Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Qupperneq 8
30
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986.
Mynd-
bönd
Umsjón:
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
K
DV-LISTINN
[
MYNDIR
1. (1) Indiana Jones
2. (2) Spies Like Us
3. (-) Jagged Edge
4. (4) The Man With One
Red Shoe
5. (3) Fright Night
6. (5) Teen Woolf
7. (6) Runaway Train
8. (8) Subway
9. (7) House
10.(9) Secret Admirer
Indiana Jones er bæði á toppi
DV listans og þess breska. Myndin
fór í toppsæti breska listans meira
að segja í einu stökki. í þriðja sæti
DV listans er komin Jagged Edge.
Annars er myndalistinn nánast.
óbreyttur frá því í síðustu viku.
Frekari myndaútgáfa breytir ör-
ugglega einhverju þar um í næstu
viku.
Á þáttalistanum fara átök um
efstu sæti harðnandi. Eins og er
hefur framhaldið af Return to Eden
vinninginn. Þegar eru komnar út
fjórar spólur af átta. I öðru sæti
er No return, áströlsk saga af óför-
um nokkurra ferðamanna. Hold
the dream er þar með fallin niður
í annað sætið. Ekki er þar með
sagt að sá draumur sé búinn. Emma
og fjölskylda gætu enn sótt á.
-ÞJV
ÞÆTTIR
1. (2) Return to Eden
2. (5) No Return
3. (1) Hold the Dream
4. (3) The Far Country
5. (4) Robbery Under Arms
I BRETLAND I
1. (-) Indiana Jones
2. (1) Teen Wolf
3. (6) Spies Like Us
4. (2) Death Wish 3
5. (7) Frigth Nigth
6. (3) Year of the Dragon
7. (4) Delta force
8. (5) A Nigthmare on Eim
Street
9. (8) Goonies
10.(10) Prizzi’s Honor
Hlegið að Hitler
0
TO BE OR NOT TO BE
Útgefandi: Brooks films/Steinar.
Framieiðandi: Mel Brooks.
Handrit: Thomas Meehan, Ronny Gra-
ham.
Leikstjóri: Alan Johnson.
Aöalhlutverk: Mel Brooks, Anne Banc-
roft.
Öllum leyfð.
Mel Brooks er alveg dæmalaust
heillaður af Hitler heitnum. Eða
öllu heldur, honum finnst afskap-
lega gaman að gera gys að honum.
Þó Brooks hafi verið nokkuð mis-
tækur kvikmyndagerðamaður í
gegnum tiðina, þá flokkast To be
or not to be tvímælalaust í hóp
hans bestu mynda, eins og The
producers, Blazing Saddles og Si-
lent Movie.
Myndin gerist í Póllandi í þann
mund sem síðari heimsstyrjöldin
er að hefjast. Þjóðverjar ráðast inn
i landið og allt er í hers höndum.
Leikhús stórleikarans Frederick
Bronski (Brooks) og konu hans
Önnu (Anne Bancroft) í Varsjá er
í upplausn. Þau eiga meðal annars
í útistöðum við Gestapó sem hefur
þau grunuð um að vinna i þúgu
andspyrnuhreyfingarinnar.
Úr þessu öllu verður hinn
skemmtilegasti farsi sem aldrei fer
úr böndunum. Það kann að stafa
af því að Brooks samdi ekki handri-
tið og lætur Alan Johnson um
leikstjórnina. Myndin er uppfull
af bráðfyndnum atriðum og ein-
stökum persónum. Enginn er betri
en Charles Durning í hlutverki
Gestapóforingja. Hann fer á kost-
um og hlaut að verðleikum útnefn-
ingu til óskarsverðlauna.
Hjónakornin Brooks og Bancroft
sleppa einnig bráðvel frá sínu, í
hlutverki Bronski hjónanna. Einn-
ig er vert að geta George Gaynes
sem leikur frábærlega einn með-
lima leikflokksins.
To be og not to be er bráðhress
gamanmynd. Hún ætti að létta
landanum lund í svartasta skamm-
deginu.
Mel Brooks i eftirlætishlutverki sínu.
Læknir í klípu
STILL OF THE NIGHT
Útgefandi: Warner/Tefli.
Framleiðandi: Arlene Donovan.
Handrit og leikstjórn: Robert Benton.
Aðalhlutverk: Roy Scheider, Meryl Streep.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Sjúklingur geðlæknisins Sam Rice
(Scheider) er drepinn. Eftir fjölmörg viðtöl
veit læknirinn ýmislegt um hagi þess myrta.
Þessar upplýsingar vilja margir komast yfir,
þar á meðal morðinginn. Til að byrja með
grunar lögreglan vinkonu hins myrta,
stúlku að nafni Brooke Reynolds (Streep).
Þegar læknirinn fer sjálfur að rannsaka
málið verður hann margs vísari. Hann
kynnist Brooke og er sannfærður um sekt
hennar fram á síðustu stundu. Annað kemur
á daginn.
Still of the nigth er á heildina litið prýði-
legasta spennumynd. Plottið er kannski
helst til flókið en gengur þó upp í lokin.
Leikstjórinn Robert Benton, sem jafnframt
skrifar handritið, sér til þess. I aðalhlut-
verkunum eru tveir stórleikarar. Scheider
leikur geðlækninn Sam af yfirvegun. Hann
er of rólegur ef eitthvað er. Slíkt er líka
eðli geðlækna. Streep er eins og heimalning-
ur í hlutverki Brooke Reynolds. Persónan
er dularfull, óútreiknanleg og taugaveikluð.
Svoleiðis persónur eru hennar sérgrein.
★★
HeljarmemúÖ
éQmoamiMxtsmitvim -.*<**.
5 *mc<*íT
Luwstrow c*cmt cT&wot «at* xsm«tiw
í*x* i hmp*- wv.
m»fMxami m,wimiG&mm
REMO
Útgefandi: RCA/Skifan.
Leikstjóri: Guy Hamilton.
Aðalhlutverk: Fred Ward, Wilford Brimley.
Bönnuö yngri en 16 ára.
Gamli Bond leikstjórinn, Guy Hamilton,
á heimaslóðum. Hröð ,,aksjónmynd“ þar
sem söguhetjan getur hvað sem er. Eins og
Bond. Upphaflega hét heljarmennið Ed
Makin og var lögreglumaður. Leynileg deild
tók hann hins vegar herskildi, breytti útliti
hans og nafni. Remo Williams skal hann
heita. Kóreskur meistari í sjálfsvörn er svo
fenginn til að kenna honum að berjast að
hætti austurlenskra.
Hér sýnir Hamilton og sannar að hann
hefur engu gleymt á þessu sviði kvikmynda-
gerðar. Remo er frambærilegasta spennu-
mynd. Remo sjálfur er aftur á móti afleitlega
leikinn af Fred Ward. Gamla brýnið, Wil-
ford Brimley, er mun traustari í hlutverki
yfirboðara hans.
★★
Leiðin langa
NO RETURN
Útgefandi: Crawford/Arnar videó.
Framleiðandi: Brendon Lunney.
Handrit: David Boutland.
Leikstjóri: John Power.
Aðalhlutverk: John Waters,* Steve Jakobs.
Bönnuð yngri en 16 ára.
2 spólur
Það er aldeilis ekki tekið út með sitjandi
sældinni að ferðast um óbyggðir Ástralíu.
Það fá tveir glæpamenn að reyna. Þeir stela
ómetanlegri hálsfesti sem fyrir misskilning
lendir í farangri ungrar hjúkrunarkonu.
Hún er á leið í afskekkt þorp einhvers stað-
ar í auðninni. Skiptir það engum togum að
bófarnir taka sér far með sama bíl og stúlk-
an. Síðan taka þeir bílinn herskildi með
farþegum og farangri. Eftir það er andskot-
inn laus.
Þættirnir No return líða mest fyrir lang-
dregið handrit. Ferðin örlagaríka um
óbyggðirnar er alltof löng. Það er fyrst og
fremst magnaður leikur John Waters í hlut-
- verki annars skúrksins sem vert er að gefa
gaum. Sá er ótrúlega kaldriíjaður og drepur
fólk án þess að depla auga. Aðrir leikendur
standa honum nokkuð að baki.
Umhverfið, sem sagan gerist í, er mikil-
fenglegt. Þó er skondið að sjá nýtískulegri
flugvél bregða fyrir í óbyggðunum. Þættirn-
jowk imn ftO«Y srm
WATERS STORM JOWCS JAC08S WAfiöt
XHrSWTHIW ciucxveu,
nr œmott ujmx. tmcno b* jomn
wsimn Brtm&idutuMeitmt i«e ar
mmm mx&xxwi crawforp *»o
ir ku nefnilega eiga að gerast á sjötta
áratugnum.
★★
Hörkutól
THE LAST HARD MEN
Útgefandi: CBS/Steinar.
Leikstjóri: Andrew V. McLagen.
Aðalhlutverk: Charlton Heston.James Coburn.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Tíu ára gamall vestri með tveim harðjöxl-
um af gamla skólanum í aðalhlutverkum.
Charlton Heston leikur lögreglustjóra á eft-
irlaunum hvers dóttir er rænt. Þar er að.
verki James Coburn í hlutverki glæpa-
mannsins. Síðan hefst eltingaleikurinn.
The Last hard men er dæmigerður vestri.
Hvorki betri né verri en gengur og gerist
um þéssa tegund mynda. Gömlu jaxlarnir
kunna rullurnar upp á allar sínar tær og
fingur. Þeir gætu þess vegna leikið hlut-
verkin án handrits eða leikstjóra.
Afþreying upp á gamla móðinn.