Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Page 9
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985. Útlönd Útlönd 9 Útlönd Útlönd Agca-réttarhöldin: AÐILD GRÁU ULFANNA VANMETIN HINGAÐ TIL Vitnisburður á fyrstu fjórum dögum réttarhaldanna í Róm yfir hinum grunuðu tilræðismönnum páfa benda til að tyrknesku fasistasamtökin Gráu úlfarnir hafi átt meiri aðild að tilræöinu en taliö var í fyrstu. Allt að fjóri Tyrkir kunna að veröa degnir fyrir dómstóla fyrir aðild að morðtilrauninni. Tyrkinn Omer Bagci, 39 ára gamall, hefur viðurkennt að hafa gefið Mehmet Ali Agca byssuna sem Agca notaði síðan til aö skjóta á Páfa. Bagci hefur einnig nefnt tvo Tyrki sem líklega samráðsmenn í tilræðinu. En eftir f jögurra daga réttarhöld er ekkert komiö fram sem stutt gæti þá fullyrðingu saksóknara að búlgarska leyniþjónustan hafi staðið á bak við tilræðið. Dómarar og sex kviðdómendur munu fara yfir mörg þúsund síður af skriflegum yfirlýsingum, auk þess sem kemur fram í réttarhöldunum, áður en þeir kveða upp dóm sinn. Ef ekki væri vegna þessa, hefðu tryllings- legar yfirlýsingar Agca á fyrsta degi réttarhaldanna getað skaðaö mjög málstað saksóknara. Agca sagöist vera Jesús Kristur og aö hann heföi rætt um heimsendi við páfa þegar páfi heimsótti hann í fangelsið. En talið er að þessar yfirlýsingar muni ekki hafa úrslitaþýðingu varðandi sekt Búlgaranna. A Italíu er Yfirlýsingar Agca um aö hann vœri Josús Kristur, á fyrstu dögum réttar- haldanna i Róm, verða líklega ekki eins afdrifaríkar og œtla hefði mátt. hægt að dæma menn ef kringumstæður Otraustar yfirlýsingar Agca hafa því gefa sekt þeirra til kynna án þess að ekki eins slæm áhrif á málstað fyrir liggi hörð sönnunargögn. saksóknara og halda mætti. Kosningar: „Grikkland fyrir Grikkr — segir Papandreo en Mitsotakis vill auka tengslin við Evrópu Almennar þingkosningar veröa í Grikklandi á sunnudag. SósiaUsta- flokkur Papandreo forsætisráöherra vann yfirburðasigur í kosningunum 1981 en á nú undir högg að sækja frá hægri, Nýja lýðræðisflokki Konstantin Mitsotakis. Kosningabaráttan er búin að vera löng og hörð og ef marka má skoöana- kannanir þá á sósíalistaflokkur Papandreo undir högg að sækja, tölu- vert fylgistap frá því í kosningunum 1981. Helstu mál þingkosninganna eru efnahagsmál, vaxandi atvinnuleysi og svo utanríkismáUn, afstaðan tU Atlantshafsbandalagsins ogEfnahags- bandalags Evrópu auk þess sem gömul deilumál við Tyrki eru sífeUt í deigl- unni í Grikklandi. SósíaUstar eru á undanhaldi. Nýi lýöræðisflokkur Mitsotakis áfeUist sósíaUsta fyrir slæmt ástand í efna- hagsmálum, viUuráfandi stefnu í af- stööunni tU Atlantshafsbandalagsins og Efnahagsbandalags Evrópu auk þess sem hann vUl auka samvinnu við Bandaríkin á sem flestum sviðum. „Undir forystu Nýja lýðræðisflokks- ins munum við aftur gera Grikkland aö ábyrgum aðila á alþjóðavettvangi, ut- anríkisstefna okkar verður skýr, viö erum bandamenn vestrænna þjóða og góðir vinir nágranna okkar í Austur- Evrópu,” sagði Mitsotakis á fjölmenn- um kosningafundi í Aþenu í gærkvöldi. Talið er að a.m.k. hálf mUljón manna hafisótt fundinn. „GrUckland er í Evrópu og við verð- um áfram Evrópuríki. Með þá stefnu að leiðarljósi tryggjum viö best hags- muni okkar í framtíðinni,” sagði Mitsotakis. „Grikkland fyrir Grikki,” segir for- sætisráðherrann Papandreo og vUl draga úr áhrifamætti eriends fjár- magns í landinu. Sósíalistaflokkurinn hefur á síðustu þrem og hálfu ári þjóð- nýtt þó nokkur erlend fyrirtæki og fryst erlent fjármagnsstreymi í land- inu. Papandreohefuríkosningabarátt- unni beitt sér mjög gegn stórfyrirtækj- um, ekki síst fjölþjóðafyrirtækjum og þeim sem þeim ráða, er hann kallar „leppa i þjónustu bandariska auð- valdsins.” Papandreo hefur viðurkennt það í kosningabaráttunni að á þrem og hálfu ári hafi sósíalistum ekki tekist sem skyldi í ýmsum málaflokkum. Þess vegna þurfi hann meiri tíma, a.m.k. fjögur ár í viðbót, tU að koma helstu stefnumálum sósíalista í höfn og öðru- vísi gangi dæmiö ekki upp. Persónufylgi Papandreo er mikið og l&legast sá þáttur sem hvað mest hefur haft að segja um fylgi sósíalista í skoðanakönnunum. Stefnuskrá flokks- ins virðist ekki sá þáttur er fær fólk tU að flykkjast um flokkinn heldur per- sónulegar vinsældir formannsins. Enn sem komið er virðist Mitsotakis vera eini gríski stjómmálamaðurinn sem möguleika á á því að velgja Pap- andreo undir uggum, kaldur, rólegur og yfirvegaöur, sá skynsami gegn hin- um létta og skemmtilega. Andreas Papandreo Litríkur ferill Andreas Papandreo, forsætis- ráðherra Grikkja, er orðinn 66 ára, lit- rUt persóna sem viðriðinn hefur verið ýmislegt um æ vina. I síðari heimsstyrjöld flúði hann Grikkland vegna yfirvofandi innrásar Þjóðverja og komst til Bandaríkjanna þar sem hann bjó í 20 ár. Papandreo kenndi hagfræöi við Berkeley háskóla í KaUfomiu, var yfirkennari deUdarinnar í mörg ár. Hann afsalaði sér grískum ríkisborgararétti, gerðist bandarískur ríkisborgari og giftist þarlendri konu. Faðir Andreasar var George Papandreos, forsætisráðherra Grikkja í mörg ár. Eftir kosningasigur föðurins 1963 kom sonurinn alkominn heim og var brátt farinn að láta tíl sin taka i stjómmálum. Á dögum herforingjastjórnarinnar sat Papandreo margoft í fangelsi fyrir pólitískar skoðanir sinar en geröist um leiö samnefnari vinstri afla i landinu er steypa vildu herforingjastjóminni. Eftir aö lýöræði var aftur komið á i Grikklandi jókst hróður hans og fyrr en varði var hann oröinn formaður grisku frelsishreyfingarinnar, fyrir- rennara Sósíalistaflokksins, sem síðar komst svo til valda i þingkosningunum 1981. Konstantín Mitsotakis Sá eini er ógnað getur Papandreo Hinn hægri sinnaði Lýðræðisflokkur Konstantín Mitsotakis var ekki upp á marga fiska í september síöastliönum er hann tók við formennsku í flokknum. A örfáum mánuðum hefur flokkurinn breyst frá því að vera smár hægri flokkur í helsta stjómarand- stööuflokk Grikklands og það afl er helst gæti sigrað Sósíalistaflokk Papandreos. Mitsotakis er enginn nýgræðingur í stjórnmálum. Mitsotakis hefur tekist að fylkja liði á meöal minni atvinnurekenda og bænda og á hvað sterkust ítök í millistétt. Mitsotakis er frá Krít og barðist þar með grísku andspyrnuhreyfingunni í siðari heimsstyrjöldinni. Mitsotakis komst á þing eftir stríðið 1946 og hefur meira og minna verið viðriöinn stjóm- mál síðan. Hann er talinn frjálslyndur i skoðunum en þó ihaldssamur í utan- rikismálum, dyggur stuðningsmaður Bandarikjanna og vestrænnar samvinnu. Mitsótakis hefur orö á sér fyrir að vera fylginn sér á fundum og standa fast á sínu. Blóðbaðið í Brussel: BRESKIR ÁHORFENDUR OLLU OFBELDINU Ofbeldið á knattspymuleikvanginum í Bmssel í fyrrakvöld var fordæmt um allan heim í gær. Á Italíu vom breskir fánar brenndir og mikil öryggisgæsla var við bresk mannvirki. Margaret Thatcher, forsætisráöherra Bretlands, samþykkti aö mesta sökin lægi hjá breskum aðdáendum Liverpool. Bret- landsstjóm bauð fram 250 þúsund pund, eða um 12 milljónir króna, sem fyrstu innborgun í sjóð sem yrði stofn- aöur til hjálpar þeim sem ættu bágt vegna óeirðanna. Formaður Liverpool, John Smith, sagðist hafa sannanir fyrir því að nas- istar úr National Front hefðu átt upp- tökin að slagsmálunum sem nú er ljóst að leiddu til dauöa 38 manna. Talsmaður National Front neitaði ásökununum. Nú er ljóst að þeir áhorfendur sem voru í stúkunni þar sem flestir létust vom á stað sem ætlaður var Belgum. Fréttaritari DV í Belgíu, Kristján Bemburg, telur líklegt að Italimir sem þama vom hafi verið meðal fjöl- margra Itala sem búa í Belgíu og vinna oft í kolanámum og ööru. Yfir- völd hafi ekki tryggt nægilega að áhangendur liðanna væm aðskildir því þau hafi ekki gert sér grein fyrir að svona margir Italir myndu verða meðal þeirra sem keyptu sér miða i Belgíu. Knattspymusamband Evrópu hefur skipaö nefnd til aö kanna orsök ofbeld- isins fyrir Evrópubikarleikinn. Forseti sambandsins, Jacques Georges, hefur sagt að til greina komi aö banna leiki breskra liða ó vegum sambandsins. Enn hefur þó engin ákvörðun verið tek- in. Mikil gagnrýni hefur komið fram ó belgísku lögregluna fyrir að skilja ekki bresku Liverpool-aðdáendurna nógu vel frá öörum áhorfendum. Innanríkis- ráðherra Belgíu sagði í svari við þess- ari gagnrýni í gær að Belgar hefðu ekki áhuga á að breyta Belgíu í lögreglu- ríki. Knattspyrauleikurinn varð að mar- tröð. Nú er sagt að 38 hafi farist í troðn ingnum á vellinum í Brassel. Umsjón: Þórir Guðmundsson og Hannes Heimisson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.