Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.1986, Side 8
30
FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1986.
K
Mynd-
bönd
Umsjón:
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
í dag er birtur dálítið breyttur
DV listi. Framvegis verða ýmsar
stórar leigur úti á landsbyggðinni
hafðar með í vinsældavalinu. Ekk-
ert nema gott um það að segja.
Frigth nigth hreppir efsta sætið
þessa vikuna. Maðurinn í rauða
skónum fylgir fast á eftir. Hryll-
ingsmyndin House fer beint í
sjöunda sætið. I tíunda sætið fer
spennumyndin Jackals. Framvegis
verður einungis birtur listi yfir
fimm vinsælustu þættina. Á þeim
lista er Far countrv í efsta sæti sem
fvrr.
Gamanmyndin Down and out í
Beverlv Hills tekur stórt stökk á
bandaríska listanum. úr 29 í annað
sæti. Ný mvnd fer í tíunda sætið.
Þar í Goldie Hawn á ferð í sinni
nvjustu mvnd. Wild cats.
-ÞJV
DV-LISTINN
MYNDIR
1. (4) Frigth Nigth
2. (3) The Man With One
Red Shoe
3. (1) Teen Woolf
4. (5) Runaway Train
5. (3) Black Moon Rising
6. (8) Defence of the Realm
7. (-) House
8. (7) Subway
9. (6) Quicksilver
10.(-) Jackals
ÞÆTTIR
1. (1) The Far Country
2. (3) The Twiligth Zone 3-4
3. (4) Pétur mikli
4. (2) If Tomorrow Comes
5. (7) Robbery Under Arms
BANDARIKIN
1. (1) Out of Africa
2. (29) Down and out in
Beverly Hills
3. (2) Gung Ho
4. (3) Murphy’s Romance
5. (6) Young Sherlock
Holmes
6. (20) Crossroads
7. (8) Back to the Future
8. (5) Iron Eagle
9. (7) The Jewel of the Nile
10.(-) Wild Cats
irkYi
Haldiö að heiman
RACING WITH THE MOON
Útgefandi: Háskólabió.
Framleiðendur: Alain Bernheim, John
Kohn.
Handrit: Steven Kloves.
Leikstjóri: Richard Benjamin.
Aðalhlutverk: Sean Penn, Nicholas
Cage, Elisabeth McGovern.
Öllum leyfð.
Síðari heimsstyrjöldin er í al-
gleymingi. Penn og Cage leika tvo
pilta sem hafa skráð sig í ameríska
herinn. Það gengur ýmislegt á síð-
ustu vikurnar áður en þeir mæta í
æfingabúðirnar. Annar verður ást-
fanginn, hinn barnar stúlku.
Vandamálin sem því fylgja eru
mýmörg. Sá ástfangni lendir upp á
kant við kærustuna og hinn á ekki
fyrir fóstureyðingu. Allir hnútar
leysast þó áður en félagarnir
stökkva upp í lestina sem flytur þá
í herbúðirnar. Þeir veifa til ástvin-
anna í kveðjuskyni.
Racing with the moon er gerð
1984 um það leyti sem þeir Penn
og Cage voru að skapa sér nafn í
kvikmyndaheiminum. Báðir fara
vel með hlutverk sín í mvndinni.
Cage er þessi grófi piltur sem hann
hefur oftar túlkað í mvndum eins
og Once up on a time in America
og Birdy. Penn er aftur á móti mun
fágaðri leikari og tekst oft bráðvel
upp í þessari mynd. Hann er eins
og flestir vita orðinn eitt af stóru
nöfnunum í Hollywood. Það á hann
ekki síst að þakka frammistöðu
sinni í Racing with the moon og
auðvitað Fálkanum og snjómann-
inum. Elisabeth McGovern kemur
einnig nokkuð við sögu í mynd-
inni. Hún leikur unnustu Penn og
sýnir mikla yfirvegun í því hlut-
verki.
Racing with the moon er í alla
staði vönduð mynd. Leikstjórinn,
Richard Benjamin, stjórnar öllu af
röggsemi og missir aldrei tökin á
annars klisjukenndum efniviði. Að
auki er frammistaða leikaranna
með miklum ágætum.
Þægilegri afþreyingu er vart
hægt að hugsa sér.
Ast er... Penn og McGovern í þungum þönkum.
★★
rj
Sá gairtli
MURPHY'S LAW
Útgefendur: Cannon/Tefli.
Leikstjóri: J. Lee Thopmson.
Aöalhlutverk: Charles Bronson, Kathaleen Wil-
hotte.
Bönnuð börnum.
ISLENSKUR TEXTI
Glæný mynd með Charles Bronson. Gam-
alt efni. Hann leikur lögreglumanninn
Murphv sem ranglega er sakaður um morð
á fyrrverandi eiginkonu sinni og settur í
steininn. Ekki þarf að orðlengja það frekar
en Murphy strýkur úr prísundinni með
stúlku eina í eftirdragi. Hann byrjar að leita
að þeim seka með lögregluna og nokkra
mafíósa á hælunum.
Murphys law er eins dæmigerð Bronson
nivnd og frekast má vera. Stúlkan skiptir
litlu máli til eða frá þó Kathaleen Wilhotte
steli algerlega senunni frá þeim gamla í
hlutverki hennar. Barátta Bronson gegn
ofureflinu er söm við sig. Hann vinnur allt-
af.
Hitt er annað mál að myndin er fagmann-
lega gerð enda leikstjórinn J. Lee Thompson
enginn aukvisi í gerð hasarmynda. Mörg
atriðin eru snotur ef hægt er að nota það
orð um blóðuga bardaga. Murphy’s law er
að því leyti miðlungs afþreying fyrir unn-
endur spennumynda. En mikið er sá gamli
orðinn þreytulegur.
Engir
aukvisar
ABSOLUTE BEGINNERS
Útgefendur: Goldcrest/Háskólabíó.
Leikstjóri: Julian Temple.
Aðalhlutverk: Eddie O’connel, Patsy Kensit.
Öllum leyfö.
Ein metnaðarfyllsta mynd Breta í langan
tíma. Absolute beginners er bvggð á sögu
Colin Macinnes sem segir frá lífi táninga í
London á síðari hluta fimmta áratugarins.
Ój/rúttnir sölumenn vaða uppi og selja tán-
ingum hvers konar tískuvörur. Allt iðar af
lífi og fjöri.
Sagan er sögð í tali og tónum. Ekki síst
er keppst við að hafa allar sviðsetningar sem
glæsilegastar. Önnur eins leiktjöld hafa
ekki sést í kvikmynd síðan Hollvwood söng-
leikirnir voru upp á sitt besta. O’connel og
Kensit standa sig ágætlega í hlutverkum
aðalpersónanna. Vert er einnig að geta höf-
uðpaurs hljómsveitarinnar Kings, Ray
Davis, sem bregður fyrir í litlu en áhrifa-
miklu hlutverki.
Tónlistin í myndinni er í höndum valin-
kunnra tónhstarmanna sem kunna sitt fag.
Reyndar má segja það um flest sem mynd-
inni viðkemur. Absolute
fyrir augu og eyru. Slíkt
á tímum.
beginners
er fremur
er veisla
fáséð nú
Landa-
mæraerjur
JACKALS
Útgefendur: Skouras pict./Skallavideó.
Leikstjóri: Gary Grillo.
Aðalhlutverk: Wilford Brimley, Jack Lucarelli.
Bönnuð börnum.
Fjandinn er laus við landamæri Mexico.
Löggan Jake Wheeler kúgar mexíkanska inn-
flytjendur. Tveir aðrir lögreglumenn reyna
að rétta þeim kúguðu hjálparhönd. Eltinga-
leikir, skotbardagar, fleiri eltingaleikir.
Wheeler liggur í valnum og annar hinna líka.
Þokkalega gerð spennumynd af ódýrari
gerðinni. Helstu veikleikar: Slappt handrit
og heldur hæfileikalitlir leikarar. Skotbarda-
gamir standa þó allténd fyrir sínu.
Tónlist
íþróttir
Hryllingsmynd Fullorðinsmynd
0
Gamanmynd
Vísinda-
skáldsaga
Hasarmynd Fjölskyldumynd
O O
Barnamynd
Astarsaga
Annað