Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1984, Qupperneq 6
DV. FÖSTUDAGUR 20. JÚL! 1984.
22.
Hvaöerá seyði um helgina
Keflvíkíngar sigruðu Skagamenn, 2— 1, uppi 6 Skaga. Á myndinni er
boitinn imarki Kefivikinga, en þessi iið eigast við / Kefiavik á sunnudag.
1. og 2. deildar
leikir helgarinnar
Enginn leikilr er í fyrstu deild Is-
landsmótsins í knattspyrnu í kvöld.
Hins vegar er einn leikur í annarri
deild á Húsavík en þar munu Víðis-
menn etja kappi við Völsung og
hefst leikurinn kl. 20.00.
Einn leikur verður í fyrstu deild
á laugardag, þá leika Reykjavíkur-
liðin KR og Valur á Laugardals-
velli og hefst viðureign þeirra kl.
14.00. Og verður seinni hálfleik
leiksins lýst í útvarpi. I annarri
deild verða þrír leikir á laugardag.
Einherji og Skallagrímur eigast
við á Vopnafjarðarvelli, á Kapla-
krika leika FH og IBV og á Siglu-
fjarðarvelli leika heimamenn við
IBV. Þessir leikir hefjast allir kl.
14.00.
1 Keflavík leika heimamenn gegn
Skaganum, en sá leikur átti
upphaflega að vera á laugardag.
Á sunnudag fára Þróttarar úr
Reykjavík norður og leika gegn
Þór á Akureyrarvelli í fyrstu deild
en KA-menn fara suður og leika
gegn Víkingi á Laugardalsvelli.
Báðir leikimir hefjast kl. 20.00. 1
annarri deild er aðeins einn leikur
á sunnudag sem hefst kL 14.00 á
Njarðvíkurvelli þar sem Njarðvik
og Tindastóll leika.
1 fyrstu deild kvenna B verða
tveir leikir á sunnudag. Þá leika
Þór og Höttur á Þórevelli og á KA-
velli leika KA og Súlan. Kvenna-
leikimir byr ja báðir kl. 14.00. SJ
Sigurbjörn Bárðarson á Torfa á
Murneyrum i fyrra.
DV mynd E.J.
Hestaþing á
Murneyrum
Hestamannafélögin Sleipnir og
Smári halda svokallað hestaþing á
Murneyrum nú um helgina og
stendur þingið frá laugardags-
morgni til sunnudagsk völds.
Keppnisgreinar eru í A og B
flokki gæðinga, einnig verður ungl-
ingakeppni 13-15 ára og 12 ára og
yngri. Keppt verður í 150 og 250 m
skeiði og 250,350 og 800 m stökki.
Golf:
Tvö opin
mót
Tvö opin golfmót verða um helg-
ina, eitt á Akureyri en hitt i Hafnar-
firði. Það er Golfklúbbur Akureyr-
ar sem stendur fyrir opnu stiga-
móti sem stendur bæði á laugardag
og sunnudag.
Toyota Open verður í Hafnarfirði
á vegum Golfklúbbsins Keilis en
þetta er opin flokkakeppni og er
keppt í sex flokkum. Byrjað verður
að ræsa út kL 8.30, bæði á laugar-
dag og sunnudag. Það er Toyota-
umboðið á Islandi sem gefur öll
verðlaunin.
Á HUMAR MEÐ EMMU
Guðmundur Ingason, líffræðingur og deildarstjóri
hjá framleiðslueftiriiti sjávarafurða, segir frá túr
með Emmu VE 219 frá Vestmannaeyjum.
FRÁ HRAUNEYJAFOSSVIRKJUN
til Mukalla - Heimsókn í Stúdentaleikhúsið -
Kuklið á Rokkspildu - Sælkeri - Breiðslða - Á
laugardegi - Táknmál bílstjórans - Kvikmyndir
- Helgarpopp og fleira og fleira.
TVÖ BLÖÐ
ÁMORGUN
Guðmundur jaki,
heiður Bjarnfreðsdótt-
ir, Ásmundur Stefáns-
son, Hjálmar H. Ragn-
arsson, Magnús Gunn-
arsson, Magnús L
Sveinsson, Ragnar
Halidórsson og Herte
Andersen beðin um að
spreyta sig á hvað
nokkrar vörur kosta.
Tilkynningar
NVSV ferð á laugardag.
Söguferð um Gerðahrepp
Náttúruvemdarfélag Suövesturlands fer i
náttúruskoöunar- og söguferö um Geröa-
hrepp (Garðinn og Leiruna) laugardaginn
3. júlí. Fariö veröur frá Norræna húsinu kl.
13.30 og kl. 14.45 frá Garðvangi, dvalar-
heimili aldraöra í Garðinum. Aætlaö er að
ferðinni ljúki viö dvalarheimiiið kl. 18-19. Tfl
Reykjavíkur verður komið milli kL 19 og 20.
Fargjald er 200 kr. en frítt fyrir böm í fylgd
fullorðinna. AUir eru velkomnir. Leiösögu-
menn verða Þördis Olafsdóttir jarð-
fræðingur sem fjaUar um jarðfræði svæði-
sins og Ingibjörg Svala Jónsdóttir Uf-
fræðingur sem ræðir um gróðurfarið. Sögu-
og örnefnafróðir menn verða með i ferðinni.
Rokkhátíðin
Rokkhátíðin á ferð um landið.
Um helgina mun Rokkhátiðin skemmta í
Félagsheimilinu Hnifsdal á föstudagskvöld,
Félagsheimflinu Patreksfirði laugardags-
kvöld og Röst, HeUissandi, á sunnudags-
kvöld.
Tímaritið
Eiðfaxi
(Jterkomlð timarttið Eiðf axi, 7. tbl. 1984.
Þar er meðal annars að finna greinar um
reiðkennaraskóla Islands, um hestanöfn, rætt
við Svein Runólfsson landgræðslustjóra, knú-
ið dyra á Skarði í Landsveit og margt fleira.
Ferð safnaðar Áskirkju vest-
ur á Snæfellsnes 28.-29. júlí
Laugardaginn 28. júU verður safnaðarferð á
vegum AsprestakaUs vestur á Snæfellsnes.
Lagt verður af stað frá Askirkju við Vestur-
brún kl. 10 og ekið vestur undir Jökul þar sem
víða verður komið við á athyglisverðum slóð-
um. Aðfaranótt sunnudags verður gist i
Grunnskólanum í Olaf svík.
Eftir meæu i (Mafsvikurkirkju, sem verður
kL 11 á sunnudagsmorgnínum, verða merkis-
staðir utan Olafsvikurennis skoðaðir og síðan
haldið suður á bóginn á ný og komið til
Reykjavíkur um kvöldið.
Þátttakendur eru beðnir að hafa með sér
nesti, svefnpoka og vindsæng og áríðandi er
að þeir tflkynni þátttöku sína í síma 685377 eða
hjá Þuríði, síma 81742, og sóknarpresti, sima
33944 og 84035, fyrír 25. júlí og veita þau allar
nánari upplýsíngar.
Safnaðarstjóm.
□ Á METHRAÐA
□ MEÐ MINNI
□ TILK0STNAÐI
□ -0KKARLEIÐ
□ TILAUKINNA
□ UMSVIFA!
STENSILL
NÚATÚN117 SÍMI 24250
Handknattleikssamband ís-
lands hefur gefið út tímaritið
Spéspegilinn
Hér er á ferðinni mjög vandað blað með fjöl-
breyttu úrvali brandara og skemmtisagna.
Auk þess er birtur listi yfir alla ólympíuþátt-
takendur Islands úr öllum íþróttagreinum og
dagskrá yfir keppni Islendinga á OL.
Fengnir hafa veríð valinkunnir menn til að
reyta af sér brandara og eru brandarar
þeirra birtir undir mynd'af þeim. Má þar
nefna landskunna menn eins og t.d. Hermann
Gunnarsson og Sigurð Sigurjónsson leikara.
SpéspegiUinn er mjög skemmtileg og góð
lestrarafþreying og sjálfsagður í sumarleyf-
ið.
Næstu helgar munu söluböm ganga í hús og
bjóða blaðið til kaups. Það kostar kr. 85. AUur
ágóði af sölu blaðsins rennur tfl HSI tfl að
standa straum af kostnaði vegna þátttöku
landsliðsins á OL í Los Angeles.
Efnt verður fil keppni meðal sölubama og
fær sá söluhæsti í 1. töm faflegt reiðhjól frá
Fálkanum í verölaun og i næstu tömum verða
einnig veitt vegleg verðlaun til þeirra sölu-
hæstu. Auk þess fá 10 söluhæstu bömin frí-
miða á næsta landsleik Islendinga í hand-
knattleik hérlendis.
HSI skorar á Reykvíkinga að taka vel á
móti sölubörnum og Spéspeglinum. Margt
smátt gerir eitt stórt
BÓKAVARÐAN
— CAMIAA B/LKI. K tXi NYMH-
HvERFISGOTU 52 REYKJAvlK SÍMI2972C
ÍSLAND
Bóksökiskrá Bókavörðunnar
DV hefur borist 28. bóksöluskrá Bókavörð-
unnar, versiunar í Reykjavík með nýlegar og
gamlar bækur.
Að vanda er efní skrárinnar skipt í flokka, að
þessu sinni íslensk og norræn fræði, islenskar
ævisögur, sjóferðasögur, islenskar og erlend-
ar skáldsögur og smásögur, ástar- og spennu-
sögur, gamlir reyfarar, grafskriftir og erfi-
ljóð auk blöndu nýkominna ríta og bóka í
öllum greinum fræða og vísinda.
1 þessarí skrá em mörg hundmð bækur sem
aðeins kosta 20—200 kr. en einnig allmargar
sem fágætar eru og dýrar. M.a. eru margar af
frumútgáfum Halldórs Laxness, td. Bam
náttúrunnar, pr. 1919, þá má nefna tímarit
Jóns Péturssonar háyfirdómara, Rvík 1869—
1873, elzta ættfræðírit prentaö, utan Feðga-
æva Boga Benedictssonar. Einnig eru hér
ýmis rit eftir Jón forseta Sigurðsson i frumút-
gáfum, en einnig má nefna frumútgáfu eftir
N. Lenin, öðra nafni VJ. Uflanov, prentuð i
London 1919.
Alls em í bóksöluskránni 1724 bækur og rit og
er skráin sendi ókeypis til aflra sem óska utan
Stór-Reykjavíkursvæðisins en borgarbúar
geta vitjað hennar í versluninni að Hverfis-
götu52.
Happdrætti
Dregið í almanakshapp-
drætti Landssamtakama
Þroskahjálpar
Dregið hefur verið i almanakshappdrætti
Landssamtakanna Þroskahjálpar fyrír júlí.
Upp kom númeríð 81526.
Osóttir vinningar á árinu em: Nr. 756,
18590,31232,47949,53846 og 67209.
HVIH POSTULIN
FALLEGT F0RM
12 m matarstell kr. 3.580
12 m kaffistell kr. 1.820,-
SENDUM í PÓSTKRÖFU
BÚSÁHÚLD 0G GJAFAVÖRUR
Glæsibæ, simi 686440