Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1984, Blaðsíða 17
DV. MÁNUDAGUR 9. JANUAR1984.
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Samtakamáttur borgarbúa
Borgarbúi skrifar:
Þótt margt sé slæmt um óveðriö,
sem geisað hefur, að segja þá sýnir
það vel hve samtakamáttur borgarbúa
er mikill. Allir eru reiöubúnir að
aðstoða aöra. Það ætti samt ekki að
þurfa svona óveöur til að borgarbúar
sýni þennan samtakamátt.
Allir leggjast á eitt, þeir sem eru á
vel útbúnum bílum kippa hinum úr
sköfium þar sem þeir sitja fastir.
Jeppaeigendur gera sér ferö til að
aðstoöa aðra.
Eg vil koma á framfæri þakklæti til
allra borgarbúa fyrir þann skilning
sem þeir sýndu hverjir öðrum þegar
mest á reyndi í ófærðinni. Lögreglan
og hjálparsveitirnar ásamt mörgum
öðrum aðilum stóðu í ströngu og er það
sérstaklega þakkarvert.
Látum þotta óveður okkur í minni
festast og munum hve samtakamáttur
okkar getur orðið mikill þegar allir
leggjast á eitt.
Hamborgarar
afgreiddir
ántafarhjáTomma
Guðmundur Axelsson, framkvæmda-
stjóri Tomma-hamborgara, vildi koma
eftirfarandi leiðréttinguá framfæri:
I lesendabréfi sem birtist 29. des-
ember síöastliðinn, og fjallaöi um
gjafaávísanir sem áttu að vera frá
jólasveininum, var sagt að ekki fengist
neitt út á þær gjafaávísanir fyrr en
eftir áramót. Þaö var ekki alls kostar
rétt.
Tomma-hamborgarar tóku þátt í
þessu fyrirtæki og afhentu þeir fólki
hamborgara út á gjafaávísanir sínar
þegar þess var óskað. Hjá þeim þurfti
enginn að bíöa fram yfir áramót eftir
sínum hamborgurum.
„Sósu og salat. .sungu Stuðmenn
um árið. Margir vilja ekki sjá ham-
borgara nema með mikilli sósu.
r
LELEGUR VIÐBUN-
AÐUR YFIRVALDA
B.B.J. hringdi:
Oveðrið sem skall á síðastliðinn mið-
vikudag sýndi það hvaö yfirvöld hafa
lélegan viðbúnað til aö takast á við það
vandræðaástand sem þá skapaðist.
Veðurstofan ætti frekar aö birta
mynd af veðrinu eins og það var þegar
það var verst í stað þess að birta mynd
af því þegar það hafði gengið niður.
Þannig gæti fólk miklu betur áttað sig
á eðli veðursins.
Svo í lokin er ábending til lögregl-
unnar og borgarverkfræðings þess
efnis að þeir ættu að loka götum og
banna umferð þegar það var fyrir-
fram vitað hvað myndi gerast þegar
veörið skylli á. Ekki var vitað hvenær
fólk kæmist heim því aðalleiöir höfðu
ekki forgang þegar götur voru ruddar
heldur ruddu starfsmenn fyrst auka-
leiðir því þar var auðveldast að ryðja.
Bílar satn tastir á aðalleiðum og
torvelduðu mokstursmönnum starf
sitt.
Það verður þó ekki sagt annað en
þessir starfsmenn hafi barist drengi-
lega við ófærðina og eiga þeir þakkir
skildar fyrir.
Nú er hægt að gera góð teppakaup. Okkar
árlega bútasala og afsláttarsala hófst í morgun
og stendur í 10 daga.
Teppabútar af öllum mögulegum
stærðum og gerðum með miklum
afslætti og fjölmargar gerðir
gólfteppa á ótrúlega góðu verði.
VINALEGIR
VEISLU- OG RÁÐSTEFNUSALIR
Nýinnréttaðir veitinga- og sam- Með endurnýjun þessara salarkynna
kvæmissalir okkar á annarri hæð bera hefur aðstaða Hótels Esju til að hýsa
nöfn nágrannaeyjanna á Kollafirði. fundi, ráðstefnur, veislur, þing, árs-
Þar máfinna Þerney, Engey, Viðey og hátíðir, móttökur og hvers konar
meira að segja Viðeyjarsund. samkvæmi stórbatnað. Allt frá tíu
manna fundum til tæplega tvöhundruð
manna stórveislna.
Leitið upplýsinga hjá veislustjóranum
aila daga frá kl. 8-20
IILJjl
O
s
Bréfritari kvartar undan lélegum viðbúnaði yfirvalda til að takast á við óveður
líkt því sem varð í síðustu viku.