Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1984, Blaðsíða 4
24 DV. FÖSTUDAGUR14. DESEMBER1984. Guömundur Oskar Olafsson. Mánudagur: Æskulýðsstarf kl. 20.00. Þriöjudaga og fimmtudaga er opiö hús fyrir aldraða kl. 12—17. Miövikudagur: Fyrirbænamessa ki. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. SELJASÖKX: Barnaguösþjónusta í öldu- selsskóla kl. 10.30. Barnaguösþjónusta í íþróttahúsi Seljaskóla kl. 10.30. Guðsþjón- usta í Ölduselsskóla kl. 14.00. Ath., allar athafnir í Ölduselsskóla veröa í aöalsal skól- ans, inngangur frá vestri. Fimmtudagur 20.. des.: Fyrirbænasamvera Tindaseli 3 kl. 20.30. Sóknarprestur. SELTJARNARNESSOKN: Barnasamkoma í Sal Tónskólans kl. 11.00. Sóknamefndin. FRÍKIRKJAN í Hafnarfiröi: Barnasam- koma kl. 10.30. Aðventusamkoma kl. 20.30. Dr. Sigurbjöm Einarsson flytur hugvekju. Herdís Þorvaldsdótfir leikkona les upp. Kór öldutúnsskólans syngur undir stjórn Egils Friöleifssonar og auk þess syngur kór kirkj- unnar undir stjórn Þóru Guðmundsdóttur. Sr. Einar Eyjólfsson. Keflavíkurkirkja Aöventutónleikar kl. 17. Jólafundur systra-og bræörafélagsins verö- ur í Kirkjulundi kl. 14.30. Sóknarprestur. Aðventustund í Grindavíkurkirkju A morgun, laugardaginn 15. des., veröa að- ventutónleikar í Grindavikurkirkju sem hefj- astkl. 17. Kór Keflavíkurkirkju syngur aöventu- og jólalög undir stjórn Siguróla Geirssonar. Ein- söngvarar era Guömundur Olafsson, Sverrir Guömundsson og Steinn Erlingsson. Nemendur úr Tónlistarskóla Keflavikur leika nokkur lög. Aö lokum verður almennur söngur. AUir velkomnir. Sýningar Málverkasýning Þorláks L. Halldórssonar Þorlákur L. Halldórsson sýnir rúmlega 30 myndir í Vinnustofunni, Urðarstíg 3. A sýn- ingunni era olíumálverk, pastelmyndir og teikningar. Sýningin er opin frá kl. 14—19 framá Þorláksmessu. Norræna húsið FINNSK FORM — sýning í sýningarsölum á finnskum listiðnaði og hönnun, gler, keramik, textílar, húsgögn, Ijósabúnaöur, skartgripir og marg fleira. Listasafn ASÍ — síðasta sýn- ingarhelgi á verkum Muggs, Guðmundar Thorsteinsson- ar. Sýningin er haldin í tilefni útkomu lista- verkabókar um Mugg sem Listasafn ASI og Ixigberg bókaforlag gefa út. A sýningunni era 66 verk Muggs sem birt era í bókinni. Sýning- in er opin daglega kL 14—22 og lýkur henni á sunnudagskvöld. PÚNIK OG EINAR OG DANSBAND ÚNNU VILHJÁLMS. FÚSTUDAGS- OG LAUGARDAGSKVÚLD. KVÚLDVERÐUR KL. 8-10. HÚSIÐ OPIÐ TIL KL. 3., Hvað er á seyði um helgina Hvað er á seyði um helgina Kristján Jóhannsson syngur í Háskólabíói Kristján Jóhannsson syngur á jóla- hljómleikum Bókaklúbbsins Veraldar sem haldnir veröa í Háskólabíói á morgun, laugardag, klukkan 14.30. Kristján mun syngja viö undirleik Olafs Vignis Albertssonar en sérstakur gestur Kristjáns á hljómleikunum er Kór öldutúnsskóla undir stjórn Egils Friöleifssonar. Kristján hefur um árabil búiö í Veróna á Italíu en kemur hingaö til þessara hljómleika sérstaklega frá Bandaríkjunum þar sem hann hefur sungiö undanfariö og vakiö mikla athygli. Kór öldutúnsskóia undir stjórn Egils Friðleifssonar hefur gert víöreist um heiminn og þykir hafa náð lengra en dæmi eru um nokkurn íslenskan barnakór. Efni hljómleikanna er allt helgaö jólunum og mun Kristján í lok hljómleikanna syngja með kórnum. Nýlistasafnið: Bandarískur lista- maður með sýningu I dag kl. 20 opnar bandaríski lista- maöurinn Geoffrey Hendricks sýningu í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b. Sýning- in er sú síðasta í röð sýninga sem lista- maðurinn hefur haldið á þessu ári víös vegar um Evrópu. Sýningunni lýkur föstudaginn 21. desember með gjörn- ingi, en hann hefst kl. 20.30. Geoffrey Hendricks er fæddur í Littleton, New Hampshire, 1931. Hann býr og starfar í New York en undanfar- iö ár hefur hann dvalist í Berlín. Hendricks hefur haldiö fjölda einka- sýninga frá því 1966 og tetóö þátt í ótal- mörgum samsýningum. Hann hefur einnig flutt ótal gjörninga. Frá 1956 hefur hann kennt við Rutgers Uni- versity í New Jersey. Verk eftir Hend- ricks eru í eigu margra þekktra safna, meöal annarra Museum of Modem Art í New York. JOLASÖNGVAR í NESKIRKJU Næstkomandi sunnudag kl. 2 veröa í Neskirkju jólasöngvar er koma í staö hinnar heföbundnu guösþjónustu. Aö þessu sinni munu Háskólakórinn undir stjóm Áma Harðarsonar og skólakór Seltjarnamess undir stjóm Margrétar Pálmadóttur flytja jólalög. Kjartan Ragnarsson flytur frumsamiö lag við „Sálm heiðingjans” eftir Jóhannes úr Kötlum og forsetaritari, Halldór Reynisson cand. theol., talar.Organisti kirkjunnar Reynir Jónasson leikur á orgelið og auk þess veröur almennur söngur. Forsetaritari Halldór Reynisson cand. theol. Norðurl jós sýnir: „Kassinn stemmir” í Norræna húsinu á sunnudagskvöldið Myndin, sem kvikmyndaklúbburinn Noröurljós sýnir í Norræna húsinu á sunnudaginn, er danska myndin ,Jíassinn stemmir”. Verður myndin sýnd kl. 19 en þaö er annar tími en venjulega. Þegar þessi kvikmynd var frum- sýnd í Danmörku skrifuðu blööin: „Nú getur sjónvarpið pakkað niöur Columbo, Kojak, McCloud myndunum — hér kemur Ebbe Langberg,” en hann er leikstjóri myndarinnar. Myndin segir frá þremur brodd borgurum frá Árósum. Þeir undirbú: mikið svindl. Einn ætlar að bjarga sé frá gjaldþroti og annar ætlar aö hvít þvo illafengið fé. Til allrar óhamingju uppgötva þrí snjallir ungú- menn bellibrögðin oj þeim tekst að betrumbæta þau og noti þauséríhag. í anddyri: LUDVIG HOLBERG — 300 ára minning. Ljósmyndir frá leiksýningum leikhúsanna og menntaskóla, bækur um og eftir Holberg. Jólasýning Langbróka t Gallerí Langbrók stendur nú yfir jólasýning I.angbróka. A sýningunni eru grafikmyndir, gler- og vatnslitamyndir, keramik, textíl, fatnaöur, skartgripir og fl. Galleriiö er opiö virka daga kl. 12—18. t desember veröur opiö álaugardögummillikl. 12 og 18. Nýlistasafnið, Vatnsstíg: I kvöld opnar bandariski listamaðurinn Geoffrey Hendrick sýningu sem nú er sú síö- asta í röö sýninga sem Ustamaöurinn hefur haldiö á þessu ári víös vegar um Evrópu. Sýn- ingunni lýkur föstudagskvöldiö 21. desember. Málverkasýning Einars G. Baldvinssonar Laugardaginn 1. desember opnaði einn af þdrktustu listmálurum þjóöarinnar, Einar G.: Baldvinsson, sýningu á verkum sínum í galleriinu Islensk list aö Vesturgötu 17. Einar sýnir þar 22 oh'umálverk sem flest eru máluð á síöastliðnum tveimur árum. Nú eru liðin fimm ár síðan þessi þekkti málari hélt síðast einkasýningu þótt hann hafi síðan tekiö þátt í mörgum samsýningum bæöi er- lendis og hér á landi. En þessi sýning er átt- unda einkasýning Einars. A málverkasýningu Einars í galleríinu á Vesturgötu 17 eru mörg málverk frá sjávar- síðunni á Islandi, bátar, þorp og fólk að störf- um, auk landslagsmynda. Allt verk sem eru dæmigerö fyrir hinn sérstæða og sterka stíl EinarsG. Baldvinssonar. Sýningin er opin daglega kl. 9—17 á virkum dögum og kl. 14—18 um helgar. Þrem sýningum að Ijúka á Kjarvalsstöðum Undanfamar tvær vikur hefur staöiö yfir í austursal Kjarvalsstaða myndhstarsýning fimm listamanna sem ber yfirskriftina AGA- DEMIAN ’84. Þeir sem sýna eru: Steingrímur Þorvaldsson sem er meö mál- verk unnin á striga og útsagaðar tréplötur. Magnús V. Guðlaugsson sýnir nokkrar „málaöar skissur” í stærra lagi, allt unnið á þessu ári. Stefán A. Valdimarsson sýnir stór málverk, gerð á þessu ári, bæði á tslandi og í Hollandi. Omar Skúlason sýndi síöast í Listmunahús- inu fyrir hálf um mánuði þar sem myndir hans hlutu misjafna dóma gagnrýnenda. Pétur Stefánsson („BIG NOS”) sýnir blý- antsteikningar en Pétur hefur verið kallaður fyrsti „pönkmálarinn” á Islandi. I vestursal sýna 5 listamenn frá Gautaborg málverk. Þeir eru: Tore Ahnoff, Erland Brand, Lennart Landqvist, Lars Swan og Jens Mattiasson. Á vesturgangi sýnir Hörður Vilhjálmsson 35 ljósmyndir í lit. 11 sýna í Listmunahúsinu Föstudaginn 30. nóvember var opnuð jólasýn- ing í Listmunahúsinu í Lækjargötu 2. A sýningunni eru leirverk, tauþrykk og myndverk, unnin meö ýmiss konar tækni, eftir ellefu Ustamenn. Listamennirnir era: Aðalheiður Skarp- héðinsdóttir, Asrún Kristjánsdóttir, Borg- hildur Oskarsdóttir, Eyjólfur Einarsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Herborg Auöuns- dóttir, Kolbrún Björgólfsdóttir, Kolbrún Kjar- val, Lísbet Sveinsdóttir, Olöf Einarsdóttir og Sigurður örlygsson. Sýningin, sem er sölusýning, er opin dag- lega frá kl. 10—18 og laugardaga og sunnu- daga frá kl. 14—18. Lokað er á mánudögum. JÓLA- TILBOÐ DvhUVFIT SKÍÐASKÓM SKÁTABÚDIN Snorrabraut 60 simi 12045

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.