Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1986, Síða 1
Ef þú vilt dansa
Ártún,
Vagnhöfða 11, Reykjavík, sími 685090
Gömlu dansarnir á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hljómsveitin Drekar leikur
fyrir dansi.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500
Ríó Tríó ásamt stórhljómsveit Gunnars
Þórðarsonar skemmtir í Broadway í kvöld
og annað kvöld.
Evrópa
v/Borgartún .
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Glæsibær
við Álfheima, Reykjavík, sími 685660
Hliómsveitin Kýprus leikur fyrir dansi í
kvöld og annað kvöld. Ölver opið alla
daga vikunnar.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík, sími 81585
Diskótek föstudags*. laugardags- og
sunnudagskvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur fyir
gömlu dönsunum á sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöJd. Tískusýning öll fimmtu-
dagskvöld.
Hótel Saga
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leik-
ur fyrir dansi um helgina. Dúett André
Bachmann og Kristjáns Óskarssonar leik-
ur á Mímisbar
Kreml
við Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Opið föstudags-. laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Leikhúskjallarinn
v/Hverfisgötu, Reykjavík, sími 19636
Dansleikur á föstdags- og laugardags-
kvöld.
Sigtún
v/Suðurlandsbraut, Reykjavík, sími
685733
Diskótek föstudags- og laugardagskvöld.
Roxzy
við Skúlagötu
Hljómsveitin MX 21 leikur ásamt Rauðum
fletum í kvöld. Á laugardagskvöld leikur
MX 21 ásamt sveitinni Koddum og á
sunnudagskvöld koma Nick Cave og
hljómsveitin Bad Seeds fram.
Upp og niður,
Laugavegi 116, Reykjavík, sími 10312
Opið föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Marilyn Monroe tekur á móti
gestum með glæsibrag.
Þórskaffi,
Brautarholti 2, Reykjavík, sími 23333
Dans- og dægurlagasveitin Santos og
Sonja leika fyrir dansi föstudags- og laug-
ardagskvöld.
AKUREYRI
H-100
Diskótek á öllum hæðum hússins föstu-
dags-, laugardags- og sunnudagskvöld.
Sjallinn
Fjörið í Sjallanum föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Meðlimir Mezzoforte eru Eyþór Gunnarsson, Gunnlaugur Briem, Noel
McCall, Jóhann Ásmundsson og Friðrik Karlsson.
MEZZOFORTE
(FEATURWG NOEL McCALLA)
Mezzoforte
með
hljómleika
Hljómsveitin Mezzoforte hefur
nú lokið vinnslu 7. hljómplötu
sinnar sem kallast No Limits. Þessi
plata mun koma út á næstunni og
ætlar hljómsveitin að fylgja út-
gáfunni úr hlaði með hljómleika-
ferð um Evrópu í október og
nóvember.
Mezzoforte byrjar hljómleika-
reisu sína með hljómleikum í
Broadway í kvöld, 24. október.
Hljómsveitin verður aðeins með
þessa einu tónleika hér á landi en
heldur síðan til Sviss, Þýskalands,
Danmerkur og Noregs. Alls mun
Mezzoforte leika á 30 hljómleikum
í þessari ferð.
Meðlimir Mezzoforte eru þeir
Eyþór Gunnarsson hljómborðs-
leikari, Friðrik Karlsson gitarleik-
ari. Gunnlaugur Briem trommu-
leikari. Jóhann Ásmundsson
bassaleikari og söngvarinn Noel
McCall sem Islendingar þekkja
mætavel núorðið. Hann söng ein-
mitt lagið This Is The Night sem
vinsælt var hér á landi fvrir réttu
ári.
Hljómleikarnir hefjast um kl. 22
í kvöld og er aðgangseyrir kr. 600.
Fegurðar-
samkeppni
í Hveragerði
Annað kvöld, laugardagskvöld
25. október, mun handknattleiks-
deildin í Hveragerði standa fyrir
dansleik í Hótel Örk i Hveragerði.
Þar mun fara fram fegurðarsam-
keppni. Forkeppni fyrir fegurðar-
samkeppni íslands. Þar munu um
það bil 20 stúlkur keppa. Af þeim
verða síðan sex eða sjö valdar í
keppni sem fram fer í mars. Sú sem
sigrar i þeirri keppni verður krýnd
fegurðardrottning Suðurlands og
mun síðan taka þátt í fegurðarsam-
keppni íslands sem fram fer tveim
mánuðum síðar.
í forkeppninni annað kvöld
verða 5 dómarar á staðnum. Þrír
af þeim eru fulltrúar fyrir fegurð-
arsamkeppni íslands.
Þríréttaður matur verður seldur
og síðan mun Hljómsveit Magnús-
ar Kjartanssonar leika fyrir dansi.
Kveraiaafhvarfið
styrkt með tónleikum
í Háskólabíói
Næstkomandi sunnudag. 26. okt-
óber, klukkan 14.00 verða tónleik-
ar. sem Bubbi Morthens stendur
fvrir. í Háskólabíói. Allur ágóði af
þeim rennuróskipturtil Kvennáat-
hvarfs í Revkjavík. Eins og flestum
mun í fersku minni hélt Bubbi slíka
tónleika í veitingahúsinu Roxzý í
sumar og söfnuðust þá á þriðja
hundrað þúsund krónur.
Nú bætist í hópinn fjöldi valin-
kunnra listamanna sem leggja
Bubba lið til styrktar góðu málefni
og má þár nefna Egil Ólafsson.
Bjartmar Guðlaugsson. Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur. Pétur Kristjáns-
son. Valgeir Guðjónsson. Ragnar
Bjarnason og Kristínu A. Ólafs-
dóttur. Sala aðgöngumiða mun
meðal annars fara fram í fvrramál-
ið kl. 10-13 í útvarpshúsinu.
Efstaleiti. en þar mun fjölmenn
sveit tónlistarmanna með Bubba í
fararbroddi selja miða og árita
miða og veggspjöld.
Fjölmenn sveit tónlistarmanna
með Bubba i fararbroddi mun selja
miða á tónleikana i fyrramáiið i
útvarpshúsinu. Efstaleiti.
Þjóðakvöld -
þriggja tíma
skemmtidagskrá
Næstkomandi sunnudagskvöld
hefst röð þjóðakvölda í veitinga-
húsinu Evrópu við Borgartún.
Á þjóðakvöldum þessum verður
lagt kapp á að kynna hinar ýmsu
þjóðir í Evrópu. Kynnt verður tón-
list. tískufatnaður. matur og vörur.
Einnig verður almenn umfjöllun
um land og þjóð og myndbandasýn-
ing. Bingó verður spilað og verða
vinningar veglegir. Ferðaskrifstof-
um verður "gefinn kostur á að
kynna ferðir til þeirra staða sem
þær skipuleggja ferðir til næsta ár.
Söngskólinn fær þarna tækifæri til
að leyfa efnilegum nemendum að
spreyta sig.
í kvöld er það Þýskaland sem
kynnt verður. Ferðaskrifstofan
Urval kvnnir ferðir til Þýskalands
og þá sérstaklega til Daun Eifel en
bingóvinningurinn er einmitt gef-
inn af ferðaskrifstofunni. ferð fvrir
einn til til Daun Eifel. Géstum
verður boðið upp á fordrykk kl.
20.00-20.30 en síðan tekur við nærri
þriggja tima skemmtidagskrá sem
endar með dansi klukkan 1 eftir
miðnætti. Það er Hermann Ragnar
Stefánsson sem sér um allan undir-
búning þessara þjóðakvölda.
Forsala aðgöngumiða er á sunnu-
daginn kl. 15—18.
Rokktónleikar í
norðurkjallara MH
í kvöld, föstudagskvöld, verða
haldnir rokktónleikar í norður-
kjallara Menntaskólans við
Hamrahlíð.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00
með leik hljómsveitarinnar Fast
Cars sem kemur úr Menntaskólan-
um í Reykjavik. Rauðir fletir spila
síðan kl. 22.30 og upp úr kl. 23 mun
hljómsveitin Langi Zeli og Skug-
garnir leika. Aðgangseyrir verður
200 krónur.