö breyta þessu á þann hátt sem hér hefur veriö lýst. Þaö er sannarlega kominn túni til aö fram komi skipulagsbreytingar, sem ekki einungis varða stöðu þeirra sem minna mega sin í þjóöfélaginu, heldur tilfærslu á fjármunum auö- hringja til hagsbóta fyrir almenning í landinu. Þaö virðist sem flesta hafi skort kjark, einurö og heiöarleika til aö breyta þessu rekstrarfyrirkomulagi. Flestir virðast því miöur hafa þá skoðun hér á Suöurnesjum aö ekki sé hægt að breyta neinu í þessum efnum þar sem hagsmunir tveggja stærstu stjórnmálaflokka landsins séu aö viöhalda Islenskum aðalverktökum í núverandi mynd. Jafnframt er að því látið liggja aö háar peningaupphæðir séu greiddar af Aðalverktökum í kosn- ingasjóöi þessara flokka og því sé flokksstarfið meira og minna háö til- vist þeirra. Ef þessi tilgáta er rétt má meö nokkrum rökum halda því fram að bandariskt fjármagn, í gegnum Islenska aöalverktaka hafi bein áhrif á stööu þessara flokka. Sá fjárhagslegi ávinningur sem viö höfum af veru varnarliösins hér á að ráöstafa til al- mennrar uppbyggingar iandi og þjóð til gagns. Eg dreg ekki í efa heiðarleika og kjark yöar, hr. fjármálaráöherra, þess vegna veröur sérstaklega áhugavert aö fylgjast meö viöbrögðum yöar í svo þýöingarmiklu máli. Kristján Pétursson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.