Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Page 32
44
DV. FÖSTUDAGUR14. JONI1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sophia Loren hefur hafnað boði
forseta ítalíu um að vera viðstödd
móttöku Karis Bretaprins og
Diönu. Sophia er víst ennþá reið út i
forsctann yfir að hún skyidi hafa
verið látin sitja inni vegna skatta-
málsins árið 1982. Svoieiðis hlutum
gleyma víst fáir og nú verður for-
seti italíu að bíta í það súra epli að
sjálf Sophia Loren neitar virðulegu
boði forsetans.
*
Linda Evans, sem fer með eitt
aðaihiutverkið i bandarisku
sápunni Dynasty, ætlar nú að
reyna fyrir sér sem söngkona.
Menn eru að vísu ekki bjartsýnir á
að hún nái iangt á þeirri braut, en
hóteleigandi í Las Vegas, sem
hefur fengið Lindu til að syngja hjá
sér, býst við fullu húsi. Það er
aldrei að vita nema það verði og að
ieikkonan siái í gegn sem söngkona
eins og hún hefur gert í hlutverki
Krystle í Dynasty.
*
*
*
Michael Landon, sem undan-
farin ár hefur birst okkur sem góði
pabbinn i Húsinu á sléttunni, hefur
halað inn peninga fyrir leik, samn-
ingu handrits og leikstjórn á þátt-
unum. Árið 1980 voru laun hans
fyrir hvern þátt 100.000 dollarar
sem í dag eru rúmlega fjórar millj-
ónir. Laun Landon hafa heldur
betur hækkað frá þvi hann lék Jóa
litla í Bonanza-þáttunum forðum,
þá fékk hann aðeins eitt þúsund tvö
hundruð og fimmtíu dollara á þátt,
eða um 52.500 islenskar krónur. En
þaö var líka árið 1959 og nú er jú
1985 og ekki nema eðlilegt að menn
hækki í Iaunum, eða h vað?
GIMSTEINN
Hann Kristján Ari, Ijósmyndari DV, er iðinn við að snuðra uppi gimsteina
og festa þá á filmu. Þessi unga stúlka, María Gomez, varð á vegi hans fyrir
nokkrum dögum, glaðleg og brosandi, og lót sér hvergi bregða þó hæg
hafgola kembdi á henni haddi itn.
Rocky hefur keypt
sér glæsikerru
Þaö ætti ekki aö væsa um
Sylvester Stallone í nýja Benzinum
sínum sem er hvorki meira né minna
en 6,6 metrar á lengd. Kostnaðurinn
við að breyta venjulegum Benz í þessa
glæsikerru var aðeins rúmlega
fimm milljónir, þá munar víst ekki um
svoleiðis smáaura í Hollywood. I
bílnum eru vitanlega ýmis þægindi
sem bráðnauösynlegt er að hafa í
öllum bilum eða þannig, eins og sjón-
varp, video, örbylgjuofn, heitt og kalt
vatn, svo ekki sé minnst á síma og út-
varp sem er líklega í flestum bif-
reiðum nú til dags. Númer bílsins er
SLY sem er gælunafn Sylvester
Stallone.
Dolly Parton að
missa röddina?
Rocky, eða Silvester Stallone réttu
nafni, klappar nýja bílnum sinum
og list væntanlega vel á númerið.
SLY.
Kántrísöngkonan Dolly Parton
er í vanda, læknirinn hennar hefur
ráðlagt henni að hætta að syngja
annars geti hún hreinlega misst
röddina. Dolly er eðlilega óhress meö
þetta en hún hefur í mörg ár átt í
vandræðum með raddböndin.
Þar með er ekki öll sagan sögð af
óförum söngkonunnar, ef svo má
segja, því nýlega tók einn líkams-
ræktarfrömuður sig til í Banda-
ríkjunum og nefndi nokkra vel
þekkta einstaklinga sem þyrftu að
taka sig á í líkamsræktinni. Og vesa-
lings Dolly lenti í þeim hópi. Ráð-
legging líkamsræktarmannsins til
Dolly var, pantaðu þér tíma í aerobic
leikfimi. Eitt gullkorn aö lokum fró
Dolly sjálfri: „Það versta við það að
vera miöaldra er að vita að þú átt
eftir að komast yf ir það. ”
Nýi Benzinn hans Rocky er nú svolítið langur en það hlýtur að þurfa svolitið pláss fyrir öll þægindin
i';. |
■
„Ég er á lausu”
— segir Eddie Murphy en
kærastan mótmælir
Eddie Murphy, gamanleikarínn
góðkunni úr Beverly Hills Cops og 48
stundir, segist vera laus og liðugur en
vinkona hans, Lisa Figueroa, segir að
hann sé það alls ekki og sé búinn að
lofa aðgiftastsér.
Eddie hefur gefið þær yfirlýsingar á
sviði að hann sé til í allt og langt frá því
að vera í giftingarhugleiöingiun. Lisa
segir að þetta sé allt brandari hjá
honum og er ekki í vafa um að hann
komi til með að standa við orð sín og
ganga í það heilaga. Þau skötuhjú trú-
lofuöu sig um síðustu jól en þá höfðu
þau þekkst í rúmlega eitt og hálft ár.
Hún sá hann á diskóteki, leist vel á pilt-
inn og bauö honum upp í dans. Það
þáði hann og svo fór sem fór, hann bað
um hönd stúlkunnar sem hann fékk.
Lisa er nemandi í læknisfræði í
háskóla í New York en Eddie dvelur
lengst af í Hollywood eða er ó ferðalagi
um heimalandið, Bandaríkin. Þau
sjást því lítið og segir stúlkan síma-
reikningana vera himinháa. Eitthvað
virðast þau hafa til að tala um, kannski
það sé skipulagning brúðkaupsins eða
kannski er Eddie kallinn að útskýra
brandarann um þaö að hann sé laus og
liðugur.
Eddie Murphy og kærastan, Lisa Figueroa, sæl á svip. Vonandi helst
brosiö hjá þeim báðum þrátt fyrir upplýsingar Eddie.