Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1986, Side 40
FRÉTTASKOTIÐ
62 25 25
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju um frétt -
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FI_MMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1986,
Sverrir
hugsar um
% heimspeki
„Ég var að fá plöggin í hendur í
gær. Ég á eftir að lesa þetta yfir, það
er margt að athuga," sagði Sverrir
Hermannsson menntamálaráðherra,
aðspurður hvað liði veitingu lektors-
embættis við heimspekideild Háskóla
íslands. Umsækjendur voru þrír,
Mikael Karlsson, Erlendur Jónsson
og Harmes Hólmsteinn Gissurarson.
Að mati dómnefndar er Mikael Karls-
son hæfastur þeirra þremenninga en
Hannes Hólmsteinn óhæfur.
„Það má búast við að ég taki ákvörð-
un í næstu viku. Hins vegar var ég
að skipa Þór Whitehead prófessor í
sagnfræði í gær,“ sagði Sverrir Her-
. tHfe mannsson. -EIR
Nýttláns-
fé í ísegg?
„Það er rétt að fyrirtækið á í
greiðsluerfiðleikum en ég neita þvi
alfarið að það sé á heljarþröm. Ég hef
fulla trú á því að okkur takist að
bæta greiðslustöðuna," segir Eyþór
’Elíasson, framkvæmdastjóri eggja-
dreifingarstöðvarinnar fseggs.
í DV í gær var haft eftir eggja-
bónda, sem skiptir við stöðina, að
fyrirtækið væri á heljarþröm og hefði
ekki borgað í þrjá mánuði það sem
lagt hefði verið inn.
„Það hefur verið mjög erfitt hjá okk-
ur og öðrum að undanfömu vegna
þess hversu lágt eggjaverðið hefur
verið. Við erum að skoða það hvemig
við getum útvegað meira fjármagn,
annað hvort með lánsfé eða eigin fé.“
- Verður fyrirtækið kannski selt?
„Nei, það er ekki inni í dæminu
núna. Það á að reyna aðrar leiðir
fyrst, til dæmis er verið að reyna núna
að fá fleiri inn í fyrirtækið.“
( - Nú hafið þið ekki greitt'bændum
fyrir þriggja mánaða sölu?
„Nei, þetta fer allt eftir sölunni en
ég á von á því að við reynum að greiða
bændum eitthvað upp í það á næst-
unni,“ sagði Eyþór Elíasson. -KÞ
n ^ r" 1
TRÉ-X
TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF., IÐAVÖLLUM 6, KEFLAVÍK. SÍMAR: 92-4700-92-3320.
LOKI
Hvar er Perry Mason?
Fra vitnaleiðslum bandariska dómstólsins í flugtuminum í gær. Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunn-
ar, yfirheyrður. Neðst til hægri má greina sérstakt bandarískt hraðritunartæki.
DV-mynd GVA
Bandarískar vvtnaleiðslur á íslandi:
Er ekki tekið
mark á íslensk-
um dómstólum?
- spyr Jónatan Þórmundsson lagaprófessor
„Mér finnst þetta mjög óeðlilegt,"
sagði Jónatan Þórmundsson laga-
prófessor um bandarískar vitna-
leiðslur sem þessa dagana fara fram
í fundarherbergi flugmálastjóra í
Reykjavík í skaðabótamáli íslenska
ríkisins gegn Sikorsky-þyrlufyrir-
tækinu.
„Það eru til leiðir eftir íslenskum
lögum til að afla upplýsinga. Það er
hægt að höfða vitnamál sem er ein-
falt. Með dómtúlki hefði ekkert verið
því til fyrirstöðu að bandarískir lög-
fræðingar væru viðstaddir og legðu
fram spumingar.
Ríkislögmaður gerir í Morgun-
blaðinu i morgun ráð fyrir tveim
kostum; að senda vitnin utan eða
halda þetta hérlendis eftir banda-
rískum lögum í sparnaðarskyni.
Þriðji kosturinn, að það sé aflað
upplýsinga eftir íslenskum réttar-
reglum, virðist ekki koma til greina.
Það sem mér finnst alvarlegast í
þessu er spumingin: Mundu banda-
rískir dómstólar ekki taka mark á
íslenskum dómstólum?
í samskiptum sjálfstæðra ríkja er
leitað til erlends ríkis og það gerir
nauðsynlegar ráðstafanir. Banda-
rískir dómstólar leita til vestur-
þýskra og franskra.
Hér er hringt í menn og þeim sagt
að mæta. Mér skilst að menn sverji
á ameríska vísu og þetta fari meira
og minna fram á ensku,“ sagði Jón-
atan.
-KMU
Veðrið á morgun:
Léttskýjað
sunnan-
lands
Á morgun verður hæð yfir Græn-
landi og hæðarhryggur suður um
Grænlandshaf. Lágþiýstisvæði verð-
ur yfir Skandinavíu.
Á landinu verður hæg norðlæg átt
og kólnandi veður, einkum norðan-
lands. Sunnanlands verður léttskýj-
að en skýjað fyrir norðan. Hiti á
bilinu 4-11 stig.
Kratar deila í Kópavogi:
Formaður
flokks-
félagsins
segir af sér
Allnokkur hiti hefur verið í alþýðu-
flokksmönnum í Kópavogi undanfarið
sem lauk með því að formaður flokks-
félagsins í Kópavogi, Steingrímur
Steingrímsson, sagði af sér formenns-
kunni nú í vikunni og öllum nefhdar-
og stjómarstörfum í flokknum.
„Ég sagði af mér vegna þess að þar
sem flokksbræður mínir í bæjarstjóm-
inni telja mig ekki hæfan sem atvinnu-
rekanda í bænum hlýt ég að vera
jafnóhæfur til að gegna trúnaðarstörf-
um og sjá um uppbyggingu þar,“ sagði
Steingrímur, í samtali við DV.
Forsaga þessa máls er sú að þegar
boðnar vom út byggingarframkvæmd-
ir við Snælandsskóla í Kópavogi gerði
fyrirtæki Steingríms, Eðalverk, tilboð
í verkið. Reyndist hann með lægsta
tilboðið en því var ekki tekið. Ástæður
þessa em sagðar þær að félagi Stein-
gríms í fyrirtækinu er sagður eiga h'tt
fagran viðskiptaferil að baki sem verk-
taki í byggingarframkvæmdum í
bænum.
„Þetta er rétt. Þetta var sögð ástæð-
an,“ sagði Steingrímur. „Hins vegar
er þetta bara vitleysa því þessi .maður
er mjög virtur í þessum viðskiptum
og það em hvergi til skrifleg gögn um
að þetta sé rétt svo að þama stóð orð
á móti orði. En bæjarráðsmenn Al-
þýðuflokksins i Kópavogi stóðu svo
harkalega á þessu og á móti því að
fyrirtæki mitt fengi verkið að ég sá
ekki annan kost en að segja af mér.“
- Má búast við að þú segir þig úr
Alþýðuflokknum í kjölfar þessa?
„Nei, það ætla ég ekki að gera. Þetta
er aðeins deila mín við þessar persón-
ur,“ sagði Steingrímur Steingrímsson.
-KÞ
Loðnuverðið frjálst:
Búist við
lækkun
Almennt er búist við að loðnuverðið
lækki í kjölfar fijálsrar verðlagningar
frá og með 15. september til 14. októb-
er til reynslu. Á mánudaginn ætti að
koma í ljós hversu mikil þessi verð-
lækkun verður. Markaðsaðstæður em
ekki betri nú en þegar ákveðið var
1900 króna verð fyrir tonnið, sem kau-
pendur hafa verið óánægðir með.
En það em skiptar skoðanir um
ágæti frjálsrar verðlagningar. „Þetta
er mun betra en eitthvað verð út í
loftið. Ég hef verið því fylgjandi að
mönnum verði leyft að spreyta sig á
þessu sviði. Þetta gefur verksmiðjum
möguleika á að lengja vertíðina, bjóða
hærra verði í upphafi og lok vertiðar.
Svo er það meðalverðið sem sker úr
um hvort reksturinn gengur," sagði
Geir Zoega, forstjóri Krossanesverk-
smiðjunnar á Akureyri.
Aðalsteinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri á Eskifirði, er ekki á sama máli.
„Mér finnst afskaplega óábyrgt að
gefa þetta frjálst. Ég tel að með þess-
ari ákvörðun hafi fúlltrúar í Verð-
lagsráði verið að bregðast því trausti
sem þeim er falið. Ég kem ekki auga
á að það sé til bóta að annar aðilinn,
kaupendur, geti ákveðið verðið. Ég tel
því að það hljóti að vera betra að aðil-
ar komi sér saman um eitt sanngjamt
verð,“ sagði Aðalsteinn. -APH
f
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Í
i
i
i
i
i
i
i
Í
i
i
i
i
i
i