Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1986, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986.
21
Það eru nemendur á fjórða ári
Leiklistarskóla íslands, ásamt
tveim gestaieikurum og einum
nemanda á fyrsta ári, sem leika
i leikritinu Leikslok í Smyrnu.
Leiks-
lokí
Smyrnu
Nemendaleikhús Leiklistar-
skóla íslands hefur nú sitt
tíunda starfsár með frumsýn-
ingu á Leikslok í Smyrnu í
leikgerð Horsts Laube, eftir
samnefndu leikriti Goldonis.
Þýðinguna gerði Árni Berg-
mann. leikstjóri er Kristín
Jóhannesdóttir, leikmynd og
búninga gerði Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir, lýsingu annast
Ólafur Örii Thoroddsen og
Guðrún Sigríður Haraldsdóttir,
tónlist er eftir Hilmar Örn
Hilmarsson.
Nemendur á fjórða ári eru:
Halldór Björnsson. Hjálmar
Hjálmarsson, Ingrid Jónsdóttir,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Stefán
Sturla Sigurjónsson, Valgeir
Skagfjörð, Þórarinn Eyfjörð og
Þórdís Arnljótsdóttir, en auk
þeirra leika með tveir gesta-
leikarar, þau Jón Gunnarsson
og Kristbjörg Kjeld. Einn nem-
andi á fyrsta ári leikur með, en
aðrir nemendur 1. árs sjá um
tæknivinnu og aðstoð á sýning-
um.
Frumsýningin var í Lindarbæ
í gærkvöldi, önnur sýning verð-
ur á morgun, laugardag, og
þriðja sýning verður á sunnu-
daginn. Allar sýningar hefjast
klukkan 20.30. Hægt er að
panta miða í síma 21971 allan
sólarhringinn.
Mæðgur
ræða
stöðu
sína
í Hlaðvarpanum, í kaffisal á
annarri hæð, er nú verið að
sýna leikritið Veruleika eftir
Súsönnu Svavarsdóttur. Leik-
stjóri er Helga Bachmann en
leikmynd gerði Kjuregej Alex-
andra Argunova. Leikendur
eru Guðný Helgadóttir ög
Ragnheiður Tryggvadóttir.
Leikritið, sem gerist í nútí-
manum, fjallar um mæðgur sem
ræða saman eina dagstund.
Þær ræða stöðu sína og gildi
kvennabaráttu og hvað sú bar-
átta hefur í raun gert fyrir þær.
Næstu sýningar verða á laug-
ardaginn og sunnudaginn og
hefjast þær báðar klukkan
16.00.
Örlygur
sýnir
verk
sín
Á morgun, laugardag, opnar Örl-
ygur Sigurðsson sýningu á verkum
sinum í Ásmundarsal í húsi Arki-
tektafélagsins, Freyjugötu 41.
Sýningin hefst kl. 15.00 og mun
hún standa til sunnudagsins 9. nóv-
ember.
H UR %tn.HeirtutA s•'/PíR UVtiU £H?$iSKíi
Kynóði huldumaðurinn úr Dulheimum svifur yfir hvilu eyfirsku heimasætunnar.
VIKAN-VIKAN
ER BLAÐIÐ
ER BLAÐIÐ
FEKK MINN HLUTA AF SKOMMUNUM
segir Bogi Ágústsson, fréttamaður ríkissjónvarpsins í Kaupmannahöfn.í Vikuviðtalinu.
GLÆSILEG VETRARTISKA
Myndlistarkonan Asta Ólafsdóttir og verkin hennar
í nýjustu Vikunni.
Bókakynning Vikunnar: Grámosinn glóir eftir Thor Vilhjálmsson.
í tilefni af 75 ára afmæli Háskóla íslands: Stúdentapólitíkin skoðuð. Rætt við nokkra einstaklinga
sem hafa haft afskipti af málefnum stúdenta við Háskóla íslands.
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra:
„Við vorum hógværari en stúdentar eru í dag.'
Össur Skarphéðinsson ritstjóri:
„Ég var gasalega róttækur þá."
Eyjólfur Sveinsson, formaður Stúdentaráðs:
„Snýst um það sama og fyrir tuttugu árum."
Valgerður Anna Jóhannsdóttir blaðmaður:
".. .að berja hausnum við steininn..."
Linda Rós Michaelsdóttir kennari:
„Fáar konur virkar."
Efni Vikunnar er geysilega fjölbreytt — kannaðu málið því VIKAN er blaðið.