Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1984, Page 5
1*31 DV. FÖSTUDAGUR9. NÖVEMBER1984. 21 Hvað er á seyði um helgina Silkiþrykktar leirmyndir — til sýnis og sölu í Listamiðstöðinni Laugardaginn 10. nóv. nk. kl. 15 apnar Guöni Erlendsson sýningu á verkum sínum í Listamiðstöðinni viö Lækjartorg. Sýninguna kallar Guðni Lelrmyndir en 30—40 verk verða ó sýn- ingunni og er sýningin sölusýning. Vinnsla verkanna er með nokkuð óvenjulegum hætti eða eins og lista- maðurinn orðaði það „silkiþrykktar leirmyndir”. Guöni fæddist 29.8. áriö 1950 í Stokkhólmi, Svíþjóð. Hann var eigandi leirkerasmiöjunnar Eldstó við Mikla- torg og rak það fyrirtæki um 5 ára skeiö, 1975-80. Gjafaverslunina Nr. I í Aðalstræti rak Guöni ásamt eiginkonu sinni um árabil og þar var framleiösla Guöna m.a.tilsölu. Síðar stofnsetti Guðni og rak hinn vinsæla matstað Hornið i Hafnarstræti um 3 ára skeið ásamt Gaileríinu Djúplð sem flest áhugafólk um mynd- list og jass kannast vel viö. Fyrir u.þ.b. 2 árum ákvað Guðni að snúa sér alfarið aö listsköpun og seldi hann því fyrirtæki sín, kom sér upp vinnustofu þar sem hann hefur unniö að þessari sýningu sem jafnframt er fyrsta einkasýning hans. Sýningin stendur yfir dagana 10.— 18. nóv. og er opin alla daga kl. 14—19 nema fimmtud. og sunnud. kl. 14—22. Leikfélag Reykjavíkur: Gísl og Fjöreggið aftur á f jalirnar Leikfélag Reykjavíkur byrjar nú aftur sýningar á tveim verke&ium frá síðasta leikóri, Fjöregginu eftir Svein Einarsson og GISL eftir Brendan Behan. Hið vinsæla verk GlSL var sýnt fyrir fullu húsi í fyrravetur. I kvöld hefjast svo sýningar á hinu nýja leikriti Sveins Einarssonar, Fjör- egginu, sem frumsýnt var í vor við lof- samlegar undirtektir. Leikstjóri er Haukur J. Gunnarsson, en með stærstu hlutverk fara Guðrún Asmundsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Pálmi Gests- son, Lilja Þórisdóttir, Gisii Halldórs- son og Guðrún S. Gísladóttir. Viðar Eggertsson í hlutverki sinu í „Skjeidbaken kemst þangað iika". Óvenjulegt verk: Skjaldbakan kemst þangað líka — frumsýnt íEgg-leikhúsinu íkvöld I kvöld, föstudaginn 9. nóvember, frumsýnir Egg-leikhúsiö í Nýlista- safninu við Vatnsstíg nýtt íslenskt leik- rit. Heitir verkið Skjaldbakan kemst þangaö líka og er eftir Arna Ibsen sem jafnframt er leikstjóri. Leikmynd er eftir Guðrúnu Erlu Geirsdóttur, tónlist og leikhljóð eftir Lárus H. Grimsson og lýsingu hannar Arni Baldvinsson. Viðar Eggertsson og Arnór Benónýs- son leika hlutverkin tvö í leiknum. Skjaldbakan kemst þangað líka er leikrit sem er byggt á samskiptum bandarísku skáldanna Ezra Pound og William Carlos Williams og fjallar í meginatriðum um tvo vini sem fara ólikar leiðir að sama markinu. Og verkið fjallar um hvemig þeirri vináttu reiðir af gagnvart hugmynda- kerfum sem stangast á því aö vinátta Pounds og Williams var einstök og komst ósködduð í gegnum ótrúlegustu þrengingar. Sem fyrr sagði verður frumsýningin í kvöld, en önnur sýning verður sunnudaginn 11. nóvember og síðan verður sýnt á hverju kvöldi út vikuna. Allar sýningarnar hef jast kl. 21. Perusala í Kópavogi A morgun og sunnudag, það er hinn 10. og 11. nóvember, verður Lions- klúbburinn Muninn með hina árlegu perusölu sína i Kópa vogi. Kópavogsbúar hafa alltaf tekið þessari perusölu vel og notað tækifærið til að birgja sig upp af ljósaperum fyrir skammdegið. Með því hafa þeir slegið tvær flugur í einu höggi, tryggt sig fyrir því aö þurfa ekki að sitja í myrkr- inu ef pera bilar og stutt jafnframt gott málefni. Að venju rennur allur ágóði af peru- sölunni til liknarmála. Tilkynningar Dagvistarmál í brennidepli Félagsmálastofnun Akureyrar heldur fund um dagvistarmál á laugardaginn. Fundurinn byrjar klukkan 13.30 í Lóni viö Hrísarlund. Á fundinum verður kynnt það sem unnið er að dagvistarmálum á Akureyri og reynt að draga fram skoðanir fólks á öllu því sem snertir dagvistun. Framsöguerindi halda Sigríður Stefáns- dóttir, formaður Félagsmálaráös, Sigríður M. Jóhannsdóttir dagvistarfulltrúi, Þórgunnur Þórarinsdóttir sem hefur umsjón með dagmæðrum, Gyða Haraldsdóttir sem hefur umsjón með dagmæðrum, Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur, Sveinbjörg Sveinbjömsdóttir fóstra og Hulda Bergvins- dóttir dagmóðir. Allt starfsfólk við dagvistun, dagmæður, foreldrar og aðrir sem hafa áhuga á dag- vistarmálum á Akureyri eru veikomnir. JBH/Akureyrl. Ný listaverkakort frá Listasafni íslands Undanfarin 20 ár hefur Listasafn lslands látið gera eftirprentanir af verkum íslenskra myndlistarmanna i eigu safnsins og eru þau tilvalin sem jólakort. Nú eru nýkomin út þrjú litprentuð kort á tvöfaldan kartonpappa af eftirtöldum v erkum: Flugþrá, 1935—54, eftir JóhannesS. Kjarval. Tveir sjómenn á báti, eftir Gunnlaug Scheving. A hestbaki, 1978, eftir Louísu Matthiasdóttur. Kortin sem eru mjög vönduð að allri gerð erutil söluísafninu. Ingjaldur hjá MFA Arsfundur Menntngar- og fræðslusambands alþýðu verður haldinn næstkcmandi föstudag klukkan 14 í Hreyfilssalnum við Fellsmúla. Aðalefni fundarins verður erindi Ingjalds Hannibalssonar er hann nefnir Tækniþróun og atvinnulífið og verða umræður að því loknu. Þá verður gerð grein fyrir starfi MFA á liðnu starfsári, reikningar kynntir og fjallað um málefni sem ofarlega eru á baugi hjá verkalýðshreyfingunni. Þetta er 15. árs- fundur MFA. -EIR Kvenfélag Bústaðasóknar heldur fund mánudaginn 12. nóv. kl. 20.30. M.a. veröur lesin ferðasaga sumarsins og sýndar myndir. Stjómin. Héraðsfundur í Reykjavikur- prófastsdæmi Hinn árlegi héraðsfundur í Reykjavíkur- prófastsdæmi verður haldinn á sunnudaginn kemur, þann 11. nóvember, og hefst kl. 4 síð- degis í Askirkju. Dagskrá verður að hefð- bundnum hætti með skýrslu prófasts um heistu viðburði ársins og tölulegar uppiýsing- ar um kirkju og fæðingar o.fl., reikningar safnaðanna verða lagðir fram og nefndir gefa skýrslur sínar. Einnig verða kosningar í nefndir og sagt frá Kirkjuþingi, sem staðið hefur undanfarið. ' Héraðsfundi sækja samkvæmt lögum sóknarprestar og safnaðarfulltrúar, en auk þess hafa sóknarnefndarmenn mætt og annað fólk úr sóknarnefndum. Ahugafólk um kirkj- una í prófastsdæminu annað er hjartanlega velkomið. (Frá dómprófasti) Rangæingafélagið heldur sinn árlega kaffidag fyrir aldraða Rangæinga og aðra gesti sunnudaginn 11. nóvember í félagsheimUi Bústaðakirkju að lokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 14.00. Kór Rangæingafélagsins syngur að lokinni kaffi- drykkju. Verið velkomin. Stjórnin. Félagsstarf eldri borgara í Reykjavík. Haustsala á handunnum munum verður haldin i félagsmiðstöðinni í Lönguhlið 3 og í Furugerði 1. laugardaginn 10. nóvember kl. 13.00—18.00. Margt góðra muna er tU sölu og kaffi tU reiðu á borðum. Agætt tækifæri er að gera góð kaup og heimsækja þessar félags- miðstöðvar um leið. Kvenfélag Breiðholts heldur fund 12. nóvember kl. 20.30 í samkomu- sal Breiðholtsskóla. Heiðar Jónsson verður með snyrtikynningu. AUar konur velkomnar. Stjórnin. Hvítabandskonur. Fundur verður á Hallveigarstöðum laugar- daginn 10. nóvember kL 13.30. Rætt verður um nýja fjáröflunarleið og sýndar myndir úr Þórsmörk. Stjórnin. ffi Bridge Bridge Þriðja umferð í barometerkeppni Bridge- félags Akraness var spiluð fimmtudaginn 2. nóv. sl. Röð efstu para er nú þessi: 1. GuðjónGuðmundss,—OlafurG. Olafss. 123 2. EinarGuðmundss,—Karl 0. Alfreðss. 118 3. Matth. Hallgr.—Björgúlfur Einarss. 99 4. PálmiSveinss.—Þorv. Guðm. 83 5. KarlAlfreðss,—AlfreðViktorss. 73 Með kveðju, Bridgefél. Akraness. Leiklist Leikfélag Akureyrar auglýsir Sýning á gamanleiknum Einkalíf eftir Noel Coward verður á laugardagskvöldið 10. nóvember kl. 20.30. Þessi sígildi gamanleikur fjallar um fráskilin hjón sem hittast af til- viljun á nýjan leik. Þar sem bæði eru á brúð- kaupsferð með nýjum mökum á frönsku sumarhóteli árið 1930. Það kviknar í gömlum glæðum og eftirleikurinn verður ævintýraleg- ur. t aðalhlutverkum eru Sunna Borg og Gestur E. Jónsson. Sýningum fer að fækka. Skagaleikflokkurinn Bíóhöllinni Akranesi, sýnir Spenntir gikkir. Sýningar föstudag kl. 20.30, sunnudag kl. 14.30. og einnig á mánudagskvöldum og þriðjudagskvöldum. Ellilifeyrisþegar fá afslátt á sunnudagssýninguna. Leiklistarskóli íslands Nemendaleikhúsið Lindarbæ sýnir Græn- fjöðrung föstudaginn 9. nóvember, sunnu- daginn 11. nóvember og mánudaginn 12. nóvember kl. 20.00. Grænfjöðrungur er ævin- týraleikur fullur af kímni og fantasíu, veröld . þar sem allt getur gerst. Leikfólag Hveragerðis frumsýnir leikritið Olympíuhlauparinn á Föstudagskvöld kl. 2100 í Hótel Ljósbrá. Leik- stjóri er Ragnhildur Steingrímsdóttir. Með aðalhlutverk fara Steindór Gestsson og Garðar Gislason. Alþýðuleikhúsið sýnir Beisk tár Petru Von Kant eftir Fass- binder á Kjarvalsstöðum föstudagskvöld kl. 20.30. Laugardag og sunnudag kl. 16.00 og mánudagskvöld. Leikritið er í þýðingu Böðvars Guðmundssonar, leikstjórn annast Sigrún Valbergsdóttir. Þetta er fyrsta leik- verk Alþýðuleikhússins í vetur. Milli skinns og hörunds sýnt um helgina I kvöld hefjast á ný sýningar í Þjóðleikhúsinu eftir verkfallið. Verður þá 4. sýning á þríleik Olafs Hauks Símonarsonar, Milli skinns og .hörunds.5. sýning verður á laugardagskvöld (10. nóv.) og 6. sýning verður á sunnudags- kvöld (11. nóv.). Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson, en leikmynd gerir Grétar Reynis- son. Meðal leikenda eru Gunnar Eyjólfsson, Þóra Friðriksdóttir, Sigurður Sigurjónsson og Sigurður Skúlason, en alls eru leikendur tólf. I verkinu segir af íslenskri sjómannsfjöl- skyldu, sambandi foreldra og barna, skoðana- ágreiningi kynslóðanna og krefjandi spumingum er varpað fram um eðli fjöl- skyldunnar og uppeldisins. Leikritið er mein- fyndið, en jafnframt áleitin umfjöllun um ís- lenskanveruleika. Ferðalög Frá Útivist. Núna um helgina heldur Utivist haustblót á Snæfellsnesi tU heiðurs HaUgrími Jónassyni, rithöfundi og ferðagarpi, en HaUgrimur varð níræður 30. október síðasUiðinn. Lagt verður af stað kL 20.00 á föstudagskvöld og verður gist að Lýsuhóli. Sunnudaginn 11. nóvember kl. 13.00 verður dagsganga að Staðarborg á Vatnsleysuströnd. Dagsferð sunnudaginn 11. nóvember. Kl. 13.00: VífilsfeU (656 m). I góðu skyggni er hvergi betra útsýni en uppi á VífilsfeUi. Það er auðvelí að ganga á Vífilsfellið. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Far- miðar við bíl. Verð kr. 300. Ferðafélag islands. Ferðafélag íslands Um árabil hefur Ferðafélag Islands aukið við hefðbundið félagsstarf, sem eru dagsferðir og lengri ferðir, með því að efna tU mynda- sýninga og fræðskukvölda (kvöldvaka) um haust- og vetrarmánuði. Myndakvöldin verða mánaðarlega til maí næsta vor annan miðvikudag hvers mánaðar. Kvöldvökur verða þrjár að venju, ein í haust og tvær fyrri hluta vetrar. Fyrsta kvöldvakan verður helguð minningu Gests Guðfinnssonar, efni sem tengist Ferða- félaginu og hann er höfundur að. Þessar samkomur verða auglýstar í félags- líf i dagblaða með hæfilegum fyrirvara. Nú er komið að fyrsta myndakvöldinu, en það verður 14. nóv. nk. og hefst kl. 10.30, á Hverfisgötu 105. Þá sýna Guðrún Guðvarðar- dóttir, en hún er með myndir úr gönguferðum um Hornstrandir, Djúp, önundarf jörð, Dýra- fjörð og e.t.v víðar. Guðmundur Jóelsson sýnir eftir kaffihlé myndir úr gönguferð, sem farin var sl. sumar frá Borgarfirði eystra til Seyðisfjarðar, þaðan um Fjarðarheiði til Egilsstaða. Sérstaka athygli fólks viijum við vekja á breyttu húsnæði fyrir framangreinda starfsemi. I vetur verður Ferðafélagið á Hverfisgötu 105 (risinu), en það er á horni Snorrabrautar og Hverfisgötu, vestan megin við gatnamótin. Allir eru velkomnir á þessi skemmtikvöld. Skemmtistaðir ARTÚN: Gömlu dansarnir föstudags- og laugardagskvöld, hljómsveitin Drekar leika fyrir dansi. BROADWAY: Glæný skemmtiatriði með Ríó tríó drengjunum í 2 klukkustundir, föstudags- laugardags- og sunnudagskvöld, með 15 manna strengja- og blásarahljómsveit. Ath. Ríó trió kemur í fyrsta sinn fram á föstudags- kvöldið, eftir margra ára hlé. Svo verður hljómsveit Gunnars Þórðarsonar ásamt söngvurunum Björgvini Halldórs, Þuriði Sigurðardóttur og Sverri Guðjóns. HÖTEL SAGA: Einkasamkvæmi á föstudags- kvöld í Súlnasal. Laugardagskvöld er Sögu- spaug 84 (kabarett). A Mímisbar er dúett Andra og Sigurbergs að leika um helgina. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi. Matur framreiddur í Griliinu aUa daga í hádeginu og á kvöldin. HÖTEL BORG: Sunnudagskvöld eru gömlu dansarnir. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikurfyrirdansi. HOLLYWOOD: Diskótek um helgina á tveimurhæðum. KLÚBBURINN: Föstudagskvöld leika hljóm- sveitirnar Rokkbræður og Babadú. Nektar- dansmær skemmtir. Laugardagskvöld: Hljómsveitirnar Rokkbræður og Babadú leika fyrir dansi. Píanóleikur í kjaUara. SAFARl: Opið föstudags- og laugardags- kvöld, diskótek. ÞÓRSKAFFI: Um helgina leikur Dansband önnu Vilhjálms ásamt Pónik og Einari. Y-Kópavogí: Þessi nýi skemmtistaður býður upp á pöbb sem opnaður er kl. 18.00 og síðan er diskótekið opnað kl. 21.00. Italskur plötu- snúður skeUir plötum á fóninn, eins og þeim er einum lagið. A sunnudagskvöld er Uka opið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.