Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Qupperneq 1
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
19
• Hlaupaleiðin. Maraþonið er tveir heilir hringir, hálfmarþon einn og skemmtiskokksleiðin sést lengst til
vinstri i vesturbænum.
Dansstaðir — Matsölustaðir — Leikhús — Sýningar
Myndbönd o.fl.
SKOKKAÐ
UM BÆINN
— í Reykjavíkurmaraþoni
Á sunnudaginn verður hið alþjóð-
lega Reykjavíkurmaraþon haldið í
annað skipti. Þátttaka hefur aukist
verulega í hlaupinu frá því í fyrra og
því sýnt að það á framtíð fyrir sér. A
mánudag höfðu 250 manns látiö skrá
sig til þátttöku, þar af 120 útlending-
ar. Það er reiknað með að 4—500
manns muni skokka. 1 fyrra tóku 214
manns þátt.
Hlaupið hefst kl. 10.00 á sunnudag í
Lækjargötu. Keppt verður á þremur
vegalengdum: sjálfu maraþoninu
sem er 42,195 km, hálfmaraþoni sem
er hálf sú vegalengd og skemmti-
skokki sem er 7 km innan vestur-
bæjar Reykjavíkur. Þetta er opið
mót fyrir bæði kynin frá 6 ára aldri.
Allir sem þátt taka fá veglegan verð-
launapening sem gefinn er af
Morgunblaðinu. Rás 2 mun veita
elsta og yngsta þátttakanda í
hlaupinu sérstök verðlaun í beinni út-
sendingu úr Efstaleitinu. Þeir aðilar
sem veg og vanda hafa af keppninni
eru Feröaskrifstofan Urval, Flug-
leiðir, Reykjavíkurborg og Frjáls-
íþróttasamband Islands. Verndari
hlaups er Davíð Oddsson borgar-
stjóri.
Hlaupaleiöin er þannig í maraþon-
inu að hlaupnir eru tveir hringir í
Reykjavíkurborg. Hálfmaraþonið er
eins og gefur aö skilja aðeins einn
hringur. I skemmtiskokkinu er
aðeins hlaupinn fyrsti hluti
hringsins.
Hlaupið hefst á Fríkirkjuvegi á
móts viö Fríkirkjuna. Hlaupiö er
meðfram Tjörninni, yfir Tjarnar-
brúna, út Suðurgötu og farinn
hringur um vesturbæinn. Leiðin
liggur síðan til austurs um gatnamót
Elliðavogs og Suðurlandsbrautar og
þá beygt aftur til hægri inn Lang-
holtsveg. Hlaupið er Langholtsveg
inn að Laugarnesvegi þár sem beygt
er til vinstri. Laugarnesvegur er
hlaupinn inn að Sundlaugavegi þar
sem beygt er til vinstri og Sund-
laugavegur hlaupinn inn að
Kringlumýrarbraut. Síðan liggur
leiðin upp Kringlumýrarbraut og
þaðan niður Miklubraut og Hring-
braut. Þeir sem hlaupa einungis
hálfmaraþonið ljúka hlaupinu við
endamark í Lækjargötu en maraþon-
hlaupararnir hlaupa annan hring. I
skemmtiskokkinu er farin sama leið
og í upphafi en eftir að komiö er út
Tryggvagötu er beygt til hægri inn
að Lækjargötu. Hlaupið er allt á
malbikuöum götum. Merkingar
verða á 5 km fresti og einnig eftir 10
og 20 mílur.
Sigurvegarar í Reykjavíkurmara-
þoni 1984, sem var jafnframt hiö
fyrsta, voru þau Sigurður P.
Sigmundsson í karlaflokki og I.eslie
Watson í kvennaflokki. Hún mun
taka þátt í hlaupinu í ár. Mun hún án
efa setja mikinn svip á hlaupið þar
sem hún er geysiskemmtileg hlaupa-
kona.
I fyrra viðraði ekki sem best til
hlaupsins en þá var rigningarsuddi
og hráslagalegt veður. Þá er bara
að vona að veóurguðirnir leggi
blessun sína yfir þessi nokkur
hundruö sem ætla að hlaupa sér til
skemmtunar-
„Ég vildi geta
eftir (lög og ljóö): Oddgeir
Kristjánsson, Ása í Bæ, Gísla Helga-
son, Alfreð Washington Þórðarson,
Arna úr Eyjum, Gylfa og Lýð Ægis-
syni. Sá síðastnefndi hefur nýlega
samið nýtt þjóöhátíðarlag. Allir
tengjast þessir kappar Eyjum á ein-
hvern hátt.
Skemmtunin verður í kvöld og
laugardagskvöld. Haldið verður
áfram fram eftir hausti, en þó verður
ekki skemmtun um næstu helgi (30.
og31. ágúst).
Hægt er að kaupa ferð í Reykjavik
hjá Flugleiðum til Vestmannaeyja.
Innifaliö er flug til og frá Eyjum,
hótelgisting í eina nótt ásamt
skemmtuninni og matnum. Upplýs-
ingar er að fá á skrifstofu Flugleiða.
• Þessi mynd er af byggðinni á Heimaey og er tekin skömmu eftir siðustu aldamót. Ljósmyndari er
óþekktur.
Um þessa helgi munu í annað
skipti Eyjamenn og aðrir gestir
Gestgjafans í Eyjum syngja og
kætast af „innlendu” léttmeti. Þetta
er sem sagt bæöi líkamleg og andleg
fæða matreidd af Eyjamönnum.
Á boðstólum er Eyjahlaöborð í
Gestgjafanum í Vestmannaeyjum
þar sem m.a. má finna: bjargfugla-
kjöt matreitt á marga vegu og
sjávarrétti ýmiss konar.
Um skemmtiatriöin sjá: Jónas
Þórir, Helgi og Hermann Ingi
Hermannssynir, Runólfur Dag-
þjartsson, Jónas bróöir hans og
Einar „Klink” Sigurfinnsson. Matar-
gestir fá einnig aö láta ljós sitt skína
í fjöldasöng á eftir skemmtiatriðum.
Flutt verða gömul og ný þjóðhátíðar-
lög og eru þau geysimörg til. Þau eru
Ef þú vilt dansa
Ártún,
Vagnhöföa 11, Reykjavík, sími
685090.
Gömlu dansarnir föstudags og laugar
dagskvöld. Hljómsveitin Drekar leikur
undir.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími
77500.
Hér verður dansiball á föstudags og
laugardagskvöld en það hverjir leika
fyrir dansi er á huldu.
Glæsibær
v/Álfheima, Reykjavik, sími
685660.
Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi
föstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld. ölver opið alla daga vikunnar.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík,
simi 11440.
Dansað við skifuþyt föstudags og
laugardagskvöld en gömlu dansarnir
rifjaðir upp á sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suöurlandsbraut 2, Reykjavík,
simi 82200.
Dansleikir á föstudags , laugardags og
sunnudagskvöld. Tiskusýning öll
fimmtudagskvöld.
Hótel Saga
v/Hagatorg, Reykjavík, simi
20221.
Hljómsveit Grétars örvarssonar leikur
fyrir dansi föstudags- og laugardags
kvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavik, simi
81585.
Diskótek á báðum hæðum alla helgina.
HLH flokkurinn skemmtir á sunnudags
kvöldiö.
Klúbburinn,
Borgartúni 32, Reykjavik, sími
35355.
Hljómsveitin Kvart leikur föstudags og
laugardagskvöld. Að auki diskótek á
fjórum hæðum.
Leikhúskjallarinn
v/Hverfisgötu, Reykjavík, sími
19636.
Lokað.
Naust,
Vesturgötu 6-8, Reykjavík,
sími 17759.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi um
helgina.
Óöal
v/Austurvöll, Reykjavík, simi
11630.
Diskótek föstudags , laugardags og
sunnudagskvöld.
Villti tryllti Villi,
Skúlagötu 30, Reykjavík, sími
11555.
Dansiball fyrir alla 16 ára og eldri á
föstudags og laugardagskvöld.
Sigtún
v/Suöurlandsbraut, Reykjavík,
sími 685733.
Diskótek föstudags og laugardags
kvöld.
Ríó,
Smiðjuvegi, Kópavogi.
Lokað á föstudagskvöldum i sumar. Á
laugardagskvöldið verður diskótok og
skemmtiutriði frá kl. 10 03.
Ypsilon,
Smiðjuvegi 14D, Kópavogi,
simi 78630.
Þórscafé,
Brautarholti 20, Reykjavik.
Hljómsveitin Hafrót sér um fjörið á efri
hæðinni.
AKUREYRI
H-100
Diskótek á öllum hæðum föstudags-,
laugardags og sunnudagskvöld.
Sjallinn
Gimsteinn leikur fyrir dansi föstudags
og laugardagskvöld.