Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1986, Blaðsíða 6
28
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986.
Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús- Leikhús
Alþýðuleikhúsið
fmmsýnir söng-
leik í Bæjarbíói
Næstkomandi sunnudag, 26. okt-
óber, kl. 15.00 frumsýnir Alþýðu-
leikhúsið í Bæjarbíói, Hafnarfirði,
söngleikinn Kötturinn sem fer sín-
ar eigin leiðir eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Leikstjóri er Sigrún Valbergs-
dóttir. Leikmvnd og búninga gerði
Guðrún Erla Geirsdóttir. Lýsingu
annast Lárus Björnsson. Tónlist
og söngtextar eru eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Útsetningar annaðist
Gunnar Þórðarson. Leikendur í
verkinu eru Helgi Björnsson, Mar-
ía Sigurðardóttir, Barði Guð-
mundsson, Margrét Ólafsdóttir,
Erla B. Skúladóttir, Gunnar Rafn
Guðmundsson og Bjarni Ingvars-
son.
í söngleiknum Kötturinn sem fer
sínar eigin leiðir kvnnumst við
villtum dýrum skógarins ásamt vil-
limanninum áður og eftir að konan,
sem ekki er villt, kemur til sögunn-
ar.
Tekið er við miðapöntunum all-
an sólarhringinn í síma 50184.
niynd:Kötturinn sem fer sínar eigin
leiðir heitir söngleikurinn og er
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Stjörnubíó
Með dauðann á hælunum(8
Millions Ways to Die) er gamal-
dags þriller sem býður upp á
spennu í atburðarás og smáskammt
af rómantík í kaupbæti. Jeff
Bridges leikur einkaleynilögreglu-
mann sem hefur hugann meira við
flöskuna en vinnuna. Hann hefur
hrökklast úr lögreglu Los Angeles
vegna drykkju og tekur nú hvaða
starfi sem er. Eru það yfirleitt störf
sem aðrir ekki vilja sjá. Á vegi
hans verður vændiskona ein sem
biður hann um hjálp. Áður en hann
veit af er hún myrt. Önnur vændis-
kona, sem Rosanna Arquette
leikur, verður til þess að hjálpa
honum.
Tónabíó
Krossgötur (Crossroads) er kvik-
mynd um blues og þá sem hann
leika. Karatestrákurinn Ralph
Macchio leikur ungan gítarsnilling
sem er í klassísku námi en er hrifn-
ari af blúsnum. Hann leitar uppi
gamlan bluesmeistara sem er í
fangelsi og hjálpar honum að
strjúka. Saman fara þeir suður á
bóginn með munnhörpuna og gít-
arinn og lenda í ýmislegum ævin-
týrum sem endar með geysimikilli
gítarkeppni. Mynd fyrir alla blu-
esáhugamenn.
Regnboginn
Þeir sem enn hafa ekki séð
Hönnu og systurnar ættu að gera
það sem fyrst. Woody sannar hér
enn einu sinni að hann er einn allra
fremsti kvikmyndagerðarmaður
sem uppi er í dag. Myndin er gam-
ansöm lýsing á fjölskyldu einni í
New York. Og til að fullkomna
verkið eru úrvals leikarar í öllum
hlutverkum. Þá hefur Regnboginn
hafið sýningar á nýrri danskri
kvikmynd, í skjóli nætur (Midt om
natten), sem stjómað er af reyndum
dönskum leikstjóra sem íslending-
ar ættu að kannast við, Erik
Balling. Hefur þessi mynd fengið
lofsamlega dóma í heimalandi sínu.
Bíóhöllin
Nýjasta kvikmynd John Car-
pentér, Stórvandræði í Litlu Kína
(Big Troubles In Little China), er
gamansöm ævintýramynd þar sem
Kurt Russel leikur Jack Burton
sem er rogginn með sjálfan sig en
verður svo lítið úr öllu sem hann
gerir. Myndin gerist í Kinahverf-
inu í San Francisco og fer hann
þangað til að leita að unnustu vin-
ar síns. Stórvandræði í Kína er
fyrst og fremst skemmtimynd sem
allir ættu að hafa gaman af.
Stella í orlofi
Stella í orlofi er nýjasta íslenska
kvikmyndin. Er þarna á ferðinni
gamanmynd sem á mikið skylt við
farsa. Hefur myndin fengið já-
kvæðar viðtökur bæði gagnrýn-
enda og áhorfenda, enda mikið og
gott lið íslenskra leikara sem leik-
ur í myndinni. Ber þar fyrst að
nefna Eddu Björgvinsdóttur er
leikur titilhlutverkið Stellu. Þá má
nefna Þórhall Sigurðsson (Ladda)
og Eggert Þorleifsson sem báðir
eiga auðvelt með að kitla hlátur-
taugar áhorfenda og ekki síðri
gamanleikarar eru Sigurður Sigur-
jónsson, Gísli Rúnar Jónsson og
Bessi Bjamason. Af þessu má sjá
að Stella í orlofi er í góðum hönd-
um. Leikstjóri myndarinnar er
Þórhildur Þorleifsdóttir. Á þessum
krepputímum í íslenskri kvik-
myndagerð er alltaf virðingarvert
þegar áhugasamir kvikmyndagerð-
armenn leggja út í ævintýri á borð
við það að gera kvikmynd. Er von-
andi að íslenskir bíógestir fjöl-
menni á Stellu í orlofi sem er
afþreying af bestu gerð.
Kvikmyndahús
Bíóhúsið
Glæný gamanmynd, Á bakvakt
(Off Beat), er sýnd í Bíóhúsinu
þessa dagana. Aðalhlutverkið leik-
ur Judge Reinholds sem vakti fyrst
athygli í Beverly Hills Cop þar sem
hann lék á móti Eddie Murphy.
Hér leikur hann utanbæjarmann
sem tekur að sér lögreglustörf um
stundarsakir.
Háskólabíó
Rutger Hauer leikur aðalhlut-
verkið í Hold og blóð (Flesh And
Blood) sem er ævintýramynd um
tvo karlmenn sem berjast um eina
konu. Það er Jennifer Jason Leight
sem fer með hlutverk konunnar.
Leikstjóri er Hollendingurinn Paul
Verhoven sem á sínum tíma kom
Rutger Hauer á framfæri.
Laugarásbíó
I skugga Kilimanjaro er ný
bandarísk spennumynd er gerist í
Kenýa. Hópur bandarískra ljós-
myndara verður fyrir barðinu á
öpum sem í fyrstu virðast eingöngu
fjandsamlegir en fara að ráðast á
mennina þegar þeir hafa ekki nóg
að borða. Það sem í fyrstu virðist
minni háttar vandamál verður að
meiri háttar baráttu milli apa og
manna. _HK
Hvaö er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina - Hvað er á seyði um helgina
Sýningar
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Galleri Gangskör
Sýning Sigrid Valtingojer á pastelmynd-
um og teikningum og Kristínar ísleifs-
dóttur á keramik hefur verið framlengd
til sunnudagskvölds.
Slunkaríki
ísafirði
Nú stendur yfir í Slunkaríki á Isafirði
sýning Rögnu Hermannsdóttur. Á sýning-
unni eru einkum tréristur og steinþrykks-
myndir og eru þær allar unnar á síðustu
tveimur árum. Sýningin stendur til 2. nóv-
ember.
Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir sýning Septem -hópsins.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti.
Á þriðjudaginn kemur lýkur upphengi
þeirra Magnúsar Kjartanssonar og Jóns
Axels Björnssonar á málverkum. Magnús
sýnir fimm málverk, .fjögur þeirra undir
gleri, og öll unnin með blandaðri tækni.
Auk þess sýnir hann allmörg mónaþrykk.
Jón Áxel sýnir fimm olíumálverk, sem öll
eru unnin á þessu ári. Galleríið er opið
daglega frá kl. 10-18 og 14-18 um helgar.
Gallerí Langbrók-Textíll
Bókhlöðustíg 2
Opið þriðjudaga til föstudaga kl. 12-18 og
laugardaga kl. 12-16.
Gallerí Hallgerðar
Guðrún Gunnarsdóttir sýnir vefnað og
klippimyndir. Sýningin er opin kl. 14-18
alla daga og stendur til 2. nóvember.
Kjarvalsstaðir
Miklatúni
Á morgun verða opnar þrjár sýningar á
Kjarvalsstöðum. Björgvin Sigurgeir Har-
aldsson opnar sýningu á myndverkum
sínum. Erla B. Axelsdóttir sýnir u.þ.b. 40
pastelmyndir. Erla vinnur í olíu, pastel
og kol og eru öll verkin til sölu. í vestur-
sal opnar Karólína Lárusdóttir sýningu á
olíumálverkum, vatnslitamyndum og graf-
ík. Verkin eru öll unnin á sl. ári. Sýning-
arnar verða opnar daglega kl. 14-22 og
standa þær til 9. nóvember.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
Heike I. Hartmann sýnir 18 vatnslita-
myndir. Sýningin stendur til 9. nóvember.
Norræna húsið
f sýningarsölum er sýning Edwards
Munch - 40 olíumálverk eftir hinn heims-
fræga norska listamann. Sýningin er opin
daglega kl. 14-19 og stendur til sunnu-
dagsins 2. nóvember. I anddyri hússins er
sýning á grafikverkum eftir norsku lista-
konuna Önnu-Evu Bergman. Hún er fædd
1909. Hún nam við listaháskólann í Osló
en hélt síðan til Parísar. Hún hefur haldið
margar einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum víða um heim.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir
Níels Hafstein og ber hún yfirskriftina
List og fagurfræði. Verkin á sýningunni
eru byggð á dýptarskyni í tvívídd og þrí-
vídd, nálægð og fjarlægð í tíma og hugsun.
Sýningin er opin á virkum dögum frá kl.
16-20 og um helgar frá kl. 14-20. Henni
lýkur sunnudaginn 2. nóvember.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi
Nú stendur yfir málverkasýning Péturs
Halldórssonar í Listasafni ÁSÍ, Þetta er
fyrsta einkasýning Péturs og eru á henni
25 myndir, aðallega olíu og akrýlmál-
verk. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20
og um helgar kl. 14-22. Sýningunni lýkur
26. október. Kaffiveitingar um helgar.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinr,
daglega frá kl. 10-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listasafn íslands
Þar stendur yfir yfirlitssýning á verkum
Valtýs Péturssonar. Sýningin spannar all-
an listferill Valtýs allt frá því að hann var
við nám í Bandaríkjunum 1944 16 til verka
frá þessu ári. Eru þar alls 127 verk, olíu-
myndir, mósaík og gvassmyndir. í tilefni
sýningarinnar hefur verið gefin út vönduð
sýningarskrá og litprentað plakat. Sýn-
ingin er opin virka daga frá kl. 13.30-18
en kl. 13.30-22 um helgar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið þriðjudaga til sunnudaga kl. 14-18.