Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Síða 3
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986. 21 Svifflugur munu svífa yfir Sandskeiöi á sunnudaginn ef veður ieyfir. Flugdagur á Sandskeiði Svifflugfélag Islands átti fimmtíu ára afinæli síðastliðinn sunnudag en fresta varð öllum hátíðarhöld- um vegna veðurs. Vonast er eftir flugveðri á sunnudaginn og verður þá afmælið haldið hátíðlegt á Sandskeiði. Sýnt verður listflug á svifflugum og vélflugum auk þess sem gestir fá tækifæri til að bregða sér í loftið á vélum félagsins. Dagskráin hefst klukkan tvö og mun standa til hálf- sjö um kvöldið. Allar svifflugur félagsins verða til sýnis á Sand- skeiði ásamt nokkrum svifflugum sem félagsmenn eiga. Einnig verða á dagskrá myndbandasýningar og fýrirlestrar um hvað svifflug er og um upphaf svifflugs á íslandi. í einu flugskýli félagsins verður sögusýning þar sem sýndar verða ljósmyndir frá starfi félagsins, hluti af fyrstu renniflugunni sem notuð var á íslandi, ein gömul sviffluga og samantekt á þróun Islandsmeta í svifflugi. Allir eru velkomnir upp á Sand- skeið á sunnudaginn og er enginn aðgangseyrir að sýningunni. Boðið er upp á kaffi og veitingar á staðn- um og áhugasömum gestum gefst kostur á að fljúga með sviffiugum félagsins fram eftir kvöldi ef vel viðrar. Myndlist á Seltjamamesi I Listveri, Austurströnd 6 á Seltjarnarnesi, verður í dag klukkan fjögur opnuð myndlist- arsýning í tilefni vinabæjarmóts. Það er Myndlistarklúbbur Sel- tjarnarness sem stendur fyrir sýningunni en i honum eru tíu Seltirningar. Þeir eiga allir myndir á sýningunni sem stendur til 31. ágúst. Sýningin er opin milli klukkan fjögur og átta á virkum dögum en frá tvö til átta um helgar. Hátíðartón- leikar á ísafirði Það eiga fleiri bæir afmæli en Reykjavík á mánudaginn, en 8. ágúst 1786 var sex bæjum veitt kaupstaðarréttindi. Enginn þeirra hefur þó haldið þeim sleitulaust síðan nema Reykja- vík. ísafjörður var einn þessara bæja og í tilefni afmælisins verð- ur efnt til hátíðartónleika í Alþýðuhúsinu á morgun, laugar- dag, klukkan fimm síðdegis. Kristinn Sigmundsson óperu- söngvari og Jónas Ingimundar- son pianóleikari munu flytja hinn áhrifamikla lagaflokk Schuberts, Vetrarferðina. Þeir Kristinn og Jónas eru háðir landsþekktir listamenn og ísfirðingum af góðu kunnir. Kristinn Sigmundsson syngur á ísafiröi um helgina i tilefni af af- mæli bæjarins. A NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.