Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1984, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1984, Qupperneq 8
Koor t tttt t ímr>ArrTTVTvmM vn DV. MIÐVIKUDAGUR 4. JOLl 1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Viðræður hafnar á ný i kolaverk- fallinu breska Fulltrúar kolanámumanna Breta munu í vikunni hitta atvinnurekendur sína til viöræðna og gera þriöju tilraunina til þess að binda enda á kola- verkfalliö í Bretlandi, en þaö hefur nú staðið í sautján vikur og oft gengiö á meö handalögmálum. Arthur Sargill, leiðtogi námumanna, sagði í gærkvöldi aö stéttarsamtökin hefðu fallist á nýjar viðræður við kola- ráð ríkisins varöandi fyrirætlanirnar um lokun allmargra náma. Þessi tilkynning berst í sömu mund og námumenn og flutningabílstjórar eru famir að herða aðgerðir sinar gegn Air Florída gjaldþrota Bandaríska flugféiagið Air Florída var lýst gjaldþrota í gær, og hefur öllu starfsfólki fyrirtækisins verið sagt upp að æðstu stjómendum þess undan- skildum. Mörg hundruð farþegar, sem keypt höföu farmiöa hjá flugfélaginu, töfðust við þetta í gær en önnur bandarísk flugfélög tóku síðan við þeim. Air Florida hefur tapað um 140 milljónum dollara á síðustu þremur árum. Hefur flugvélum fyrirtækisins fækkaö úr 28 í 11 á þeim tíma og starfs- fólkinu hefur einnig verið fækkaö úr 1.800 í 1.200. Forráðamenn Air Florida sögöu í gær að nú yrði athugað hvort einhverj- ir hefðu áhuga á að leggja fram aukið Umsjón: Guðmundur Pétursson hlutafé í fyrirtækiö þannig að koma mætti rekstrinum í gang á nýjan leik. breskum stáliöjuvemm. Framhjá verkfallsvörðum þeirra hafa þó slopp- iö mikilvægir flutningar kola og járn- grýtis til iöjuveranna. Fáir spá þó því að verkfallinu muni ljúka alveg á næstunni en það hefur verið eitt af því róstursamasta sem efnt hefur verið til á Bretlandseyjum. Nær 4000 námumenn hafa verið hand- teknir fyrir harða framgöngu í verk- fallsvörslu. Hefur oftsinnis slegið í brýnu milli lögreglu og verkfalls- manna. Stan Orme, aöaltalsmaður Verka- mannaflokksins í stjómarandstööunni varðandi orkumál, hefur verið í stööugum viðræðum síðustu tvær vikur við deiluaöila og þakkaði sér í gær- kvöldi að tekist hefði að ýta aðilum að samningaborðinu á nýjan leik. Arthur Scargill, leiðtogl kolanámumanna, studdur af iögreglu burt eftir einar róstumar sem mjög hafa sett svip á verkfallið. P-2 leynifélagid til umræðu í þinginu í Róm Pietro Longo, fjármálaráöherra Italíu, sem hefur í þingskýrslu verið bendlaður við hið ólöglega leyni- félag P-2, segist munu bíða með við- brögð sín gagnvart þessum að- dróttunum þar til þingið hefur síðar í Einn ráðherra orðaður við félagið þessum mánuði lokið umræðum um skýrsluna. Fyrir tveim mánuðum bauðst Longo til þess að segja af sér í mótmælaskyni við staðfestingu formanns rannsóknar- nefndar þingslns á leynihreyfingunni á nafnalista manna sem hefðu verið meðlimir leynistúkunnar, en þar var Longo á meðaL Á þingfundi í gær var enn áréttað að nafnalistinn væri réttur en Longo harð- neitar að hafa tilheyrt leynifélaginu Tilhandhafa gjafabréfa Nú er komið að síðasta gjalddaga gjafabréfa SÁÁ, sem seld voru tii aðfjármagna byggingaframkvæmdir við sjúkrastöðina Vog. Um leið og við minnum handhafa gjafabréfanna á lokaátakið, viljum við þakka þeim svo og öðrum velunnurum SÁÁ, sem lagt hafa sitt af mörkum til að sjúkrastöðin Vogur yrði að veruleika. Dregið verður úr númerum allra gjafabréfanna 5. júlí. Gera má skil hjá öllum bankastofnunum og á skrífstofu SÁÁ. Stjórn SÁÁ sem hefur verið lýst sem „ríki í ríkinu”. Orðrómur um að áhrifamenn í stjórnmálum, kaupsýslu og hernum væru félagar í leyniklíkunni urðu ríkis- stjóm Arnoldo Forlani að falli fyrir þremárum. Heyrst hefur að ýmsir frammá- manna sósialdemókrataflokksins vilja að Longo víki úr samsteypu- stjóminni vegna P-2 málsins til þess að firra stjórnina vandræðum. Egyptar opna sendiráð íMoskvuaftur Egyptar hafa ákveðið að opna sendiráö sitt í Moskvu á nýjan leik. Egyptar ráku sendiherra Sovétmanna í Kairó úr landi árið 1981 og sökuðu hann um að stofna friöi innanlands í hættu. Auk þess kölluðu þeir sendi- herra sinn í Moskvu heim og hafa þeir ekki átt fulltrúa þar síöan. Þetta hefur ekki fengist staðfest af ríkisstjóm landsins en háttsettir heimildarmenn í utanríkisráðuneytinu herma að einn af yfirmönnum ráðuneytisins, Salah Basyouni, muni fara til Moskvu í ágúst og starfa sem sendiherra þar. Sömu heimildir hermdu að Egyptar tækju áhættuna af óánægju Banda- ríkjamanna með þessa ákvörðun. Egyptaland nýtur mikils hernaðar- stuðnings frá Bandaríkjamönnum og er áætlað að þeir fái rúma tvo milljaröa dollara á ári og fær aöeins Israel hærri styrki frá Banda- ríkjunum. Urval KJÖRINN FÉLAGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.