Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1984, Side 31
DV. MIÐVIKUDAGUR14. MARS1984.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Mikil fjölgun
Barneignlr á Isafiröi munu
hafa verið óvenjumargar það
sem af er þessu ári ef marka
má frásagnir að vestan. Vest-
firska fréttablaðiö segir að
sautján börn hafi litið þar
dagsins Ijós frá áramótum og
sé það meira en oft áður.
Segir blaðið ennfremur aö
vænta megi „8—10 króga” á
mánuði fram tU vors. Ef
kvenþjóðin haldi sömu
afköstum út árið verði þetta
hundrað barna ár og metár
a.m.k. síðan pillan hafi komlð
á markaðinn.
Taiandi um „afköst kven-
þjóðarinnar” þá hafa sveita-
menn nú haldið að það þyrfti
tvo tU. Eða hvernig ætli þetta
sé fyrir vestan?
Tíu til
allaballa
Þegar þau tíöindi kvisuðust
PéturTyrfingsson.
út að Fylkingin ætlaði að
ganga í Alþýðubandaiagið
þóttu þau jafnast á vlð jarð-
skjálftafregnir eða þaðan af
meira. Blöðin kepptust um að
gera þessu máU skU við mis-
jafna hrifningu manna.
En hversu f jölmenn skyldu
þessi stórhættulcgu samtök,
Fylkingin, nú vera? Sam-
kvæmt upplýsingum fróðra
manna voru í henni um 20
félagsmenn fyrir samruna.
Og áður en til hans kom urðu
nokkrar hreinsanir. TU að
mynda gengu skörungurinn
Birna Þórðardóttir og
Ragnar jarðskjálftafræð-
ingur út. Eftir urðu 10—11
manns sem ganga í Alþýðu-
bandalagið undir forystu
Péturs Tyrfingssonar.
Róttækar
breytingar
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkti á dögunum breyt-
ingar á lögreglusamþykkt
bæjarins. Samkvæmt þeim
breytingum skyldi m.a.
standa i samþykktinni þessi
klausa: „Bannað er að ung-
menni innan 18 ára aldurs
starfi á veitingahúsum og
skemmtistöðum.”
Að þessu afloknu var
lögreglusamþykktin send
hæstvirtu dómsmáiaráðu-
neyti tU staöfestlngar. Þar
þótti mönnum ekki nóg að
gert en gripu tU þess að klína
fomaldarlegri hnykkingu
aftan við setninguna sem þá
hljóðaði þannig: „Bannað er
að ungmenni innan 18 ára
aldurs starfi á veitingahúsum
og skemmtistöðum þar sem
ætia má að siðferði þeirra sé
sérstök hætta búin.” Taldi
ráðuneytið sig þaraa vera að
virða rétt baraa samkvæmt
lögum þar að lútandi.
En það kemur svo í hlut
bæjarfógetans í Hafnarfirði
að ákveða hvar „siðferði
baraa er sérstök hætta búin”
og verður hann vafalaust
ekki of sæU af þetm starfa.
Hemmi í
gleðina
Einhverjar mannabreyt-
ingar munu í aðsigi á út-
varpinu. Gunnar Kvaran, sá
ágæti þingfréttamaður, mun
senn láta af störfum þar og
flytja sig yfir á Timann.
Hermann Gunnarsson.
Þá mun Hermann Gunnars-
son íþróttafréttamaður hugsa
sér tU hreyfings, tímabundið
þó. Heyrst hefur að hann
muni ætla að taka sér frí frá
fréttamennsku í sumar en
bregða á leik með Sumargleð-
inni um iand aUt. Kemur
Hermann I stað Þorgeirs Ast-
valdssonar sem hefur verið
meöUmur Glcðinnar um ára-
Þorgeir Astvaldsson.
bU en helgar nú rás 2 aUa
krafta sína.
Annars eru töluverð umsvif
hjá þeim Sumargleðimönn-
um núna. Þeir eru aö vinna
að gcrð hljómplötu sem
kemur væntanlega út innan
tíðar.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsd.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
B a Stjörnubíó—Ævintýri í forboðna beltinu:
Oskuhaugarattieimsins
Heiti: Ævintýri í forboöna beltinu (Space-
hunter — Adventures In The Forbidden Zone).
Leikstjóri: Lamount Johnson.
Handrit: Edith Ray, David Preston, Don Gold-
berg og Len Blum.
Kvikmyndun: Frank Tidy.
Tónlist: Elmer Bernstein.
Aðalleikendur: Peter Strauss, Molly Ringwald,
Ernie Hudson og Michael Tronside.
Þótt fátt sé um fína drætti í þessari
framtíðarævintýramynd má þó hafa
nokkurt gaman af eins og um flestar
geimmyndir er standast þær tækni-
legu kröfur sem verður að gera tU
þessarar tegundar kvikmynda. Það
er oft einkar auðvelt aö líkja geim-
myndum viö vestra aö uppbyggingu
efnis og söguþræðinum í Ævintýri í
forboðna beltinu væri auðveldlega
hægt að breyta úr framtíð í fortíð
aðeins með því aö breyta sviðsetn-
ingunni. Spacehunter yröi Body-
hunter.
Ævintýri í f orboðna beltinu er látin
gerast á tuttugustu og annarri öld og
byrjar með því að geimskip ferst i
himingeimnum og með því allir
nema þrjár stúlkur sem geta forðað
sér á næstu plánetu sem hefur
andrúmsloft í líkingu viö það á jörð-
inni. Þær lenda á Terra 11 sem er
nokkurs konar öskuhaugar alheims-
ins og lenda þar fljótt í vandræöum.
Boð eru send um háa verðlauna-
f járhæð til handa hverjum þeim sem
bjargar þeim úr höndum íbúa á
Terra 11. Þetta heyrir Wolff (Peter
Strauss), nokkurs konar einfari í
geimnum, sem hefur atvinnu af því
verkefni sem býðst hverju sinni.
Honum til aðstoðar er vélmenni í líki
fagurrar konu sem verður íbúum
Terra 11 auðveld bráð þegar hann
lendir þar.
Fljótlega í leit sinni að stúlkunum
þremur verður á vegi hans ung
stúlka, Niki (Molly Ringwald), sem
hann tekur með sér enda þekkir hún
alla staðhætti. Það eru fleiri að leita
að stúlkunum, meðal annars
Washington (Ernie Hudson), svartur
maður sem, þrátt fyrir aö Wolff og
hann séu í hörkusamkeppni um
verðlaunaféð, slæst í hóp með þeim
tveimur.
Þremenningarnir komast að því að
stúlkurnar eru í haldi hjá vægast
sagt ógeðfelldum náunga, Overdog,
sem virðist stjórna að mestu leyti á
plánetunni. Eftir mikil ævintýri og
svaðilfarir tekst þeim að komast inn
í híbýli hans og frelsa stúlkumar en
það er ekki fyrr en komiö hefur til
uppgjörs milli Wolff og Overdog.
Þetta er hvorki nýstárlegur né
merkilegur söguþráöur enda er ekki
stefnt að því með þessari mynd
heldur er stefnt að því að sem flestir
hafi ánægju af þeim furðulegu fyrir-
bærum sem koma fyrir í myndinni og
að spennan sé alltaf í hámarki.
Það er ekki mikill framtíöarblær
sæmilega sterkbyggðir. Peter
Strauss, sá ágæti leikari, fer með
aðalhlutverkið áreynslulaust og
vona ég að fljótlega fái ég að sjá
hann i bitastæöari hlutverkum.
Aðeins meiri möguleika fær Molly
Ringwald. Hún er passlega stráksleg
Peter Strauss leikur Wolff, einfara í geimnum sem tekur því verkefni sem
býðst hverju sinni ef launin eru mikil.
yfir sviðssetningunum á Terra 11.
Allt í niöumíðslu og vel skiljanlegt að
Wolff gefi plánetunni nafnið ösku-
haugur alheimsins. Þar úir og grúir
af alls konar drasli sem á varla við í
geimmynd en passar samt sem áður
vel við söguþráðinn.
Eins og í flestum geimmyndum
reynir lítið á leikhæfileika aðalleik-
endanna. Þaö er nóg að koma vel
fyrir og fyrir karlleikarana að vera
til aö yngstu áhorfendurnir hafi
gaman af henni og um leið aðlaðandi
ung stúlka sem heillar Wolff.
Eitt er það sem pirraði mig nokkuð
en það var tónlist Elmer Bernstein.
Hún minnti óþarflega á tónlistina í
Stjörnustríðsmyndunum. En í heild
er Ævintýri í forðboðna beltinu sak-
laus skemmtun sem skilur litið eftir
sig.
Hilmar Karlsson.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
VANDINN LEYSTUR
Handhœg lausn til ad vardveita bladid.
Hálfur árgangur í hverja möppu
Fást á afgreidslu Urvals,
Þverholti 11, sími (91) 27022
og hjá Bindagerdínni,
Skemmuvegi 22,
símar (91) 77040 og (91) 35468