Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1984, Side 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR14. MARS1984.
Vatnsendabóndinn vill aftur gömul
réttindi jarðarinnar:
Viii fjórö-
ung Elliða-
áriaxins
Bóndinn á Vatnsenda viö Elliöavatn,
Magnús Hjaltested, hefur leitað sam-
starfs Kópavogsbæjar um aö leita eftir
innlausn gamalla laxveiðiréttinda í
Elliöaánum. Land Vatnsenda og Kópa-
vogs nær frá vatni niður í Grænugróf,
gegnt Viðlagasjóðshúsunum í Breið-
holti. Um fjóröungur Elliðaánna renn-
ur um þettaland.
Magnús segist hafa reynt þetta fyrir
nokkrum árum en þáverandi land-
búnaöarráöherra, Halldór E. Sigurös-
son, hafi synjaö óskum hans að því
sinni. Ráðherrann hafi ekki rökstutt
þann úrskurö en beöið um upplýsingar
sem lítið komi málinu við.
Reykjavíkurborg eignaöist laxveiði-
réttindin á sínum tíma. Magnús segir
að menn hafi í seinni tíð almennt f engiö
að innleysa slík réttindi sem keypt hafi
verið fyrr úr löndum þeirra. Hann tel-
ur mjög illa farið með stóran hlut ánna
og neysluvatnstaka borgarinnar úr
vatnasvæðinu hafi þegar gengið úr hófi
fram.
Vatnsendabóndinn hefur ekki hug á
að breyta notum af ánum. Þvert á móti
hefur hann mikinn áhuga á að bæta
þær til veiöa svo og Eliiðavatnið og efri
árnar. HERB
Tálknafjörður:
200 tonna
laxeldis-
stöð reist
I vor á að hefja byggingu laxa-
ræktarstöðvar á Tálknafirði og er
áætlað að framleiða þar 200 tonn af
laxi til manneldis á ári.
Það er Laxeldisstöðin Sveinseyri og
fleiri heimamenn sem standa aö þess-
ari framkvæmd og er þegar tryggt,
nægilega mikið af heitu vatni til að
geta haldiö uppi nægilegum hita allan
veturinn.
Að sögn Sigurjóns Davíössonar,
gjaldkera Sveinseyrar sf., verða
steypt ker á landi uppi fyrir ræktun-
ina, síðan verða seiði tekin úr Sveins-
eyrarstööinni, sem framleiðir göngu-
seiði í laxveiðiár, og þau ræktuö upp í
matfisk.
Hann sagði að í Tálknafirði væru
margir ókannaðir möguleikar til frek-
ari starfsemi af þessu tagi. Víða væri
heitt vatn, t.d. á Háanesi, í Botni, við
Gileyri og að Felli. Þar eru allmargar
lindir með upp í 26 stiga heitu vatni og
auk þess mætti vafalaust bora eftir
vatni því þama væri lághitasvæði.
Einn útgerðarmaöur frá Tálknafirði
er með í þessari framkvæmd, enda
horfir hann fram á verkefnaleysi við
venjulegar veiðar þegar líða tekur á
árið. -GS.
Vélsleöakeppni
við Mývatn
Einn keppandinn i véisieðakeppninni, MÝVATN 1984, þýtur fram af stökkpallinum. Glæsilegt
stökk. DV-mynd Finnur Baldursson.
Frá Finni Baldurssyni, fréttaritara
DV við Mývatn.
Arleg vélsleðakeppni, „Mývatn
1984”, fór fram í Mývatnssveit
laugardaginn 10. mars. Keppt var í
óformlegri kvartmíluspyrnu, svo og í
alhliða þriggja kílómetra þrauta-
braut með 60 hliðum, stökkbraut og
hemlunarþraut.
Keppendur voru 40 og komu þeir
víösvegar af landinu. Meðal annars
komu keppendur frá Keflavík og
Hrunamannahreppi á sleöum yfir
Sprengisand og menn frá Reykjavík
komu meö sleöa á bílum.
I kvartmíluspyrnu urðu sigurveg-
arar sem hér segir: I A-flokki Ingvar
Grétarsson, í B-flokki Viöar Eyþórs-
son, í C-flokki Helga Sigur-
björnsdóttir og í D-flokki Jónas Þ.
Jónasson. I aíhliöa brautarkeppni
sigraöi Ingvar Grétarsson í A-flokki,r
Hinrik A. Bóasson í B-flokki og
Stefán Jóhannesson í C-flokki.
Keppnin var haldin á vegum
Björgunarsveitarinnar Stefáns og
Iþróttafélagsins Eilífs. -GB.
Langlegudeild aldraöra á Selfossi
kemst ekkiígagnið:
. VANTAR EINN
HJUKRUNARFRÆÐING
Langlegudeildin i gamla sjúkra-
húsinu að Austurvegi 28 á Selfossi er
ekki enn tekin til starfa þótt hún hafi
staðið fullbúin í þrjár vikur. Að þvi
er Regína tjáði DV mun það stafa af
þvi að ekki hefur enn fengist
hjúkrunarfræðingur til starfa viö
deildina.
,diúsiö var vígt 24. febrúar meö
þriggja daga vígsluhátíð sem á
sjötta hundrað manns sótti. Þar á
meðal ráðandi menn þjóðfélagsins
sem dáðust að vel unnu verki á
stuttum tíma, verki sem unnið var
fyrir gjafafé og með gjafavinnu. Að
öðrum ólöstuðum eiga kvenfélög í
Ames-'.RangárvaUa- og V-Skafta-
feUssýslum mestan heiður að þessu
framtaki.”
Sagði Regína þetta ástand baga-
legt með tilliti til þess aö víða væri
gamalt fólk inni á venjulegum
heimUum en þyrfti umhirðu eins og
ungbörn. Lýsti hún undrun sinni á að
vöntun á einum hjúkrunarfræöingi
stæði i vegi fyrir að deildin tæki tU
starfa þar sem deUdin ætti aö sækja
læknishjálp og mat tU nýja sjúkra-
hússins.
„Það getur verið okkur dýrt þetta
menntafólk. Hér er fuUt af myndar-
konum sem eru búnar að koma
bömum sínum upp og gætu annast
þessi störf meðmyndarbrag þótt þær
flaggi ekki prófum, orðum, eða
köppum á höfði,” sagði Regína.
-Regina, Selfossi/-GS.
Gistihúsið við Bláa
lónið fær lán
hjá Ferðamálasjóði:
Hálfursigur
— segir eigandinn
Ferðamálasjóður hefur úthlutaö
gistihúsinu Bláa lóninu viö Grindavík
einni miUjón króna að láni tU reksturs
og framkvæmda viðBláa lónið.
Að sögn Þórðar Stefánssonar,
eiganda gistUiússins, er þetta lán
hálfur sigur; með því er fengin viður-
kenning Ferðamálaráðs á því að þarna
sé um fullgUdan gistihúsarekstur að
ræða, en Þórði finnst lánsupphæðin
ekki mikil ef tUUt er tekið til þess aö
byggingar á staönum eru metnar upp á
um 15 miUjónir króna.
Ekki náðist samband við formann
Ferðamálaráðs né heldur formann
Ferðamálasjóös út af máli þessu í
gær.
-SþS
j dag mælir Dagfari _____________í dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari
Þegar Þjóðviljinn uppgötvar Andrés
Andrés Kristjánsson, rithöfundur í
Kópavogi, er hinn mætasti maður
enda úr Suður Þing., þar sem mann-
lífið blómstrar og vinstri menn meta
íþróttafréttir í sjónvarpi til jafns við
stjórnmál. Andrés Kristjánsson var i
einn tíma í framboði í Suður-Þing. og
viðar um það kjördæmi fyrir-vinstri
menn þegar hann var orðinn úrkula
vonar um að Framsókn yrði tU
nokkurs nýt á þehn vettvangi og fór
honum eins og mörgum öörum
ágætismönnum að hann var orðinn
þreyttur á að bíöa eftir að hið þing-
eyska ljós fengi enn á ný að skina
óhindrað. 1 staðinn kusu vinstri
menn í Suður-Þing. einhvern ótindan
fréttaritara sjónvarpsins á þing en
þangað kominn kvaðst hann bara
kunna vel viö sig. Síðan hefur ekkert
í honum heyrst.
Nú hefur það gerst að Þjóðviljinn
hefur uppgötvað Andrés og mun það
henta vel fyrir vinstri menn í Suður-
Þing. á meðan þeir hafa engar fréttir
af þingmanni sínum. Byggir þessi
uppgötvun á því að Andrés
Kristjánsson hefur verið að skrifa
pistla í Tímann handa vinstri
mönnum 1 Suöur-Þing. sem skorti
þrek og vit til að kjósa hann á þing
þegar hann var í framboði. Andrés
virðist fremur þungur á bárunni í
Timanum og tók upp á því að herða
mál sitt eftir að Oddur Olafsson taldi
sig vera búinn að bjarga honum í
horn. Það gerði iitla stoð af því að
Andrés er í stjórnarandstöðu og
fagnar Þjóðviljinn ákaflega þegar
hann skrifar um fjárlagagatið og
segir Þjóðviljinn orðrétt: „Þessar
greinar (þ.e. Andrésar) vekja að
vonum mikla athygli vegna þess hve
rækilega þær stinga í stúf við svona
heldur ámátlegt söngl blaðsins.” Og
er þá komið i gamla farið um það
sem frábært er talið í Þjóðviljanum.
Nú er eftir að sjá hvort Oddi tekst að
bjarga Andrési í horn að nýju.
En þaö er sama hvernig barist
verður um meiningar Andrésar
Kristjánssonar. Honum fer í póli-
tikinni eins og í bókmenntunum
þegar hann vill þjóna góðu fólki.
Okkur til gleði lýsti hann yfir hve
ágæt einhver þýðing hefði verið úr
frönsku og tóku menn þvi fegins-
hendi. Á hitt ber aö líta að hingað til
hefur ekki annað verið vitað um
frönskukunnáttu Andrésar en að
hann skrifar ágæta vel íslensku,
enda menn málhagir í Suður-Þing.
og hafa lítt byggt málkennd sína á
litlu gulu hænunni.
Rétt er það hjá Andrési að gat
hefur fundist á fjárlögunum vegna
þess að núverandi f jármálaráðherra
viil ekki ljúga að þjóðinni og láta
síðan samþykkja aukaf járlög í kyrr-
þey. Fyrir utan að leiða þjóðina í
allan sannleika um viöskiinað og
vinnubrögð fráfarandi stjórnar, sem
var mjög að skapi Þjóðviljans og
Andrésar, vekur hann þessum
aðilum sérstakan og málskrúðs-
fullan unað með aðgerðum sínum og
er þá gleymt að jafnvel óðasti vinstri
sinninn á þingi boðaði neyðaráætlun
til fjögurra ára með tilheyrandi
veisluhöidum á félagsmálasviðinu.
Vinstri menn í Suður-Þing. þurfa
ekki að kvarta þessa stundina um
fulltrúaleysi í höfuðborginni. Fyrir
utan hinn týnda þingmann hafa þeir
Andrés í Tímanum um helgar á milli
þess aö hann kynnir sér þýðingar úr
frönsku. Má segja að ekki minnki
risið á Suður-Þing. þegar Þjóöviljinn
uppgötvar Andrés nú á síðustu
dögum. Var þó svo í eina tíð, áður en
hann fór í framboðiö norður, að þeir
höfðu ekki fyrir því að uppgötva
hann vikulega og var hann þó í rit-
stjórastóli á Tímanum og barði frá
sér á báðar hendur. En það er auðséð
á Þjóðviljanum að þeir telja fyrrver-
andi ritstjóra í afturbata enda vekja
greinar hans „mikla athygli” um
þessar mundir. Líka hafa komið þeir
timar að þeir töldu Þórarin Þór-
arinsson bestan manna. En af þvi
kommúnistum gengur illa að ráöa
við Framsókn um þessar mundir og
flokkurinn er ásamt Sjálfstæðis-
flokknum upptekinn við að reyna að
bjarga þjóðfélaginu hafa þeir gripið
til þess að uppgötva Andrés. Vinstri
menn í Suður-Þing. halda eflaust
margir að þeir séu framsóknarmenn
þótt þeir kjósi sjónvarpsstjörnu á
þing sem óðara týnist. Gamli
maðurinn frá Hriflu gerði sér mat úr
því að eitt sinn var harmóníkuleikari
sendur á móti honum í framboð. Og
það er deginum ljósara að enn er
spilaö á harmóníkur fyrir kjósendur
norður þar.
Dagfari.