Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Side 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI1985.
Spurningin
Hefur þú einhvern tíma
unnið í happdrætti?
Guðrún Hólm sjúkrallði: Já, reyndar.
Eg vann einu sinni smávinning hjá
Happdrætti Háskólans.
Anna Atladóttlr húsmóðir: Nei, ég
spila ekki í happdrætti.
Gunnar Sigurðsson sjómaður: Nei, en
ég spila samt í DAS og SIBS. Eg er
ekkert að bíða eftir stóra vinningnum,
aðallega að styðja gott málefni.
Jón Jósepsson bókari: Þaö hefur
komið fyrir. Eg fékk stóran vinning
fyrir mörgum árum.
Sigrún Grétarsdóttlr neml: Nei, það
hef ég aldrei gert. Eg spila sjaldan í
happdrætti en hef veriö að velta fyrir
mér að kaupa miða hjá DAS.
Sigríður Guðbergsdóttlr fóstra: Nei,
aldrei. Eg spila samt en er svo óheppin
að ég vinn ekki neitt.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Grátkór að engu hafandi
Borgari skrifar:
Það fer mikið fyrir svokölluðum
„áhugamönnum um úrbætur í hús-
næðismólum” þessa dagana. Þeir
hafa nú stofnaö grátkór og segja alla
þá, sem nú hafa komið sér upp hús-
næöi og hafa komist nær á „þurrt” i
skuldafeninu, vera skuldbundna til
aö taka á sig nýja bagga fyrir J)á er
nú eru að byrja að byggja eða kaupa.
Auövitað er þessi grátkór hrein bá-
bylja og er að engu hafandi. —
Stjómvöld gerðu sin stærstu mistök
ef þau færu að leggja á nýja skatta
vegna þess sem kaliað er „eölilegar
úrbætur” á máli þessara „áhuga-
manna”.
Svo auglýsir þessi hópur og birtir
mynd af rflcisstjórn þar sem hún er
samankomin ásamt forseta Islands.
Þeir láta gera svartan kassa, sem
stendur upp á endann, og annaðhvort
er forsetinn inni í þessum kassa eða
ábakviðhann!
„ÞEIM" hefur ekki þótt hæfa að
birta myndina af forsetanum og kos-
ið að fela hann — eða mála yfir hann.
Og síðan taka þeir til aö skamma
ríkisstjómina og bera henni á brýn
að: hún hafi tekið frá þeim mörg
hundruð milljónir — hún viðurkenni
mistökin — hún tali og tali — hún
bjóði fram lausnir sem lengi í snör-
Myndin sem „Borgari" ræðir um.
unni.. „aðöðruleytiEKKERT!
Er þetta nú rétt? Svo er ekki og
langt frá því. Rikisstjómin á ekki við
verra vandamál að glíma en þennan
nýja þrýstihóp sem vill fá: iægri
vexti, endurgreiddar einhverjar
greiöslur, sem hann kallar „um-
framgreiðslur”, viðbótarlán, skuld-
breytingu og lengingu lánstíma.
Allt þetta er rikisstjómin aö glíma
við af ótta við þennan einstæöa nýja
þrýstihóp sem vill ekkert af mörkum
leggja nema kröfugerðina.
Það er meira en mál til komið að
þessi nýi þrýstihópur, ásamt öðrum
slíkum, verði látinn sjá um sig sjálf-
ur og almenningur látinn í friöi með
tekjur sínar og það fé sem hann kann
að hafa önglaö saman sem sparif é.
Verði gengiö að kröfum þessa
þrýstihóps öllu frekar en gert hefur
verið gegnum tíðina þá eru fá úrræði
eftir fyrir friðsaman og þöglan
meirihluta þjóöarinnar en tygja sig
til brottfarar af þessu Iandi og af-
henda hús sin hinu opinbera, meö
eða án áhvilandi skulda til þess að
þrýstihópurinn, „Ahugamenn um úr-
bætur í húsnæðismálum,” geti
hreiðrað um sig þar.
Skjaldarmerki
og
skjaldberar
Þorsteinn hrlngdi:
Eg vil gjarnan koma á framfæri leið-
réttingu á athugasemd „Villa” sem
kveður sér hljóðs á Lesendasíðunni
fyrir skömmu og er „óhress með
skjaldarmerkið á islensku peningun-
um”, eins og hann orðar það. A ís-
lensku peningunum er ekki lengur
neitt skjaldarmerki, heidur myndir
sem eiga að sýna skjaldbera íslenska
skjaldarmerkisins „sem eru hinar
fjórar landvættir sem getur í Heims-
kringlu”, eins og segir í forsetaúrakurði
nr. 35 frá 1944.1 hinum sama úrskurði
segir ennfremur: „Skjaldarmerki Is-
lands er silfurlitur kross á heiðbláum
feldi með eldrauðum krossi innan í silf-
urlitaða krossinum.” Mér þótti rétt að
benda á hinn útbreidda misskilning að
skjaldberar séu hið sama og skjaldar-
merki. Því f er víðs fjarri.
Fréttamenn
tala of hratt
Elríkur Kristófersson, hringdi:
Mig langar til að kvarta yfir þvi hvað
fréttamenn tala hratt i útvarpi og sjón-
varpi og þá sérstaklega kvenfólkið.
Heyrnin hjá mér er farin að bila og
þegar þetta fólk talar svona hratt þá
greini ég einungis svona annað hvert
orð. Það mætti taka sér veðurstofufólk
til fyrirmyndar, ég skil vel allt sem
það segir. Það er fjöldi fólks sem eins
og ég hefur ekki nema hálft gagn af
fréttatímanum.
Gódir f arþegar
Þórdís Guðmundsdóttir, tsafirði,
hringdi:
Fyrir stuttu birtist á Lesendasíöu
DV pistill þar sem krökkum úr Garða-
bæ var hrósaö fyrir að vera góðir far-
þegar i skólaferöalagi. Mig langar til
að hæla krökkunum frá Isafirði í fram-
haldi þessa pistils og senda þeim þakk-
læti fyrir veturinn með bestu kveðjum
en ég ók þeim i skólann í vetur. Eg held
ég geti ekki fengið betri farþega en
yfirleitt þessa unglinga.
Líftryggingar
Þóranna Gröndal, hjá B.t. líftrygging-
um skrifar:
Sl. miðvikudag birtist í DV lesenda-
bréf frá Magnúsi Magnússyni, varð-
andilíftryggingar.
Okkur hér í B.I. Líftryggingu g.t. er
ljúft að upplýsa Magnús Magnússon
um að liftryggingar okkar eru mikið
breyttar frá þvi að faðir hans iíf-
tryggði hann. Líftryggingar B.I. Lif-
tryggingar g.t. eru fullkomlega verð-
tryggðar allt tryggingatímabilið með
lánskjaravisitölu. Líftryggingin held-
ur því algjörlega verðgildi sínu allt
tryggingatímabilið.
Vart er hægt að hugsa sér betri
tryggingarvernd þeim til handa, er
hafa fyrir fjölskyldu að sjá eða hafa
miklar fjárhagsskuldbindingar, ef
skyndilegt fráfaU bæri aö höndum.
Þróunarstökk
Karlskrlfar:
Undanfarna áratugi hafa lesenda-
dálkar dagblaða verið yfirfullir af
bréfum frá ungu kynslóöinni þar sem
hún tjáir sig um óskir sínar og vonir
um erlenda popphljómsveit til að
leika á listahátið. Oskir þessar hafa oft
á tíðum verið lausar við allt raunsæi og
sjaldan komið fyrir aö frægar hljóm-
sveitir hafi leikið hér á landi. Fyrir
stuttu hafði ungur maður samband við
lesendasiöu DV og var hann að safna að
sér hópi til aö sækja tónieika meö U2 á
Irlandi. Þaö er ánægjulegt til þess að
vita að þróunin sé aö taka stökk fram á
við og unga fólkið sé farið að gera kröf-
ur til sjálfs sin í staö þess að vera með
óraunhæfar heimtingar í garð listahá-
tíðar.
Hljómsveitin Psychic TV á hljómleikum ó íslandi fyrir tveimur ðrum.
Á að endurvekja
Rokkspilduna?
Rokkunnandi skrifar:
Mig langar til aö forvitnast um
hvort einhver von sé til þess að DV
fari að sinna islenskri rokktónlist
eins og blaðið gerði meðan Rokk-
spildan var og hét. Hver stórviðburð-
urinn rekur annan i íslensku rokki.
Það þóttu til dæmis stórfréttir hjá er-
lendum blöðum aö Hilmar öm Hilm-
arsson gekk í Psychic TV og að Kukli
var boðið á Roskilde festival, ásamt
U2 og Bruce Springsteen, svo aðeins
tvö dæmi séu tekin. A þetta hefur
hins vegar ekki verið minnst einu
orðiíDV.
Mega lesendur DV eiga von á end-
urvakinni Rokkspildu og þar með
betri þjónustu í rokkmálum á næst-
unni?
Svar:
Það er einungis um skamma stund
að Rokkspildan birtist ekki í DV.
Hún er væntanleg aftur fljótlega.
K ' Tww ... ké W'S Jn^jgpS
? m