Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1984, Side 1
NTÖK PRENTUÐ í DAG.
DAGBLAÐIЗVÍSIR
63. TBL. — 74. og 10. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 14. MARS1984.
Lýsing á afreki Guölaugs Friðþórssonar:
MEÐ DOFNA FÆTUR
06 KREPPTA HNEFA
—synti Guðlaugur en örvænti aldrei
Frá Eiríki Jónssyni, blaðamanni
DV í Vestmannaeyjum:
„Sonur minn segist viss um að ein-
hver yfirnáttúrleg öfl hafi verið í för
með sér er honum tókst að ná til
lands,” sagði Friðþór Guðlaugsson,
faðir Guölaugs Friðþórssonar, pilts-
ins sem komst einn af er Hellisey VE
503 hvolfdi og sökk þrjár sjómílur
austur af Vestmannaeyjinn síðastlið-
ið sunnudagskvöld.
Eins og kunnugt er vann Guð-
laugur það einstæða afrek að synda
rúmlega 5 kílómetra leið í land og
ganga síðan yfir úfið hraun til bæja.
S jóslysið við
Vestmannaeyjar:
Um það segir faðir hans:
„Hann synti i fimm tíma og gekk í
þrjá tíma yfir hraunið. Hann segist
aldrei hafa verið hræddur, skipulagt
sundiö vel, synt bringusund og bak-
sund til skiptis og aldrei fundiö til
örvæntingar.
Þó var honiun svo kalt að hann
farin ekki fyrir fótum fyrir neðar. hné
og hnefarnir voru krepptir af kulda.”
Móðir Guölaugs, Margrét Karls-
dóttir, segir son sinn hafa verið ákaf-
lega heitfengan allt frá æsku, aldrei
þurft að klæða sig vel. Friðþór faðir
hans bætir því við að Guðlaugur hafi
fengiö 9,5 í sundi er hann stundaði
nám við Stýrimannaskólann.
„Guðlaugur sagðist hafa verið svo
þyrstur, þegar hann kom að landi, að
hann hafi látið sig hafa það að drekka
vatn úr fötu sem annars er notuö til
að brynna ám. Þurfti hann að brjóta
þykkan ís með krepptum hnefanum
til að komast að vatninu,” segir Mar-
grét móðir hans og þau hjónin bæta
því við að þau séu þakklát forsjón-
inni fyrir að hafa heimt son sinn úr
helju og samhryggist jafnmikið að-
standendum þeirra fjögurra sjó-
manna sem fórust.
Liöan Guðlaugs Friðþórssonar er
nú sæmileg þó að enn sé langt í land
aö hann hafi náð fyrri kröftum.
JGH.
Guðlaugur er viss um að yfirnáttúrleg öfl hafi komið honum til
hjálpar. Á myndinni eru foreldrar Guðlaugs, Friðþór Guðlaugsson
og Margrét Karlsdóttir. DV-simamynd Gunnar V. Andrésson.
Leit
hafin á
megin-
landinu
Leit er haldið áfram að mönnun-
um fjórum sem fórust með togbátn-
um Hellisey frá Vestmannaeyjum
siöastliöinn sunnudag. Leitarsvæ&ð
hefur nú verið fært upp á megin-
landið og fjörur leitaðar frá
Þykkvabæ til Þorlákshafnar. Og
það eru björgunarsveitir á Suður-
landi sem sjá um þennan þátt leit-
arinnar.
Afram er leitaö á sjó og fjörum í
Vestmannaeyjum en enn sem kom-
ið er hefur leitin engan árangur
borið fyrir utan hvað litils háttar
brak úr bátnum hefur fundist.
EIR-Vcstmannaeyjum/SþS
Mjög harður árekstur varð á mótum Urðarbrautar og Borgarholtsbrautar i
Kópavogi i gær og stórskemmdust eða eyðilögðust þar þrir bilar. Á þess-
um gatnamótum hafa orðið tíðir og harðir árekstrar en þar er samt
stöðvunarskylda fyrir umferð sem kemur Urðarbrautina. Þrennt sem var i
bilunum, sem þarna skullu saman í gær, var flutt á Slysadeildina. Þau
munu ekki hafa verið mikið stösuð. -klp-/DV-mynd S.
Sjóprófum
seinkar
„Bæjarfógeti hefur falið Guð-
laugi sjálfdæmi um það hvenær
hann treysti sér til að mæta í sjó-
próf,” sagði Friðþór Guðlaugsson,
faöir Guðlaugs, í samtali við DV í
morgun.
„Guðlaugur er það illa farinn á
fótum eftir gönguna yfir hrauniö,
þar sem venjulegur maður hefði
ekki komist tvo metra, að óvíst er
hvenær sjóprófin geta farið fram
en þau veröa aö öllum líkindum í
þessari viku.”
EIR/óm
Hæsta
vöruverð
íKron
— sjá Neytendur
á bls. 6 og 7
Ríkiog
borg
sýknuð af
kröfum
Læknaþjón-
ustunnar
____—sjábls.5
13 bátar
búnirmeð
kvótann
— sjá bls. 5
Næröll
gjaldþrot
eruí
Reykjavík
og
Reykjanesi
— sjá bls.3