Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1984, Blaðsíða 3
ER Á SEY HELGINA? Messur Guðsþjónustur í Reykja- víkurprófastsdæmi sunnu- daginn 5. febrúar 1984 ÁRBÆJARPRESTAKALL: Bamasamkoma í safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30. Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 2.00. Organleikari Jón Mýrdal. Væntanleg ferm- ingarbörn lesa ritningartexta í messunni. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSKIRKJA: Bamaguösþjónusta kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 2.00. Sr. Schappel Elöm framkvæmdastjóri danska Biblíufélagsins prédikar en sr. Jónas Gislason lektor túlkar mál hans. Sr. Ámi Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Laugar- dagur: Bamasamkoma kl. 11.00. Sunnudag- ur: Messa kl. 2.00 í Breiðholtsskóla. Sr. Lárus Halldórsson. BÚSTAÐ AKIRK JA: Barnasamkoma kl. 11.00. Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir. Guðsþjónusta kl. 2.00. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Miðvikudagur 8. febrúar: Barnasamkoma vegna sjónvarpsupptöku kl. I. 00. Félagsstarf aidraðra kl. 2—5. Æskulýðs- fundur kl. 20.00. Fimmtud. 9. febr. Æskulýðs- fél. yngri deild fundur kl. 16.30. Sr. Olafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Laugardagur: Bamasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjamhólastíg kl. 11.00. Sunnudagur: Guðs- þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr. Þor- bergur Kristjánsson. DÖMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriks- son. Sr. Hjalti Guðmundsson. Messa kl. 2.00. Vænst er þátttöku fermingarbama og for- eldra þeirra. Fermingarböm lesa bænir og texta. Sr. Þórir Stephensen. Laugardagur: Barnasamkoma að Hallveigarstööum kl. 10.30. Sr. Agnes Sigurðardóttir. LANDAKOT: Messa kl. 10.30. Organleikari Birgir As Guðmundsson. Sr. Þórir Stephen- sen. ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson. FELLA- OG HOLAPRESTAKALL: Laugar- dagur: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2.00. Sunnudagur: Barnasamkoma í Fella- skóla kl. 11.00. Guðsþjónusta í Menningarmið- stöðinni við Gerðuberg kl. 2.00. Sr. Hreinn Hjartarson. FRDCIRKJAN 1 REYKJAVlK: Guðsþjónusta kl. 14.00. Ræöuefni: Hann tekur þig gildan. Reynir Guðsteinsson tenór syngur, við orgelið Pavel Smid. Fermingarböm og foreldrar þeirra hvattir til að koma. Munið þorrafagn- aðinn í Oddfellowhúsinu sunnudagskvöld kl. 19.00. Sr. Gunnar Bjömsson. GRENSÁSKIRKJA: Bamasamkoma kl. II. 00. Guðsþjónusta kl. 2.00. Organleikari Árni Arinbjamarson. Æskulýðsfundur mánudag kl. 20.00. Almenn samkoma nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Bamasamkoma og messa kl. 11.00. Sr. Gunnar Staalsett frkvstj. norska Biblíufélagsins þrédikar. Altaris- ganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kvöldmessa með altarisgöngu kl. 5.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudagur 7. febr. fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 10.30., beðið fyrir sjúkum. Miðvikudagur 8. febr. Náttsöngur kl. 22.00. Fimmtud. 9. febr. opið hús fyrir aldraða kl. 14.30. Laugard. 11. febr. samvera fermingar- bama kl. 10—14. HÁTEIGSKIRKJA: Laugardagur: Bama- guðsþjónusta kl. 11.00. Sunnudagur: Messa kl. 11.00. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2.00. Sr. Aragrimur Jónsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Laugardagur: Bamasamkoma í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.00 árd. Sunnudagur: Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2.00. Kaffi og umræður í sahiaðarheimili aö lokinni messu. Þriðjudagur 7. febrúar, fundur á vegum fræðsludeildar safnaöarins kl. 20.30. Dr. Sigurbjörn Einars- son, biskup, flytur kynningu á sr. Hallgrími Péturssyni og Guðríði konu hans. Kaffiveit- ingar og umræður. Allir velkomnir. Sr. Ami Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Oskastund bamanna kl. 11.00. Söngur-sögur-leikir. Sögumaður Sigurður Sigurgeirsson. Guðsþjónusta kl. hálf tvö, ath. breyttan messutima. Fermdur verður Helgi Oskarsson, Gnoðarvogi 74. Org- anleikari Jón Stefánsson, prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Vekjum athygli eldri sóknarbúa á því að óski þedr aðstoðar við aö sækja guðsþjénustu í Langholtskiikju, þá láti þeir vita í sima 35750 milli kl. 10.30 og 11.00 á sunnudagsmorgun. Sóknamefndin. LAUGARNESKIRKJA: Bamaguðsþjónusta kl. 11.00. Guösþjónusta kl. 14.00. Sr. Ingólfur Guðmundsson. NESKIRKJA: Laugardagur: Samverustund aldraöra kl. 15.00. Heimsókn á Veðurstofu Kvikmyndahátíð í Reykjavík — „Hrafninn f lýgur” f rumsýnd um helgina og 35 erlendar myndir fylgja á eftir Sjötta kvikmyndahátíðin í Reykja- vík hefst á laugardag og verður opnunarmyndin Hrafninn flýgur en Ieikstjóri hennar er Hrafn Gunn- laugsson. Hátiöin stendur frá 4.—12. febrúar og verða sýndar 35 erlendar kvikmyndir frá fjórtán löndum. Einnig veröa sýndar allar þær ís- lensku kvikmyndir er hafa verið gerðar á undanfömum árum. Allar myndimar verða sýndar í Regn- boganum, aö undanskildri Hrafninn flýgur, sem sýnd verður í Háskóla- bíói. Flestar eru kvikmyndirnar frá Bandaríkjunum, Spáni og Frakk- landi. I tilefni kvikmyndahátíðarinnar er boðið erlendum gestum til landsins, samtals tólf manns, og em það leikstjórar, blaðamenn og dreifingaraðilar. Munu sumir erlendu gestanna halda fyrirlestra. Ávallt hefur verið góð aðsókn að kvikmyndahátíðinni í Reykjavík og er ekki aö efa að einnig verði svo í þetta skiptið, enda er margt forvitni- legra mynda og ættu allir áhuga- menn um kvikmyndir að finna eitt- hvað fyrir sinn smekk. He/gi Skú/ason ákveðinn á svip, með boga sinn ihöndunum imyndinni„Hrafninn f/ýgur" Menntaskólinn í Kópavogi: Frumsýnir um- deilt verk - „Vorid vaknar” eftir Frank Wedekind Leikfélag Menntaskólans í Kópa- vogi frumsýnir sunnudaginn 5. febrúar í félagsheimili Kópavogs,. leikritið Vorið vaknar eftir Frank Wedekind. Leikritið var skrifað árið 1891. Olli það samstundis miklum deilum í Þýskalandi og var umsvifalaust bannað af yfirvöldum og fékkst ekki sýnt fyrr en 1906 er Max Reinhardt færði það upp i Berlín. Sigurganga leikritsins var slik að 1920 var búið að sýna það óslitið frá frumsýningu á alls yfir 600 sýningum. Verkiö er meinhæðin ádeila á sam- skipti unglinga og fullorðinna; for- vitnir unglingar leita svara við öllu er snertir lífið og tilveruna, en reka sig jafnharðan á hart og ósveigjan- legt siðakerfi hinna f ullorðnu. - Frumsýningin á sunnudaginn verður í félagsheimilinu kl. 20.30. önnur sýning verður fimmtudaginn 9. febrúar kl. 20, og þriðja sýning laugardaginn 11. febr. kl. 20. Upplýsingar og miðapantanir frá kl. 13—15 í síma 43440. Miðar einnig seldir við innganginn. Miðaverð kr. 150. Þýðandi og leikstjóri sýningar- innar er Hávar Sigurjónsson. Sýnir f rá Hlemmi niður á Lækjartorg — oghefuropið allan sólarhringinn I dag, föstudaginn 3. febrúar, opnar Bessi Jónsson myndlistar- sýningu á Laugaveginum og nær hún frá Hlemmi og niður á Lækjartorg. Á sýningunni eru 50 tússteikningar, unnar á þessu og síðasta ári. Þetta er fyrsta einkasýning Bessa en síðasta haust myndskreytti hann bókina ,ySnúningurinn” eftir Kristin Sæmundsson. Sýningin á Lauga- veginum stendur til 21. febrúar og er opin allan sólarhringinn. Allar myndirnar eru til sölu. Eitt af verkunum ó sýningu Bessa á Laugaveginum. Strax eftir að ráðstefnan hefur verið sett mun verða sýnd kvikmyndin „Eng/aryk" sem gerð er fyrir tilstuðlan leikarans fræga, Paul Newmans, en hann missti son sinn af völdum þess efnis. ÓLÖGLEG FÍKNIEFNI — Ráðstef na á vegum SUS og Heimdallar á laugardaginn Olögleg fíkniefni er yfirskrift ráð- stefnu sem Samband ungra sjálf- stæðismanna og Heimdallur gangast fyrir nú um næstu helgi. Ráðstefnan verður haldin í Valhöll við Háaleitis- braut og hefst kl. 13.30 laugardaginn 4. febrúar. Fjögur framsöguerindi verða flutt á ráðstefnunni. Asgeir Friðjónsson sakadómari fjallar um þróun fíkni- efnamála á Islandi, Kjartan Gunnar Kjartansson heimspekinemi rekur siðferðilegar forsendur laga um fíkniefni, Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir fjallar um orsakir, áhrif og afleiöingar fíkniefna og Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir segir frá út- breiöslu, meðferð og fyrirbyggjandi aögerðum i f íkniefnamálum. Á ráöstefnunni verður einnig sýnd kvikmynd um hið svokallaða „Englaryk”, en myndin er gerð fyrir tilstuðlan Paul Newmans sem missti son sinn af völdum þessa efnis. Ráðstefnan er öUum opin og bent er á að barnagæsla verður á staðn- um. Ráðstefnustjórar verða þeir Auðun S. Sigurðsson læknir og Sigurbjörn Magnússon laganemi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.