Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1984, Síða 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR 4. JULÍ1984.
- 'Ӓ
DV-myndir GVA.
Ævintýri á
gönguför
— Páll ogBeta f bænum
Það er hægt að fara i bíó i Reykjavik
þótt myndirnar séu ekki iengur með
dönskum skýringartextum. Eða þá
bara að taka pizzu með heim.
Vel heppnaðri heimsókn dönsku for-
sætisráðherrahjónanna lauk síðdegis í
gær er þau flugu heim til Kaupmanna-
hafnar. Þau voru í f jóra daga á íslandi
og fengu að sjá allt þaö sem tslending-
ar eru hvað stoltastir af: Þingvelli,
Bessastaöi, Vigdísi, handritin,
Dettifoss, Mývatn og Húsavík. Því
miður duttu Vestmannaeyjar út af
dagskránni vegna veðurs og þá er átt
viö flugveður því hin mesta blíða ríkti
á landinu öllu á meðan Schliiter gerði
stans. Einna líkast sumarveðri á Jót-
landi þar sem kaupmannssonurinn
Poul Schliiter fæddist fyrir tæpum 60
árum. Eða þá ágústveðri í
Kaupmannahöfn þar sem Lisbeth kona
hans fæddist 20 árum síðar.
Þau hjónin tóku það ekki nærri sér
þó flugið til Vestmannaeyja hefði fallið
niður í gær, Svartsengi átti að koma í
staðinn en undan þeirri ánægju báðust
forsætisráðherrann og frú hans. I
staðinn brugöu þau sér í bæinn, hönd í
hönd og skoöuðu í búðarglugga eins og
sjá má á þeim myndum sem hér
fylgja.
-EER.
Og svo eru það ís/ensku ullarteppin sem geta komið sór veI þegar kaldir vetrarvindar gnauða á Jótíands-
heiðum.
I dag mælir Dagfari
í dagmælir Dagfari
I dag mælir Dagfari
Útifundurinn yggldi sig
Samanlögð stjórnarandstaða á
tslandl boðaði til útifundar í fyrra-
dag. Þar var teflt fram helstu
mælskusnillingum fjögurra stjórn-
málaflokka og fundarefnið var að
skamma ríkisstjórnina. Flokkur
mannsins fékk ekki að vera með
enda enn óljóst hvort hann tilheyrir
stjórnarandstöðu eða stjórn-
arsinnum. Það fer eftir því hver
maðurinn er sem flokkurinn er
stofnaður um. Það leyndarmál hefur
ekki verið upplýst enn og á meðan er
flokki mannsins ekki boðin þátttaka
á útifundum.
Mikil veðurblíða dundi yfir meðan
á fundinum stóð. Sói og hitl. Venju-
lega hefur það haft áhrif til
sæmilegrar mætingar á útifundi,
enda helsta áhyggjuefni þelrra sem
til útisamkoma efna hér á iandi að
veður verði siæmt. Það dregur úr
aðsókn. í þetta skipti dró góða veðrið
úr mætingu, að sögn fundarboðenda,
og er nú ljóst að stjómarandstaðan
þarf á slæmu veðri að halda þegar
hún boðar til útifunda. Rigning
tryggir aðsókn, ef marka má tals-
menn stjóraarandstöðunnar.
Þess ber þó að geta að Aiþýöu-
blaðið var ánægt með aðsóknina og
taldi fundinn f jölsóttan. „Fundurinn
á Lækjartorgi í gær var mjög fjöl-
sóttur og vel heppnaður,” sagði
Alþýðublaðið.
Að sögn viðstaddra og lögreglu og
fjölmiðla voru rúmlega 300 manns
staddir á torginu, þegar flest var, og
era þá þeir meðtaldir sem áttu leið
framhjá í strætó. Þetta gera rúm-
lega 70 manns á flokk, þar sem
flokkarnir vora fjórir sem stóðu að
Fundinum. Getur hver maður skilið
að Alþýðublaðið telur það fjölsóttan
fund og velheppnaöan enda kratar
óvanir að sjá sjötíu manns á fundi
hjá sér. Er gott til þess að vita að Al-
þýðuflokkurinn sé í sókn að eigin
mati þegar slíkt margmenni vill
njóta sólar á Lækjartorgi.
Svavar Gestsson kristallaði það
sem fram fór í hugum fundarmanna,
samkvæmt frásögn Þjóðviljans,
þegar hann sagði: „Það sem
sameinar okkur er flest allt sem
kallar á i veruleika samtímans.”
Þessi spakmæli verður að varöveita
uppi í Landsbókasafni því það er svo
sannarlega ekki á hverjum degi sem
þrjú hundruð manns safnast saman
á Lækjartorgi og hefur sameiginlega
„flest allt sem kallar á í veruleika
samtímans”. Svavar upplýsti hins
vegar ekki hvað það er sem kallar
svona óskaplega á þennan hóp í
veruleika samtimans. En allavega
er gott til þess að vita að eltthvað
skuli yfirleitt „fara fram” í hugum
þessa fólks og það sé bundið við
veruleika samtímans. Það væri
laglegt ef stjóraarandstaðan efndi til
útifundar um óraunverulega framtíð
eða hugarheim fortíðar.
Hámarki náði f undurinn þegar Jón
Baldvin spurði: „Hvað hefur ríkis-
stjórnin boðið upp á nema
skemmdar kartöflur og steina fyrir
brauð?” Síðan yggidi ræðumaður sig
framan i stjórnarráðið samkvæmt
frásögn eins stjóraarand-
stöðublaðsins og hefur það sjálfsagt
verið ákallið sem Svavar minntist á
að sameinaði þá kumpána í
veruleika samtímans.
Stjórnarandstaðan hefur loks náð
saman. Hér eftir mun hún bindast
samtökum gegn f jandsamlegri rikis-
stjóra og yggla sig í sameiningu
framan í stjórnarráðið þegar mikið
liggur við. Herör var skorin upp á
útifundinum í fyrradag að viðstöddu
þrjú hundrað manna f jölmcnni. Það
gerði góða veðrið. Næst mun
stjórnarandstaðan boða útifund i
súld og slagviðri. Þá mun enn fjölga.
Þá er ekkl einu sinni vist að sam-
einuð stjórnarandstaða komist fyrir
á torginu öllu. Hvað þá þegar flokkur
mannsins bætist við. Ríkisstjórnln
má sannarlega vara sig á því sem
„fram fer” í hugum stjórnarand-
stöðunnar næst þegar hún ygglir sig
framan í stjórnarráðið.
Dagfari.