Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1984, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR 6. JULI1984.
21
Hvað er á seyði um helgina
Hvað er á seyði um helgina
mgholtskirkja, en hún verður vigð 16. septembernk.
Síðasta
messan
í salnum
Ásunnudaginn kemur,8. júlí kl. 11,
verður merk stund þeim er Lang-
holtskirkju í Reykjavík unna því að
þá hefst síðasta guðþjónusta í þeim
sal, sem notaöur hefur verið til helgi-
halds safnaðarins frá aöfangadegi
1961. Vissulega þáttaskil í sögu safn-
aðarins, því aö næst þegar hringt
verður til tíða, 16. sept. kl. 5, þá verð-
ur það til vígsluathafnar Langholts-
kirkju.
Því vekjum við athygli á þessu að
margur er sá sem hefir átt helgar
stundir i salnum undir upplýstum
krossi, kropið þar með gleði sinni og
tárum, meira að segja barist þar til
nýs lífs og má þvi ætla að þakkláta
fýsi að eiga með okkur þá stund er
krossinn verður siðast tendraður í
salnum.
Sá er predikaði þar fyrst, séra Are-
líus Níelsson, flytur ræðuna, en aðra
þjónustu annast starfslið safnaðar-
ins.
anka
Langanesganga’84
—gegn hernaði—fyrir f riði
'SgaH
Merki
göngunnar.
Friðargangan gegn fyrirhuguðum
hemaðarframkvæmdum á Norð-
austurlandi hefst 7. júli kl. 14,
við flugvöllinn á Langanesi. Þar flyt-
ur Dagný Marinósdóttir, húsfreyja á
Sauöanesi, ávarp. Gengið verður að
Gunnlaugsá þar sem haldinn verður
stuttur fundur og bomar fram kaffi-
veitingar. Þá heldur gangan áfram
inn á Þórshöfn og staðnæmist við
félagsheimilið Þórsver þar sem aðal-
samkoma dagsins fer fram.
Meðal þeirra sem koma fram
verða:
Bergþóra Árnadóttir frá
Reykjavík — söngur. Stefanía Þor-
grimsdóttir frá Garði, Mývatnssveit
— ræða. Kristján Þórarinsson frá
Tjörn í Svarfaðardal — söngur.
Brynjólfur Gislason kennari Þórs-
höfn — upplestur.
Fulltrúar Austfirðinga og
Vestfirðinga flytja ávörp.
Skemmtistaðir
úr brýnni þörf, auk þess sera turninn kemur
til með að setja mikinn svip á kirkju og um-
hverfi. Hann er teiknaður, eins og kirkjan var
á sinum tíma, af Helga Hjálmarssyni arki-
tekt.
Happdrætti
Kvenfélags
Þorlákshafnar
Dregið hefur verið í happdrætti Kvenfélags
Þorlákshaf nar, og féllu vinningar þannig:
1. Sólarlandaferð m/Otsýn að verðm. 15.000,-
nr. 2744, 2. Málverk eftir Sigurð Kristjáns-
son, að verðm. 15.000, nr. 236. 3. Uttekt hjá
Kaupfélagi Árnesinga að verðm. 6.000,- nr.
2012. Ottekt hjá Versluninni Hildi Þorí., aö
verðm. 5.000, nr. 101. 5. Ottekt hjá Bóka- og
gjafab. Þorl. að verðm. kr. 4.000, nr. 1543. 6.
Ottekt hjá Versl. Inga Þorl. að verðmaeti
4.000,- nr. 2155. 7. Myndavél frá Skálanum
Þorl. að verðm. 4.000,- nr. 1907. 8. Ferð
m/HerjóIfi til og frá Vm. f. 2 aðverðm. 1.400,-
nr. 330. 9. Hátíðamatur í Messanum Þorl. f. 2
að verðmæti 1.000,-nr. 2231.
Vinningshafar hafi samband í síma 3767 og
3837.
fe-'-sfeísaSÍýli.
„Umhverfið okkar"
2. ferð. Náttúruskoðunar- og söguferð um
Mosfellssveit.
NVSV, Náttúruvemdarfélag Suðvestur-
lands, fer náttúruskoðunar- og söguferð um
Mosfellssveit laugardaginn 7. júli kl. 13.50 frá
Varmárskóla í Mosfellssveit (hægt verður að
fara í rútuna við Norræna húsið kl. 13.30 og
fara þangað að ferð lokinni). Áætlað er að
ferðinni ljúki kl. 18.00—19.00. Fargjald er 200
kr., frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Allir
eru velkomnir.
Farið verður frá Varmárskóla yfir í Mos-
fellsdal, Helgadal að Leirvogsvatni (Svana-
vatni), þarsnúið við og farið gegnum Reykja-
hverfi. Síðan ekið með Hafrahlíð yfir á Suður-
landsbraut upp Sandskeið. Til baka sömu leið
að Skyggni. Þaðan farið sunnan Olfarsfells aö
Varmárskóla. Að lokum ekið til Norræna
hússinsí Reykjavík.
Leiðsögumenn verða: Ingvar Birgir
Friðleifsson jarðfræðingur sem ræðir um
jarðfræði svæöisins og beislun varmaork-
unnar. Gísli Már Gislason liff ræðingur kynnir
okkur plöntu- og dýrarikið almennt, en tekur
sérstaklega fyrir lífríki Varmárinnar. Ölafur
Dýrmundsson landnýtingarráöunautur sýnir
okkur mismunandi aöferðir við uppgræðslu
lands. Með í ferðinni verða fróðir menn um
sögu og örnefni svæðisins, m.a. vemr sagt frá
merkum rústum við Blikastaðatá. Auk þess
fáum við gesti til okkar í bílinn. Við lítum á
umhverfi fyrirtækis þar sem öll umgengni er
til fyrirmyndar. Síðan ökum við í gegnum
svæði annars fyrirtækis þar sem í undirbún-
ingi er merkilegt framtak starfsmanna og
fyrirtækis að sameinast um að bæta og fegra
umhverfiö utan húss og innan.
Mosfellssveit er með ungan byggöarkjarna
sem er í mjög örum vexti. Margt hefur verið
þar gert en margt er ógert. Náttúrufræðisafn
er ekki komið upp og ekki heldur byggðasafn.
Sérstök samtök áhugamanna um umhverfis-
mál á svæðinu eru ekki starfandi. En ný-
stofnaö Sögufélag Kjalarnessþings er þegar
orðið virkt, ýmis önnur félagsstarfsemi er
f jölbreytt og þróttmikil.
Náttúrufegurð í Mosfellssveit er mikil og er
Mosfellingum vandi á höndum að viðhalda
henni með aukinni byggð og auknum umsvif-
um athafnalífsins. Við vonum að okkur takist
að vekja athygli Mosfellinga og annarra á
einhverju í umhverfi svæðisins sem þeir hafa
ekki veitt eftirtekt áður, þá er tilgangi ferðar-
innarnáð.
Abyrgðarmenn/ Einar Egilsson, sími 40763,
Grimur Norðdahl simi 666057.
kenna á íslenskan vikivaka í forstofunni.
Meðal einsöngvara sem fram koma í kvöld
eru Ölöf Kolbrún Harðardóttir og Garðar
Cortes. Hann er einnig stjórnandi en undir-
leikari er Þóra Fríöa Sæmundsdóttir. Allir
listamennimir sem taka þátt i þessari dag-
skrá gefa vinnu sina en ágóði rennur til
styrktar lslensku óperunni. Fyrirhugað er að
hafa þetta sumarprógramm alla föstudaga til
24. ágúst.
. ST3A1KNAj/ /
K '4É
Broadway: Á fostudagskvöld skcmmtir HLH-
flokkurinn og dansflokkur Sóleyjar tekur
sporin, diskótek.
A laugardagskvöld verður diskótek og dans-
flokkur Sóleyjar sýnir.
Rokkhátíðin
á ferð um landið
Eins og margir muna var haldin Rokkhátíð á
Broadway í mars á síöasta ári — upp á von og
óvon. Viðtökumar uröu slíkar aö einsdæmi
má teljast. Nú eru 25 hljómleikar aö baki og
meira en 30.000 manns hafa verið viöstaddir.
Vegna fjölda áskorana hafa aöstandendur
Rokkhátíöarinnar því ákveðið aö fara í lands-
reisu í sumar. Með í feröinni veröa 3 tonn af
búnaöi: m.a. stærstu ljósa- og hljóökerfi
landsins. Þess má geta til gamans aö ljósa-
búnaöurinn er 30.000 vött og býr yfir
ótrúlegum möguleikum.
Áfangastaöir.
tþróttahúsið Selfossi sunnud. 1. júlí.
Samkomuhúsið Vestmannaeyjum föstud. og
laugard. 6. og 7. júlí + dansleikur.
Tjamarborg Olafsfiröi föstud. 13. júlí +
dansleikur.
Félagsheimiliö Blönduósi laugard. 14. júlí +
dansleikur.
Skemman Akureyri sunnud. 15. júlí.
Félagsheimilið Hnífsdal föstud. 20. júlí +
dansleikur.
Félagsheimiliö Patreksfiröi laugard. 21. júlí
+ dansleikur.
Röst Hellissandi sunnud. 22. júlí + dansleik-
ur.
Sindrabær Höfn Homafiröi, föstud. 27. júlí +
dansleikur.
Sumarprógramm
íslensku óperunnar
Islenska óperan hleypir nú af stokkunum
sumarprógrammi og verður það í fyrsta sinn í
kvöld kl. 21.00 í Gamla bíói. Dagskrá þessi,
sem jafnt er ætluð erlendum sem innlendum,
er fjölbreytt og skemmtileg. Á efnisskrá
verða íslensk kórlög og einsöngslög, svo og
þekkt atriði úr óperum og óperettum. I hléi
gefst gestum kostur á að taka sporið, því
íEyH >
Skátamót í Leynings-
hólum, Eyjafirði
Fimmtudagskvöldið 5. júh' fer bleikum
bjarma að slá yfir Leyningshóla fram í Eyja-
firöi. Þar verða á ferðinni fram til sunnudags-
ins 8. júlí fjöldi bleikra skáta. Mottó mótsins
verður, ,bleika stjarnan í norðri”.
Þátttakendur verða á nokkrum misbleikum
svæðum. Flestir verða á aldrinum 11—15 ára
og verða í aðalbúðum. Dróttskátar verða sett-
ir í þrælabúðir miklar en fjölskyldur skáta og
aðrir velunnarar verða látin óáreitt í fjöl-
skyldubúðum.
Dagskrá verður mikil og fjölbreytt. Þar
sem veðrið verður sérstaklega gott allan
tímann eru allir til í aö fara í vatnasafarí. Þaö
verður líka hægt að f ara í þrautabraut, læra á
áttavita, heimsækja radio-skáta, fara í hike-
ferð og ótal margt fleira. Dagana endum við
svo að sjálfsögðu við varðeldinn.
Litur mótsins verður sem sagt bleikur og
viljum við ítreka það að allir Leyningshóla-
farar hafi bleiku hárkollumar til taks. Það
þarf vonandi ekki að taka það fram að ALLIR
eru hjartanlega velkomnir; eitt sinn skáti
ÁVAI.I.T skáti! Ef þú hefur áhuga á að taka
þátt í skátamóti í Leyningshólum, Eyjafirði,
dagana 5.-8. júli næstkomandi en vilt fá
nánari upplýsingar þá er þér velkomið að slá
á þráðinn til Guðnýjar, s. 96-21132, Ingu, s. 96-
21049, eða Birgis, s. 96-23210.
Golfmót
lögreglumanna
Landsmót lögreglumanna — IPA mótið — i
golfi fer fram á Hamarsvelli í Borgamesi
sunnudaginn 8. júlí nk. og veröur byrjað aö
ræsa út kl. 10.00. Þátttökutilkynningar þurfa
að berast til Helga Daníelssonar cða Ragnars
Vignis hjá RLR, s: 44000, lí síðasta lagiföstu-
daginn6. júlí.
JC-félagar í Húsafelli
JC-félögin á Reykjavikursvæðinu fara í sína
árlegu sumarferð um næstu helgi, dagana
6.-8. júli. Að þessu sinni verður farið í Húsa-
fell. Lagt verður af stað frá Ártúnshöfða kl.
19.00 á föstudagskvöld. Dagskráin í Húsafelli
verður fjölbreytt og nær hámarki með grill-
veislu á laugardagskvöld. Farið verður heim
ásunnudag. Allir JC-félagarvelkomnir.
Happdrætti
Dregið hefur verið í Happdrætti Hún-
vetningafélagsins í Reykjavík.
Vinningar komu á eftirtalda miða:
Nr. 6000 Veiðileyfi í Miðfjarðará 11.—
14. ágúst 1984, 1 stöng í 3 daga ásamt
fæði og húsnæði.
Nr. 3231 Veiðileyfi í Vatnsdalsá 28,—
31. ágúst 1984, 1 stöng í þrjá daga
ásamt fæði og húsnæði.
Nr. 5252 Veiðileyfi í Víðidalsá 6.-8.
sept. 1984, 1 stöng i tvo daga ásamt
fæði og húsnæði.
Nr. 2218 Vöruúttekt hjá JL byggingar-
vörumkr. 10.000.
Nr. 2217 Vöruúttekt hjá JL byggingar-
vörumkr. 10.000.
Nr. 2825 vöruúttekt eftir vali kr. 5.000.
Nr. 0760 vöruúttekt eftir vali kr. 5.000.
Nr. 0350 grafíkmynd eftir Lísu
Guðjónsd.
Nr. 0499 grafíkmynd eftir Lísu
Guðjónsd.
Upplýsingar gefnar i símum 19863 og 21959.
Vinninga sé vitjað fyrir 1. ágúst 1984.
„Sumarógleðin 84" í
skemmtistaðnum Best
Þann 7. júlí nk. verður rokkhátiðin ,3umar-
ógleðin 84” haldin i skemmtistaðnum Best,
Smiðjuvegi 1 í Kópavogi. Þrjár efnilegustu
unglingahljómsveitir Kópavogs koma fram á
hátíðinni. Hljómsveitimar heita: Band Nú-
tímans, Rude Boys og Þarmagustar og munu
þær halda uppi spilverki frá kl 9 umrætt
kvöld fram á nótt en að loknum tónleikunum
verður slegið upp diskóteki til kL 3. Tónleikar
þessir eru haldnir á vegum ferðaklúbba ungl-
ingamiðstöðvarinnar Agnaragnar í Kópavogi
sem leggja megináherslu á vetrarferðir.
*L
.'rv
HOLLYWOOD: Diskótek á tveim hæöum á
föstudags- og laugardagskvöld. HLH-flokkur-
inn skemmtir á sunnudagskvöld.
ÁRTÚN: Gömlu dansarnir föstudags- og
laugardagskvöld. Hljómsveitin Drekar leika.
HÓTEL SAGA: Hljómsveit Magnúsar Kjart-
anssonar leikur fyrir dansi á föstudags- og
laugardagskvöld ásamt diskóteki sem Gísli
Sveinn Loftsson sér um.
HÓTEL BORG: Á sunnudagskvöld veröa
gömlu dansamir á Hótel Borg og hljómsveit
Jóns Sigurössonar leikur fyrir dansi.
ÞÓRSKAFFI: A föstudags- og laugardags-
kvöld leikur hljómsveitin Goögá fyrir dansi.
GLÆSIBÆR: Um helgina leikur hljómsveitin
Glæsir fyrir dansi. Athugiö aö nýja ölver
veröuropiö.
LEIKHÚSK JALLARINN: Föstudags- og
laugardagskvöld diskótek ásamt matseöli.