Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1984, Page 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR14. MARS1984.
Flugleiðir fá endur-
greiddar 27 milliónir
— af lendingar-
gjöldumvegna
Norður-
Atlantshafsflugs
semenn er
rekið með halla
Meirihluti fjárhags- og viðskipta-
nefndar Alþingis lagði í gær fram
breytíngartillögu við lánsfjárlaga-
frumvarpið þess efnis að rikissjóði
væri heimilt að endurgreiða Flugleið-
um og Cargolux lendingargjöld á
Keflavikurflugvelli vegna Norður-
Atlantshafsflugs. Heimildin gildir fyr-
ir timabilið frá 1. október síðastliðnum
til loka yfirstandandi árs og er talin
kosta ríkissjóð rúmar 27 milljónir
króna í tekjutap og er hluti af því gati á
fjárlögum sem ríkisstjórnin reynir nú
aðleysa.
Niðurfellingar á lendingargjöldum
Cargolux eru þó ekki inni í þeirri upp-
hæð þar sem ekki hafði verið gert ráð
fyrir þeim lendingum. Nú eru hins veg-
ar áætlaðar 50 lendingar Cargolux hér
á landi í tengslum við Norður-Atlants-
hafsflug og myndu lendingargjöld af
þeim nema 1,3 til 1,5 milljónum króna.
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, sagði að fyrirtækið hefði farið
fram á endurgreiðslu lendingargjalda
vegna þess að Noröur-Atlantshafs-
flugið væri enn rekið með haUa. Sagði
Sigurður að Flugleiðir væru ekki
samkeppnisfærar á þessari flugleið ef
endurgreiösla kæmi ekki til þar sem
fyrirtækið væri með viðbótarlending-
argjöld vegna lendinga á Islandi og
auk þess væri leiðin um Island nokkuð
lengri. Endurgreiðslan hér á landi er
háð samskonar fyrirgreiðslu í Luxem-
burg og hefur hún þegar fengist.
Stuöningi ríkissjóðs við Flugleiðir
vegna Norður-Atlantshafsflugsins
lauk 30. september siöastUðinn.
Sigurður Helgason sagði í viðtali við
DV í febrúar að Flugleiðir myndu ekki
óska eftir frekari stuðningi. ÓEF
Seðlabankagrunnurinn: a m
MANNLEG MISTOK
—orsök þess að kraninn féll
Fullvíst þykir að mannleg mistök
hafi verið orsökin að því er stór
byggingakrani féll niður í grunni
Seðlabankahússins síöastliöinn laug-
ardag. Mennimir sem unnu að því að
hækka kranann munu hafa losaö of
marga bolta við verkið meö fyrr-
nefndum afleiðingum.
Um 10 metrar af bómu kranans
bognuðu við faUið og er nú unnið við
að rétta hana í vélsmiðjunni
Trausta. Aætlað er að því veröi í
fyrsta lagi lokið í næstu viku og tefj-
ast framkvæmdir við byggingu
Seðlabankahússins sem því nemur.
-GB
Þrír bílkranar unnu við að rétta byggingakranann í Seðlabankanum . Hefur þeim tekist að lyfta bómunni af þaki
húss launadeUdar fjármálaráðuneytisins. Stærsti bUkrani landsins, 150 tonna ferlíki, heldur uppi kranaturninum
en tveir minni eru á bómunni. DV-mynd: S.
Flugleiðir hætta
að fá ríkisstyrk
Stuöningi ríkissjóös viö Fhigleiðir Rikissjóöir Islands og Lúxem- niðurfellingar lendingargjalda og
vegna Noröur-Atlantshafsflugsins borgarveittufélaginustuöningíþrjú annarra skatta.
lauk 30. september síöastliöinn. ár mcöan á mestu erfiöleikum þess Samkvaemt ársskýrslu Flugleiöa
Flugleiöir hyggjast ekki óska eftir stóö. Stuöningur Islands varmiöaöur nam stuöningurínn 35,5 milljónum
frekari stuöningi, aö því er Sigurður viö þann tekjumissi sem taliö var aö króna aUs áriö 1982 og 40,6 nulljónum
Helgason forstjórí tjáöi DV. Fjár- ríkissjóöur heföi oröiö fyrir ef króna áríö 1981. Tölur fyrír árið 1983
hagsafkoma síöastliðins árs er taUn AUantshafsflugiö stöövaöist. StuÖn- Uggja ekki fyrír.
jákvsö. ingur Lúxemborgar var í formi -KMU.
Eiturlyfjasmyglari
dæmdur
Nýlega var kveðinn upp í sakadómi í
ávana- og fíkniefnamálum dómur yfir
29 ára gömlum manni sem tekinn var
1. febrúar í fyrra fyrir að smygla inn
mjög sterkum fíkniefnum til landsins.
Maðurinn var með 280 g af hassolíu
sem hann haf öi komið fyrir í verjum og
síðan gleypt. Einnig var hann með
heróín sem hann hafði sett í hylki og
falið í endaþarminum á sér en auk þess
var hann með smávegis magn af kóka-
íni og hassi í fórum sínum.
Maðurinn var dæmdur í 18 mánaöa
fangelsi. Er það þungur dómur í
samanburði við aðra dóma sem hér
hafa verið kveönir upp í svipuöum
málum ef miðað er við magnið sem
maöurinn var tekinn með.
-klp
Loðskinnin í gott verð
— eftir lægð f lok síðasta árs
Refaskinn seldust á uppboöi í Kaup-
mannahöfn í síöustu viku fyrir 25%
hærra verð en fyrir mánuði og 65%
hærra verð en í desember. Þá var verð-
ið í mikilli lægð. Uppboðssala á minka-
skinnum hófst í gær og var búist við
líkri þróun í verði þeirra.
Héöan voru 2.500 blárefs- og shadow-
skinn. Fyrir blárefsskinnin fengust að
meðaltali 1.470 krónur, mest 1.873, síð-
an 1.720, 1.374 og minnst 1.160 krónur
eftir gæðaflokkum. Þetta verð er um
25% hærra en í lok janúar.
Shadow-skinnin fóru á 1.573 krónur
að meðaltah sem er 11% hækkun frá
uppboði í janúar. HERB
Áskorendaeinvígi Smyslovs og Kasparovs:
Smyslov mætir sterkur til leiks
Af tveimur fyrstu skákunum í á-
skorendaeinvigi Smyslovs og
Kasparovs i Vilnius í Litháen má
dæma að Smyslov mætir mjög vel
undirbúinn til leiks. I 1. skákinni
tefldi hann trausta byrjun með
svörtu mönnunum og hélt auðveld-
lega jafntefli og í 2. skákinni hristi
hann nýja hugmynd fram úr eminni
á móti eftirlætisbyrjun Kasparovs.
Vafalaust lumar heimsmeistarinn
fyrrverandi á fleiri slíkum nýjung-
um og þeir sem spáöu Kasparov
auðveldum sigri fyrir einvígið hljóta
nú að hugsa sig um tvisvar.
Það sem einkenir þetta einvígi er
aldursmunurinn — Smyslov er 62ja
ára en Kasparov tvítugur. Einnig
ólíkur skákstíll. Smyslov rökhyggjan
yfirveguð en Kasparov æstur sóknar-
skákmaöur. Reyndar lýsti Korstnoj
því yfir í viðtali að helsti veikleiki
Kasparovs væri sá að hann kynni
ekki að hörfa, heldur léki alltaf
Iengstu leikjum fram borðið sem völ
væri á. „Leikur mönnunum eins
langt og þeir komast,” segir
Korstnoj.
Lítum á fyrstu tvær skákir
einvigisins.
Hvítt: Garri Ksaparov.
Svart: Vassfly Smyslov.
Slavneskvörn.
1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 c6 4. Rc3 g6
5. Bg5
Þannig hefur Kasparov aldrei teflt
áður en leikurinn er þó mjög í hans
anda. Virkari en 5. e3, eins og Ribli
tefldi í einviginu við Smyslov.
5. — Bg7 6. e3 0-0 7. Bd3 Be6! ?
Ovenjulegur reitur fyrir
biskupinn, því að oftast stendur hon-
um stuggur af riddaraferð til g5.
Eins og lög gera ráð fyrir, kemur
Smyslov mönnum sínum á framfæri.
8. De2 Rbd7 9.0—0.
Til greina kemur 9. h3, því að eftir
9. — dxc4 10. Bxc4 Bxc4 11. Dxc4 á
hvítur liprara tafl. Nú nær Smyslov
að létta á stöðunni með því að gefa
hvitreitabiskup sinn. Biskupaparið
gefur þá hvítum vissa stöðuyfirburði
en svarta saðan er ákaflega traust.
9. — h610. Bh4Bg4! Il.cxd5.
Það er ólíkt Kasparov að létta á
spennunni á miðborðinu. Eftir 11. h3
Bxf3 12. Dxf3 þarf hann ekki að ótt-
ast 12. — dxc4 (12. — e5? 13. cxd5) 13.
Bxc4 e5, 14. Hadl með betri stöðu.
Smyslov hefði vafalaust leikið 12. —
e6, eins og í skákinni.
11. — cxd5 12. h3 Bxf313. Dxf3 e614.
Hfcl a6 15. Hc2 Hc8 16. Hacl Rb6 17.
b3 De7.
Smyslov kemur auga á veikan
blett í stöðu hvits, a3-reitinn!
18. De2 Da3 19. Del Dd6 20. Bg3 De7
21. Ddl Hfd8 22. Ra4! ?
Nú fær hann tvipeð, en b-línan
opnst og Kasparov vonast eftir sókn-
arfærum. Staða Smyslovs er hins
vegar traust og meira en þetta þarf
til þess að koma honum úr jafnvægi.
22. — Hxc2 23. Dxc2 Rxa4 24. bxa4
Re8 25. Hbl h5 26. a5 h4 27. Bf4 Bf6 28.
Db3 Hd7 29. Hcl Rd6 30. Db6 Kg7 31.
Db4 Rc4 32. a3 Dxb4 33. axb4 Rd6.
Jafntefli samið.
Hvítt: Vassfly Smyslov.
Svart: Garrí Kasparov.
2. einvígisskákin.
Tarrasch-vörn.
1. d4 d5 2. Rf3 c5 3. c4 e6 4. cxd5
exd5 5. g3 Rf6 6. Bg2 Be7 7. 0-0 0—0
8. Rc3 Rc6.
Afbrigðið sem Smyslov teflir á
móti Tarrasch-vörninni er vinsælast
nú á dögum og er ýmist kennt við
Rubinstein, eða Schlechter. Sá síðar-
nefndi er einnig upphafsmaður aðaf-
brigðinu, sem Smyslov beitti í 1.
skákinni. Schlecter náði því aldrei að
verða heimsmeistari en hann hafði
næman skilning á skák og nánast ó-
gjörningur var að vinna hann. Nokk-
urs konar Knezevic þeirra tíma!
9. Bg5 cxd4 10. Rxd4 h6 11. Be3 He8
12. a3Be613. Khl!?
Er Kasparov sá þennan leik, leit
hann á Smyslov með spumarsvip og
síðan á aðstoðarmenn sína frammi í
sal. Hugmyndin kemur i ljós í næstu
leikjum. Hann hyggur á framrás f-
peðsins og vill gefa biskupnum
griðarstað á gl ef svarti riddarinn
angrar hann. Nú hugsaöi Kasparov
sig um í tæpar 40 mínútur.
13. —Dd714. Rxe6 fxe615. f4 Hed8.
Gaffalbitinn 15. — d4 stenst ekki
ströngustu gæðakröfur vegna 16.
Re4! dxe3?? 17. Rxf6 með skák og
drottningin fellur. Þessi hrókur fer á
d-línuna, þvi að hann rýmir e8-
reitinn fyrir drottningunni og hinum
hróknum er ætlað hlutverk á c-
linunni.
16. Bgl Hac8 17. Da4 Kh8 18. Hadl
De819. e4 d4 20. Re2 Bc5 21. Db5!
Setur á biskupinn og valdar reitinn
fýrir framan svarta frelsingjann.
Auðvitað ekki 21. Rxd4?? Rxd4 og
vinnur mann, því að hvíta drottn-
ingin er í uppnámi.
21. —Bb622.h3.
Svartur hefði svarað 22. e5 með 22.
— Rg4 og siðan 23. — Re3 og stendur
þá ekki lakar. Nú hótar Smyslov hins
vegar 23. e5! svo Kasparov tekur af
skarið og fórnar peði.
22. — e5! 23. fxe5 Rxe5 24. Dxe8+
Hxe8 25. Rxd4 Rc4!
Peðsfórnin var þá ekki merkilegri
en þetta. Nú eru tvö hvít peð í upp-
námi og hann getur ekki valdað
bæði. Möguleikar hvíts eru þó ívið
betri því að hann hefur biskupaparið
og Kasparov var að verða tíma-
naumur.
26. e5! Hxe5 27. Bxb7 Hc7 28. Hcl!
Rxb2 29. Hxc7 Bxc7 30. Rc6 He2 31.
Rd4He532.Rf5!?
Jafntefli hefði hann fengið með 32.
Rc6 en hann teflir til vinnings.
32. — Bb6 33. Rxh6 Ha5! 34. Bxb6
axb6 35. Rf5 Hxa3 36. Kh2 Rc4 37. g4
Ha7 38. Bhl Re5 39. g5 Rh5! 40. Hel
Ha5!
abcdefgh
Biðstaðan. Kasparov hefur bætt
stöðuna mjög í síðustu leikjum og er
nú jafnvel kominn með yfirhöndina,
þótt búast megi við jafntefli. I frétta-
skeyturn segir að biðskákin hafi end-
að með jafntefli í gær enblaðinu hafði
ekki borist framhald skákarinnar.