Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Qupperneq 3
DV. FÖSTUDAGUR14. JONI1985.
Sá danski seldist upp
á einni viku
nú tókst okkur að fá dýrarí genðina, Skoda 120L
sérútbúna fyrir Danmörku meö eftirtöldum búnaði:
Stærri vél (1200cc 52 Din hö.) Tveggja hraöa rúðuþurrkur
Tannstangarstýri Halogen framljós
Aflhemlar Teppi á gólfum
Fullkomnara mælaborö Radial hjólbarðar (165 SR 13)
Hliðarlistar Bakkljós
Þokuljós að aftan
Rafmagnsrúðusprautur
Læst bensínlok
Barnalæsingar á afturhurðum
Hallanleg framsætisbök
o.fl.
Og allt þetta fæiðu á dönsku afsláttarvenði
aðeins kr. 188.888.-
Ath. Opið í dag.
HALLDOR HEILSAR UPP
Á LANGAIÓN SILFURS
Öskar Magnússon, DV, Washlngton:
„Forsvarsmenn Long John Silvers
telja að fylgja eigi stefnu Alþjððahval-
veiðiráðsins um veiðar í atvinnuskyni.
Þeirri stefnu höfum við fylgt,” sagði
Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráö-
herra í samtali við blaðamann DV.
Halldór var i fyrradag á fundi í
höfuðstöövum veitingahúsakeðjunnar
Long John Silver hér í Bandarikjun-
um. Long John Silver hefur lengi verið
einn stærsti kaupandi íslenskra
sjávarafurða í Bandarikjunum.
Með Halldóri á fundinum voru for-
stjórar íslensku sjávarafurðafyrir-
tækjanna hér ytra, Magnús Gústafsson
og Guðjón B. Olafsson.
Halldór Asgrímsson sagði að ekki
Einn af veitingastöðum Long John Silver I Bandarfkjunum.
hefði komiö fram nein skoðun for-
svarsmanna Long John Silvers á hval-
veiðum í vísindaskyni. „Það er ekki
tímabært að leggja mat á það,” sagði
Halldór. Almennt sagði sjávarútvegs-
ráðherra að rætt hefði verið um mark-
aðsstööuna í Bandaríkjunum. „Við
getum verið bjartsýnir. Sala hefur
verið að aukast og ég tel líkur á áfram-
haldandi aukningu,” sagði ráðherra.
Hann sagði þetta hafa verið í fyrsta
skipti sem forstjórar íslensku fyrir-
tækjanna heimsæktu Long John Silver
saman. „Það var mjög ánægjulegt,”
sagði Halldór Asgrímsson,” og fyrir
mig að koma til þessa stærsta við-
skiptavinar Islendinga í Bandaríkjun-
Sendiráðum
veittaðhald
Alþingi samþykkti í gær þings-
ályktunartillögu sem felur í sér að
auknu aðhaldi verði beitt í sam-
bandi við umsvif erlendra sendi-
ráða hér á landi.
Utanríkisnefnd stendur samhuga
á bak við þessa tillögu. Formaður
utanríkisnefndar, Eyjólfur Konráð
Jónsson, mælti fyrir tillögunni.
APH
Byggðastofnun
ekki norður
Ljóst er að byggðastofnunin
verður ekki staðsett á Akureyri.
Frumvarp um byggðastofnun var
afgreitt frá neðri deild í fyrradag.
Tillaga þess efnis að stofnunin
yrði staðsett á Akureyri var f elld.
APH