Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Qupperneq 32
32
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
“
Reykás
Malarás
Lækjarás
Vesturás
Rauðás
***★★★★★★**★*★★★**★★★
Sóleyjargötu
Fjólugötu
*********************
Gaukshólar
Hrafnhólar
Kríuhólar
Hafiö samband við afgreiðsluna og skrifið ykkur á biðlista
Baldursgötu
Bragagötu
**********************
KOPAVOGUR:
Lyngheiði
Melheiði
Álfhólsveg 46-99
Digranesveg 67-út
Kársnesbraut 40-út
Frjálst,óháð dagblað
Afgreiðslan,
Þverholti 11.
AÐALFUNDUR
VERNDAR
Aðalfundur félagasamtakanna Verndar verður haldinn
miðvikudaginn 17. september næstkomandi kl. 17.30
í funda- og ráðstefnusal ríkisstofnana, Borgartúni 6.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Utvarp - sjónvaip
Þorbjörn Jónsson frá Hafnarhólmi
lést 2. september sl. Hann var fæddur
26. júlí 1922, sonur hjónanna Guð-
bjargar Gestsdóttur og Jóns Kon-
ráðssonar. Eftirlifandi eiginkona
Þorbjöms er Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir. Þau hjónin eignuðust 13 börn
sem eru öll á lífi. Utför Þorbjörns
verður gerð frá Langholtskirkju í
dag kl. 15.
María Jónasdóttir frá Bíldudal, til
heimilis á Hagamel 48, andaðist í
Borgarspítalanum aðfaranótt mið-
vikudagsins 10. september.
Jón Kolbeinsson, Hátúni 4, lést
miðvikudaginn 10. september.
Otför Ingvars Kristinssonar,
Grænuhlíð 15, fer fram frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 12. september kl.
13.30.
Jónína Einarsdóttir frá Berjanesi,
Stórholti 23, lést í Borgarspítalanum
8. september.
Eiríkur Þorsteinsson, Borgarvegi
9, Ytri-Njarðvík, verður jarðsunginn
frá Ytri-Njarðvikurkirkju föstudag-
inn 12. september kl. 14.
Rafn Bjarnason, bóndi að Þorkels-
gerði í Selvogi, verður jarðsunginn
frá Strandakirkju laugardaginn 13.
september kl. 13.30.
A&næli
90 ára verður laugardaginn 13. sept-
ember Guðmundur Valdimar
Tómasson, fyrrum vörubifreiðar-
stjóri. Hann er nú vistmaður á DAS,
Hrafnistu, hér í bænum, en var áður
til heimilis á Laugateigi 19. Hann er
borinn og bamfæddur Reykvíkingur.
Hann ætlar að taka á móti gestum á
afmælisdaginn í föndurstofunni á
Hrafnistu, 4. hæð, milli kl. 15 og 18.
85 ára afmæli á í dag, 11. september,
frú Sigurbjörg Benediktsdóttir frá
Breiðabóli á Svalbarðsströnd,
Kleppsvegi 130. Eiginmaður hennar
var Sigtryggur heitinn Friðriksson
bóndi. Hún ætlar að taka á móti
gestum í veitingahúsinu í Kvosinni
í dag milli kl. 16 og 19.
80 ára afmæli á í dag, 11. september,
frú Ólöf Sigvaldadóttir, Þórunnar-
götu 1, Borgarnesi. Hún og maður
hennar, Jón Sigurðsson, ætla að taka
á móti gestum á heimili sínu í dag
eftir kl. 15.
70 ára verður á mánudaginn 15. sept-
ember Þórður Gíslason, fyrrver-
andi bóndi og skólastjóri Ölkeldu II
í Staðarsveit. Hann ætlar á laugar-
daginn kemur, 13. september, að taka
á móti gestum i félagsheimilinu að
Lýsuhóli eftir kl. 18 þann dag.
60 ára afmæli á í dag, fimmtudaginn
11. september, Hilmar Pétursson,
fasteignasali og fyrrum bæjarfull-
trúi, Sólvallagötu 34 í Keflavík.
Eiginkona hans er frú Ásdís Jóns-
dóttir. Hann er að heiman í dag.
TOkynningar
Kvartmílukeppni
verður haldin laugardaginn 13. september
á brautinni við Straumsvík.
Tónleikaferð um Austfirði
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Catherine Williams píanóleikari munu
fara í tónleikaferð um Austfirði dagana
11. til 14. september. Á efnisskránni, sem
er mjög fjölbreytt, eru verk eftir Mozart,
Bach, Jónas Tómasson auk nokkurra vin-
sælla fiðluverka eftir Bloch, Tschaikowski
og Saint-Saens. Tónleikarnir verða sem
hér segir: 1 Egilsbúð, Neskaupstað, 11.
sept. kl. 21, í Valhöll Eskifirði 12. sept.
kl. 21, í Félagslundi Reyðarfirði 13. sept.
kl. 17, í Herðubreið Seyðisfirði 14. sept.
kl. 15 og í Egilsstaðakirkju 14. sept. kl.
21. Aðgangseyrir verður seldur við inn-
ganginn á hveijum stað. Þess má geta að
listakonumar munu leika sömu efnisskrá
í Norræna húsinu þriðjudagskvöldið þann
16. september.
Saga Jónsdóttir leikari:
Hlustaði vitanlega
á beinu útsendinguna
Vegna vinnu minnar hlusta ég
frekar lítið á útvarp og horfi frekar
sjaldan á sjónvarp. í gærkvöldi
hlustaði ég á fréttimar á rás 1 og
horfði síðan á fréttatíma sjónvarps.
Yfirleitt eru fréttimar það efni sem
ég reyni að missa ekki af í ríkisfjöl-
miðlunum og finnst mér fréttatím-
amir oftast ágætlega unnir. En í gær
hlustaði vitanlega á beinu útsend-
inguna sem ég geri bara ef um
meiriháttar leiki er að ræða. Mér
fannst þeir Samúel og Ingólíur
standa sig vel í útsendingunni og var
mjög gaman að fylgjast með þessum
frábæra leik í útvarpinu.
Nýi þýski framhaldsflokkurinn
sem byijaði í gærkvöldi fannst mér
helst minna mig á svonefndar ástar-
læknissögur eins og maður las
gjaman fyrr á árum. Eg held ég láti
þennan myndaflokk ekki sitja í fyr-
irrúmi á miðvikudagskvöldum ef
eitthvað betra er í boði.
Mér finnst það góð stefha hjá sjón-
varpinu að nú em leikarar famir að
vera þulir með ýmsum myndum sem
þar em sýndar, eins og t.d. með
fræðslumyndunum um Reykjavík.
Almennt þá vil ég helst hafa meiri
íslenska leiklist bæði í útvarpi og
sjónvarpi og finnst mér þetta vera
atriði sem Bylgjan og rás 2 ættu að
taka til. athugunar. Annars hef ég
ekki hlustað mikið á Bylgjuna en
finnst það ágætt sem ég hef heyrt.
Andlát
RITARI
Viðskiptaráðuneytið óskar að ráða ritara sem fyrst.
Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli æski-
leg.
Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu, Arnarhvoli,
fyrir 20. september nk.
kaupmanna um ellefu ára skeið, en
frá 1969 var hann aðallögfræðingur
Verslunarbanka íslands og gegndi
því starfi til dauðadags. Eftirlifandi
eiginkona hans er Lára Hansdóttir.
Þeim hjónum varð þriggja barna
auðið. Útför Hafsteins verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Gunnar Bjarnason lést 1. septemb-
er sl. Hann fæddist í Reykjavík hinn
7. október 1933. Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Gíslína Kristinsdótt-
ir og Bjarni Kristjánsson. Gunnar
útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum
i Reykjavík 1957. Eftirlifandi eigin-
kona Gunnars er Guðrún Valgerður
Einarsdóttir. Þeim hjónum varð
tveggja barna auðið. Útför Gunnars
verður gerð frá Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag kl. 13.30.
Hafsteinn Sigurðsson hæstaréttar-
lögmaður lést 3. september sl. Hann
fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1926.
Foreldrar hans voru hjónin Ragn-
heiður Sara Þorsteinsdóttir og
Sigurður Z. Guðmundsson. Haf-
steinn var stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1947 og lauk
embættisprófi frá lagadeild Háskóla
íslands 1953. Hann rak lengi lög-
fræðiskrifstofu í Reykjavík, var
framkvæmdastjóri Félags ísl. stór-
Sveinn Sveinsson múrarameistari
lést 3. september sl. Hann fæddist í
Skarðdalskoti í Siglufirði 14. júní
1917. Foreldrar hans voru Sveinn
Sveinsson og Gunnhildur Sigurðar-
dóttir. Sveinn lauk námi í múraraiðn
á Siglufirði og stundaði þá atvinnu-
grein alla tíð. Hann fluttist til
Reykjavíkur 1941 og starfaði fyrstu
15 árin sjálfstætt með félögum sínum
en frá 1956 starfaði hann sem verk-
stjóri hjá stórum byggingarfyrir-
tækjum, fyrst Brú, þá Breiðholt hf.
og síðast hjá stjórn Verkamannabú-
staða. Eftirlifandi eiginkona Sveins
er Margrét Lilja Eggertsdóttir. Þeim
hjónum varð fjögurra bama auðið.
Útför Sveins verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 15.
RÆSTINGAR
Starfsfólk óskast til ræstinga. 100% vinna. Vinnutími
7.30-15.30 (hlaupandi frídagar).
Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 19600-259
milli kl. 8 og 16.
Reykjavík 10. sept. 1986.
Frönskunámskeið
ALLIANCE FRANCAISE
Laufásvegi 12
Haustnámskeiðið hefst mánudaginn 22. sept.
-13 vikna námskeið
- Kennt verður á öllum stigum ásamt bókmennta-
klúbbi, barnaflokki og unglingaflokki.
Innritun fer fram á Bókasafni A.F. alla virka daga frá
kl. 3-7 og hefst miðvikudaginn 10.9.
Nánari upplýsingar í síma 23870 á sama tíma.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 78., 83. og 87. tölublaði Lögbirtingablaðs 1985 á Ásvegi
27, Breiðdalsvík, þingl. eign Margrétar Arónsdóttur, fer fram samkvaemt kröfu
innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri fimmtudaginn 18. sept. 1986 kl.
11.00.
_____________________Sýslumaðurinn i Suður-Múlasýslu.