Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Síða 37
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986.
37
dv
Draumur
aðvera
meðdáta!
Eitt umtalaðasta mál fimmta áratug-
arins var hið svokaUaða „ástand". Þótti
mörgum nóg um gestrisni þjóðarinnar
við hina erlendu vemdara sem þá gistu
landið og töldu ungar íslenskar stúlkur
taka þeim of opnum örmum. En
tímamir breytast og mennimir með og
„ástandið" svokallaða hvarf að mestu
leyti. Enn má þó við og við sjá dáta
ganga um stræti Reykjavíkur, em þeir
þá yfirleitt „ættaðir" fiá Miðnesheiði
en þó kemur fyrir að nýir einkennis-
búningar sjást í borginni. Nýlega var
hér á ferðinni skólaskip þýska hersins
sem þjálfar foringjaefiii í sjóhemum.
Þetta er hið glæsilegasta skip að sjá
með þremur tígulegum möstrum. Sjó-
hðforingjaefiún vom í hinum glæsile-
gustu einkennisbúningum undir
úlpunum, vel pressuðum og stroknum.
Þeir gengu á land og skoðuðu borgina
og fólkið sem í henni bjó þessar dag-
stundir sem þeir dvöldust hér. Er ekki
að efa að tekið hafi verið vel á móti
þessum sjóvelktu dátum en ekki hefúr
heyrst hvort „ástand" skapaðist á með-
an á dvöl þeirra stóð, enda lagið „Það
er draumur að vera með dáta“ löngu
fallið niður alla vinsældalista!
Forvitnir íslendingar gripu tækifærið Tveir af dátunum sem vom um borð; vart líkjast þeir einhverjum draumaprins-
og skoðuðu skipið i krók og kring. um eða hvað?
DV-myndir Óskar öm
Hér má sjá hið glæsilega skip sem þýsku sjóliðsforingjaefnin em þjálfuð á.
Timothy Dalton:
f
Dökkur, snöggur og spennandi,
með undraverða töfra yfir kvenfólki
er lýsingin sem margir gefa á hinum
fertuga Timothy Dalton, hinum nýja
James Bond leikara. En þrátt fyrir
þessa lýsingu er Tim að sögn vina
sinna langt í frá að vera líkur persón-
unni í einkalífinu. „Engin ástarsam-
bönd, þotuferðir, kampavín eða
kavíar fyrir mig, takk,“ segir Tim og
bendir á að ekki einu sinni sé að
finna Martini-sopa í sínu lífi. Honum
finnst allra best að eyða frítímanum
við fiskveiðar og segist ekki hafa
neitt í sinni fortíð sem blaðamenn
geti gert sér mat úr.
En þrátt fyrir að Tim sé ekki talinn
hafa sama persónuleika og James
Bond þykir hann tilvalinn í hlut-
verkið og verður því 4. leikarinn til
að spreyta sig á því. Hann viður-
kennir að hann sé auðvitað dulítið
kvíðinn að feta í fótspor manna eins
og Roger Moore og Sean Connery
en segist ætla a gera sitt besta. Hvort
hann verður jafnstórt nafn og hinir
tveir í kvikmyndaheiminum skal
ósagt látið en nú þegar hafa laun
hans tekið mikinn kipp. Hann fær
29 milljónir fyrir leik sinn í fyrstu
Bond-mynd sinni, Living Daylights,
en tökur munu heíjast fljótlega.
Ætlar ekki aö lifa hinu Ijúfa lífi
Tim segist ekki ætla að lifa neinu
lúxuslífi þrátt fyrir þetta. Hann seg-
ist taka öl og fisk fram yfir kampavín
og veitingahúsalíf og þar að auki
muni leikkonan Vanessa Redgrave
halda honum við jörðina en hún er
hans besti vinur. „Það verður gaman
að leika svona týpu en það verður
bara fyrir framan myndavélarnar,
Vanessa kemur í veg fyrir að ég taki
Bond með mér heim,“ segir Tim. Þau
hafa þekkst í fjölda ára og þrátt fyr-
ir allar kjaftasögumar segjast þau
aðeins vera vinir.
Tim á að baki leikferil í alvarlegum
hlutverkum. Hann gekk í hinn
þekkta leiklistarskóla, Royal Aca-
demy of Dramatic Art, og hóf ferilinn
í klassískum verkum, einkum eftir
Shakespeare. Fyrir nokkrum árum
vildi hann þó færa sig út úr þungum
verkum og lék í nokkrum sjónvarps-
þáttum en meðal þeirra er nýi þáttur
leikkonunnar Joan Collins sem nefn-
ist Sins, eða Syndir.
Það var útlit Tims sem færði hon-
um hlutverkið en framleiðendumir
sögðu að hann hefði útlit njósnara.
„Þegar þú sérð þennan mann ertu
sannfærður um að hann myndi ekki
hika við að slá einhvern af með köldu
blóði,“ útskýrði einn af framleiðend-
um myndanna.
Timothy Dalton, hinn nýi James Bond, ásamt vinkonu sinni, Vanessu
Redgrave.
Sviðsljós
Madonna
er nú ein dáðasta söngkona
samtímans og út um allan heim
keppast ungar stúlkur við að
líkja eftir henni. Hún minntist
þess fyrir skömmu að ekki eru
nema rúm 3 ár síðan henni var
hafnað sem dansara og leik-
konu í sjónvarpsþáttunum
„Fame". Segist hún hafa verið
alveg eyðilögð þá og talið að
ferill sinn væri á enda. En heldur
hefur ræst úr ferlinum og taldi
söngkonan frama sinn hafa ve-
rið ævintýri líkastan. Segist hún
ekki vera hætis hót leið yfir þvi
að hafa verið haf nað af f ramleið-
endum Fame. Telur hún að
frami sinn hefði ekki verið jafn-
skjótur og raun ber vitni ef hún
hefði orðið „dansaramús" eins
og hún segir sjálf.
Ólyginn
sagði . . .
George Hamilton
fyrrum ástmögur Elizabeth Tayl-
or hefur nú fundið sér nýjan
félaga í stað leikkonunnar. Það
er tölva sem kostar einungis 1,5
milljónir króna. Þessi heimilis-
tölva er víst tækniviðundur sem
getur gert ótrúlegustu hluti.
Aðalverkefni hennar hjá Hamil-
ton er að hjálpa þessum annars
vel klædda leikara til að verða
ennþá betur klæddur. Allt inn-
búið í fataskáp George hefur
verið matað inn í tölvuna og
með einföldum skipunum getur
hann látið tölvuna kanna ástand
fatnaðar síns hvað er til og svo
framvegis. Síðan raðar „maskin-
an" saman klæðnaði í tilefni
dagsins.
Arnold
Schwarzenegger,
hið nýgifta vöðvabúnt, kom ekki
vel fram við konu sína þegar
hann bauð henni út að borða
nýverið. Eftir að hann hafði klár-
að matinn hallaði hann séraftur
í stólnum og fékk sér stóran
vindil að heldri manna hætti.
Síðan sagði hann drýgindalega:
Náðu í drykk handa mér, kona.
Eiginkonan varð fokill en spurði
Arnold síðan það hátt að allir
viðstaddir heyrðu: Heyrðu,
hvenær dó síðasti þrællinn
þinn? Hún ku ekki hafa sótt
drykk fyrir karl sinn en ekki vit-
um við hvort hann gerði það
sjálfur.