Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Side 36
36
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Michael Jackson
hefur loksins afhjúpað andlit sitt
og látið skurðlaeknagrímuna
hverfa. Ástæðan fyrir því að
hann bar hana var ekki eintóm
sýklahraeðsla heldur var söngv-
arinn í fegrunaraðgerð. Hakan
hefur verið sett kröftuglega fram
og kinnarnar eru örlítið kring-
lóttari en áður. Þessi aðgerð
hefur þó kostað þær fórnir að
nýju breiðskífu Jacksons, sem
hann hefur verið að vinna að í
rúm 3 ár, mun seinka eitthvað.
Er nú búist við að hún komi út
í janúar á næsta ári ef allt geng-
ur vel og söngvarinn finnur sér
ekki eitthvað annað til að dreifa
huganum.
Cindy Lauper
sló rækilega í gegn hér um árið
með laginu Girls just want to
have fun. Nokkur lög fylgdu í
kjölfarið en siðan hefur verið
hljótt um Cindy. Það mun þó
breytast á næstunni því hún er
við það að leggja síðustu hönd
á plóginn við nýja plötu. Sú
mun bera nafnið True Colore.
En meira er að frétta úr herbúð-
um söngkonunnar. Hún mun
hafa trúlofað sig umboðsmanni
sínum, Dave Wolf, en hann hef-
ur birst nokkrum sinnum á
myndböndum við lög söng-
konunnar.
Mandy Smith
heitir vel vaxin og myndarleg
16 ára stelpa frá Bretlandi. Hún
hefur sér það helst til frægðar
unnið að hafa staðið í ástarsam-
bandi við Rolling Stones-lið-
ann, Bill Wyman. Slíkt væri ekki
í frásögur færandi ef hún hefði
ekki verið 13 ára þegar samband
þeirra var sem heitast. Nú hefur
stelpan leyst frá skjóðunni en
segist ekki sjá eftir einni sek-
úndu af sambandinu. Samband
af þessu tagi er auðvitað koló-
löglegt og „barnið" undir
lögaldri. Hefur Wyman verið
úthrópaður og á nú yfir höfði
sér málssókn til viðbótar við
slæmt orðspor.
Borg með barnagalla sem hann segist vilja fylla upp í.
Bjöm Borg uppgjafatenniskóngur
hefur nú lýst því opinberlega yfir að
hann vilji stækka fjölskylduna eins
fljótt og hægt er. Honum þykja börn
yndisleg og frá því að sohur hans,
Robin. fæddist hefur líf hans tekið
miklum brey tingum og nú eyðir hann
öllum frístundum sínum með synin-
um. Þó að Björn langi í barn er einn
hængur þar ó. Jannike, kærasta
hans, segist ekki hafa nokkum
áhuga á að bæta við í bili. Nú loks-
ins þegar hún er orðin grönn á ný
segist hún vilja njóta lífsins með
Bimi og syni þeirra, telur sig of unga
til að eignast fleiri kríli. En það er
Bjöm sem ræður ferðinni í þeirra
sambandi og því fullt eins líklegt að
Jannike verði komin með bumbu
fljótlega. Hún er í sambúð með rík-
asta manni Svíþjóðar og nóg af
stúlkum sem vilja klófesta gullgrís-
inn.
Erfiðleikar í sambandinu
Jannike er ekki jafnheilluð af smá-
börnum og Bjöm. Hún hefur áður
þurft að passa böm og segist hafa
fengið sig fullsadda um sinn á bama-
gráti og bleium. Hún er með hugann
við útlit sitt en margir spá henni
frama sem fyrirsætu. Bjöm Borg hef-
ur keypt hús með mörgum svefn-
herbergjum og þau ó að fylla, segist
hann hafa sjálfur alist upp sem
einkabam og hann vilji ekki að Rob-
in þurfi að gera það lfka, hvað sem
Jannike segir.
Sambúðin virðist þvf ekki vera upp
á hið besta enda berast fréttir af því
að Björn hafi bannað Jannike að
hitta einhvem án þess að tala við sig
fyrst eftir að hann frétti af tedrykkju
hennar með fyrrum kærasta. Er fróð-
legt að sjá hverju fram vindur því
Jannike hefur verið þekkt fyrir að
fara eigin leiðir og vera sjálfstæð
stúlka.
Hér er hinn margumtalaði Robin
Björnsson (Borg) hamingjusamur
með snuðið sitt og alveg sama um
systur og bræður.
Jannike segist ekki hafa áhuga á
barneignum i bili en fær hún nokkru
ráðið um það?
Fjölskyidan á áhorfendabekknum
John McEnroe, tenniskappinn góð-
kunni, hefúr verið þekktur fyrir að hafa
munninn fyrir neðan nefið. Oft hefúr
munnurinn látið einum of að sér kveða
á meðan á keppni stendur og því hefúr
McEnroe oft lent í keppnisbanni eða
verið sektaður. Nú nýlega líkti hann 5
mánaða fríi sínu frá tennis við fyrstu
árin sem fólk er á ellilífeyri. Hann sagð-
ist hafa hugleitt það að hætta í fyrstu
en hafi fljótt uppgötvað að hann gat það
ekki.
Honum leiddist þó ekki í fríinu því
margt hefúr verið að gerast í lífi hans
og segir McEnroe hléið hafa verið sér
nauðsynlegt. John McEnroe gekk að
eiga elskuna sína, leikkonuna Tatum
O’Neal, og einnig eignuðust þau hjóna-
komin sitt fyrsta bam á þessum tíma.
Fljótlega eftir þetta lýsti John því yfir
að hann væri byijaður að æfa að nýju
og hann myndi koma aftur í slaginn sem
nýr og betri maður.
En svo fór þó ekki, að minnsta kosti
ef notuð er mælistika tennisúrslita.
Harrn tók þátt í alþjóðlegu móti í Strat-
ton Montain í Vermont og var sleginn
út strax í 3. umferð. Var greinilegt á
öllu að kappinn ætti langt í land með
að ná fyrri getu í tennisleik en þá var
Foreldramir og eiginkonan fyrír utan tennisvöllinn heldur súr á svipinn.
hann einn af þeim bestu, ef ekki sá besti.
Á þessu móti sátu foreldrar kappans
og eiginkona ó áhorfendabekkjunum
og hvöttu hann til dóða. Vilja sumir
halda þeirri skoðun á lofti að vera þeirra
hafi haft truflandi áhrif á McEnroe og
honum sé hollast að banna eiginkon-
unni að vera að flækjast nærri virrnu-
staðnum í framtíðinni ef harm ætlar að
ná einhveijum árangri.
Tenniskappinn sjálfur, nú spyrja menn hvort hann eigi eftir að verða eins góður
og áður fyrt.