Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1984, Page 7
DV. MIÐVIKUDAGUR14. MARS1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
JL-húsinu a
NEITAÐ UM HEILSUVORUR
„Við íengum tvisvar eða þrisvar
skilaboð Irá talsmanni Náttúrulækn-
ingaiélagsbúðanna um að hækka
okkar álagningarprósentu á þeirra
vörum. Annars mundu þeir hætta að
selja okkur þær vörur sem við höfum
keypt af þeim. Við neituðum að hækka
og þeir síðan að selja okkur vörurnar,”
sagði Gunnar Bjartmars verslunar-
stjóri matvörudeUdar i J L húsinu við
Hringbraut í viðtali við DV.
I þeirri verslun hefur verið komið
upp heilsuhorni og þar hafa verið á
boðstólum um þrjú hundruð
vörutegundir af alls konar
heUsuvamingi.
Frá Náttúmlækningafélaginu hafa
veriö keyptar á mUli 40 og 50 vöru-
tegundir sem félagið flytur inn og selur
í verslunum sínum. Nú hefur N.L.F.I.
neitað að selja J L húsinu umbeðnar
vörur og vilja J L menn ekki una þeim
úrslitum.
Astæðan mun vera sú sem Gunnar
verslunarstjóri vék að hér að framan,
álagningarprósentan á vöranum í
smásölu.
Samræming óheimil
I heilsuhorni J L matvörudeild-
arinnar eru allar vöru seldar með 23%
álagningu og era vöramar frá N.L.F.I
ódýrari í J L húsinu en í Náttúrulækn-
ingabúðunum. Hafa talsmenn þeirra
óskað eftir því að J L menn hækki
sína álagningarprósentu til
samræmingar á þeirra verði, sem ekki
hefurveriögert.
Nú þegar felld hefur verið niður
hámarksálagning á matvörum, þannig
að kaupmenn ráða sjálfir álagningu á
vöranum, má segja að þessi viðskipta-
máti skjóti skökku við, ef rétt reynist.
Þessi mynd er tekin i heilsuhorni JL -hússins. Þar eru á boðstólum um
þrjú hundruð vörutegundir, þar af hafa verið um fjörutiu frá NLFÍ, sem nú
eru senn á þrotum.
DV-mynd GVA
Samkvæmt lögum um samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskiptahætti er
óheimilt, þegar verðlagning er frjáls,
að samræma verö og álagningu á milli
fyrirtækja. Einnig er óheimilt að á-
kveða, samþykkja eöasemjaum ófrá-
víkjanlegt lágmarksverð (brúttóverð)
eða álagningu, er gilda skuli við endur-
sölu á næsta sölustigi, segir orðrétt í
23. gr. laganna.
Ekki nertað þessari ástæðu
Því stendur málið þannig í dag að
J L húsið hefur ekki á boðstólum
vörur frá N.L.F.I. Við höfðum sam-
band viö Eggert Olafsson, lögfræðing
hjá Verðlagsstofnun, um þetta mál.
Sagði hann þetta mjög alvarlegt mál,
ef rétt reyndist.
,,Eg hef haft samband við talsmann
N.L.F .1. og hann hefur ekki neitað
þessari ástæðu fyrir því að þeir selja
J L húsinu ekki tilteknar vörur. En
hann hefur líka gefið í skyn aðrar
: ástæður. A þessu stigi málsins get ég
ekki fleira sagt um málið,” sagði
Eggert Olafsson.
Næsta skref sagði hann að yrði tekið
í málinu ef skríflæg kæra bærist frá
J L húsinu.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
við höfum fengið frá Oskari
Guðmundssyni hjá N.L.F.I. segir hann
ástæðu þess að þeir selji J L húsinu
ekki umbeðnar vörur vera aö þeir anni
ekki eftirspum. Þeir rétt anni því að
flytja inn vörar fyrir eigin verslanir og
hafi því tæplega bolmagn til að sinna
meira.
Ein vörategund sem seld hefur verið
í heilsuhominu hjá J L húsinu era
APP99 blómafræflar. Pakkinn kostar
þar 102,55 krónur, sama vara og sama
magnkostarhjáN.L.F.1.115krónur.
-ÞG
Ef þú ert orðin(n) leid(ur) á kaffiauglýsingum
skaltu ekki lesa þessa..................................
„En ef þú vilt endilega lesa þessa auglýsingu — þá get ég af eigin reynslu sagt þér aö þetta
er alvöru kaffi.
Afa- og ömmukaffiö frá Ivari er kaffið sem kemur mér í gang á morgnana og eftir einn til
þrjá bolla er ég til í tuskið. — Stálsleginn.
Okkar á milli... kaffiö frá (vari er öðruvísi en gengur og gerist, enda um úrvalsbaunir að
ræða og innihald í lofttæmdum umbúðum. Reyndu bara — þú sannfærist og hvað er einn
pakki af kaffi á milli vina..."
Otsölustaöir:
Versl. Straumnes, Vesturbergi
Kjörval, Mosfellssv.
Kostakaup, Hafnarf.
Kjötbúð S.S. Iðufelli
Útsölustaöir:
Sláturfélag Suðurlands, Glæsibæ
Sláturfélag Suðurlands, Austurveri
Kaupfélag Kjalarnesþings, Mosfellssveit
Arnarkjör, Garðabæ
Versl. Arnarhraun, Hafnarf.
IVAR - SKIPHOLTI 21 - SlMI(91) 23188 og (91) 27799
Menn hafa verið að fá botn i hlutina
í Borgamesi.
Það var haft eftir Bakkabræðrum, að
botninn væri suður í Borgarfirði. Þetta
orðtak hefur verið að rætast á óvæntan hátt
fyrir marga, sem átt hafa í flóknari málum
en bræðurnir á Bakka. Menn kannast orðið
við það úr fréttum, að þegar mikið liggur
við og ekkert má trufla fara nefndir og ráð
stundum upp í Borgarnes til þess að fá
botn í hlutina. Þar finna menn frið til að
hugsa og tala saman. Þar er líka að finna
þá tilbreytingu frá daglegu umhverfi, sem
oft nægir til þess að sjá hlutina í samhengi.
Frið og tilbreytingu má víða finna á íslandi
en í Borgarnesi hefur verið byggð upp að-
staða rétt utan við höfuðborgarsvæðið fyrir
fólk sem vill vera í friði án þess að missa í
leiðinni af þægindum nútímans. Hótelið er
tilvalið fyrir ráðstefnur, fundi og námskeið
en ekki síður íyrir einstaklinga, sem vilja
finna frið og ró rétt við bæjardyrnar hjá sér
án þess að leggja á sig mikil ferðaiög eða
kostnað.
FERÐASKRIFSTDFA HÓTEL
RIKISINS BORGARNES
HELQARTILBOÐ: Qisting í tveggja
manna herbergi m/baði í tvær nætur ásamt
morgunverði og ferðum fram og tii baka
frá Reykjavík með Sæmundi eða Akraborg.
Verð frá kr. 970.00 á mann. Leitið upplýs-
inga hjá Hótel Borgarnesi eða Ferðaskrif-
stofu ríkisins. (Tilboðþetta gildirtil 15. apríl nk.)