Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Blaðsíða 6
50 DV. LAUGAKDAGUR19. OKTOBER1985 Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á kortið. Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar og ganga frá öllu í sama símtali. Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,- Hafið tilbúið: Nafn — heimilisfang — síma — nafnnúmer — kortnúmer og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar. Athugið! Áfram verður veittur staðgreiðsluafsláttur af auglýsingum, sem greiddar eru við móttöku. Frjalst.ohaö dagblaö SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLT111 SÍMI27022 V/S4 Charles Bronson ENNÁFULLU I íbúö hátt yfir Central Park situr einn af endingarbestu haröjöxlum kvikmyndanna, Charles Bronson, og ræðir nýjustu myndina sína. I þeirri mynd notar hann, eins og svo oft áöur, vélbyssu á stærö við borö til að salla niöur vandræöamenn. Charles Bronson veit af mikilli nákvæmni hvaö áhorfendur vilja frá honum. Hann veit líka hvaö vekur áhuga hans í kvikmyndum og þaö er sko örugglega ekki C. Bronson. „Ég er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér sjálfum,” játar hann hógvær. 62 ára að aldri og eftir að hafa leikið í yfir 60 myndum lítur Bronson dálítið þreytulega út. Og til að ýta enn frekar undir þreytulegt útlit hans er yfirvaraskeggið fræga horfiö. Því var fórnað fyrir nýtt hlut- verk. I Death Wish 3, sem verður sýnd bráölega, leikur Bronson enn á ný Paul Kersey, hvers saga hófst fyrir 11 árum þegar fjölskylda hans var þurrkuö út á hroöalegan hátt í fyrstu „dauöaóskinni”. 1 þessari mótsagna- kenndu mynd gefur Kersey glæpa- mönnum þaö sem hann og áhuga- samir áhorfendur töldu aö þeir ættu skilið. Sumir gagnrýnendur voru ekki eins hrifnir. Töldu þeir að þarna væri verið aö bregða ljóma á ofbeldi og hef ja þaö til skýjanna. Bronson segir að þessi mynd sé næstum því eins og hinar nema að nú sé hann ekki einn aö verki. Aö þessu sinni komi hann gömlum vini til hjálpar og breytist í (eins og vana- lega) „eins manns útrýmingarsveit” sem ræöst á sníkjudýr þjóðfélagsins. Þaö er kannski ekki tilviljun aö mikiö af myndinni var tekið í fátækrahverfum Brooklyn. „Þetta er mjög ofbeldisfull mynd en þaö fellur þó allt innan ramma myndarinnar,” segir Bronson. „Þaö er einna helst atriði, þar sem ég salla niöur nokkra mótorhjólamenn, sem orkar tví- mælis, ’ ’ bætir Bronson glottandi við. Death Wish 3 var mynduð nokkrum mánuðum eftir að New York-búinn Bernard Goetz hafði skotiö f jóra menn sem hann sagöi að heföu veist að sér í neðanjarðar- lestinni. Hann var kallaöur „dauöa- óskamaðurinn” i blöðunum. Bronson segist hafa veriö búinn að samþykkja aö leika í myndinni löngu áöur en nokkur haföi heyrt um Bemard Gœtz. Og honum er umhugað um að eyða öllum samlíkingummeöKerseyogGoetz. . En gæti Bronson séö sjálfan sig í þeirri aöstööu aö hann hegðaði sér eins og P. Kersey? „Ef fjölskyldan blandaöist í þetta og þú hefur hvöt til aö verja þig og þína þá er alveg eins líklegt að menn hegði sér á þennan hátt.’ En þegar rætt er um ofbeldi í myndum almennt segist Bronson ekki telja hve margir eru drepnir þegar hann skoöar handrit. Það sem skiptir máli er hvernig og af hverju drápinfarafram. Bronson segist vilja handrit sem hafi yfir fjölbreytni aö ráða. Og hann hefur leikið í a.m.k. þrem myndum sem má kalla „klassískar” á sinn hátt. The Great Eseape, The Dirty Dozen og The Magnificent Seven. „Það veitir manni sérstaka ánægju að leika í svona myndum,” segirBronson. Bronson gefur enga skoðun upp á nýjustu „eins manns herdeildar” mönnunum í kvikmyndunum. Þ.e.a.s. þeim Arnold Schwar- zenegger, Sylvester Stallone og Chuck Norris. Bronson segist einfaldlega ekki hafa sér myndir þeirra. Reyndar segist hann ekki hafa séð eigin myndir heldur. En að lokum, hvaö gerir Bronson eftír Death Wish 3? „Meira af því sama,” svarar Bronson. „Það er þegar farið að tala um Death Wish 4.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.