Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1986, Page 7
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986.
29
• Þaö verður róleg helgi hjá körfuboltamönnum um helgina. Aðeins einn leikur á dagskrá i úrvalsdeildinni,
KR og Fram leika á sunnudagskvöld klukkan átta i Hagaskóla.
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR
Róleg helgi hjá
íþróttafólki
- Einn leikur í úrvalsdeildinni
Lítið verður um að vera á íþrótta-
sviðinu hér innanlands um helgina.
Ekkert verður leikið í 1. deildinni
í handknattleik og aðeins einn
leikur er á dagskrá í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik. Það er
viðureign KR og Fram sem fer fram
í íþróttahúsi Hagaskólans á sunnu-
dagskvöld klukkan átta.
Leikmenn Tindastóls frá Sauð-
árkróki mæta suður um helgina og
leika tvo leiki í 1. deildinni í körfu.
Á morgun. laugardag. leika þeir
gegn Grindavík í Grindavík og
hefst leikurinn klukkan tvö. .4
sunnudag mæta ..stólarnir" frá
Sauðárkróki ÍR-ingum en sá leikur
fer fram í Seljaskóla og hefst
klukkan tvö.
Einn leikur er á dagskrá í 1. deild
kvenna. ÍR mætir Keflavík í Selja-
skóla á morgun klukkan 15.30.
ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR
Toyotan afhent á
afmælishátíð ÍK
íþróttafélag Kópavogs heldur há-
tíðlegt 10 ára afniæli sitt. sem var
fimmtudaginn 23. október. á morg-
un. laugardaginn 25. október.
Hátíðin fer frarn í íþróttahúsinu
Digranesi og hefst klukkan fjögur.
Á dagskrá eru verðlaunaafhend-
ingar. ávörp og kaffiveitingar. og
síðast en ekki síst verður afhentur
vinningurinn í afmælishappdrætti
1K sem er glæsileg bifreið. Toyota
Corolla Liftback. að verðmæti 485
þúsund krónur. Hún kom á miða
nr. 251. Allir IK-ingar. sem og aðr-
ir Kópavogsbúar og velunnarar
félagsins. eru velkomnir og hvattir
til að mæta.
Hann segist vera guðdómlegur.
Á sviðinu er hann kjaftfor og klúr. Þegar hann hefur fellt grímuna og náð af sér farðanum er
hann ósköp venjulegur maður. Divine birtist í öllu sínu veldi í helgarblaðinu.
Undanfarin fjögur ár hafa þeir spilað
þungarokk í einrúmi enda áhangenda-
hópurinn einstaklega þunnskipaður. Nú
ganga þeir um með breskan plötusamn-
ing í vasanum. Þetta er Gildran sem
verðurá Rokkspildunni í helgarblaðinu.
★
Helgi Ágústsson var í eldlínunni
meðan leiðtogafundurinn stóð. I
helgarviðtalinu segir hann frá önn-
um manns í utanríkisþjónustunni
og leiðinni til frama.
★
Wilhelm V. Steindórsson, fyrrum
hitaveitustjóri á Akureyri, svarar
mótstöðumönnum sínum fullum
hálsi í helgarblaðinu.
Frjálst.óháö dagblað
Á MORGUN