Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Page 17
DV. FÖSTUDAGUR14. JUNI1985.
17
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Knapp
biðja
Lárus
afsökunar
Knattspyrnuunnandi skrifar:
Mjög var dapurlegt aö hlusta á mál-
flutning landsliösþjálfarans, Tony
Knapp, í íþróttaþætti sjónvarpsins þ.
10/6 1985. Þar ber landsliðsþjálfarinn
Lárusi Guðmundssyni, atvinnuknatt-
spyrnumanni í Þýskalandi, ýmislegt á
brýn og hallar mjög réttu máli svo ekki
sé meira sagt.
Gefur landsliðsþjálfarinn m.a. í
skyn að Lárus hafi kvartað undan því
að sitja á varamannabekk í fyrri
landsleik Skota og Islendinga og jafn-
framt að Lárus hafi verið með remb-
ing og talið sig eiga sæti i landsliðinu
umframaðra.
Hér er farið með alrangt mál og
hallaö á góðan dreng sem miklu
fremur er kunnur að kurteisi, látleysi
og íþróttamannslegri framkomu í hví-
vetna en þeim oflátungshætti sem
landsliðsþjálfarinn, Tony Knapp,
eignar honum. Og verður það að teljast
meiriháttar ókurteisi að bera sak-
lausum manni slíkt á brýn frammi
fyrir alþjóð.
Má hér m.a. vísa til ummæla
Lárusar í blaðaviðtali eftir fyrri Skota-
leikinn þar sem hann segir: ,,Það er
engin skömm aö sitja á varamanna-
bekk, en þegar maður finnur að maður
er ekki inni í myndinni hjá landsliðs-
þjálfaranum, þá er til lítils að vera að
koma.”
Islenska landsliðið þarfnast sinna
bestu manna og sé svo að Lárus
Guðmundsson, sem keppir í fremstu
víglínu hjá einni fremstu knattspymu-
þjóö Evrópu, teljist til þeirra þá er
slæmt til afspumar að kaldranaleg
framkoma landsliðsþjálfarans flæmi
slíka menn frá.
Tony Knapp landsliðsþjálfari ætti
að biðja Lárus afsökunar á ummælum
sínum umhann undanfarið.
KNATTSPYRIMUSKÓLI
VALS
Næstu námskeið verða 18.6.—28.6. og 1.7. —12.7.
Kunnir knattspyrnumenn koma í heimsóknir.
Nánari upplýsingar í síma 11134.
Valur.
Jói segir að Whaml aðdáendur haldi upp á Whaml vegna þess hve
George Michael só sætur.
Er George Michael
með hárkollu?
Jói skrifar:
Eg er aðdáandi Duran Duran og
margra annarra hljómsveita, svo
sem U2, Dead or alive, Power
Station, auk söngvara eins og Prince
og Nik Kershaw. Þessar hljómsveitir
og söngvarar flytja alvörutónlist.
Því er bara ekki að heilsa með allar
vinsælar hljómsveitir. Ég veit t.d. að
Wham! aðdáendur halda bara upp á
Wham! vegna þess hve George
Michael er sætur. Raunin er hins
vegar sú að það er bara plat. Eg hef
það eftir óvefengjanlegum
heimildum að George Michael sé
með hárkollu.
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJISHUSINU11 JliHUSINU
OPIÐ Í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 21 í KVÖLD
GLÆSILEGT
ÚRVAL
HÚSGAGNA
Á TVEIMUR HÆÐUM
Raftækjadeild 2. hæð
Rafmagnstæki allskonar
Video spólur VHS. -
Hreinsispólur VHS. —
Ferðatæki, ódýrar kessettur. —
Reiðhjól -
JL-horniðí JL-portinu
Grill — grillkol — uppkveikjulögur — spritttöflur — grilltangir og teinar — kælitöskur — hitabrúsar.
Verslið þar sem úrvalið er
mest og kjörin best
/A A A A A A % *
o co m o aij'ia
cu c ö cr JU'Jijjj
UHriUUUHHIIÍIIIIn
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
SE NDUMI
FALLEG p^röfu!
GARÐHÚSGÖGN
FRÁ SVÍÞJÓÐ..
í Bláskógum höfum við undirbúið komu sumarsins.
Hér er mikið úrval af traustum, þægilegum og
fallegum garðhúsgögnum frá Svíþjóð. Þau eru gerð
úr gegnvarinni furu eða epoxyllökkuðu stáli.
------ ----—rr^7lóíTÍ682.-, borð
lagaholm stf'’lr^n '
2.314.-. sólhbf 2.250.
Kr. 1.220.-, solWtt-JZ--
—r—fóiusóf' kv.
“^'^vðVlS.■■>*« 2'25 *"
8.980.-, boí°
Hagkvæm greiðslukjör eða staðgreiðsluafsláttur.
Og eins og sjá má eru garðhúsgögnin okkar. . .
.. á oumflýjanlega
hagstæðu verði
fflS
IKV Bláskógar
Ármúla 8 - S: 686080 - 686244