Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1984, Page 11
DV. MIÐVIKUDAGUR mTmARíTiSm.” ’
11
— rabbað við Arturo Nazareno, alþjóðlegan varaforseta JC,
en bjórkneyfarar sátu íkringum hann íflugvélinni til íslands
Filippseyingurinn . Arturo
Nazareno hallaði sér makindalega
aftur í einu sæta Flugleiðaþotunnar.
Þar sem þetta var næturflug ákvað
hann að ná sér í smá„kríu” áöur en
lent yrði í Keflavík síðar um nóttina.
Honum gekk hins vegar illa að sofna.
Astæðan var sú að skrafhreifiö fólk í
kringumhann kneyfaði bjór.
,,Nei, nei, þetta fór ekkert í taug-
amar á mér. Það var frekar aö ég
hefði gaman af þessu. Eg vissi jú
sem var aö á Islandi er ekki seldur
bjór. Eitt var ég þó öruggur um. Eg
var alténd í réttri vél.”
Við hittum Arturo „Douglas”
Nazareno að máli síðastliðinn laug-
ardag. Fyrrnefnd saga kom fram er
við spurðum hann sakleysislega um
það hvernig flugið frá Osló þá um
nóttinahefðiverið.
En hver er maðurinn? Jú, alþjóð-
legur varaforseti JC. Einn af nokkr-
um. Hann mun stíga aftur upp í
Flugleiöaþotu á morgun, eftir að
hafa rabbað við JC-félaga á Reykja-
víkursvæðinu, Egilsstöðum og Akur-
eyri undanfarna daga. Þá ligg-
urleiðin til Bandaríkjanna.
„Eg er fæddur í borginni Rosario,
sem er um 37 km fyrir utan Maniia.
Þannig vill til að ég fæddist á sama
degi og hershöfðinginn frægi Dougl-
as McArthur. Og það var nóg til þess
að félagar mínir heima á Fihppseyj-
um kölluöu mig strax í æsku
Douglas. Þetta nafn hefur reyndar
festvið mig.”
Nazareno starfar hjá fyrirtæki
fjölskyldu sinnar. Það heitir Rattan
Pasifica og framleiðir og selurhús-
gögn. Arið 1968 gekk hann í JC og
hefur starfað af krafti í hreyfingunni
síöan.
Hann var landsforseti JC á Fiiipps-
eyjum í fyrra. Svo vel fórst honum
það úr hendi að á síðasta heimsþingi
JC var hann kosinn „besti landsfor-
seti”fyrir áriö 1983.
— Hvernig finnst þér íslenskir JC-
félagar?
„Þeir eru virtir erlendis fyrir gott
starf og dugnað. Og það JC-fólk sem
ég hef þegar kynnst hér virðist mér
veragottfólk.”
— Nú hefuröu verið 16 ár í JC.
Hvað er það sem þú hefur fengið
mest út úr þessum f élagsskap?
„Því er fljótsvarað. Eg hef þróað
sjálfstraustiö með ræðumennsku og
fleiri verkefnum. Þá hef ég eignast
marga kunningja.”
— Veðrið hér á landi. Það er ekk-
ertaðfara með þig?
„Nei, alls ekki. Hér er auðvitað
kaldara en ég á aö venjast heima á
Filippseyjum, en þó er mun hlýrra
hér en ég átti von á.”
Svo við ræðum aöeins um Filipps-
eyjar. — Hverjar eru helstu atvinnu-
greinar þar?
„Filippseyjar eru mjög ríkar af
hráefnum, eins og kopar, kokos-
hnetuolíu, svo eitthvaö sé nefnt. Og
hráefni eru meginuppistaðan í út-
flutningi okkar. Þá höfum við eins og
þið Islendingar dágóðar tekjur af
fiskveiðum.”
Nazareno sagði að veruleg vand-
ræði væru af því fyrir efnahagslífið á
Filippseyjum hve mikill halli væri
ávalltá utanríkisviðskiptum þeirra.
„Þar er mikill innflutningur á olíu
þyngstur á metunum. Við þurfum að
flytja inn mn 90 prósent af allri okkar
olíu og það er óhemju dýrt fyrir okk-
ur. Sjálfir getum við fullnægt 10 pró-
sent af olíuþörfinni og vonandi fer
þaö hlutfall hækkandi því nýjar olíu-
lindir hafa fundist á Filippseyjum á
síöustu árum.”
— Er mikil fátækt á Filippséyj-
um?
Arturo „Douglas" Nazareno.
„Hún hefur minnkað mikiö, en þaö
er af og frá að henni hafi verið út-
rýmt. Helsta breytingin er sú að því
fólki sem þið kallið væntanlega milli-
stéttarfólk hefur fjölgaö mjög, þann-
ig aö nú eru miklu færri fátækari.”
Þess má til fróöleiks geta að á
Filippseyjum eru fimm sjónvarps-
stöðvar og þá er ein kapalstöð í
Manila, höfuðborg landsins.
Fyrir utan „snjóinn” í sjónvarp-
inu. Hafðirðu séö snjó áður en þú
komst til Islands?
„Já, reyndar.það var hvít jörð í
Bandaríkjunum þegar ég var þar í
vetur. -JGH
Var þá öruggur
um að ég væri
í réttri vél
Loðnuvonin
í Djúpál brást
„ Viö höf um verið hérna síðan í gær-
kvöldi og þaö er loðna hérna í Djúpáln-
um og köntunum báðum megin. Þetta
er hrygningarloðna en heldur tætings-
leg og ekki mikið af henni,” sagöi
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur í
viðtali við DV í morgun er hann var
staddur um borð í Áma Friðrikssyni
útiaf Vestfjörðum.
Togarar hafa lóðað á loðnu á þessum
slóöum að undanfömu og því var Árni
Friðriksson sendur á staðinn. „Það
kemur varla neitt út úr þessu fyrir
þann veiðiskap, sem við stundum, en
þó gæti loðnan hlaupið saman þannig
að bátar næðu kasti og kasti, en ég sé
ekki ástæðu til þess að bátar komi
hingað og bíði þess,” sagöi Hjálmar-GB
Fimmtán milljóna
hækkun bensíngjalds
— kemur ekki upp í gatið
Hækkun bensíngjalds um 19 aura á
lítrann veldur ekki hækkun á útsölu-
verði. Það verður áfram um sinn 22,50
krónur. Þær 14,7 milljónir, sem vænt-
anlega koma í ríkissjóð vegna þessar-
ar breytingar, koma heldur ekki upp í
fjárlagagatið.
I forsendum fjárlaga var gert ráð
fyrir að möguleikar til tekna af þessu
gjaldi yrðu nýttir til hins ýtrasta. Þrátt
fyrir þessa hækkun er óvíst að tekju-
áætluninstandist. HERB
Selfoss:
Kaupfélag Árnesinga
f lytur brauðgerðina
Kaupfélag Amesinga flutti nýlega
brauðgerð sína frá Eyrvarvegi 3 á Sel-
fossi að Austurvegi 2. Vélakosturinn var
endurný jaður að mestu leyti með Mono
brauðsamstæðuvélum frá Bretlandi og
ofnum frá Svíþjóð. Afkastageta
brauðgeröarinnar jókst um helming
meö tilkomu hinna nýju tækja og öll
starfsaöstaða batnaði að mun, enda
voru gerðar miklar breytingar á hús-
inu.
1 bakaríinu vinna 9 manns og
bakarameistari er Sævar Ástráðsson.
Hann á þakkir skildar fyrir hvað mat-
arbrauðin og fínni brauðin em góð.
Þegar ég kom hingað fyrst fyrir 2 1/2
ári voru matarbrauðin, sérstaklega
rúgbrauöiö, alveg óæt. Þau voru bæði
grá og súr. Fyrir bolludaginn nú voru
bakaðar 12 þúsund bollur, en aðeins 6
þúsund í fyrra, og var Sævar miklu
lengur að vinna þær. Utibú KÁ fá sinn
skammt af framleiðslu brauðgerðar-
innar, útibúin á Eyrarbakka, Laugar-
vatni, Stokkseyri, í Hveragerði og
Þorlákshöfn. Regína/Selfossi.
HIN S/VINSÆLA OG
MYNDARLEGA
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÚK
I
-48 SIDUR-
fylgir bladinu
Á MORGUN
Þú cettir að geta fundið réttu
FERMINGARGJÖFINA
í henni