Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1985. 5 Þrennt drukknaði í Þingvallavatni um hvítasunnuna: Voru á /eíð út í Sandey? Tveir menn og ein kona drukknuöu í Þingvallavatni snemma á sunnudags- morgun. Fólkiö var í litlum báti meö utanborðsmótor úti á vatninu. Engir sjónarvottar voru að slysinu. Lík konunnar og annars mannsins fundust um hádegisbilið á sunnudag. Lík hins mannsins hefur ekki f undist. Fólkið var á ferðalagi á Þingvöllum. Það var í hópi fólks sem hafðist við í húsbil og sumarbústað. Bústaðurinn er skammt frá Valhöll, í vesturátt, og er einn innsti bústaðurinn í því hverfi. Ekki er vitað hvenær slysið varð. Rætt er þó um að það hafi orðið snemma á sunnudagsmorgun, á tíma- bilinu f rá klukkan fjögur til fimm. Vitað er að fólk í sumarbústað í grenndinni sá bát sigla út á vatnið meðfram ströndinni og í öðrum bústað varð fólk vart við vélarhljóð. Leiðindaveöur hefur verið um helg- ina úti á Þingvallavatni, kröpp alda og miklir vindsveipir. Lögreglumenn á ferð segja þó að gert hafi logn um hánóttina og veður hafi verið gott á bilinu frá klukkan f jögur til fimm. Ekki er vitað hvað þau þrjú sem drukknuðu ætluöu að gera út á vatnið. Vitað er að þau höfðu á orði um kvöldið hve langt myndi vera út í Sandey á Þingvallavatni og aö gaman væri að skreppa þangað. Ferðafélagar þeirra urðu hins vegar ekki varir við þegar þau héldu út á vatnið. Eiginkonur mannanna tveggja sváfu, einnig unnusti konunnar. Það var ekki fyrr en klukkan tíu á sunnudagsmorgun að farið var að ótt- ast um afdrif fólksins. Ættingjar fólks- ins komu þá til flugbjörgunarsveitar- manna sem voru við æfingar á Þing- völlum, á hinni árlegu hvítasunnuæf- ingu. Skipulögð leit var þegar hafin, strendur voru gengnar, suður- og Flugstjóri þyrlunnar sem fann bátinn: „800metra frá landi” „Við flugum yfir bátinn skömmu eftir að við hófum leitina, skömmu síöar fundum við líkin, þau voru á floti, um 8 hundruð metra frá bátnum,” sagði Páll Halldórsson, flugstjóri þyrlu landhelgisgæslunnar, í gær. Páll sagði að aðstæöur hefðu verið góðar úr lofti en á yfirborði vatnsins hefði verið kröpp vindbára sem gert hefði bátunum erfitt fyrir um leit. „Báturinn var um 800 metra frá landi, Heiðarbænum, en líkin voru utar á vatninu,” sagði Páll Halldórsson flugstjóri. Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði til klukkan sex á sunnudag. Hún var svo í viðbragðsstöðu í gær. Þegar kröpp bára er á vatninu sést ekki niður í vatnið aðeins á yfirborðið. -JGH. Sextíu manns leituðu „Við fengum beiðni um aðstoð klukkan 10.20 á sunnudagsmorgun, ættingjar fólksins komu þá til okkar,” sagði Ingvar Valdimarsson, formaður flugbjörgunarsveitarinnar í Reykja- vík. Leit var þegar hafin. I henni tóku allar flugbjörgunarsveitirnar þátt. Talið er að um 50 til 60 manns hafi tekið þátt í leitinni þegar mest var. „Við fengum þyrluna. Hún flaug fram á bátinn um klukkan 12.18. Siðan fannst annaö líkið klukkan 12.56 og þaö seinna klukkan 13.25. ” Ingvar sagði að sumarbústaðareig- andi heföi lónað bát til að ná í bát fólksins og líkin. Síðar hefði verið komið með svokallaða slöngubáta frá öðrum slysavarnafélögum. A Þingvallavatni sagði Ingvar að hefðu verið 25 hnútar af norðaustan, kröpp alda og miklir vindsveipir. -JGH. Sthiesser bamafatnaður Hvað er betra? Schiesser® VERSLUNIN RUT Glæsibæ, sími 33830 Hamraborg 7, Kópavogi, sími 45288 vesturströnd og alveg að Valhöll. Sú leit bar ekki árangur. Einnig var haft samband við land- helgisgæsluna um að fá þyrlu sem hóf s vo leit um klukkan tólf á hádegi. Fyrst var flogið út í Sandey. Þegar fólkið fannst þar ekki var flogið út af Heiðarbænum og fannst báturinn þá svo til strax. Skömmu síðar fundust líkin tvö, þau flutu á vatninu. Sá sem ekki hefur fundist, var án björgunarvestis, hann var heldur ekki í f lotgalla, eins og hin tvö klæddust. Bátur f ólksins var mjög lítill og hafði verið geymdur á þaki húsbílsins í flutningnum. Báturinn var með utan- borðsmótor. Leit björgunarsveitanna var fram-* haldið allan sunnudaginn alveg fram til miðnættis. Aftur var byrjað að leita í gærmorgun. Eftir hádegi í gær hóf svo björgunarsveitin Tryggvi á Sel- fossi frekari leit. -JGH. Viftureimar, platínur, kveikju- hamar og þéttir, bremsuvökvi, varahjólbaröi, tjakkur og nokkur verkfæri. Sjúkrakassi og slökkvitæki hafa hjálpað mörgum á neyðarstundum. ||UMFEROAR Báturinn, sam þremanningamir voru á, dreginn til lands. DV-mynd GVA. sg SAMSUNG Umboðsmenn um land allt. 8 SJÖNVARPSBÚÐIN Lágmúla 7 — Reykjavík Sími 68 53 33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.