Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1984, Síða 2
Sjónvarp
Úr kínversku stórmyndinni Myndir úrgömlu Peking.
Sjónvarp laugardag kl. 22.00:
Æskuminningar
— kínversk úrvalsmynd
Það er nokkuð ljóst að engilsaxnesk-
ar þjóðir ráða ferðinni í kvikmynda-
heiminum, hvar sem er í heiminum.í
öllum heiminum.
Engu að síður þrífst blómlegt kvik-
myndastarf í löndum sem ekki hafa þá
náttúru að íbúar þess tali ensku eða
eitthvert voða skylt tungumál. Island
er gott dæmi um þaö.
Á laugardaginn kl. 22 verður annað
gott dæmi um þetta. Þá verður sýnd
kínversk kvikmynd með nafninu
Myndir úr gömlu Peking. Þessi mynd
er um stúlku sem kemur til Peking frá
’Taiwan. Eins og venjan er um börn þá
vekur ýmislegt í stórborginni furðu
hennar.
Höfundurinn er að skýra frá sjálfum
sér og lætur hugann reika aftur í tím-
ann og minnist þess fólks sem hann
þekkti er hann var lítill. Einn af öðrum
hurfu þeir svo úr lífi hans og nú lifa,
þeir aðeins i huga hans. Hví er heimur-
inn fullur af leiðindum?
Litla stúlkan reynir að f inna lausn en
tekst ekki.
Síðan eru liðin rúm fimmtiu ár og
stúlkan er orðin gömul kona. Og þó hún
sé flutt frá Peking getur hún ekki
gleymt þessum tíma lífs síns. Hjarta
hennar er þungt og hún fær heimþrá.
Fyrir þá sem vilja vita lengd mynd-
arínnar þá er hún 2627 metrar á lengd.
SigA.
Umsjónarmenn: Asa H. Ragnars-
dóttir og Þorsteinn Marelsson.
Stjórn upptöku: Tage Ammen-
drup.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir, veður og dagskrár-
kynning.
20.20 Ásgrímur Jónsson listmálari.
Heimildarmynd um Ásgrím Jóns-
son (1876—1958), einn af fyrstu ís-
lensku listmálurunum sem komu
fram á sjónarsviðiö um og upp úr
síðustu aldamótum. Islenskt
landslag og blæbrigði þess er
höfuðviðfangsefni hans á löngum
og frjóum listamannsferli. I mynd-
inni er vitjað eftirlætisstaða
Ásgríms, svo sem Húsafells í
Borgarfirði, þar sem hann undi
löngum. Samferðamenn segja frá
kynnum sínum af manninum og
málaranum og kynnt eru verk
hans. Kvikmyndun: Oh Örn
Andreasson. Ljósmyndun: Hörður
Kristjánsson. Hljóð: Jón Arason.
Umsjón: Hrafnhildur Schram.
Stjórn upptöku: Þrándur íhorodd-
sen.
21.30 Nikulás Nickleby. Fimmti
þáttur. Leikrit í níu þáttum gert
eftir samnefndri sögu Charles
Dickens. Þýðandi Kristmann Eiös-
son.
22.30 Pygmalion. Bandarísk sjón-
varpsmynd gerð eftir gamanleik-
riti George Bernard Shaws. Leik-
stjóri Alan Cooke. Aðalhlutverk:
Peter O’Toole, Margot Kidder,
Shelagh McLeod, Ron White,
Nancy Kerr og Donald Ewer.
Henry Higgins prófessor er viður-
kenndur málfræðingur og stað-
fastur piparsveinn. Hann veðjar
um þaö við vin sinn að hann geti
gert hvaöa götustelpu sem vera
vill aö hefðarkonu meö réttri til-
sögn. Fyrir valinu verður blóma-
sölustúlkan Eliza Doolittle. Eftir
sama ieikriti er einnig söngleikur-
inn „My Fair Lady”. Þýðandi
Oskar Ingimarsson.
00.20 Dagskrárlok.
A miðvikudagskvöldið — siðasta vetrardag — býður sjónvarpið upp á heila
kvikmynd i lokin. Er það hin umtalaða bandariska mynd „Apaplánetan"
sem gerð var 1968.
meir vináttu þeirra Jerrys en for-
ingjaskyldur og veröur það honum
dýrkeypt. Þýðandi Rannveig
Tryggvadóttir.
00.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur
22. aprfl
Póskadagur
17.00 Páskamessa í Akraneskirkju.
Sóknarpresturinn, séra Björn
Jónsson, predikar og þjónar fyrir
altari. Kirkjukór Akraness syng-
ur. Organleikari: Jón Olafur
Sigurðsson. Félagar úr strengja-
sveit Tónlistarskólans á Akranesi
leika.
18.00 Páskastundin okkar. Efni:
„Tunglið, tungliö,, taktu mig...”
þula eftir Theodóru Thoroddsen.
Leikstjóri Þórunn Sigurðardóttir.
Leikendur: Jóhann Sigurðarson,
Kristín Olafsdóttir, Unnur
Stefánsdóttir o.fl. Leikmynd:
Baldvin Björnsson. Séra Agnes M.
Sigurðardóttir flytur páskasögu.
Málfríður og Sesar, Smjattpattar,
Daníel Sullskór, Alli og Olla.
IGNIS
Ódýr en vönduö heimilistæki
RAFIÐJAN S/F Ármúla 8, s. 19294.
m
m
DV. FOSTUDAGUR13. APRIL1984.
mffirrffvv
Kvikmyndir
ummmmmmmm-ww
Kvikmyndir
BÆJARINS
BESTU
UMSJÓN: HILMAR KARLSSON
REGNBOGINN:
GALLIPOLI
Peter Weir er fremsti og um leið þekktasti leikstjóri Ástralíu-1
manna og hefur átt mikinn þátt í að skipa ástralskri kvikmynda-
gerð á þann virðingarpall hjá kvikmyndaáhugamönnum þar sem
hún er í dag. Tvær helstu mynda hans hafa verið sýndar hér áður,
Picnic At Hanging Rock og The Last Wave, sú síðamefnda hefur
einnig verið sýnd í sjónvarpinu. Og þeir sem heilluðust af þessum
tveimur myndum verða ekki fyrir vonbrigðum með Gallipoli.
Myndin er um tvo unga menn sem kynnast og verða vinir viö
hlaupaæfingar og liggja leiðir þeirra saman í hernum þegar fyrri
heimsstyrjöldin skellur yfir heimsbyggðina. Við þaö breytist
undirtónn myndarinnar. Framan af hefur myndin verið Ijúfur
leikur þeirra félaga en nú tekur alvaran við og þrátt fyrir áhuga-
leysi herdeildarinnar í heidl verða þeir að taka þátt í orrustu viö
Gallipoli sem endar með hörmungum fyrir hinn illa þjálfaða her
Ástralíumanna. Gallipoli er mjög áhrifamikil kvikmynd sem lætur
engan ósnortinn og þótt þáttur Peter Weir sé mikill í gerö hennar
má ekki gleyma hlut kvikmyndatökumanns hans, Russel Boyd,
sem hefur stjórnað kvikmyndatöku við allar hans myndir hingað
til. Myndatakan er stórfengleg. Einnig er leikur þeirra Mark Lee.
og Mel Gibson mjög góður.
REGNBOGINN:
FRANCES
Ævi Frances Farmer var mikil harmsaga. Hún hefur að líkind-
um verið nokkrum hæfileikum búin sem leikkona, en skapbrestir
hennar og þær aöstæður sem leikarar í Hollywood á fjórða ára-
tugnum urðu að búa við gerðu það að verkum að saga hennar er
enn einn ljótur blettur á höfuðborg kvikmyndanna, Hollywood. Það
er óhætt að segja að Frances er ein af fáum kvikmyndum er gerðar
hafa verið eftir ævisögum þekktra persóna sem heppnast vel. Bæöi
er að handritahöfundar og leikstjóri hafa lagt mikla alúð við
viöfangsefnið og svo hitt að þeir hafa valið réttu leikkonuna í hlut-
verkið. Jessica Lange vinnur stórsigur sem Frances Farmer.
Henni tekst að koma persónunni það vel til skila að áhorfandinn
hrifst mjög af þessari þjökuöu konu og fyrirgefur henni þá skap-
bresti sem er undirstaöa hegðunar hennar. Aðrir leikarar gera
hlutverkum sinum ágæt skil. Sérstaklega er Kim Stanley góð í hlut-
verki móðurinnar, manneskju sem hafði þann æðsta draum að
dóttir hennar yrði fræg og dáð. Þótt líf og leikferill Frances
Farmer hafi næstum verið fallin í gleymsku hefur með þessari
kvikmynd verið rækilega minnt á örlög hennar.
AUSTURBÆJARBÍÓ:
ATÓMSTÖÐIN
Þá hafa Islendingar loks gert kvikmynd eftir skáldsögu Halldórs
Laxness. Atómstöð Þorsteins Jónssonar er árangurinn. Það verður
að segjast eins og er aö hún veldur töluverðum vonbrigöum. Efni-'
viðurinn gefur tilefni til kraftmikillar og áhrifamikillar myndar, en
útkoman verður því miður nokkuð á hinn veginn. Myndin líður hjá
án mikilla sýnilegra átaka, hvorki á milli fylgjenda og andstæð-
inga atómstöðvarinnar, sem pólitíkusar eru aö makka um, né held-
ur átaka innra með persónunum. Allt verður á einu plani. Myndin
er engu að síður þó nokkurt augnayndi. Þar tvinnast saman á
skemmtilegan hátt gullfalleg leikmynd Sigurjóns Jóhannssonar,
búningar Unu Collins og kvikmyndataka Karls Oskarssonar. Per-
sónusköpun af hálfu höfunda handrits er oft af skomum skammti
og því engin tilþrif hjá leikurum, nema-helst hjá Gunnari Eyjólfs-
syni í hlutverki Búa Arland. Allt um það er Atómstöðin vel þess
virði að eyöa með henni einni kvöldstund.
NÝJA BÍÓ:
HRAFNINN FLÝGUR
Hrafninn flýgur er ein hin eftirminnilegasta íslenska kvikmynd er
gerð hefur verið. Það er niargt sem hjálpar til viö að gera myndina
eins góða og hún er. Efniö er spennandi saga um blóðþorsta,
hefndir og tortryggni. Handritsgerð Hrafns er að vísu í veikara
lagi, en leikstjóm hans er handverk manns sem veit nákvæmlega
hvaö hann vill gera úr hlutunum og kvikmyndataka Tony Forsberg
er með eindæmum góð, hvort sem er í nærmyndum af hinum stór-
brotnu persónum myndarinnar eða þegar landslagið nýtur sín sem
umgjörð um atburðarásina. Tónlist Hans-Erik Philip á líka sinn
þátt í því að skapa heildina. Þetta er kvikmyndatónlist eins og hún
getur best orðið, fellur vel að efninu og eykur stundum á spennuna.
Aðalleikarar myndarinnar standa sig allir með mikilli prýði. Helgi
Skúlason og Flosi Olafsson eru báöir frábærir í hlutverkum skúrk-
anna og Edda Björgvinsdóttir í eina stóra kvenhlutverkinu í
myndinni sýnir að hún kann meira fyrir sér en gamanleikinn. Það
er helst að Jakob Þór Einarsson í aðalhlutverki myndarinnar sem
vígamaðurinn nái ekki aö vera eins sannfærandi, en leikur hans er
samt sem áður lipur en hörkuna vantar. I heild er Hrafninn flýgur
samt best heppnaða kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar. Mynd sem
á eftir að skapa honum nafn erlendis.
Kvikmyndir
Kvíkmyndir
iu
■■■■■■■■
i