Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 2
18 Sjónvarp , Sjónvarp Sjónvarpsmyndin á laugardagskvöldið: „Handfylli af dínamíti”: Mikið skotið og margir drepnir Bíómyndin í sjónvarpinu á laugar- dagskvöldið heitir „Handfylli af dína- míti” eöa „A Fistful of Dynamite” eins og hún var skýrð á enska tungu. Þarna er á ferðinni eldhress spag- hetti-vestri, en svo hafa þær myndir verið kallaöar, þar sem viðfangsefnið er gamla vestrið í Bandaríkjunum eða Rod Steiger. Mexíkó og framleiðsla á myndinni fer framáltalíu. Margar af þessum spaghetti-mynd- um hafa verið þokkalega góöar. Kemst þessi mynd í eitt af efri sætunum í betri helmingnum af þeim og segir þaö svo- lítið um hana. Myndin var gerð árið 1971 og fær hún t.d. í einni af kvik- myndahandbókunum okkar „Movies on TV” tvær og hálfa stjömu og með- mælin „Pretty Good”. Það sem fyrst og fremst bjargar þessari mynd eru tveir frábærir leikar- ar, þeir Bod Steiger og James Coburn, sem margir þekkja úr öörum mynd- um. Þeir hafa að vísu báðir gert betur en í þessari mynd, en þeir standa engu að síöur vel fyrir sínu í henni. Bod Steiger leikur mexíkanskan bófaforingja sem kemur skemmtilega á óvart strax í byrjun myndarinnar. James Coburn leikur fyrrverandi sprengjusérfræðing IBA og sameinast þeir um að ræna vel varinn banka í Mexíkó. Ekki tekst það sem skyldi, en þeir standa allt í einu eftir það sem miklar byltingahetjur. Hefst þá enn meiri sprenginga- og skothríðarkafli en áður, og mönnum nánast slátraö þá eins og rollum í slátuitíöinni. Myndin er spennandi og í henni léttur húmor og á það ekki að skemma svefninn fyrir neinum — nema kannski krökkum — að horfa á hana. . . -klp- James Coburn. „Háspennugengið" heitir unglingamyndin sem tekur við af „Bngin hetja" ð laugardögum. Segir þar frá krökkum sem stofna popphljómsveit og œtla að verða ægilega fræg. Lokaþáttur gamanm yndaflokksins ,,/ lífsins ólgusjó " verður á laugardags- kvöldið og sjá vist ekkimjög margir eftir honum. Undanfarin föstudagskvöld hafa sjónvarpsmyndirnar verið sænskar, kin- verskar, sovéskar og þar fram eftir götunum. Á föstudaginn i næstu ■ viku fjölgar enn i„alþjóðakvikmyndasafninu okkar” en þá býður sjónvarp- ið okkur upp á norska mynd, sem heitir,,lda litla". 21.05 Valentína. Spænsk bíómynd frá 1982 gerö eftir skáldsögu eftir Bamon J. Sender. Leikstjóri Antonio J. Betancor. Aðalhlut- verk: Jorge Sanz, Paloma Gomez og Anthony Quinn. I myndinni minnist stríðsfangi æsku sinnar í þorpi á Norður-Spáni upp úr alda- mótum. Sem drengur lagði hann hug á jafnöldru sína. Æska þeirra og stéttamunur meinar þeim að unnast svo að þau taka það til bragðs aö hlaupast brott saman. Þýðandi Sonja Diego. 22.30 Strákurinn frá Cincinnati. (The Cincinnati Kid). Bandarísk bíómynd frá 1965. Leikstjóri Norman Jewisson. Aöalhlutverk: Steve McQueen, Edward G. Bobin- son, Karl Malden, Tuesday Weld og Ann-Margret. Mynd um mann sem unni konum en spilurn þó meir og vildi leggja flest að veði til að verða fremstur í flokki póker- spilara. Þýðandi Guðrún Jörunds- dóttir. 00.15 Dagskrárlok. Sunnudagur 12. febrúar 16.00 Sunnudagshugvekja. Séra Jón Helgi Þórarinsson flytur. 16.10 Húsið á sléttunni. Olgandi hatur. Bandarískur framhalds- myndaflokkur. Þýðandi Oskar Ingimarsson. 17.00 Vetrarólympíuleikarnir. Brun karla. 18.00 Stundin okkar. Umsjónar- menn: Asa H. Bagnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Tage Ammendrup. 18.50 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Sjónvarp næstu viku. Um- sjónarmaður Guðmundur Ingi Kristjánsson. 20.45 Tökum lagið. Annar þáttur. Kór Langholtskirkju ásamt hús- fylli gesta syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar í Gamla bíói. Þessi þáttur er helgaður lögum sem oft eru sungin á þorrablótum, árshátíðum og í öðrum mannfagn- aði. Utsetningar: Gunnar Beynir Sveinsson. Umsjón og kynningar: Jón Stefánsson. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup. 21.25 Ur árbókum Barchesterbæjar. Fjórði þáttur. Framhaldsmynda- flokkur í sjö þáttum frá breska sjónvarpinu, gerður eftir tveimur skáidsögum frá 19. öld eftir Anthony Trollope. Þýðandi Bagna Bagnars. 22.20 Dave Brubeck. Bandarískur djassþáttur. Frá tónleikum kvart- etts Dave Brubecks í Sinfóníuhöil- inni í Boston. 23.10 Dagskrárlok. irrrii DV. FOSTUDAGUB 3. FEBBUAB1984. ■ ■■■■iiirii'ii í 'B"ri ■ ■ i ■ iie Kvikmyndir Kvikmyndir BÆJARINS BESTU W0 ■&**** BÍÓHÖLLIN: THE DAY AFTER Hvað gerist þegar kjamorkusprengja fellur á friðsælar sveitir landsins, þar sem búsmalinn er á beit og fólkið gerir í því að vera hamingjusamt? Jú, mannskepnan skiptist í tvennt, hina heppnu og hina óheppnu. Hinir heppnu drepast strax og iáta sér fátt um finnast um eftirleikinn. Hinir óheppnu lifa af sprenginguna, að minnsta kosti um sinn, og upplifa víti á jörðu. Þessa niðurstöðu má draga af einhverri umtöluöustu kvikmynd síðari ára, The Day After, og eru þetta sjálfsagt ekki ýkjur. Leikstjóra myndarinnar, Nicholas Meyer, tekst ætlunarverk sitt ágætlega. Honum tekst að hræra upp í áhorfandanum og fá hann til að staldra við. Honum tekst einnig að gera kjarnorkusprengjuna að heilmiklu „sjói”, eins og Könum er einum lagið, og halda þannig athygli áhorfenda. The Day After er bráðdrepandi holl kvikmynd fyrir alla f jölskylduna. -GB. STJÖRNUBÍÓ: BLÁA ÞRUMAN Einn á móti öllum. Uppistaða Bláu þrumunnar er gamalt þema sem við höfum séð í ótal bíómyndum. En það er ekki verra fyrir það. Að minnsta kosti ekki hér, í meðförum John Badham og félaga. Blá þruman greinir frá Frank Murphy, þyrluflugmanni í lögreglusveit Los Angeies. Murphy er fenginn til að reynslufljúga . nýrri þyrlu, Bláu þrumunni, sem herinn hefur láliö framleiða.' Þrátt fyrir fagrar yfirlýsingar kemur í ljós að yfirvöld ætla að nota! tækið til óhæfuverka. Murphy kemst aö því og þá byrjar ballið. Bláa þruman endasendist um loftin blá meö aðrar þyrlur í eftir- dragi uns kemur að lokauppgjörinu milli hinna góðu og hinna vondú. Árangurinn er fantalega skemmtileg og spennandi kvik- mynd þar sem öll vinna er í hæsta gæöaflokki. Sérstaklega er kvik- myndatakan þó eftirminnileg og þær raunir sem tökumaðurinn hefur þurft að leggja á sig. Fyrsta flokks skemmtun. 1 -GB REGNBOGINN: SKILABOÐ TIL SÖNDRU Skilaboð til Söndru er kvikmynd um miöaldra rithöfund sem ekki hefur allt gengið í haginn, hvorki í einkalífinu né á sviöi bók- , mennta. Uppgjör hans við sjálfan sig og tengsl hans við unga og dularfulla stúlku sem verður áhrifavaldur hans. Myndin er byggð á skáldsögu Jökuls Jakobssonar og henni fylgt eftir í öllum meginatriðum, sérstaklega í fyrri hluta myndarinnar. Þrátt fyrir aö Skilaboð til Söndru sé hin ágætasta skemmtun er hún langt frá því að vera gallalaus. Liggur megingalli myndarinnar í handrit- inu. Barátta rithöfundarins við sjálfan sig verður aldrei sannfær- andi og kynni hans við Söndru ná aldrei því plani sem lýst er í bók- inni og á þar ekki minnstan þátt, ung og óreynd leikkona, Ásdís Thoroddsen. Hana vantar því miður þá reynslu er þetta hlutverk býður upp á. En það sama verður ekki sagt um Bessa Bjarnason í hlutverki Jónasar. Bessi sem er þekktari sem gamanleikari nær vel aö sýna þennan lífsþreytta rithöfund sem fátt gengur í haginn og endar sem veitingahússeigandi í Grikklandi. HK. TCvikmyndir Kvikmyndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.