Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1986, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1986.
27
tæknisýningarinnar og veröur væntanlega
Arkitektanemar
sýna í Ásmundarsal
„Við viljum gefa fólki tækifæri
til að sjá hvað við höfum verið að
fást við. Margir vita ekki almenni-
lega hvað arkitektúr er,“ sagði
Lilja Grétarsdóttir, ein af ellefu
arkitektanemum sem standa fyrir
sýningu í Ásmundarsal við Freyju-
götu. „Á sýningunni sést einnig vel
hversu mismunandi þetta nám get-
ur verið í hinum ýmsu löndum, til
dæmis er misjafnlega mikið lagt
upp úr tæknilegu hliðinni," sagði
Lilja. Þau, sem standa að sýning-
unni, eru auk Lilju: Bjarni Kjart-
ansson, Sigríður Maach, Sigrún
Reynisdóttir, Auður Hrönn Guð-
mundsdóttir, Páll Hjaltason,
Sigurbjöm Kjartansson, Þóra
Helgadóttir, Sigríður Magnúsdótt-
ir, Þórður Steingrímsson og Frið-
rik Friðriksson. Þau eru við nám
í Danmörku, Finnlandi, Noregi,
Þýskalandi og Bandaríkjunum og
eru öll komin nokkuð áleiðis í
námi.
Verkefnin, sem sýnd eru í Ás-
mundarsal, eru flest teikningar af
húsum og byggingum en einnig eru
nokkur smærri hönnunarverkefni
eins og til dæmis ilmvatnsglas og
gjafaaskja undir íslenskt brenni-
vín.
Hópurinn hefur einnig unnið að
uppsetningu á nokkurs konar
smiðju í Grófinni gegnt versluninni
Geysi. Þar hafa þau hannað um-
hverfi, sem gerir ráð fyrir sölubúð-
um, veitingasölu, útsýnispalli og
sviði fyrir alls kyns uppákomur.
Þarna verður ýmislegt skemmtilegt
um að vera í dag og næstu daga.
Píanótóiúeikar á
Suður- og Austurlandi
Nú um helgina munu píanóleik-
ararnir Martin Berkofsky og Anna
Málfríður Sigurðardóttir halda í
tónleikaferð um Suður- og Austur-
land. Fyrstu tónleikamir verða á
sunnudaginn í Hvoli á Hvolsvelli
og hefjast þeir klukkan tvö. Sama
dag klukkan hálfsex verða tónleik-
ar í Selfosskirkju en frá Selfossi
verður haldið austur til Hafnar í
Hornafirði þar sem Martin og
Anna munu leika í Hafnarkirkju á
þriðjudagskvöldið klukkan níu.
Síðustu tónleikarnir verða síðan í
Valaskjálf á Egilsstöðum á mið-
vikudagkvöldið og hefjast þeir
einnig klukkan níu.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir Franz Schubert og Franz
Liszt. Þau munu leika saman fjór-
hent á píanó úrval verka eftir
Franz Schubert sem þau fluttu á
tónleikaröð í Norræna húsinu síð-
astliðinn vetur. Martin Berkovsky
leikur síðan einleik verk eftir
Franz Liszt til minningar um Liszt
árið 1986.
sýning
avikur
sveitu, foss og virkjunargöng. Sýndar
verða kvikmyndir, ljósmyndir og málverk.
Landslagsmyndir verða sýndar af níu
tölvustýrðum litskyggnuvélum í tengslum
við landslíkanið stóra.
Auk þess verður þekkingargetraun í
gangi og von fjölda vinninga. Veitingar
verða á staðnum og ókeypis barnagæsla
fyrir yngstu kynslóðina. Sýningin verður
opin almenningi til mánaðamóta.
Reykjavfloir-
myndir
á Mokka
Nú um helgina verður opnuð sjm-
ing á vatnslitamyndum eftir Sól-
veigu Eggerz Pétursdóttur í
Mokkakaffi við Skólavörðustíg.
Myndimar em svokallaðar Reykja-
víkurstemnmingar og em þær
málaðar í tilefrii af 200 ára afinæli
borgarinnar.
Revkjavíkurm.vndir Sólveigar hafa
í sumar verið til sýnis í veitingahús-
inu Gullna hananum og vöktu þær
þar mikla eftirtekt. Mjmdimar hafa
ekki verið til sölu fyrr en nú.
Eggertsson. Þeir munu að vanda taka
nokkur hressileg stuðlög frá frumbernsku-
árum rokksins.
Frístundahópurinn
Vikuleg laugardagsganga frístundahóps-
ins „Hana nú“ í Kópavogi verður á
morgun, 16. ágúst. Rölt er um bæinn í
klukkutíma og eru allir aldurshópar vel-
komnir. Nýlagað molakaffi er á boðstól-
um. Markmið göngunnar er: samvera,
súrefni, hreyfmg.
Húsbyggjandinn
Út er komið nýjasta tölublað Húsbyggjan-
dans. Eimm ár eru liðin frá því að blaðið
kom fyrst úr og er blaðið mun veglegra
en fyrr af því tilefni. Meðal efnis í þessu
blaði er heimsókn til Hilmars Jónssonar
og Elínar Káradóttur, útgefenda Gest-
gjafans, einnig heimsókn til Onnu Alfreðs-
dóttur og Finns Björgvinssonar arkitekts.
I blaðinu er einnig fjöldi byggingalausna,
meðal annars frágangur timburþaks og
steypts útveggjar, grein um einangrun
húsa og fleira. Þjónustulisti Húsbyggjand-
ans „Hvað fæst hvar?“ hefur frá upphafi
verið hluti blaðsins. Áskriftarsími blaðsins
er 687085.
V1ÐSKIPTA-&
TÖLVUBLAÐIÐI
Viðskipta- og tölvublaðið
Fjórða tölublað 1986 af Viðskipta- og
tölvublaöinu er komið út. Meðal efnis í
þessu blaði er forsíðugrein undir yfir-
skriftinni „Töfrataskan opnuð" en þar er
að finna samtals fjörutíu og eina hugmynd
sem hlaðið varpar fram og allar gætu orð-
ið upphafið að nýjum fyrirtækjum. Þá er
í hlaðinu stór og viðamikil grein um kröf-
ur fiugfarþega, úttekt á íslensku happ-
drættunum og margt fleira tengt tölvum,
tækni og viðskiptum. Blaðið er 108 blað-
síður að stærð og að mestu litprentað.
Útgefandi er Fjölnir hf.
Aldraðir í Langholtssókn
Bifreiðastjórar Bæjarleiða og fjölskyldur
þeirra bjóða öldruðum velunnurum Lang-
holtskirkju út fyrir borgarmörkin mið-
vikudaginn 20. ágúst næstkomandi.
llaldið verður kl. 13 austur vfir fjall að
skólasetrinu Skógum undir Eyjafjöllum.
Leiðsögumaður fararinnar er Jón Árnason
skólastjóri en byggðasafnið verður skoðað
undir leiðsögn Þórðar fræðaþular Tómas-
sonar. Félagar úr Kven- og Bræðrafélagi
safnaðarins aðstoða eftir föngum og bjóða
til kaffidrykkju í Skógum.
Átthagasamtök Héraðsmanna
Átthagasamtök Héraðsmanna efna til
hópferðar að Veiðivötnum laugardaginn
30. ágúst. Um er að ræða dagsferð og verð-
ur Guttormur Sigbjamarson fararstjóri.
Væntanlegir þátttakendur hafi samband
við Hrein Kristinsson í síma 84134 sem
fyrst.
Handboltaskóli Hauka
Hinn árlegi handboltaskóli hefst 18. ágúst.
Skólinn er opinn öllum börnum á aldrinum
6 14 ára (f. 1972 1980). Kennslan fer fram
í Haukahúsinu við Flatahraun og er þátt-
tökugjald kr. 350 fyrir hvern nemanda en
lækkar í 200 fyrir næsta íjölsk.vldumeðlim.
1 skólanum verða börnum kenndar regl-
urnar, farið í undirstöðuatriði og síðan
spilaður handbolti.
Þau börn sem áhuga hafa á að vera með
í skólanum mæti sem hér segir mánudag-
inn 18. ágúst:
6 8 ára strákar og stelpur .... kl. 10.00
9 11 ára strákar .............. kl. 11.00
9 11 ára stelpur .............. kl. 13.00
12 14 ára strákar ............. kl. 14.00
12 14 ára stelpur ............. kl. 15.00
Skólinn verður síðan daglega. klst. í senn.
fram að laugardeginutn 23. ágúst. Þá lýkur
honum með handknattleiksmóti og út-
nefningu efnilegustu leikmanna hvers
árgangs.
Nánari uppfýsingar fást í síma 52625
(Sindri) sunnud. 17. ágúst.
Ath. Þátttökugjald greiðist við innritun.
UÓÐ
Ljóðabók
Út er komið ljóðasafn eftir Steinunni Þ.
Guðmundsdóttur og nefnist það Ljóð.
Steinunn fæddist aldamótaárið og lést í
desember í fyrra. Eftir hana hafa komið
úr þrjár skáldsögur og heita þær Dögg í
spori, I svölum skugga og Niður fijótsins.
Steinunn lét eftir sig nokkuð af skáldskap
sem ekki hefur birst á prenti. Öll ljóð
hennar, birt sem óbirt, eru í hinu nýja
ljóðasafni. Ljóð Steinunnar fjalla meðal
annars um náttúruna og trúarlegar hliðar
lífsins og eru mörg þeirra ort með hefð-
bundnum hætti. Ljóðabókin er 94 bls. að
8tærð og er hún gefm út á vegum aðstand-
enda skáldkonunnar. Umsjón með út-
gáfunni hafði Ámi Sigurjónsson
bókmenntafræðingur. Bókin er prentuð í
Odda hf. og bundin hjá Bókfelli hf.
Nýtt hefti ökuþórs
Nýtt hefti Ökuþórs, málgagns FÍB, 2.-3. *
tbl. 1986 er komið út. Meðal efnis má geta
greina um bifreiðaferðalög erlendis. Ann-
ars vegar með bílaferjunni Norröna eftir
Sigurjón Valdimarsson og hins vegar þar
sem vinsæli ferðamátinn flug og bíll er
valinn og þar er greinarhöfundur Hilmar
Viktorsson. Auk félagslegs efnis, má sér-
staklega benda á athyglisverða grein um
aurhlífar eftir Svein Torfa Sveinsson verk-
fræðing. Kafli úr greinaflokki Andra
Árnasonar hrl.. lögfræðilegs ráðgjafa FÍB.
um réttarstöðu bifreiðaeigenda birtist
ennfremur í þessu hefti. Blaðið er sent frítt
til allra félagsmanna og er ekki selt í
lausasölu.
Auglýst eftir vitni
Á miðvikudagsmorguninn 13. ágúst kl.
7.45 var ekið í veg fjTÍr bíl við gatnamót
Höfðabakka og Stekkjarbakka með þeim
afleiðingum að hann lenti á staur. Maður
er kom þarna að og mun hafa orðið vitni
að atburði þessum er vinsamlegast beðinn
að hafa samband í síma 35200.
Tapað - Fundið
Lyktar fundust í kirkju
1 nýju kirkjunni í Hólahverfl fundust lv-
klar síðastliðinn miðvikudag. Eigandi
getur vitjað þeirra hjá dagbók DV.
Týnd læða
Dökkbrún læða með rauða ól tapaðist frá
Áslandi 10. Mosfellssveit. 26. júlí. Þeir sem
orðið hafa varir við hana vinsamlegast
hafí samband í síma 667325. «“
Ferðalög
Útivist kynnir gömlu þjóðleið-
ina yfir Hellisheiði til Reykja-
víkur
Útivist mun um helgina kynna
gömlu þjóðleiðina sem lá frá Suður-
landi vfir Hellisheiði til Reykjavíkur.
Hér er um að ræða elstu-þjóðleið á
íslandj og talið að hún geti verið
allt að 1100 ára gömul. Þjóðleiðin
verður kvnnt með gönguferðum sem
félagið skipuleggur bæði á laugardag
og sunnudag. Kl. 9 á laugardags-
morguninn verður ekið austur að
Revkjakoti í Ölfusi.og verður gengin v
þaðan varðaða leiðina yfir Hellis-
heiði að Kolviðarhóli og áfram að
Lækjarbotnum. Kl. 13 er hægt að
komast í ferðina frá Kolviðarhóli.
Á sunnudaginn hefst ferðin kl. 10.
30 og verður þá ekið í Lækjarbotna
og gengið þaðan til Reykjavíkur. Kl.
13 er hægt að hefja ferðina og sam-
einast hópnum við Elliðaárnar
neðan Ártúns en um bæinn lá göngu-
leiðin frá Elliðaánum vfir Bústaða-
holtið um Öskuhlíð. Skólavörðuholt
og Arnarhól í Grófina. í Öskjuhlíð
sjást einu leifar af hinni fornu þjóð-
leið innan borgarmarkanna. Brottför
í ferðirnar er frá BSÍ, bensínsölu, og
einnig verður farið frá Grófartorgi
10 mínútum fyrir auglýstan tíma.
Aðrar Útivistarferðir um helgina eru
helgarferðir í Þórsmörk og á Fimm-
vörðuháls. Sjáumst.
Útisvist, ferðafélag.
Sýningar
Stofnurt Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum.
fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Sjóminjasafn íslar >,
Vesturgötu 8, Hafnarfl
Opið þriðjudaga til sum 'aga kl. 14-18.
Sædýrasafniö
Opið alla daga kl. 10-17.
Hér-lnn,
Laugavegi 72.
Filip Franksson sýnir þar teikningar. Opið
frá kl. 8.30-22. Sýningin stendur út ágúst-
mánuð.