Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1984, Page 15
DV. MIÐVIKUDAGUR14. MARS1984.
15
Ekki vil ég fullyrða hversu réttmætt
dæmi það er en nýverið var haldið um
helgi mikið fimleikamót. Frá þessu
móti kom stutt fréttamynd, í henni sást
sigurvegari í einni grein við æfingar.
Já, viö æfingar en ekki í keppni, en það
var vegna þess að íþróttafréttamenn
komu ekki á vettvang fyrr en keppni
var lokiö og tók þó mótið tvo daga. Til
að bjarga sér frá algerri skömm fengu
íþróttafréttamenn sjónvarps sigur-
vegarann í einni greininni til þess aö
sýna siguræfingar sínar til mynda-
töku. Um myndatöku frá slíku móti vil
að sýna a.m.k. 15 mínútna mynd, smá-
glefsur úr ýmsum atriðum svona í 10
mínútur og svo fimm mínútur frá
bestu atriðunum. Með þessu heföi sést
mynd af fjöldanum og svo af afburða-
fólkinu.
Iþróttafréttamenn og svo þeir sem
þeim stjóma ættu endilega að gera sér
grein fyrir því að uppörvun þurfa allir,
ekki aðeins afburðafólkið. Reyndar má
ætla að nógu margir veröi til þess að
hvetja það. Svo er að sumu leyti nýlega
kunn sorgarsaga íslenskra afburða-
manna sem selt hafa sig á markaði
SMÁAUGLÝSINGAÞJÓNUSTA
VIDGETUn
• „Þess vegna verður að viðurkenna að
kappleikir, t.d. knattspyrna eða aðrir
boltaleikir, njóta mikilla vinsælda og eiga að fá
allgóðan tíma í íþróttafréttum.”
ég hafa þau orö aö þótt þarna verði
ekki lands- eða heimssögulegir
atburðir þá eru þarna börn og
unglingar sem eiga ef til vill eftir að
vekja aðdáun á Norðurlanda- og jafn-
vel Evrópuvísu. Víst er að á þessu móti
voru stjömur fimleika á landsvísu en
þar voru fleiri. Frá þessu móti hefði átt
ofurmennanna og þykjast svo ekki
vita hvað eru mútur og hvað ekki. Af-
burðamenn uppvísir að slíku eru
engrar virðingar verðir. Lítil börn
sem af einlægni gera sitt besta á
íslensku fimleikamóti eru hins vegar
allrar viröingar verð.Þetta ættuýmsir
fullorðnir menn að athuga vandlega.
Menning Menning
VORBLÓT
Vorblót. Ballettmúsík eftir Igor Stravinsky.
Hljómplata í útgáfu DGG.
Flytjendur: ísraelska Fflharmóníusveitin undir
stjórn Leonard Bemstein.
Útgáfustjórn: Hanno Rinke.
Upptökustjórn: Hans Weber.
Tónmeistari: Karl-August Naegler.
Útgefin 1983 DGG 2532 075 digital (snœlda
Cr02 3302 075; snúður (compact disc) 410 508—
2 GH)
Umboð á íslandi: Fálkinn.
„Þetta er í fyrsta sinn á sextíu
ámm, að ég er höfð að fífli,” sagði
dePourtalés greifinna eftir fmmsýn-
ingu balletts Diaghilevs, Vorblóts,
sem stiginn var við músík Igors
Stravinskys. Nú, næstum þremur
aldarf jórðungum síðar spyrja menn
í forundran — hvað olli uppþotinu?
Hvað hneykslaði fólk þá? — Meöan
enn var hægt að ná tali af fólki sem
uppiiföi skandalann kepptust tónfé-
lagsfræðingar við að reyna aö upp-
lýsa, eftir lifandi heimildum, hvað í
raun hefði valdið skandalnum um
árið. Niðurstöðumar urðu sam-
kvæmt venju þegar reynt er aö graf-
ast fyrir um orsakir framsýningar-
uppþota, það er að segja, harla lítil-
fjörlegar. Ef ekki keppinautur leigir
til menn að hleypa öllu í bál og brand
(sem telja má aö heyri sögunni til)
þá er nærtækast að taka svörin
saman í eina nútímalega axlarypptu
og...bara.
Margir hallast aö því aö þaö hafi
verið „sex” sem hneykslaði mann-
skapinn þegar rúmur áratugur var
liöinn af öldinni. Stravinsky þvertök
jafnan fyrir að nokkuð væri sexúelt í
Vorblóti og kóreógrafía Diaghilevs
bendir ekki til þess að fyrir þeim
félögum hafi vakað að höfða í kúnst
sinni beint til þessarar framkenndar
mannsins. Sumir tónlistarfræðingar
halda því fram aö sex sé ekki til í
músík, því að hún sé í eöli sínu al-
gjörlega abstrakt. Þessu er erfiðara
að halda fram um dansinn.
Oft er því haldið á lofti að í þjóðlög-
um og þjóðdönsum Evrópubúa sé
einmitt forðast eins og heitan eldinn
aö höföa til hins kynferðislega.
Gjarnan er nefndur „Schuplattler-
dansinn” sem dæmi því til stuönings.
I þeim dansi skella herrarnir sér á
hæla og skinnklædd lær og sveifla
stúlkunum svo að hringskorin pilsin
standa beint út í loftið og við blasa
blúndum hulin herlegheitin. Söguleg-
ar staðreyndir segja okkur hins
vegar að pilsgerðin og dansinn séu
frá því um tólf hundruð, en nærhöld
(meö blúndu eða án) hafi ekki þekkst
sem hluti af viðkomandi kvenlegum
þjóðbúningi fyrr en á átjándu öld.
Þannig vill stundum fara þegar
neyða á siðgæðisvitund upp á kúnst-
ina og vel má vera að afdráttarlaus-
ar neitanir Stravinskys og Diaghil-
,evs reyndar líka eigi eitthvað skylt
með sögunni af blúndubuxunum og
þ jóðdansinum góða.
Hvort flytjendur fylgi eöa hafni
kenningunni um hið kynferðislega í
Vorblóti verður að sjálfsögðu ekki
greint nema að saman fari músíkin
og dansinn. En manni gleymist oft
þegar maður hlustar á músíkina eina
sér, að þetta sé ballettmúsík. Hugsar
tæpast út í það þegar Stravinsky ger-
ir hljómsveitina alla, strengi jafnt
sem blásara að einni allsherjar slag-
verkssveit að þá sé hún trumban sem
Hljómplötur
Eyjólfur Melsted
slær taktinn við sefjandi heiðinn
dans.
Tónn Israelsku Fílharmóníunnar
er hvass og það notfærir Bemstein í
túlkun sinni á verkinu. Hvergi þarf
fyrir vikið að ýkja í leik. I Jarðar-
tilbeiðslunni í upphafi er spilað eins
einfalt og slétt og hugsast getur. Og
þegar að því kemur að hljómsveitin
ummyndast öll í eitt slagverk í Brott-
námsleiknum verður það einhvern
veginn svo áreynslulítið. Þá kemur
hvass leikur og tónn Israelanna þeim
til góða, þar sem margar hljómsveit-
ir með breiðari og mýkri tónblæ
verða að grípa til þess að ýkja veru-
lega til að ná áhrifunum fram.
Heildarsvipurinn á flutningi þessum
á plötunni er ákaflega seiðandi og
sef jandi án þess þó að sú magnaða
ögrun sem músík Stravinskys ber í
eðli sínu með sér glatist í neinu.
Um vinnuna á plötunni er fátt aö
segja. Hún er öll fyrsta flokks. Eg
ímynda mér að tækninnar mönnum
þyki gott að vinna með svo hvassan
og fremur grannan tón og víst er að
litlar tilraunir eru gerðar til að
mýkja hann upp og breikka á þessari
plötu.
EM
IETT ÞER SPOR1N
OG AUDVEIDAD t>ÉR FYRIRHÖFN
• Afsöl og sölutilkynningar bifreiða
• Húsaleigusamningar (löggiltir)
• Tekið á móti skriflegum tilboðum
Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá
um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti
upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi
virka daga kl. 9—22
OPIÐ: laugardaga 9—14
sunnudaga kl. 18—22
Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og
þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17.
SÍMINN ER 27022
ATHUGIÐ
Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði
þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17föstudaga.