Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1984, Qupperneq 3
19
Messur
ASKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Ami
Bergur Sígurbjömsson.
BÚSTAi)AKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 10.00.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir,
organleikari Oddný Þorsteinsdóttir. Sóknar-
nefndin.
DOMKIRKJAN: Kl. 11.00 messa við upphaf
menningarráðstefnu heimssamtaka I.O.G.T.
Sigurbjöm Einarsson, fyrrverandi biskup Is-
iands, prédikar. Sr. Hjalti Guðmundsson
þjónar fyrir altari. Kl. 17.00 leikur dómorgan-
istinn á orgel kirkjunnar í 3 stundarfjórðunga.
Aðgangurókeypis.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjónusta kl.
10.00. Magnús Gunnarsson guðfræðinemi pré-
dikar.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kL 11.00. Oigan-
leikari Olafur W. Finnsson. Sr. Karl Sigur-
bjömsson. Fyrirbænaguðsþjónusta á þriðju-
dag kl. 10.30. Náttsöngur miðvikudagskvöld
kl. 22.00. Guðrún Birgisdóttir og Martial
Marcieau leika saman á flautur.
LANDSPITALINN: Guðsþjónusta kl. 10.00.
Sr. Karl Sigurbjömsson.
HATEIGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Bragi Skúlason messar. Sóknarnefndin.
KOPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Þorbergur Kristjánsson.
LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardagur:
Guðsþjónusta Hátúni 10B, 9. hæð, kL 11.00.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Fenndir verða
Stefán og James Winter frá Houston i Texas
(hér: Hringbraut 91, Reykjavik). Organleik-
ari og kórstj. Reynir Jónasson. Miðvikudag-
ur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmund-
urOskarOlafsson.
SELJASOKN: Guðsþjónusta i í Olduselsskól-
anum kl. 11.00. Fimmtudagur 26. ágúst: Fyr-
irbænasamvera Tindaseli 3 kl. 20.30. Sóknar-
prestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Laugardagur, kvöld-
vaka kl. 20.30, náttsöngur. Sunnudagur, guðs-
þjónusta kL 14.00.
Séra Heimir Steinsson.
Sýningar
GALLERt DJUPIÐ: Olafur Sveinsson mynd-
listarmaður sýnir þar verk sin. Verkin em 15,
ýmist unnin með vatnslitum, pastel eða vax-
litum.
NATTURUFRÆÐISTOFA KOPAVOGS erop-
in á miðvikudögum og iaugardögum frá ki.
13.30-16.00.
HORNIÐ HAFNARSTRÆTI: I sýningarsal
veitingastaðarins Homsins sýnir Olafur
Sveinsson 15 vatnslita- og pastelmyndir og
em þær allar til sölu á viðráðanlegu verði.
Sýningin verður opin til 5. ágúst.
ASMUNDARSAFN VIÐ SIGTON: Þar stend-
ur yfir sýning sem nefnist „Vinnan i list As-
mundar Sveinssonar”. Sýningm er opin dag-
legakl. 10-17.
SUMARSVNINGIASGRÍMSSAFNI: Oliu-og
vatnslitamyndir, þ. á m. nokkur stór oliumál-
verk frá Húsafelli. Þá má nefna oliumálverk
frá Vestmannaeyjum frá árinu 1903 sem er
eitt af elstu verkum safnsins.
Sumarsýningar Asgrimssafns em jafnan fjöl-
sóttar af ferðafólki. Asgrímssafn, Bergstaða-
stræti 74, verður opið daglega kl. 13.30—16.00
nema laugardaga i júni, júli og ágúst. Að-
gangur er ókeypis.
LISTASAFN EINARS JÚNSSONAR: Lista-
safn Einars Jónsson er opið daglega, nema á
mánudögum, frá kl. 13—16, en höggmynda-
garðurinn er opinn daglega frá kl. 10—18.
KJARVALSSTAÐIR: 10 gestir Listahátíðar.
Erró, Hreinn Friðfinnsson, Jóhann Eyfells,
Kristín Eyfells, Kristján Guðmundsson,
Louisa Matthiasdóttir, Sigurður Guðmunds-
son, Steinunn Bjamadóttir, Tryggvi Olafsson
og Þórður Ben Sveinsson. Opið kl. 14—22.
Graffk í Hérafls-
bókasafni Kjósarsýslu
Lísa K. Guðjónsdóttir hefur opnað grafíksýn-
ingu i Bókasafni Mosfellssveitar, Markhoiti 2.
Sýningin stendur til 10. ágúst og er opin alla
virka daga kL 13—20.
Sýning frá Færeyjum í
Árbæjarsafni
Arbæjarsafn er opið alla daga nema mánu-
daga frákl. 1330—18.1 Eimreiðarskemmunni
er sýning frá Færeyjum sem f jaUar um lff og
störf fólksins þar 1920—1940. GuUborinn verð-
ur Ul sýnis bæði laugardag og sunnudag.
Kaff iveitingar em í Dillonshúsi.
Hálf rar aldar vígsluaf mælis
Dagverðarneskirkju minnst
Sunnudaginn 22. júlí nk. verður
minnst 50 ára afmælis Dagverðarnes-
kirkju í Dalasýslu, en hún var vígð 22.
júli 1934, og af þessu tilefni fer fram
hátiðarguðsþjónusta í kirkjunni kL 2
e.h.
Þar mun sr. Þórir Stephensen dóm-
kirkjuprestur prédika, en hann þjónaði
kirkjunni áður um sex ára skeið, en
sóknarpresturinn, sr. Ingiberg J.
Hannesson, prófastur á Hvoli, flytur
ávarp og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Gisla H. Kolbeins í Stykkishólmi og sr.
Friðrik J. Hjartar í Búðardal.
Dagverðameskirkja stendur á eyði-
jörð og vegarsamband þangað er ekki
upp á það besta, en þó er þokkalegt að
komast leiðar sinnar þegar þurrast er
og best að sumarlagi. Kirkjan var
staðsett í Dagverðamesi á sínum tíma
meðan nærliggjandi eyjar vora i
byggð, en nú er öldin önnur, og kirkjan
því orðin nokkuð úr leið fyrir sóknar-
fólk til reglulegra nota, enda sóknin fá
menn orðin.
Grafíksýning í
Nýlistasafninu
I dag, 20. júlí, verður opnuð sýning
á grafíkmyndum i Nýlistasafninu,
Vatnsstig 3b. Myndirnar eru eftir
Kees Visser, Tuma Magnússon,
Kristján Steingrím, Harald Inga
Haraldsson, Pétur Magnússon,
Ingólf Amarson, Helga Þorgils Frið-
jónsson, Sólveigu Aðalsteinsdóttur,
Arna Ingólfsson og fleiri.
Sýningin stendur til 29. júlí.
Nýlistasafnið er opið virka daga frá
kl. 16 til 20 og um helgar frá kl. 14 til
20.
í
Eitt verka Tuma Magnússonar, en
hann er meðal þeirra sem sýna i
Nýlistasafninu.
Hallbjörn Hjartarson fyrir framan Kántríbæinn sinn á Skagaströnd.
KÁNTRÍHÁTÍÐ Á
SKAGASTRÖND
„Það verður sannkölluð kántrí-
hátíð hér á Skagaströnd um helg-
ina,” sagði Hallbjörn Hjartarson,
kántrisöngvari frá Skagaströnd.
„Undirbúningur hefur staðið í tæpan
mánuð og hafa forráðamenn Stúdió
Bimbó á Akureyri aðstoðað mig við
undirbúninginn.”
Kántríhátíðm hefst strax á föstu-
dag kl. 14 þegar tjaldsvæðið verður
opnað en það er efst í bænum, i svo-
kallaðri Skeifu. KI. 20 verður bíó-
sýning í Fellsborg þar sem verður að
sjálfsögðu sýndur vestri. Opnunar-
hátíð hefst síðan kL 23 á tjaldsvæðinu
og þar mun Hallbjörn sjálfur opna
hátiðina Siðan syngja þeir Hallbjöm
og Johnny King frá Húsavík. Loks
verður slegið upp útidansleik, „ef
guð og veðrið lofa,” þar sem hljóm-
sveitin Gautar frá Siglufirði leikur
fyrir dansi. Þeir sem koma á föstu-
daginn þurfa að greiða 600 kr. i að-
gangseyri sem veitir þeim aðgang að
öQum skemmtunum á vegum kántrí-
hátíðarinnar. Þeir gestir sem koma
ekki fyrr en á laugardag þurfa hins
vegar að greiða 400 kr. í aðgangseyri
en þeir, sem og aðrir gestir, þurfa að
greiða sérstaklega inn á dansleik
sem verður í Fellsborg um kvöldið.
Frítt verður fyrir böm undir tólf ára
aldri.
Dagskrá laugardagsins hefst kl. 13
með hópreið hestamanna um tjald-
svæðið með HaHbjöm Hjartarson í
fararbroddi. Bílasýning hefst kl. 14
og em allir eigendur átta gata amer-
ískra tryllitækja hvattir til að mæta
á svæðið. Verðlaun munu verða veitt
fyrir fallegasta bilinn. I Fellsborg
verður sýndur vestri kl. 15 en kl. 17
hefst hestaiþróttamót þar sem keppt
verður m.a. i tunnukappreiðum
(boðreiðar) og rodeo. Aðalhátíð
helgarinnar verður síðan i Fellsborg
um kvöldið og hefst hún kl. 21. Þar
verður hæfileikakeppni þar sem allir
sem vilja geta komið fram. Hall-
bjöm og Johnny King taka nokkur
lög og loks mun Sigurður Halldórs-
son skemmta. Hljómsveitin Tyrol
frá Sauðárkróki leikur síðan fyrir
dansi.
Kántríhátíðinni lýkur á sunnudag,
eftir messu sem verður á tjaldsvæð-
inu, með því að Hallbjöm slítur
hátíðinni.
Þriðja Kántrýbæjarplata Hall-
bjöms kom nýlega út og mun hann
að sjálfsögðu leika lög af henni jafn-
framt því sem hann flytur gömlu
lögin sin. Að sögn hans er vitað um
fólk hvaðanæva af landinu sem ætlar
að koma á kántríhátíðina svo það
verður væntanlega margt um mann-
inná Skagaströndumhelgina. SJ
Sumargleðin 84 á Norfturlandi um helgina
Þorgeir Ástvaldsson
verður heiðursgestur
Sumargleðinnar
Sumargleðin 84, með þá Bessa
Bjarnason, Hermann Gunnarsson,
Magnús Olafsson og Omar Ragnars-
son innanborðs, ásamt Ragnari
Bjamasyni og hljómveit, verður í
Sjallanum i kvöld og annað kvöld.
Fjörið hefst með tveggja tíma
skemmtun kL 21 og síðan verður stig-
inn dans fram á rauða nótt.
A sunnudagskvöld verða þeir
sumargleðimenn á Arskógsströnd
með skemmtun og ball fram á nótt.
Um þessa helgi verður sérstakur
heiðursgestur Sumargleðinnar Þor-
geir Astvaldsson, forstöðumaður á
rás 2, en hann var hér áður, eins og
menn muna, einn af þeim sumar-
gleðimönnum.
Þorgeir Ástvaldsson veröur gestur
sumargleðimanna um helgina.
m.
Úr baðstofuatriði sýningar Lights Nights i Tjarnarbíói.
Light Nights í Tjarnarbíói
Nútíminn, baðstof-
an og víkingarnir
Ferðaleikhúsið var stofnað árið
1965 og var eingöngu sýnt fyrir Is-
lendinga fyrstu árin. Arið 1970 var
síöan farið út á þá braut að hafa
sýningar fyrir erlenda ferðamenn og
þá í formi kvöldvöku. Ferðaleikhúsið
starfar einnig undir nafninu „The
Summer Theatre”. Eigendur og
stofnendur þess eru þau Kristin G.
Magnús leikkona og Halldór Snorra-
son.
Nú í sumar verða sýningar Light
Nights með nokkuð breyttum hætti
frá því sem áður hefur verið. Nú er
sýningunni skipt í þrjú atríði. Byrjað
er á nútímanum, síðan farið yfir í
baðstofuna um aldamótin og sýnt
hvemig kvöldvökurnar fóm fram í
kringum aldamótin. Loks em svo
víkingar á dagskránni. Tónlist er
flutt af hljómplötum en einnig em
nokkur þjóðlög sungin á íslensku.
Um 100 skyggnur eru sýndar á
meðan á sýningunni stendur. Kristin
G. Magnús er sögumaður í sýning-
unni og flytur allt talað efni á ensku.
Sýningar Light Nights eru í Tjamar-
bíói og voru þær fyrstu um síöustu
helgi en starfstimi Light Nights er til
1. september. Sýningarnar hefjast
kl. 21 og er sýnt frá fimmtudegi til
sunnudags.